Morgunblaðið - 11.12.2002, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 11.12.2002, Qupperneq 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 11 ÚTSALA - ÚTSALA Dæmi um verð: Áður: Nú: Vatterað vesti 4.100 1.900 Prjónavesti 4.500 2.700 Bómullarpeysa 4.600 2.800 Jakkapeysa rennd 5.800 2.900 Bolur m. satínkraga 2.800 1.200 Slinkybolur 3.400 1.900 Tunika 3.600 1.900 Jakkapeysa m. loðkraga 4.300 2.600 Skyrta m. fellingum 3.900 1.900 Gallajakki 4.800 2.900 Dömujakki 6.400 2.900 Kápa m. loðkraga 6.500 3.900 Pils 3.700 2.300 Rúskinnsbuxur 8.900 4.400 Herraskyrta 4.000 2.400 Herrapeysa 6.100 2.900 Herramokkajakki 8.900 4.900 ...og margt margt fleira stærðir 36-52 hefst í dag 40—60% afsláttur Síðumúla 13, sími 568 2870, 108 Reykjavík. Opið frá kl. 10.00-18.00 Vissir þú? Vissir þú að Bandaríkjamenn eru sérlega hræddir um að fiskbein festist í hálsi sér, einkum barnanna, er þeir borða fisk? Vissir þú að eldhuginn Jón Gunnarsson, fyrsti forstjóri Coldwater í Bandaríkjunum, lét þess vegna beinhreinsa fiskflökin heima á Íslandi og skaut með því keppinautunum ref fyrir rass? Þessi gæðamunur vann íslenskri framleiðslu það markaðsforskot að fljótlega var hægt að selja hana mun hærra verði en aðrir framleiðendur gátu krafist fyrir óbeinhreinsuð flök. Um þetta má lesa í bókinni Úr verbúðum í víking vestan hafs og austan eftir Ólaf Guðmundsson frá Breiðavík. Ólafur starfaði hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna í rúmlega 40 ár og gegndi þar fjölmörgum trúnaðarstörfum. Hann hefur frá mörgu mjög forvitnilegu að segja. Texti hans er bæði aðgengilegur, gagnorður og með vestfirskum húmor. Vestfirska forlagið auglýsir bækur sínar hvorki sem einstakar né stórkostlegar, en við mælum sérstaklega með þessari bók fyrir hvern sem er. FJÁRHAGSVANDA framhalds- skólanna vegna ársins 2002 verður mætt að fullu og uppgjör vegna árs- ins mun venju samkvæmt fara fram fljótlega eftir áramótin. Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra segir ljóst að fram hafi komið í sumar óvænt og ófyrirséð fjölgun nemenda á framhalds- skólastigi. Nemendur sem innrituðust í skólana hafi verið miklu fleiri heldur en stærð þeirra árganga sem voru að komast á aldur til að hefja fram- haldsskólanám gaf til- efni til. Það hafi komið starfsmönnum ráðu- neytisins í opna skjöldu. „Framhalds- skólarnir vöktu athygli okkar á þessu og ráðuneytið hefur fylgst eins grannt með þessari þróun nemendafjöldans núna í haust og vetrarbyrjun eins og hægt er. Niðurstaða talningar, sem nú hefur verið endurtekin, bendir til þess að nemendur verði rúmlega 600 fleiri en gert var ráð fyrir í fjárlögum þessa árs.“ Áætlun 330 milljónir Áætlaður kostnaður vegna þessa nemur rúmlega 330 milljónum króna, að sögn ráðherra. „Þegar litið er til þess sem við höfum til ráðstöfunar, m.a. í fjár- aukalögunum sem nú liggja fyrir, þá er ljóst að við höfum til ráðstöf- unar 330 milljónir króna til að mæta þessum vanda sem hlýst af nemendafjölgun. Þess vegna er hægt að fullyrða að vanda framhaldsskólanna vegna ársins 2002 verður mætt að fullu.“ Nokkuð hefur verið fjallað um uppsafnaðan fjárhagsvanda fram- haldsskólanna og um um síðastliðin áramót nam hann um 330 milljón- um króna, þ.e. þegar skuldir voru dregnar frá rekstrarafgangi þeirra. Tómas Ingi segir að þessar nettó- skuldir hafi aukist um 50 milljónir á árinu 2001 sem þýðir í raun að hér sé að mestu leyti um eldri skuldir að ræða. „Fjárhagsvandi fram- haldsskólanna er í raun takmark- aður við nokkra skóla og mennta- málaráðuneytið hefur nú til sérstakrar athugunar mál þeirra skóla sem verst eru staddir. Við munum einbeita okkur að því að leggjast yfir stöðu þessara skóla og velta upp úrræðum í málefnum þeirra nú á næstu vikum.