Morgunblaðið - 11.12.2002, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 41
Suðurlandsbraut/Ármúli
TIL LEIGU
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Upplýsingar veitir
Magnús Gunnarsson í
s. 588 4477 eða 822 8242
Til leigu eitt glæsilegasta skrifstofuhúsnæðið í Reykjavík, húsnæði
Orkuveitu Reykjavíkur. Allur aðbúnaður og aðkoma er til fyrirmyndar.
Mjög góð staðsetning, góð aðkoma og næg bílastæði.
Húsnæðið er laust frá og með næstu áramótum.
Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt sérhæft fasteignafélag.
Þú sparar
kr. 6.590
Kynntu þér tilboðin!
Spennandi
bökunar-
tilboð!
Fagra veröld
STÓRMEISTARINN Hannes
Hlífar Stefánsson stóð uppi sem
sigurvegari eftir mikla baráttu á
afmælismóti
Snæfellsbæjar
sem fram fór í
Ólafsvík á laug-
ardaginn. Það
var Taflfélag
Snæfellsbæjar
sem stóð fyrir
mótinu í tilefni af
100 ára afmæli
félagsheimilis
Ólafsvíkur og 40
ára afmæli tafl-
félagsins. Alls tóku 52 keppendur
þátt í mótinu, þar af var fjöldi
Reykvíkinga og margir sterkustu
skákmenn þjóðarinnar.
Fyrst voru tefldar fjórar 7 mín-
útna skákir og síðan fjórar 20 mín-
útna atskákir.
Eftir fimm umferðir höfðu stór-
meistararnir Þröstur Þórhallsson
og Hannes Hlífar náð forystunni
og höfðu lagt alla andstæðinga
sína. Sex manns höfðu síðan vinn-
ingi minna, þeirra á meðal Jóhann
Hjartarson. Hannes bar sigurorð
af Þresti, en varð að lúta í lægra
haldi fyrir Jóhanni í sjöundu um-
ferð. Þeir félagar voru því jafnir og
enduðu með jafnmarga vinninga
eftir að hafa sigrað í síðustu um-
ferð. Tefldu þeir þá tvær fimm
mínútna hraðskákir, þar sem sigur
í mótinu var í veði. Báðum skák-
unum lyktaði með jafntefli. Spenn-
an hélt því áfram og nú var gripið
til bráðabana. Jóhann dró svart,
vann peð og virtist ætla að tryggja
sér sigurinn. Hannes varðist hins
vegar vel og náði að halda jöfnu. Í
næstu bráðabanaskák náði Jóhann
einnig aðeins betra tafli, en lék af
sér þegar honum yfirsást kænn
millileikur Hannesar, sem tryggði
honum sigurinn í þessu æsispenn-
andi móti.
Jafnir í 3.–4. sæti urðu Þröstur
Þórhallsson og Magnús Örn Úlf-
arsson. Björn Þorfinnsson átti
möguleika á að ná þeim, en skák
hans við Halldór Pálsson var um-
deild, en skákstjóri dæmdi hana
jafntefli eftir að Halldór féll á tíma.
Björn hefur hins vegar kært nið-
urstöðuna.
Hjörtur I. Jóhannsson hlaut
unglingaverðlaun. Halldór Pálsson
hlaut verðlaun skákmanna undir
2.000 stigum. Sæmundur Kjartans-
son hlaut verðlaun stigalausra. Auk
þess voru dregin út fjölmörg bóka-
verðlaun í boði Eddu-Miðlunar.
Röð efstu manna:
1. Hannes Hlífar Stefánsson 7 v.
2. Jóhann Hjartarson 7 v.
3.–4. Þröstur Þórhallsson,
Magnús Örn Úlfarsson 6 v.
5.–11. Jón Viktor Gunnarsson,
Páll Þórarinsson, Róbert Harðar-
son, Björn Þorfinnsson, Halldór
Pálsson, Helgi Ólafsson, Magnús
Sigurjónsson 5½ v.
o.s.frv.
Snæfellingar stóðu mjög vel að
öllum undirbúningi og framkvæmd
mótsins og jafnvel var gefið til
kynna, að fleiri mót yrðu haldin
þar í framtíðinni.
Haga- og Melaskóli sigruðu á
Jólamóti grunnskóla
Reykjavíkur
Jólaskákmót grunnskóla, sem
Íþrótta- og tómstundaráð Reykja-
víkur og Taflfélag Reykjavíkur
halda saman, fór fram um helgina.
