Morgunblaðið - 11.12.2002, Qupperneq 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TIL snarpra orðaskipta kom milli ráðherra
Framsóknarflokksins annars vegar og einstakra
þingmanna Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs og Samfylkingarinnar hins vegar í upp-
hafi þingfundar á Alþingi í gær, en tilefni orða-
skiptanna var gagnrýni Jóhannesar Geirs Sig-
urgeirssonar, stjórnarformanns Landsvirkjunar,
á það hvernig vísindamenn og náttúruvernd-
arsamtök hefðu beitt sér gegn fyrirhugaðri
Kárahnjúkavirkjun. Fram kom að í sjónvarps-
viðtölum hefði stjórnarformaðurinn m.a. nafn-
greint þrjá prófessora og sagt að þeir hefðu fórn-
að starfsheiðri sínum í þágu pólitísks málstaðar.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, átaldi
þessi ummæli Jóhannesar Geirs í upphafi þing-
fundarins og spurði Valgerði Sverrisdóttur iðn-
aðarráðherra að því hvort hún styddi stjórn-
arformanninn eða hygðist leysa hann frá
störfum. Ráðherra kvaðst styðja stjórnarfor-
manninn en tók fram að hún bæri ekki ábyrgð á
orðum hans.
Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknar-
flokksins, blandaði sér einnig í umræðuna og
sagðist ekki geta séð annað en að alþjóðlegu
náttúruverndarsamtökin World Wide Fund For
Nature (WWF), sem áður nefndust World Wild-
life Fund, hefðu beitt sér mjög hatrammlega, og
með röngum upplýsingum, gegn Kárahnjúka-
virkjun í samvinnu við aðila hér á landi. Sá mál-
flutningur, þ.e. með því að notast við rangar upp-
lýsingar sem WWF hefðu fengið á Íslandi, hefði
sennilega haft áhrif á það að verktakar hefðu
fallið frá því að bjóða í framkvæmdir við Kára-
hnjúkavirkjun. „Auðvitað er þetta skemmdar-
starf,“ sagði hann og tók síðar fram: „Til að forð-
ast allan misskilning þá mega náttúru-
verndarsamtök og aðrir að sjálfsögðu halda fram
sínum málstað [...] en ég tel það ekki rétt, hvorki
af slíkum samtökum né öðrum, að beita sér með
röngum upplýsingum gagnvart verktökum og
þeim sem hafa hugsað sér að taka að sér verk í
slíku máli.“
Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður VG, vísaði
því á bug að andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar
notuðust við rangar upplýsingar í málflutningi
sínum. Allar þær upplýsingar sem þeir notuðust
við væru réttar. Til dæmis þær upplýsingar að
ekki hefði farið fram verðmætamat á landinu
sem ætti að fórna. „Sömuleiðis hefur þetta fólk
talað um það að mat á umhverfisáhrifum hafi
verið falsað. Það eru líka réttar upplýsingar. Þær
eru ekki rangar,“ bætti Kolbrún við.
Í skjóli ráðherra
Steingrímur J. Sigfússon, hóf umræðuna, eins
og áður sagði, og benti m.a. á að stjórnarformað-
ur Landsvirkjunar talaði sem slíkur, þ.e. sem
stjórnarformaður Landsvirkjunar en ekki sem
einhver einstaklingur úti í bæ. Síðar í um-
ræðunni sagði Steingrímur um stjórnarformann-
inn: „Hann er skipaður af ráðherra og starfar í
umboði ráðherra.“ Steingrímur bætti því síðan
við að það kæmi sér reyndar ekki á óvart þótt
iðnaðarráðherra bæri blak af framsóknarmann-
inum Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni.
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylking-
arinnar, tók einnig til máls og sagði að stjórn-
arformaðurinn umræddi væri kominn langt út
fyrir eðlileg mörk með því að gagnrýna þrjá ein-
staklinga og vega mjög grimmilega að þeim. „Ég
get ekki annað en fordæmt fortakslaust þau um-
mæli stjórnarformannsins. Ég tel að þau hafi
orðið Landsvirkjun til vansa. Ég tel að þau hafi
verið mjög óheppileg fyrir
framgang málsins.“ Kvaðst
Össur þeirrar skoðunar að
iðnaðarráðherra ætti að
hlutast til um það að stjórn-
arformaðurinn bæðist afsök-
unar á sínum ummælum og að
hann drægi þau til baka. Öss-
ur tók þó fram að hann væri
ekki í þeim hópi sem óskaði
eftir því að stjórnarformaður-
inn segði af sér; hann hefði
gert mistök, en það væri
mannlegt.
