Morgunblaðið - 11.12.2002, Side 45
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 45
Axel Axelsson verður með morg-
unþætti á nýju stöðinni og einnig
verður Valdís Gunnarsdóttir með
þátt, að sögn Brynjars Más Valdi-
marssonar, útvarpsstjóra og eins
eigenda.
Hann vill minna á að þetta sé
„eina íslenska stöðin í heiminum“
og segir stöðina í jólaskapi þessa
dagana.
ÍSLENSKA stöðin, FM 91,9, er
komin í loftið og var opnunarteiti
haldið af því tilefni um helgina.
Margir mættu á staðinn til að fagna
en Íslenska stöðin stendur undir
nafni og spilar eingöngu íslenska
tónlist.
Valgeir Magnússon og Sigurður
Hlöðversson, eða Valli sport og
Siggi Hlö, voru á meðal þeirra sem
fögnuðu tilkomu Íslensku stöðv-
arinnar. Ekki ætti það að koma á
óvart í ljósi þess að þeir eru með
þátt á systurstöðinni, Steríó 89,5,
og eru jafnframt meðal eigenda
stöðvanna.
Ný íslensk útvarpsstöð í loftið
Morgunblaðið/Sverrir
Siggi Hlö og Valli sport létu sig ekki vanta á opnunina enda eru þeir meðal
eigenda stöðvarinnar.
Íslenskum
tónum fagnað
Pauline og Paulette
(Pauline & Paulette)
Drama
Belgía, 2001. Skífan VHS. 78 mín. Öllum
leyfð. Leikstjórn: Lieven Debrauwer.
Handrit: Lieven Debrauwer og Jacques
Boon. Kvikmyndataka: Michael Van Laer.
Aðalhlutverk: Dora van der Groen, Ann
Petersen, Rosemarie Bergmans, Idwig
Stephane.
ÞESSI frumraun belgíska leik-
stjórans Lieven Debrauwer hefur
vakið mikla athygli og vann t.d.
fjölda verðlauna í sínu heimalandi,
sem og meðal áhorfenda á Cannes-
hátíðinni. Myndin fjallar um systur
sem lifað hafa ró-
lyndislífi í smábæ
í Belgíu og eru all-
ar komnar vel yfir
miðjan aldur.
Pauline er þroska-
skert og hefur
elsta systirin
Marta tekið það
að sér að annast
hana. Hinar tvær
eru of uppteknar af eigin lífsstíl til
að taka slíkar fórnir í mál, Paulette
rekur t.d. voða fína kvenfataversl-
un og syngur í áhugaóperu bæj-
arins á kvöldin, en yngsta systirin
býr í Brussel og á smart heimili
með eiginmanni sínum. Þegar
Mörtu nýtur skyndilega ekki leng-
ur við þurfa hinar systurnar að
taka á sig þá ábyrgð að tryggja
Pauline umhyggju, öryggi og lífs-
hamingju. Þar mæðir kannski mest
á Paulette, því Pauline er haldin
barnslegri aðdáun á „ævintýraleg-
um“ lífsmáta hennar.
Aðal myndarinnar er persónu-
sköpunin, en dregin er upp mjög
raunsæisleg og óupphafin mynd af
þroskaskerðingu Pauline, og túlk-
ar belgíska leikkonan Dora van
der Groen persónuna á sérstaklega
sannfærandi hátt. Þannig verður
vandinn sem systurnar standa
frammi fyrir mun raunverulegri í
augum áhorfenda, sem og þær
blendnu tilfinningar sem þær bera
til Pauline. Kvikmyndagerðarmað-
urinn notar einnig umhverfið til að
gæða myndina lífi, hið bleika og
blómum prýdda umhverfi Paulette
verður táknrænt fyrir ævintýrið í
augum Pauline, um leið og það gef-
ur myndinni sterkan svip. Þetta er
vönduð kvikmynd sem fjallar á lát-
lausan hátt um fjölskyldubönd og
leitina að lífshamingju, sem reynist
t.d. í tilviki Paulette leynast á
óvæntum stöðum. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Ævintýrið
og veru-
leikinn
www.avon.is
Snyrtivöruverslun
opin allan sólarhringinn
PLUS
PLUS
ww
w.
for
va
l.is