“ Hann segir að varðandi fjárlög næsta árs sé ljóst að gera þurfi ráð fyrir aukinni aðsókn í framhalds- skólana og hún hafi breytt að talsverðu leyti forsendum fjár- lagagerðarinnar. Ráðuneytið hafi nú á haustmánuðum verið að vinna að því að und- irbúa viðbrögð við þessum útgjaldaauka. Hins vegar liggi ekki fyrir jafnnákvæmar upplýsingar um þetta og fyrir árið í ár vegna þeirrar óvissu sem er í tengslum við nem- endafjölda á næsta hausti. „En það er mat ráðuneytisins að fjölgun nemenda á árinu 2003 kalli á aukin framlög sem gætu numið 200–300 milljónum króna. Við afgreiðslu fjárlaga 2003 fengust 170 milljónir sérstaklega til viðbótar þeim fjármunum sem ráðuneytið hefur til ráðstöfunar til að mæta þessari nemendafjölgun.“ Hann segir að þessu til viðbótar muni ráðuneytið veita100 m. kr. til þess að mæta nýjum áherslum sem enduspeglast í nýja reiknilíkaninu sem dreifi fjárveitingum hins opin- bera til framhaldsskólanna og verið sé að taka í notkun. „Þessi fjárhæð verður notuð til þess að milda áhrif þessa nýja reiknilíkans. Þess vegna gerum við ráð fyrur því að þessir fjármunir sem ég hef nú nefnt muni koma til móts við þessar þarfir sem þarna eru, annars vegar vegna nemenda- fjölgunarinnar og hins vegar vegna nýja líkansins.“ Þess má geta að heildarútgjöld til framhaldsskólanna samkvæmt fjár- lögum næsta árs eru 10,2 milljarðar en eru 9,7 milljarðar fyrir árið í ár þegar tekin eru saman fjárframlög til framhaldsskólanna samkvæmt fjárlögum og fjáraukalögum. Enginn flatur niðurskurður Tómas Ingi segir að fram hafi komið, m.a. í umræðum á Alþingi, að það væri um að ræða 370 m. kr. flatan niðurskurð í fjárlagafrum- varpinu til framhaldsskólanna. Það sé hins vegar ekki rétt. „Það er enginn flatur niður- skurður í fjárlagafrumvarpinu og ég hygg að þessi misskilningur sé upp kominn vegna þess að það er hægt að líta svo á að ef það væri komið til móts við ýtrustu kröfur í hinu nýja reiknilíkani þá gæti það hafa kostað allt að 370 milljónir til viðbótar. Þær 370 milljónir hafa hins vegar aldrei verið inni í fjár- lögunum þannig að það er ekki um neinn niðurskurð að ræða.“ Nýja reiknilíkanið mun komast í gagnið í áföngum og verður fyrsti áfanginn tekinn upp á næsta ári. Tómas Ingi undirstrikar að ráðu- neytið muni sjá til þess að skólunum verði auðveldaðar þessar breyting- ar. Hann segir að reiknilíkanið sé gert til að fjárflæði til skólanna sé í samræmi við almenn viðmið og að síðan sé reynt að byggja inn í þau viðmið hvernig tekið sé á einstök- um skólum. Sumir skólar séu til að mynda mjög smáir og eigi erfitt með að nýta sér hagræðingu stærð- arinnar. Hann bendir á að reiknilík- anið hafi verið gagnrýnt á grund- velli þess að það tæki ekki nægjan- lega á fjárveitingum til verknáms og þess vegna hafi verið reynt að leiðrétta það. Hann bendir enn fremur á að breytingarnar hafi ver- ið kynntar sérstaklega fyrir for- stöðumönnum skólanna á fundi í Reykholti og þar hafi menn ekki orðið varir við annað en að sátt væri um þær. „Ég held að það muni koma í ljós á næsta ári hvernig þetta reynist og næstu tvö ár gætu orðið verðmætur reynslutími fyrir þetta nýja líkan. Við gerum okkur grein fyrir því að svona mælitæki þarf alltaf að endurskoða með vissu millibili en það má heldur ekki endurskoða það of oft,“ segir Tómas Ingi Olrich. Ófyrirséð fjölgun nemenda í framhaldsskólum kom ráðherra á óvart Tekið verður á fjárhags- vanda framhaldsskóla Tómas Ingi Olrich ÞEIR sem hafa þegið fjárhags- stuðning frá Félagsþjónustunni í Reykjavík undanfarna sex mánuði eða lengur munu fá 15.530 krónur í jólauppbót fyrir þessi jól. Þetta var samþykkt á fundi borgarráðs í gær. Segir í bréfi félagsþjónustunnar að undanfarin ár hafi öryrkjum og þeim launþegum sem hafa notið fjárhagsstuðnings frá Félagsþjón- ustunni í Reykjavík ekki verið reiknaðar til tekna þær jólaupp- bætur sem þeir hafa fengið. Með því móti hafi verið viðurkennt að desembermánuður sé einstakling- um og fjölskyldum dýrari í fram- færslu en aðrir mánuðir ársins. Því sé eðlilegt að langtímanot- endur fjárhagsaðstoðar Félags- þjónustunnar fái sérstakan fjár- hagsstuðning í þessum mánuði. Þeir sem fá jólauppbót nú eru eingöngu þeir sem hafa fjárhags- stuðning Félagsþjónustunnar að lifibrauði. 15.530 krónur í jólauppbót

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.