Morgunblaðið - 11.12.2002, Side 16

Morgunblaðið - 11.12.2002, Side 16
ERLENT 16 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ GEORGE Herbert Walker Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fað- ir núverandi forseta, virðir fyrir sér líkan af flugmóðurskipi sem nú er í smíðum og mun bera nafn hans. USS George H. W. Bush verður kjarnorkuknúið, 97 þúsund tonn, af Nimitz-gerð, sem eru stærstu her- skip í heimi, og á að taka það í notk- un 2009. Það á að geta siglt á meira en 30 hnúta hraða á klukkustund og haft innanborðs 75 flugvélar. Verður það nútímaútgáfa af flug- móðurskipinu USS San Jacinto, en forsetinn fyrrverandi var á því skipi í síðari heimsstyrjöld og var þá yngsti flugmaður bandaríska flotans. Þetta verður tíunda og síð- asta Nimitz-skipið sem smíðað verður, en það níunda verður USS Ronald Reagan. Áður hafa einar aðalstöðvar CIA og flugvöllurinn í Houston verið kennd við Bush eldra. AP USS George H.W. Bush STJÓRN Hugo Chavez, forseta Venesúela, bauðst í gær til að hefja viðræður við andstæðinga sína um að flýta kosningum eftir að olíuút- flutningur landsins stöðvaðist vegna allsherjarverkfalls sem staðið hefur í níu daga. „Þjóðin stendur frammi fyrir stór- slysi,“ sagði Ali Rodriguez, fram- kvæmdastjóri ríkisolíufyrirtækisins Petroleos de Venezuela, eftir að olíu- iðnaðurinn lamaðist. Tekjur Venes- úela af olíuútflutningnum nema um 70% af öllum útflutningstekjum landsins og verkfallið getur því haft hrikalegar afleiðingar fyrir efnahag landsins. Forsetinn reyndi að beita hernum til að vernda olíuiðnaðinn en honum tókst ekki að halda olíuhreinsunar- stöðvum og höfnum opnum. „Olíuút- flutningurinn og framleiðslan hefur stöðvast og hafnirnar lokast,“ sagði Rodriguez. Venesúela er fimmta helsta olíu- útflutningsríki heims og geti landið ekki staðið við olíusölusamninga sína í mánuðinum er líklegt að það þurfi að greiða andvirði 500 milljarða króna í bætur. Heimsmarkaðsverðið á olíu hefur hækkað síðustu daga vegna verk- fallsins í Venesúela en lækkaði aftur í gær eftir að Chavez léði máls á við- ræðum um kosningar. Cesar Gaviria, framkvæmdastjóri Samtaka Ameríkuríkja, sagði að stjórn Chavez hefði boðist til að hefja viðræður um hvenær efna ætti til kosninga. Gavaria hefur haft milli- göngu um viðræður milli stjórnar- innar og andstæðinga Chavez sem hafa krafist þess að boðað verði taf- arlaust til forsetakosninga. Andstæðingar Chavez sögðust ætla að íhuga tilboð stjórnarinnar en lögðu áherslu á að kosningarnar yrðu að fara fram á fyrsta fjórðungi næsta árs. Skipuleggjendur allsherj- arverkfallsins hafa krafist þess að forsetinn segi af sér. Chavez var steypt af stóli eftir svipað verkfall í apríl en stuðnings- menn hans í hernum komu honum aftur til valda tveimur dögum síðar. Chavez stóð sjálfur fyrir misheppn- aðri valdaránstilraun árið 1992, sex árum áður en hann var kjörinn for- seti. Fjölmiðlabyggingar umkringdar Hundruð stuðningsmanna Chavez umkringdu í gær byggingar sjón- varpsstöðva og dagblaða sem þeir sögðu draga taum andstæðinga for- setans. Embættismenn sögðu að skotið hefði verið á byggingu ríkis- rekinnar sjónvarpsstöðvar og mót- mælendur hefðu ráðist inn í einka- rekna sjónvarpsstöð. Fjölmiðlarnir mótmæltu aðgerð- unum og sökuðu stjórnina og stuðn- ingsmenn hennar um að reyna að hræða þá til undirgefni. Stjórn Chavez ljær máls á því að flýta kosningum