Morgunblaðið - 11.12.2002, Page 44

Morgunblaðið - 11.12.2002, Page 44
FÓLK Í FRÉTTUM 44 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ HLJÓMSVEITIN Mír lét fyrst á sér kræla á safnskífu fyrir tveimur árum og gaf líka út lag á síðasta ári. Þessi breið- skífa er svo fyrsta plata þeirra félaga og bendir til þess að þeir hafi svo- sem verið vel til- búnir til að gera slíka skífu, í það minnsta hljómar hún býsna fagmannlega, lögin flest skemmtileg og vel flutt. Tónlist Mír er eiginlega mitt á milli þess að vera poppað rokk á við það sem þeir 200.000 naglbítar eru hvað frægastir fyrir og síðan rokk- að popp á við það sem sveitir eins og Land og synir stunda. Þannig eru lögin „Snúrustaur“ og „Steypi- bað“ nokkuð dæmigert sveitaballa- popp, en „Augnablik“ aftur á móti vel rokkað lag þótt það sé grípandi. „Tilraunaraun“ siglir svo lygnan sjó þar á milli, vel heppnað lag. Lokalag plötunnar, „Heyrðu mig aftur“, er líka harla gott, vel fléttað saman kassagítarstemmningu og rafrokki og klifunin kemur vel út í lokin. Ívar Bjarklind er ágætis söngv- ari, ekki fjölhæfur en fer vel með. Hann á það til að syngja svo lág- stemmt að illt er að greina orðaskil, eins og í upphafslagi plötunnar, Ör- lagi, og Augnabliki, svo dæmi séu tekin, en þess á milli syngur hann jafnan vel með skýra framsögn. Textar sveitarinnar eru upp og ofan, allt frá því að vera þokka- legir, eins og í Snúrustaur, í það að vera bara óskiljanlegir, eða þar um bil, sjá Hvernig sem viðrar, sem er nokkurn veginn hægt að skilja, og Sáraeinfalt. Aðrir eru bulllegir að mestu, með stöku skiljanlegri hendingu inn á milli, en síðan er líka heimskuleg smekkleysa eins og Steypibað. Þetta er óneitanlega nokkur galli á skífunni og reyndar sá helsti. Þessi frumraun Mír lofar býsna góðu, tónlistin er skemmtileg og flutningur vel heppnaður. Líklegt þykir mér að Mír eigi eftir að ná ágætum árangri í framtíðinni, ekki síst ef textar batna. Umslag plötunnar er einfalt og vel saman sett. Tónlist Poppað rokk og rokkað popp Mír Tilraunaraun Mír Tilraunaraun, frumraun hjómsveitarinnar Mír. Sveitina skipa Ívar Bjarklind sem syngur og leikur á gítar, Unnar Árnason sem leikur á bassa og Ómar Árnason sem leikur á trommur. Axel Árnason, Ró- bert S. Rafnsson og Úlfur Eldjárn lögðu þeim félögum lið í hljóðverinu, en Axel stýrði einmitt upptökum, annaðist hljóð- blöndun og gerði frumeintak. Ívar semur lögin, einn eða með Unnari, og alla texta. Árni Matthíasson Í umsögn um frumraun Mír segir að sveitin lofi býsna góðu, tónlistin sé „skemmtileg og flutningur vel heppnaður“. EF einhvern tíma hefur verið samin landamæralaus tónlist þá er það þessi fyrsta plata Hafdísar Bjarnadóttur raf- gítarleikara. Öll skil á milli há- og lágmenningar, sí- og núgildrar tón- listar eru látin lönd og leið, stefnum er hrært saman blygðun- arlaust og öllum skilgreiningum gefið langt nef. Á Nú er einfaldlega að finna tónlist. Og það frábærlega góða og skemmtilega. „Ég leitast við að taka flókna hljóma og gera þá aðgengilegri og eyrnavæna,“ sagði Hafdís í viðtali við þetta blað sunnudaginn 20. október síðastlið- inn, nokkuð sem henni tekst lygi- lega vel á þessari plötu. Lagalistinn byggist á burtfarar- tónleikum Hafdísar frá FHÍ og tel- ur átta lög, sem eins og áður segir eru þægilega laus við alla merki- miða. Ég hlýt nú samt að mega gera til- raun til að lýsa því sem fram fer á diskinum, líkt og Hafdís gerir til- raunir með sinn efnivið. Hvað segið þið um djass-skotið sýrupopp með endurreisnarblæ og rokkaðri mel- ódíu? Eða tilraunakennt rokkpopp, undir áhrifum frá Beefheart og Zappa, en þó gætt útvarpsvænum eiginleikum með viðkomu í djassi og nútímatónlist? Eða kannski kammer-pönk með djæf-ívafi? Eða … Hafdís fær alltént hörpuleikara, kontratenór, trompetleikara og trommuleikara m.a. til að hjálpa sér við soðið, hvers gæði byggjast í meginatriðum á tvennu: frumlegri úrvinnslu úr því sem höfundi datt í hug að setja niður á blað og hversu ótrúlega áheyrilegt þetta er. Þetta er nokkuð sem ætti ekki að geta gengið en gerir það samt. Meira að segja í spunaköflunum og sýrðustu hlutunum ætti að vera ómögulegt að fæla jafnvel þá varfærnustu frá. En nóg af skrafi, enda eiginlega ekki við hæfi að tala mikið um þessa plötu. Því þetta er bara tónlist … og hún er bara góð. Tónlist Landa- mæralaus tónlist Hafdís Bjarnadóttir Nú Smekkleysa Nú er fyrsta einskífa Hafdísar Bjarna- dóttur rafgítarleikara. Með henni leika Elísabet Waage (harpa), Eiríkur Orri Ólafsson (trompet), Szymon Kuran (fiðla), Ragnar Emilsson (gítar og rafgít- ar), Þorgrímur Jónsson (kontra- og