Morgunblaðið - 11.12.2002, Síða 13

Morgunblaðið - 11.12.2002, Síða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 13 GREININGARDEILD Landsbanka Íslands hefur sent frá sér umfjöllun um afkomu fyrirtækja á fyrstu níu mánuðum ársins og spá um afkomu þeirra fyrir árið í heild. Vegna árs- tíðabundinna sveiflna gerir greining- ardeildin ráð fyrir auknum rekstrar- tekjum í flestum atvinnugreinum á þessum ársfjórðungi, borið saman við þann síðasta. Í umfjöllun bankans kemur fram að samanlagður hagnaður fyrirtækja í Kauphöll Íslands hafi batnað veru- lega á fyrstu mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra, eða úr 2,2 milljörðum króna í 34,7 milljarða króna. Aukningin segir greiningar- deildin að sé að mestu til komin vegna mikilla umskipta á bókfærðum geng- isliðum vegna erlendra lána. Þetta stafi af því að krónan hafi veikst í fyrra, sem leitt hafi af sér gengistap, en hún hafi styrkst í ár. Mesti af- komubatinn hafi verið í samgöngum og sjávarútvegi, en eina atvinnu- greinin sem skilað hafi verri afkomu nú en í fyrra sé sölusamtökin. Af- koma þeirra hafi versnað um 35% milli ára. Aukin framlegð í sjávarútvegi Greiningardeild Landsbankans spáir því að framlegð sjávarútvegs aukist lítillega á þessum ársfjórðungi frá þeim síðasta, veiðar muni aukast vegna þess að kvótaárið byrji í sept- ember og útgerðir hafi því meira svigrúm til veiða. Betri nýting náist því út úr skipum og landvinnslu. Ekki sé þó gert ráð fyrir verulegri breyt- ingu á afkomu milli ársfjórðunga, því afurðaverð hafi farið lækkandi að undanförnu. Spáð er lækkandi framlegð hjá fyr- irtækjum í olíudreifingu vegna sam- dráttar í tekjum, en salan dragist að jafnaði saman í síðasta fjórðungi árs- ins. Gert er ráð fyrir lægri framlegð fyrir árið í heild, en að vegna geng- isliða muni afkoman batna frá fyrra ári. Spáð er auknum hagnaði hjá SÍF á þessum ársfjórðungi miðað við þann síðasta, en framlegð SÍF hafi lækkað talsvert á árinu vegna verri afkomu SIF Brasil og Iceland Seafood France. Gert er ráð fyrir svipaðri framlegð hjá SH og verið hefur, en hún hefur lækkað mun minna en hjá SÍF. Greiningardeild Landsbankans telur að ef af sameiningu sölusamtak- anna tveggja verði muni það skila miklum samlegðaráhrifum og að gera megi ráð fyrir meiri samlegðaráhrif- um en þeim hálfa milljarði króna sem stjórnarformaður SH hafi sagt að sameiningin muni skila árlega. Bætt afkoma iðnfyrirtækja Greiningardeildin spáir því að af- koma iðnfyrirtækja batni talsvert á þessum ársfjórðungi miðað við þann síðasta. Í því sambandi eru nefndar árstíðabundnar sveiflur í sölu hjá Bakkavör og að tilkynningar Össurar og Marels bendi til tekjuaukningar. Greiningardeildin gerir ráð fyrir að bankarnir muni skila verri afkomu en gengið hafi verið út frá fyrr á árinu. Helsta ástæðan sé lækkandi verðbótatekjur vegna lágrar verð- bólgu auk hærri framlaga í afskrift- arreikning. Afkoma tryggingafélaganna það sem af er ári hefur ekki staðið undir væntingum greiningardeildar Lands- bankans og bent er á að bæði Sjóvá- Almennar og Tryggingamiðstöðin hafi gefið út afkomuviðvörun vegna þess að hagnaður á árinu verði minni en upphaflega hafi verið gert ráð fyr- ir. Greiningardeild gerir ráð fyrir að velta Opinna kerfa, Nýherja og Skýrr muni aukast á þessum ársfjórðungi líkt og í fyrra og gert er ráð fyrir hagnaði hjá þeim tveimur fyrst- nefndu, en að Skýrr verði ekki rekið með hagnaði á árinu. Flugleiðir koma á óvart Greiningardeild segir samgöngu- fyrirtækin Flugleiðir og Eimskip hafa gengið í gegnum mikið ferli hag- ræðingar og umbreytinga. Afkoma Flugleiða hafi komið mikið á óvart og mikill bati hafi orðið á rekstri félags- ins. Viðsnúningur hafi einnig orðið í rekstri Eimskipafélagsins, en fram- legð af flutningarekstri sé þó enn óviðunandi. Gert er ráð fyrir að