Caracas. AFP, AP. Olíuútflutningur Venesúela hefur stöðvast MARGIR eru þeirrar skoðunar að Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefði átt að vera búinn að hljóta friðarverðlaun Nób- els fyrir löngu. Hæfileikar Carters sem sáttasemjara hafi nefnilega skipt sköpum í friðarviðræðum Ísr- aela og Egypta sem haldnar voru í Bandaríkjunum árið 1978. Carter mátti hins vegar bíða í næstum aldarfjórðung eftir því að hlotnast þessi vegsemd – allt þar til í gær en þá fékk hann friðarverð- launin afhent við hátíðlega athöfn í Ósló. Hið sögulega friðarsamkomulag sem náðist í höfn árið 1978 í Camp David í Bandaríkjunum tryggði þeim Menachem Begin, forsætis- ráðherra Ísraels, og Anwar Sadat, forseta Egyptalands, friðarverð- laun Nóbels en sagt er að Carter hafi orðið útundan vegna þess hversu seint norsku Nóbelsnefnd- inni barst tilnefning hans. Örlagarík gíslataka í Teheran Menn hafa oft farið háðulegum orðum um forsetatíð Jimmys Cart- ers. Er þess jafnan minnst að hann sat aðeins eitt kjörtímabil og tapaði forsetaembættinu í hendur Ronalds Reagan í kosningum 1980. Carter var utangarðsmaður í Washington, fékk marga upp á móti sér er hann kom þangað 1976 og ýmsum þótti hann veikur leiðtogi. Einkum skaðaði það möguleika hans á endurkjöri að honum skyldi ekki takast að fá 52 Bandaríkja- menn, sem hnepptir voru í gíslingu í Teheran af írönskum bókstafs- trúarmönnum, leysta úr haldi. Var fólkinu haldið í gíslingu í 444 daga en sleppt nokkrum dögum eftir að Carter lét af embætti. Á hinn bóginn hefur vikuritið Time sagt að Carter sé „besti fyrr- verandi forsetinn sem Bandaríkin hafa átt“. Er þar vikið að þeirri staðreynd að allt síðan Carter lét af embætti forseta hefur hann unnið ötullega að friðar- og mannúðar- málum í heimi hér. Carter hefur ásamt eiginkonu sinni, Rosalynn, rekið Carter-frið- arstofnunina í Atlanta í Georgíu- ríki undanfarna tvo áratugi en þar eru mannréttindamál sett á oddinn, sem og bætt lífsskilyrði í vanþróuðu ríkjunum. Um áttatíu ríki hafa not- ið góðs af starfi stofnunarinnar en hjá henni starfa nú 150 manns. „Það er ekki á forsíðum neinna dagblaða þegar þér tekst að útrýma gíneu-ormum [sníkjudýr sem sest að í mannslíkamanum] í litlu þorpi í Afríku,“ sagði Carter við frétta- menn í Ósló á mánudag. Hann kvaðst hins vegar álíta það „eitt það merkasta sem mér hefur tekist að gera á ævinni“. Carter kom fram á sjónarsviðið sem mikilhæfur sáttasemjari á síð- asta áratug síðustu aldar. Árið 1994 var hann sendur til Norður-Kóreu af hálfu Bandaríkjastjórnar til að stuðla að því að ekki syði upp úr í samskiptum Norður- og Suður- Kóreu vegna meintrar framleiðslu þeirra fyrrnefndu á kjarnorkuvopn- um. Hann kom einnig að friðarumleit- unum í Bosníu-stríðinu 1995 og um sjö ára skeið hefur hann barist öt- ullega fyrir því að endi verði bund- inn á borgarastríðið í Súdan. Hann átti einnig þátt í því á sínum tíma að ekki fór allt í bál og brand á Haítí. Þá hefur Carter farið fyrir kosn- ingaeftirliti í Mexíkó, Perú, Nikar- agúa, Venesúela og á Austur-Tím- or, auk þess sem hann heimsótti Kúbu í maí sl. en á sögulegum fundi með Fidel Castro Kúbuforseta hvatti Carter kommúnistaleiðtog- ann til að taka til hendinni í mann- réttindamálum. Lán í óláni að tapa 1980? Haft hefur verið eftir Carter að hann sé að mörgu leyti ánægður með að honum skyldi ekki takast að bera sigur úr býtum í slagnum við Reagan árið 