raf- bassi), Kristinn Snær Agnarsson (tromm- ur), Grímur Helgason (bassaklarinett). Einnig söngvararnir Erna Blöndal (sópr- an), Sigurður Halldórsson (kontratenór), Guðlaugur Viktorsson (tenór) og Eiríkur Hreinn Helgason (bassi). Lög eftir Hafdísi nema „Gef þú að móðurmálið mitt“, sem er þjóðlag. Þá er inngangur í laginu „Vafasamt“ byggður á „Heyr himna smið- ur“ eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Upptaka og hljómjöfnun var í höndum Jóns Skugga en Valgeir Ísleifsson hljóðbland- aði. Arnar Eggert Thoroddsen Hafdís Bjarnadóttir ásamt meðreiðarmönnum. Liam Gallagher er kominn með nýjar framtennur eftir að hafa misst þær gömlu í slagsmálum í Þýskalandi í liðinni viku og sýndi þær á tónleikum Oasis í Cardiff um helgina. Hann ber sig vel og ætlar ótrauður halda áfram tónleikaferð með Oasis en áður höfðu menn haft áhyggjur af því að túrnum yrði af- lýst ... Victoria Beckham er fangi á eigin heimili. Kryddpían fyrrver- andi þorir nefnilega ekki fyrir sitt litla líf út úr húsi eftir að upp komst um ráðagerð rúmenskra glæpa- manna um að ræna henni og syni hennar Brooklyn ... Winona Ryder á við heróínfíkn að glíma. Staðhæf- ingu þessa er að finna í dóms- skjölum sem skráð voru í tengslum við réttarhöldin yfir henni en á föstu- dag var hún dæmd til að gegna 480 stunda þegnskyldu fyrir 7. apríl næstkom- andi, fyrir búðarþjófnað. Það þýðir að leikkonan lánlausa þarf að inna af hendi amk. 25 stundir á dag. Fyr- ir dómi kom fram að hún hefur átt við heróínvanda að stríða í 10 ár og er þar að auki háð verkjalyfum. Vegna þessa taldi dómari ekki rétt að refsa henni með fangelsisvist heldur telur brýnna að hún fari nú að byggja líf sitt upp að nýju, m.a. með því að hjálpa sér og öðrum ... FÓLK Ífréttum Winona Ryder Grettissaga saga Grettis leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu Þri 17. des. kl. 20 UPPSELT, sun 29. des kl. 20, HÁTÍÐARSÝNING, nokkur sæti föst 3. jan, laus sæti Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur Í kvöld Félagsheimilinu Klifi, ÓLAFSVÍK, föst 13. des, nokkursæti LOKASÝNING FYRIR JÓL. Sýningarnar á Sellófon hefjast kl 21.00 Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midavefur.is Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00. Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni fyrir sýningu á www.hhh.is Kvöldverður fyrir og eftir sýningar Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd. Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700 Munið gjafakortin! Fös. 13/12 kl. 21 Nokkur sæti, síðasta sýning fyrir jól Lau 28. 12. kl. 21 Jólasýning – Nokkur sæti Föst 3/1 kl. 21 Uppselt Lau 11/1 kl 21 Nokkur sæti Sérstakar jólasýningar! 26. des. kl. 14 laus sæti 29. des. kl. 14. laus sæti 5. jan. kl. 14 laus sæti 12. jan. kl. 14. laus sæti 19. jan. kl. 14. laus sæti Stóra svið SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller Lau 28/12 kl 20, Su 29/12 kl. 20 Sýningum fer fækkandi HONK! LJÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles og Anthony Drewe Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Su 29/12 kl 14 MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fi 12. des kl kl 20 - AUKASÝNING ALLRA SÍÐASTA SÝNING Nýja svið Þriðja hæðin Litla svið Forsalur Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000 HERPINGUR e. Auði Haralds og HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA Lau 28/12 kl 20, Fö 10/1 kl 20 RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Lau 14/12 kl 20, Má 30/12 kl 20 SÓL & MÁNI Nýr íslenskur söngleikur eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR - GJAFAKORT Á TILBOÐSVERÐI TIL JÓLA Frumsýning 11. janúar BROT AF ÞVÍ BESTA - UPPLESTUR OG TÓNLIST Jól í Kringlusafni og Borgarleikhúsi: Rithöfundar lesa - léttur jazz - KK Fi 12/12 kl 20 Arnaldur Indriðason, Einar Már Guðmundsson, Einar Kárason, Guðrún Eva Mínervudóttir, Stefán Máni og Þórarinn Eldjárn. JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov frekar erótískt leikrit í þrem þáttum Su 29/12 kl 20 JÓLAGAMAN Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum í leikbúningi ofl. Lau 14/12 kl 15:00 Su 15/12 kl 15:00 - Aðeins kr. 500, ELEGIA - FJÖGUR DANSVERK Pars pro toto - Rússibanar - Benda Fö 13/12 kl 20, Lau 14/12 kl 20 GJAFAKORT Í LEIKHÚSIÐ - FRÁBÆR JÓLAGJÖF Hversdagslegt kraftaverk eftir Évgení Schwarz Leikstjóri: Vladimir Bouchler. Frumsýning fös. 13.12. kl. 20 uppselt 2. sýn lau. 14.12. kl. 19 laus sæti. Barn fær frítt í fylgd með fullorðnum í leikhúsið yfir jólin. Miðasölusími sími 462 1400 www.leikfelag.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.