Að venju var teflt í tveimur deild-
um, eldri deild fyrir 8.–10. bekk og
yngri deild fyrir 1.–7. bekk. Í eldri
deild varð skáksveit Hagaskóla
hlutskörpust með 17½ vinning af
20 mögulegum, en í yngri deild
vann A-sveit Melaskóla yfirburða-
sigur og hlaut 20 vinninga af 24
mögulegum.
Landakotsskóli varð í öðru sæti í
eldri deild með 16 vinninga og Ár-
bæjarskóli í því þriðja með 11½
vinning, en alls tefldu sex sveitir.
Næstu sveitir voru Hlíðaskóli með
9½ vinning, Rimaskóli með 4 vinn-
inga og Langholtsskóli með 1½
vinning.
Skáksveit Hagaskóla skipuðu
eftirtaldir:
1. Dagur Arngrímsson 4½ v.
2. Hilmar Þorsteinsson 5 v.
3. Aron Ingi Óskarsson 4 v.
4. Víkingur Fjalar Eiríksson 4 v.
Skáksveit Landakotsskóla:
1. Benedikt Ö. Bjarnason
2. Dagur Kári Jónsson
3. James Frederick Frigge
4. Finnur Ó. Rögnvaldsson
1. vm. David Frigge
Skáksveit Árbæjarskóla:
1. Guðmundur Kjartansson
2. Árni Jakob Ólafsson
3. Birkir Björnsson
4. Árni Gestsson
1. vm. Sveinn G. Matthíasson
2. vm. Davíð Teitsson
Í yngri deild vann A-sveit Mela-
skóla yfirburðasigur eins og áður
segir og hlaut 20 vinninga af 24
mögulegum. Alls tóku 14 sveitir
þátt í yngri deild. Staða efstu liða
varð þessi:
1. Melaskóli-A 20 v. af 24
2. Rimaskóli-A 15 v.
3. Laugarnesskóli-A 15 v.
4. Breiðagerðisskóli-B 14 v.
5. Melaskóli-B 13½ v.
6. Rimaskóli-C 13 v.
7. Breiðagerðisskóli-A 12½ v.
o.s.frv.
Hlutskörpust stúlknasveita varð
stúlknasveit Melaskóla.
A-sveit Melaskóla skipuðu
þessir skákmenn:
1. Hallgerður
Þorsteinsdóttir 5 v. af 6
2. Haraldur F. Magnús 4 v.
3. Dofri Snorrason 6 v.
4. Árni Snorrason 5 v.
A-sveit Rimaskóla var þannig
skipuð:
1. Hjörvar Steinn
Grétarsson 3½ v. af 6
2. Ingvar Ásbjörnsson 4½ v.
3. Egill G. Steingrímsson 4 v.
4. Einar Þórmundsson 3 v.
A-sveit Laugarnesskóla:
1. Einar Sigurðsson 3 v. af 6
2. Daði Ómarsson 3 v.
3. Vilhjálmur Pálmason 5 v.
4. Ágúst Pálsson 2 v.
1. vm. Benedikt Sigurleifs. 2 v.
Mótsstjóri frá ÍTR var Soffía
Pálsdóttir, en skákstjórar frá TR
voru Ólafur Kjartansson og Ólafur
H. Ólafsson.
Stefán og Davíð á HM
unglinga á Indlandi
Heimsmeistaramót unglinga, 20
ára og yngri, hófst á þriðjudag í
Goa á Indlandi. Tveimur umferðum
er lokið. Í fyrstu umferð lagði Stef-
án Kristjánsson heimamanninn
G.N. Gopal (2.174), en Davíð Kjart-
ansson gerði jafntefli við norska al-
þjóðlega meistarann Harald
Borchgrevink (2.174). Í annarri
umferð gerði Stefán jafntefli við
Indverjann G. Rohit (2.319), en
Davíð tapaði fyrir Grikkjanum Di-
mitrios Mastrovasilis (2.460).
Hannes Hlífar sigraði á
afmælismóti Snæfellsbæjar
dadi@vks.is
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar
Stefánsson
SKÁK
Ólafsvík
7. des. 2002
AFMÆLISMÓT SNÆFELLSBÆJAR