1980. Tapið hefði nefnilega gert honum kleift að tak- ast á við verkefni, sem hann hefði ekki gert ef hann hefði setið annað kjörtímabil sem forseti. Einn af ráðgjöfum Carters er hann var forseti, Gerald Rafshoon, lítur hlutina þó ekki sömu augum. „Hann hefði getað gert svo margt ef hann hefði fengið annað kjör- tímabil,“ segir hann. Sem mannúðarsinni hefur Carter gagnrýnt núverandi ráðamenn í Washington og margir hafa talið að með ákvörðun sinni nú, að veita Carter friðarverðlaunin, sé norska Nóbelsnefndin að senda George W. Bush þau skilaboð að menn kunni ekki að meta þá stefnu sem hann hefur í utanríkismálum. Sjálfur var Carter reiðubúinn á mánudag til að lýsa óánægju sinni með þá staðreynd að engin ríki virt- ust reiðubúin að setja það á oddinn, að leysa deiluna fyrir botni Mið- jarðarhafs. Sömuleiðis lýsti hann óánægju sinni með afdrif Alþjóða- sakamáladómstólsins, sem Bush hefur beitt sér af alefli gegn. Forsetinn fyrrverandi var hins vegar ekki tilbúinn til að fara hörð- um orðum um núverandi stefnu bandarískra stjórnvalda gagnvart Írak. Bandaríkin ynnu – a.m.k. sem stendur – að því á vettvangi Sam- einuðu þjóðanna að tryggja að ger- eyðingarvopnum Saddams Huss- eins Íraksforseta yrði eytt. Þeirri vinnu, og undir þessum formerkj- um, væri hann hlynntur. „Besti fyrrverandi for- seti Bandaríkjanna“ Ósló, Washington. The Washington Post, AFP. AP Anwar Sadat, forseti Egyptalands, Jimmy Carter, forseti Bandaríkjanna, og Menachem Begin, forsætisráðherra Ísraels, fagna eftir að skrifað var undir friðarsamning Egyptalands og Ísraels í Hvíta húsinu 26. mars 1979. JOSE Manuel Durao Barroso, for- sætisráðherra Portúgals, sagði í London í gær, að Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, gæti gleymt því mark- miði sínu að gera Bretland að for- ysturíki í Evr- ópusambandinu svo lengi sem Bretar tækju ekki þátt í mynt- bandalaginu. Durao Barroso lét þessi orð falla í viðtali við BBC, breska ríkisútvarp- ið, og sagði, að svo lengi sem Bretar stæðu utan við eitt mikilvægasta samstarfssvið Evrópuríkjanna, gætu þeir ekki vænst þess að hafa forystu í mikilvægum málum, til dæmis í varnarmálum og mörgum öðrum. Blair hefur lýst yfir, að hann hyggist efna til þjóðaratkvæða- greiðslu um evruna en ekki fyrr en ljóst er orðið, að hún muni gagnast þeim betur en pundið. Durao Barroso er fyrsti Evrópu- leiðtoginn, sem segir það berum orð- um, að Bretar muni gjalda þess að vera ekki með í myntbandalaginu. Bretar og evran Varaðir við sérstöðu í evrumálum London. AFP. Durao Barroso NORSKA lögreglan stendur enn ráðþrota frammi fyrir bíræfnu ráni, sem framið var í fyrrakvöld, en þá rændu vopnaðir menn peningaflutn- ingabíl í Drammen, að sögn Aften- posten. Seint í fyrrakvöld var jeppa af gerðinni Mitsubishi Pajero ekið í gegnum stálgrindarhlið fyrir aðal- stöðvum öryggisfyrirtækisins Vakt Service í miðborg Drammens en þá voru tveir starfsmenn þess að um- stafla peningum frá ýmsum fyrir- tækjum í borginni. Ræningjarnir, fjórir eða fimm talsins, ógnuðu þeim með vopnum, hlekkjuðu þá og hurfu síðan á braut með peningana í öðrum bíl. Hefur lögreglan engar vísbend- ingar enn um það hverjir þarna voru á ferð. Á árunum 1999 og 2000 voru níu peningaflutningabílar rændir, eng- inn á síðasta ári en tveir á þessu fyrir utan ránið í fyrrakvöld. Bíræfið rán í Drammen ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.