Morgunblaðið - 11.12.2002, Side 22

Morgunblaðið - 11.12.2002, Side 22
LISTIR 22 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Framboð til alþingiskosninga vorið 2003 Þar sem Frjálslyndi flokkurinn efnir ekki til prófkjara vilja stjórnir kjördæmisfélaga gefa áhugasömu fólki kost á að skila inn um- sóknum um sæti á framboðslista í öllum kjördæmum. 6. gr. jafnréttisáætlunar Frjálslynda flokksins hljóðar svo: Við röðun á framboðslista skal reynt að tryggja að hlut- ur kynjanna verði sem jafnastur í fulltrúatölu á Alþingi og í sveitarstjórnum. Því eru konur sérstaklega hvattar til að gefa kost á sér á framboðslista. Umsækjendur skili inn skriflegri umsókn, bréflega eða í tölvupósti til formanns viðkomandi kjördæmisfélags. Æskilegt er að um- sóknir berist fyrir 20. desember nk. Stjórnir kjördæmisfélaganna gera síðan tillögu um uppstillingu á lista og leggja fyrir félagsfundi. Tillaga kjördæmisfélaga verður loks lögð fyrir miðstjórn flokksins til endanlegrar samþykktar. Umsóknir sendist til eftirtaldra: Kjördæmisfélag Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurkjördæm- um norður og suður: Björgvin Vídalín, Stararima 55, 112 Reykjavík. Netfang: bjorgvin.vidalin@islandia.is Kjördæmisfélag Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi: Ásthildur C. Þórðardóttir, Seljalandsvegi 100, 400 Ísafjörður. Netfang: skaftie@snerpa.is Kjördæmisfélag Frjálslynda flokksins í Norðausturkjördæmi: Guðmundur W. Stefánsson, Fremri-Nýpum, 690 Vopnafjörður. Netfang: gwiium@isl.is Kjördæmisfélag Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi: Þorsteinn Árnason, Ártúni 15, 800 Selfoss. Netfang: frambod@visir.is Kjördæmisfélag Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi: Árelíus Þórðarson, Miðvangi 111, 220 Hafnarfjörður. Netfang: allith@mmedia.is Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri flokksins Margrét Sverrisdóttir í síma 822 1996 Í GALLERÍI Sævars Karls stendur yfir sýning sem nefnist „Samruni – Sköpun heildar“ og er samstarfsverkefni listamanna sem starfa á ólíkum sviðum listsköpunn- ar. Sýningin er tileinkuð eldfjallinu Heklu og er haldin í tilefni af ári fjallsins hjá Sameinuðu þjóðunum. Hópurinn sem stendur að baki sýn- ingunni hefur starfað saman í tvö ár við sköpun eldfjallarmiðstöðvar og safns um sögu Heklu sem mun vera á Leirubakka í Landssveit og er sýn- ingin jafnframt kynning á því verk- efni. Þau eru arkítektarnir Hlédís Sveinsdóttir og Gunnar Bergmann sem sáu um hönnun hússins og Vign- ir Jóhannsson myndlistarmaður og Ari Trausti Guðmundsson rithöfund- ur og jarðeðlisfræðingur sem sjá um gerð safnsins. Sennilega er sýningin „Flogið yfir Heklu“, sem var á Kjarvalsstöðum sumarið 2001, mörgum ennþá fersk í minni, en í Sævari Karli er töluvert ólíkt unnið með efnið. Á Kjarvals- stöðum var verið að sýna hvernig Ís- lenskir myndlistarmenn höfðu túlk- að eldfjallið gegnum tíðina, en hér er aftur á móti um blöndu af lista-, hönnunar- og heimildarsýningu að ræða sem fjallar um sögu eldfjallsins sjálfs. Tvær stuttmyndir um Heklu eftir þá Valdemar Leifsson og Halldór Sveinsson eru sýndar daglega í gall- eríinu, á veggjunum hanga