Össur tók einnig fram að hann og hans flokkur
styddi Kárahnjúkavirkjun og álver við Reyð-
arfjörð. Síðar í umræðunni þakkaði Valgerður
Sverrisdóttir Össuri fyrir þann stuðning.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, er þó einn þeirra þingmanna
Samfylkingarinnar sem ekki hafa stutt stóriðju-
framkvæmdirnar á Austurlandi. Hún ítrekaði
andstöðu sína við þær í umræðunum í gær. Þór-
unn minntist einnig á að stjórnarformaður
Landsvirkjunar sæti í skjóli iðnaðarráðherra.
Hún sagði að iðnaðarráðherra bæri ábyrgð á
skipun Jóhannesar Geirs í embættið og því sem
hann segði í því embætti. Það þýddi ekkert fyrir
ráðherra að kveinka sér undan þeirri stöðu.
Kolbrún Halldórsdóttir, VG, tók tvisvar til
máls í umræðunni í gær, og sagði eins og Þórunn
að stjórnarformaður Landsvirkjunar tjáði sig um
málefni Landsvirkjunar í skjóli iðnaðarráðherra.
Hún sagði að ráðherra ætti að fara fram á það
við stjórnarformanninn að hann bæðist afsök-
unar. Þá ætti ráðherra að hugleiða það að
kannski þyrfti stjórnarfor-
maðurinn að víkja.
Iðnaðarráðherra, Valgerð-
ur Sverrisdóttir, gerði það
m.a. að umtalsefni að sam-
tökin WWF fjármögnuðu
starfsemi Náttúruverndar-
samtaka Íslands. Máli sínu til
stuðnings las hún upp úr
bréfi sem hún sagði frá Árna
Finnssyni, formanni Náttúru-
verndarsamtaka Íslands. „Ég
er hér með bréf undir hönd-
um,“ sagði ráðherra, „frá Árna Finnssyni, þar
sem hann segir: Það gefur auga leið að Nátt-
úruverndarsamtök Íslands hefðu aldrei náð þeim
árangri eða styrk sem þau hafa náð ef þau hefðu
ekki átt kost á að halda starfsmanni með styrk
WWF.“ Valgerður tók einnig fram í umræðunni
að hún tryði því að nú sæi fyrir endann á und-
irbúningi framkvæmda á Austurlandi.
Halldór Ásgrímsson, tók einnig tvisvar til máls
í umræðunni, og sagði m.a. að deilan um Kára-
hnjúkavirkjun hefði, því miður, verið mjög hat-
römm í þjóðfélaginu. „Og vonandi fer henni að
linna.“ Halldór sagði að það væri rétt sem fram
hefði komið að ákveðið hefði verið að fara út í
Kárahnjúkavirkjun reyndist hún arðbær. „Og
það eru allar líkur til þess, eins og tilboð standa
núna, að hún sé mjög arðbær – sem betur fer.“
Halldór sagði að yrði Kárahnjúkavirkjun ekki
byggð myndi hagvöxtur hér á landi væntanlega
verða mjög lítill á næstu árum. „Þetta er því
spurning um það að við getum staðið undir því
velferðarkerfi sem við ætlum okkur. Og þá þarf
yfirleitt að fórna einhverju til.“
Stjórnarandstaðan gagnrýnir ummæli stjórnarformanns Landsvirkjunar
Vilja að stjórnarformað-
urinn biðjist afsökunar
Morgunblaðið/Kristinn
Kolbrún Halldórsdóttir og Einar Oddur Kristjánsson niðursokkin í skriftir og lestur í þingsalnum.
ÞINGFUNDUR hefst kl. 13.30
í dag. Á dagskrá verða at-
kvæðagreiðslur og fyrir-
spurnir til ráðherra.
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra sagði á Alþingi í gær að eft-
irspurn eftir ráðgjöf hjá Ráðgjafar-
stofu um fjármál heimilanna hefði
farið vaxandi síðustu vikurnar. Á
samráðsfundi með lánastofnunum
hefðu komið fram svipaðar upplýs-
ingar. Ráðherra sagði að síðan Ráð-
gjafarstofa um fjármál heimilanna
hefði verið stofnuð árið 1996 hefðu
4.134 fjölskyldur leitað sér aðstoðar
hjá stofunni við að leysa fjárhags-
vanda sinn. Alls 660 fjölskyldur hefðu
fengið ráðgjöf hjá stofunni í fyrra og
það sem af er þessu ári hefðu 762 fjöl-
skyldur fengið aðstoð stofunnar.
Þetta kom m.a. fram í máli ráðherra í
umræðum utan dagskrár um stöðu
lágtekjuhópa.