fram- legð Flugleiða á þessum ársfjórðungi verði óveruleg, en hún hafi jafnan verið verulega neikvæð undanfarin ár. Ekki er reiknað með bættri fram- legð af flutningarekstri Eimskipa- félagsins, en hins vegar er reiknað með bættri afkomu sjávarútvegs- sviðs en í síðasta ársfjórðungi. Greiningardeildin reiknar með lækkandi framlegð Landssímans á næstu misserum vegna aukinnar samkeppni. LÍ spáir auknum tekjum Gerir ráð fyrir miklum samlegðar- áhrifum ef SÍF og SH sameinast VISA Ísland hf. virðir ekki reglur sem viðhafðar eru annars staðar, að sögn Gunnars Bæringssonar, fram- kvæmdastjóra Kortaþjónustunnar hf. Hann segir að VISA Ísland hamli samkeppni og láti korthafa greiða fyrir. Þetta eigi hins vegar ekki við um Europay Ísland hf. VISA Ísland reiknar greiðslur, sem það móttekur í íslenskum krón- um og fara í gegnum Kortaþjón- ustuna, yfir í Bandaríkjadali og breytir síðan aftur í íslenskar krónur þegar reikningar eru sendir út. Geng- ismunur getur valdið því að ekki er sama fjárhæð á reikningi viðskipta- vinar og sú sem upphaflega var kvitt- að fyrir. Gunnar segir að VISA Ísland sé með þessu að beita korthöfum í samkeppni á þessum markaði. Af hálfu VISA Ísland eru ekki tald- ar forsendur að sinni til að tjá sig um þessi mál. Ragnar Önundarson, fram- kvæmdastjóri Europay, segir að eins og er snúist greiðslur sem fari í gegn- um Kortaþjónustuna um Bandaríkja- dal. Því sé gengisáhætta til staðar sem korthafar ýmist hagnist eða tapi á. Europay sé með í undirbúningi að þessar færslur geti farið í gegn sem íslenskar krónur, þannig að þær verði ekki reiknaðar yfir í Bandaríkjadali og síðan aftur yfir í íslenskar krónur. Nokkrar vikur muni hins vegar taka að koma þessu í framkvæmd. Skjótari afgreiðsla Kortaþjónustan boðaði samkeppni í kreditkortaviðskiptum fyrir sölu- aðila, í samstarfi við danska greiðslu- miðlunarfyrirtækið PBS Internation- al, í byrjun síðasta mánaðar. Sölu- aðilum sem skipta við Korta- þjónustuna stendur til boða að fá greiðslukortaviðskipti sín uppgerð og endurgreidd tveimur virkum dögum eftir að viðskiptin eiga sér stað. Hjá VISA Ísland og Europay Ísland eru viðskiptin gerð upp 15–45 dögum eft- ir að þau eiga sér stað, nema gegn aukalegri þóknun. Gunnar sagði þeg- ar hin boðaða samkeppni var kynnt, að þjónusta Kortaþjónustunnar yrði allt að 20–40% ódýrari en sambærileg þjónusta VISA Ísland og Europay Ís- land. Eins og færslur erlendis frá Í tilkynningu frá VISA Ísland til korthafa, sem fylgdi síðustu útskrift til þeirra, kom fram að vegna boð- aðrar samkeppni, yrðu færslur frá þeim verslunum sem skipta við hið nýja fyrirtæki sendar til útlanda og innheimtar þaðan á sama hátt og ef korthafinn hefði verið staddur er- lendis og verslað þar. Þá sagði að eins og gilti um allar færslur erlendis frá yrði VISA Ísland að greiða fyrir þær þá dollarafjárhæð sem færslan væri umreiknuð í, og hún væri síðan skuld- færð á reikningsyfirlit korthafans á gengi útskriftardags. Nær öruggt væri því að korthafinn yrði í þessum tilvikum krafinn um aðra fjárhæð en hann skrifaði undir á sölunótuna hjá kaupmanninum. Þá sagði í tilkynn- ingunni að VISA Ísland hefði engin tök á að hlutast til um þessi mál enda væri öllum VISA-aðilum, sem hefðu tilskilin leyfi frá VISA International, heimilt að bjóða þessa þjónustu hér á landi. Bankarnir mismuna Í yfirlýsingu frá Kortaþjónustunni í gær segir að ólík viðbrögð kortafyr- irtækjanna við samkeppni veki at- hygli í ljósi þess að þau séu í eigu sömu aðilanna, þ.e. bankanna. „Þar sem bankarnir gefa út kreditkort beggja fyrirtækja má segja að verið sé að mismuna viðskiptavinum bank- anna,“ segir í yfirlýsingunni. Samkeppni í kreditkortaþjónustu fyrir söluaðila og ásakanir um mismunun Mismunandi afstaða VISA og Europay

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.