ljós- myndir Sigrúnar Eðvarðsdóttur af eldfjallinu ásamt myndum af arkí- tektúr eldfjallamiðstöðvarinnar og á gólfinu er lítill göngupallur úr gleri sem liggur yfir leikhúslega hleðslu af grjóti ofan á rauðum flúorperum og jólaseríum. Þetta er ekki ólíkt „propps“ og er notað í talsvert stærri mæli í sendiráði Íslands í Berlín, ein- mitt til að skapa eldfjallastemmn- ingu. Á miðju gólfinu er svo spegla- skúlptúr sem myndlistarmaðurinn Vignir Jóhannsson notaði við gjörn- ing sem frumfluttur var síðastliðinn laugardag. Vignir hellti litarefnum saman við vatn og glerbrot sem blandaðist á yfirborði speglanna og endurvarpaðist á loft sýningarrým- isins. Með aðstoð tónlistarmannanna Janusar Braga Jakobssonar á trommum og Helga Svavars Helga- sonar sem sá um hljóðblöndun, skap- aði listamaðurinn fallegan óð til eld- gossins. Eflaust hefði verið hægt að ná sterkara sjónarspili í endurvarpi litanna með því að gæta betur að lýs- ingunni í rýminu, en uppákoman, sem að mörgu leyti minnir á vatns- og litagjörninga Halldórs Ásgeirs- sonar, upphefur skynrænan þátt sýningarinnar og myndar gott og nauðsynlegt mótvægi við upplýsing- ar og heimildargerð. Sýningin er í heildina vel heppnuð og metnaður hópsins skilar sér. Hún stendur hins vegar allt of stutt yfir, eða aðeins í eina viku. Frá sýningunni „Samruni – Sköpun heildar“ sem tileinkuð er Heklu. Hekla gýs í Reykjavík MYNDLIST / HÖNNUN / HEIMILDIR Gallerí Sævars Karls Sýningin er opin á verslunartíma og stendur til 13. desember. BLÖNDUÐ TÆKNI ÝMSIR LISTAMENN Jón B.K. Ransu Selkórinn á Seltjarnarnesi Jóla- tónleikar verða í Seltjarnar- neskirkju kl. 20.30. Á efnisskránni eru verk eftir J.S. Bach og einnig verða sungin jólalög eftir íslenska höfunda, m.a. Björgvin Valdimars- son, Ingibjörgu Þorbergs og Magn- ús Eiríksson. Einsöngvari á tónleik- unum er Atli Þór Albertsson. Undirleikarar eru Dagný Björgvins- dóttir á orgel, María Helga Guð- mundsdóttir á fiðlu, Kjartan Valdi- marsson píanó og Richard Korn á bassa. Stjórnandi er Jón Karl Ein- arsson. Goethe-Zentrum, Laugavegi 18 Þýsk gamanmynd frá árinu 1991 verður sýnd kl. 20.30. Myndin, sem fjallar um tímann eftir sameiningu þýsku ríkjanna, naut mikilla vin- sælda í Þýskalandi. Hér segir af austur-þýskri fjölskyldu sem leggur upp í ævintýraferð til Ítalíu með óvenjulega handbók í hanskahólfinu: „Ítalíuför“ eftir Goethe. Leikstjóri er Peter Timm. Myndin er sýnd án texta. Súfistinn, Hafnarfirði Lesið verð- ur úr nýjum bókum kl. 21. Glæpa- og spennusagnahöfundar lesa úr verk- um sínum. Páll Kristinn Pálsson les úr bók þeirra Árna Þórarinssonar Í upphafi var morðið og Ævar Örn Jósepsson les úr bókum sínum Taxi og Skítadjobb. Þá kynnir Steindór J. Erlingsson bók sína Genin okkar. Þá leikur Tómas R. Einarsson og sex manna hljómsveit hans lög af nýútkomnum diski sínum Kúbanska. Garðaberg, félagsmiðstöð eldri borgara að Garðatorgi 7 Sýning á verkum átta leirlistakvenna verður opnuð kl. 13. Konurnar sem sýna verk sín eru nemendur Svetlönu Matusa frá Serbíu en hún hefur kennt leirlist á vegum FAG nú á haustönn. Þá stendur yfir sýning á bútasaumsverkum. Konurnar sem þar sýna verk sín eru allar nem- endur Elísabetar Magnúsdóttur. Sýningarnar verða opnar alla daga nema sunnudaga frá kl. 13–17. Hrásalur, Listaháskóli Íslands, Sölvhólsgötu 13 Jólatónleikar tón- listardeildar verða kl. 20. Flytjendur eru Elfa Rún Kristinsdóttir, fiðla, Melkorka Ólafsdóttir, flauta, og Ragnheiður Bjarnadóttir, píanó. Undirleikarar á píanó eru Anna Guðný Guðmundsóttir og Richard Simm. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is TURNER-verðlaunin umdeildu voru veitt sl. sunnudag og var verðlaunahafinn að þessu sinni breski listamað- urinn Keith Tyson, sem er hvað þekktastur fyrir sér- kennilegar konseptinnsetningar sínar. Hann valdi þó 39 allt að því hefðbundin verk sem framlag sitt til Turner-verðlaunanna – teikningar, skissur og málverk. Turner-verðlaunin eru allajafna umdeild og í ár hafa þau hlotið slæma útreið gagnrýnenda sem lýsa verka- valinu sem því minnst áhugaverða til þessa. Meðal þeirra sem gagnrýnt hafa verðlaunin má nefna Tracy Emin sem tilnefnd var til verðlaunanna 1999, lista- verkasafnarann Charles Saatchi og Kim Howell að- stoðar-menningarmálaráðherra Breta. Tyson er verkfræðimenntaður og segir list sýna byggjast á áhuga á vísindum. Þekktasta verk hans til þessa er eftirmyndir úr blýi af fæðuúrvali Kentucky Fried Chicken skyndibitakeðjunnar, m.a. af kjúklinga- vængjum og -lærum. Auk „hefðbundnu“ verkanna sem Tyson kaus að sýna að þessu sinni má nefna svarta, tölvum hlaðna, plastsúlu en tölvurnar hafa verið forritaðar til að starfa í 33.000 ár. Verkið nefnir hann Hugsuðurinn (eftir Rodin), en verkið telur sekúndurnar í meðalævi- skeiði einstaklings – 76,5 ár. Verkið hefur hins vegar vakið litla hrifningu breskra gagnrýnenda og sagði gagnrýnandi Daily Telegraph Tyson vera uppfullan af sjálfum sér, en gagnrýnandi Times lýsti honum sem Tracey Emin fyrir karlmenn. „Hún velur handavinnu og blaðrar um kærastana en hann er í kúluspili með sameindir alheimsins,“ eru ummælin í Times. ReutersKeith Tyson, verðlaunahafi Turner-verðlaunanna 2002, við eitt verka sinna. Tyson hlýtur Turner-verðlaunin TVÆR konur hlutu styrki Snorra Sturlusonar árið 2003, til þriggja mánaða hvor. Þær eru dr. Galina Glazyrina, fræðimaður í Moskvu, til að fást við rannsóknir á forn- aldarsögum, og Silvia Cosimini, þýðandi í Mantova á Ítalíu, til að vinna að þýðingum á verkum Halldórs Laxness. Alls bárust fjörutíu umsóknir frá nítján lönd- um um styrkinn. Samkvæmt reglum um styrk- ina, sem gefnar voru út 1992, skulu þeir árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræði- mönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best ís- lenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir skulu veittir í þrjá mánuði hið minnsta og mið- ast við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega og dvalarkostnaði inn- anlands. Stofnun Sigurður Nordals aug- lýsir styrkina og tekur á móti um- sóknum. Í úthlutunarnefnd eiga sæti Úlfar Bragason, forstöðu- maður Stofnunar Sigurðar Nor- dals, Ásdís Egilsdóttir dósent og Ingibjörg Haraldsdóttir rithöf- undur. Nefndin hefur nú lokið störfum. Tvær hljóta styrki Snorra Sturlusonar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.