Jóhanna Sigurðardóttir, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, var málshefj-
andi umræðunnar. Hún sagði m.a. að
biðraðir við húsakynni Mæðrastyrks-
nefndar segðu í rauninni allt sem
segja þyrfti um fátækt á Íslandi. Það
væri átakanlegt að sjá einstæðar
mæður með börn á handleggnum í
biðröð eftir matargjöfum. „Það er
sorglegt að í góðærinu skuli veruleik-
inn vera sá á Íslandi að 160 fjölskyld-
ur standi í biðröð eftir mat á einum
og sama deginum til þess hreinlega
að svelta ekki.“ Jóhanna hafði það
eftir formanni Mæðrastyrksnefndar
að um 700 fjölskyldur á höfuðborg-
arsvæðinu væru í sárri neyð. Sagði
Jóhanna að það væri brýnt að taka
með skipulögðum hætti á fátækt hér
á landi. Mikilvægt væri að láta fara
fram úttekt á umfangi, orsökum og
afleiðingum fátæktar og leggja fram
tillögur til úrbóta sem treystu örygg-
isnet velferðarkerfisins.
Páll Pétursson tók fram að félags-
málaráðuneytið fylgdist að sjálf-
sögðu með þróun efnahagsmála. „Og
við bætum öryggisnetið eftir því sem
við teljum þurfa og samstaða verður
um,“ sagði hann og minnti m.a. á ný-
lega kjarabót til aldraðra og öryrkja,
vegna samkomulags ríkisstjórnar-
innar og eldri borgara. Þá minnti
hann á að hækkun atvinnuleysisbóta
kæmi til framkvæmda um áramótin.
Það hefði þó ekki verið ákveðið hve
mikil hækkunin yrði. Ráðherra tók
einnig fram að ef í ljós kæmi að sár
fátækt ykist marktækt hér á landi
yrði það að sjálfsögðu rætt í ríkis-
stjórninni.
Sífellt fleiri leita til Ráðgjafar-
stofu um fjármál heimilanna
Sérákvæði
um heimild
til vinnslu
ættfræði-
upplýsinga
NÝTT frumvarp Sólveigar Pét-
ursdóttur dómsmálaráðherra
um breytingu á lögum um per-
sónuvernd og meðferð per-
sónuupplýsinga, felur í sér að í
lögin verði sett sérákvæði um
heimild til vinnslu ættfræði-
upplýsinga. Þó eigi heimildin
ekki að ganga lengra en nauð-
syn krefji. Ríkisstjórnin hefur
samþykkt að leggja frumvarpið
fram á Alþingi sem stjórnar-
frumvarp.
Í minnisblaði ráðherra segir
að nauðsynlegt þyki, í samræmi
við ábendingu stjórnar Per-
sónuverndar, að styrkja laga-
stoð hefðbundinnar vinnslu
ættfræðiupplýsinga. Slík
vinnsla falli undir gildissvið
persónuverndarlaga og er því
einungis heimil að tilteknum
skilyrðum fullnægðum. Hins
vegar þyki vinnsla ættfræði-
upplýsinga hafa sérstöðu um-
fram vinnslu annarra persónu-
upplýsinga, en fyrir henni sé
rík hefð hér á landi og ætt-
fræðiáhugi almennings mikill.
Megi því telja að flestir séu
hlynntir því að ættfræðingar og
áhugamenn um ættfræði sinni
áfram iðju sinni eins og verið
hefur.
Í frumvarpinu er ennfremur
lagt til að ákvæði um svonefnda
„rafræna vöktun“ verði skýr-
ari. Eigi þau að taka til vökt-
unar sem leiði, eigi að leiða eða
geti leitt til vinnslu persónu-
upplýsinga. Skuli slík vinnsla
lúta ákvæðum laganna sem og
önnur vinnsla persónuupplýs-
inga. Þá skuli teljast til raf-
rænnar vöktunar svonefnd
sjónvarpsvöktun, þótt hún
hvorki leiði né geti leitt til
vinnslu persónuupplýsinga.
Raforkulaga-
frumvarpið
Breytingar
áfram til
skoðunar í
þingflokkum
Raforkulagafrumvarp iðnað-
arráðherra var ekki afgreitt í
þingflokkum ríkisstjórnar-
innar í gær en eins og fram
kom í Morgunblaðinu í gær
átti að taka frumvarpið fyrir
á aukafundum þingflokkanna
í dag.
Farið var yfir frumvarpið
með þeim breytingum sem
samkomulag hefur náðst um
milli forystumanna stjórnar-
flokkanna á þingflokksfundi
Framsóknarflokksins í gær,
að sögn Kristins H. Gunn-
arssonar, formanns þing-
flokks framsóknarmanna.
Hann segist gera ráð fyrir að
frumvarpið verði afgreitt
samhliða úr báðum stjórnar-
þingflokkunum. „Það voru
kynntar breytingar sem eru
ætlaðar til þess að vera lík-
legar til að ná meiri sátt um
málið. Menn eru að fara yfir
það,“ sagði hann. Sagði Krist-
inn hugsanlegt að frumvarpið
yrði afgreitt af þingflokkun-
um í dag.