Morgunblaðið - 05.01.2003, Síða 36
MINNINGAR
36 SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Amma mín, þú varst
svo fögur að innan sem
utan að orð fá því ekki
lýst. Er ég heyri orðið
glæsileiki dettur mér
þú í hug. Þú varst yndislegasta amma
sem nokkur gæti hugsað sér. Þær
voru ekki fáar stundirnar sem við
barnabörnin fengum að njóta góð-
vildar ykkar afa. Hjá ykkur leið mér
alltaf eins og prinsessu. Ég gleymi
því ekki hversu gott kjöt í karríi þú
framreiddir, síðan fékk ég nammi í
skál ef ég borðaði allan matinn minn
og lá fyrir framan sjónvarpið með
þér og afa. Það kom ekki sjaldan fyr-
ir að þú og ég sofnuðum áður en sjón-
varpsefninu var lokið og bar afi mig
þá upp í rúm.
Alltaf voruð þú og afi til staðar
þegar ég þurfti á ykkur á að halda.
Ég þakka fyrir allar stundirnar sem
ég fékk að vera hjá ykkur. Mér leið
svo vel í Bláskógunum hjá ykkur að
mér hlýnar um hjartarætur er ég
hugsa um þær stundir. Ég mun varð-
veita þær minningar ævilangt.
Þú varst ekki eingöngu amma í
mínum huga. Í mínum huga varstu
líka ein besta vinkona mín. Við þig
var hægt að ræða um allt milli himins
og jarðar. Ég minnist kvöldstund-
anna sem við áttum eftir að afi dó er
við sátum saman í Bláskógunum og
ræddum saman um það að við tryð-
um á líf eftir dauðann. Sú trú veitir
mér styrk í sorginni því ég veit innst
MÁLFRÍÐUR ERLA
LORANGE
✝ Málfríður ErlaLorange fæddist
í Reykjavík 5. júlí
1936. Hún lést á
Landspítala–há-
skólasjúkrahúsi við
Hringbraut 21. des-
ember síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Fossvogs-
kirkju 3. janúar.
inni að afi kom að sækja
þig. Þú varst aldrei full-
komlega hamingjusöm
eftir að hann dó en eins
og þú sagðir sjálf þá
lifðir þú fyrir börnin þín
og barnabörn.
Ég sakna þín svo sárt
amma mín en ég veit að
nú eruð þið afi eitt á ný
og lifið hamingjusöm og
að við munum á endan-
um hittast öll þegar sá
tími kemur. Ég bið þig
að smella stórum kossi
á hann frá mér og segja
honum hversu mikið ég
hef saknað hans. Amma mín ég elska
þig heitar en orð fá lýst og ég bið Guð
að geyma þig, elsku amma mín, þín
Kristín Erla.
Elsku amma mín.
Ég á voða bágt með að trúa því að
þú sért farin frá okkur, þú sem varst
svo hlý og góð og dekraðir við okkur
barnabörnin öllum stundum þegar
við vorum í heimsókn hjá þér í Blá-
skógunum. Þetta var allt svo fljótt að
gerast og fannst mér voða skrítið að
vera að opna jólapakka frá þér núna
á jólunum, eftir að þú varst farin, far-
in á betri stað, farin til afa sem við
söknum öll svo mjög. Margar góðar
minningar á ég um þig sem ég mun
ylja mér við og allar stundirnar sem
við sátum saman og töluðum um svo
margt munu aldrei úr minni mínu
hverfa.
Elsku amma mín, takk fyrir allt og
hvað ég er heppinn að hafa átt svona
einstaka ömmu eins og þig. Farðu nú
í friði í faðm afa, sofðu rótt amma mín
og sjáumst seinna.
Þinn,
Einar Þór.
Elsku amma.
Guð geymi þig og vonandi líður þér
vel hjá Helga afa.
Ég man þegar ég og Tommi gist-
um hjá þér um helgar og við fengum
alltaf gott í matinn. Það var mjög
gaman hjá þér.
Gunnar Helgi.
Mig langar í nokkrum orðum að
minnast æskuvinkonu minnar Mál-
fríðar Erlu sem yfirleitt var kölluð
Malla. Okkar fyrstu kynni voru er við
byrjuðum saman í sjö ára bekk í
Austurbæjarskólanum og höfum við
allar götur síðan haldið vinskapinn.
Malla var einkabarn Fanneyjar Jó-
hannsdóttur og bjó hún á Lindargötu
43A ásamt Jóhanni afa og Helgu
ömmu. Húsið er í minningunni ákaf-
lega fallegt og hýsti gott fólk og ekki
fannst manni minna til búskaparins í
garðinum koma, en þar voru m.a.
hestar. Nú er húsið komið á Árbæj-
arsafn þar sem það hefur öðlast verð-
ugan sess. Við vinkonurnar áttum
margar ánægjustundir saman og
brölluðum margt skemmtilegt. Yfir-
leitt var þó mamma Fanney innan
seilingar og hafði auga með okkur
stöllunum. Malla var hörkudansari
og á unglingsárunum dönsuðum við
mikið og oft og höfðum mjög gaman
af. Malla kynnist ung eiginmanni sín-
um, Gunnari Helga, og eignuðust þau
þrjú mannvænleg börn og eru barna-
börnin orðin mörg og mannvænleg.
Malla og Gunnar Helgi voru ákaflega
samrýnd og missti Malla mikið þegar
Gunnar Helgi féll frá snögglega árið
1999.
Það er því skammt stórra högga á
milli í fjölskyldunni og missir þeirra
Jóhanns Inga, Steindórs og Heiðu,
maka þeirra og barna er mikill. Um
leið og við, ég og fjölskylda mín,
þökkum Möllu samfylgdina og allar
ánægjulegar stundir í gegnum tíðina,
á ég mér því þá ósk að algóður Guð
styrki þau í sorginni og verði þeim
miskunnsamur.
Margrét Árnadóttir.
Það tók mig svolítinn tíma að fá
mig til að setjast niður og skrifa
þessa kveðju. Allt gerðist þetta svo
hratt. Hinn 21. desember hringdi
Arnar og lét mig vita að þér færi
hrakandi. En um kvöldið, einmitt á
sama tíma og ég sagði mömmu hvað
Arnar hefði sagt mér, hringdi hann
aftur og talaði svo ofurhljóðlega og
rólega og sagði: ,,Amma er farin.“
Mín fyrstu viðbrögð voru bara grátur
og ,,nei“, en þá bætti hann við að
þetta væri allt í lagi, nú værir þú hjá
afa.
Ég kynntist þér fyrst, Malla mín,
þegar maðurinn þinn lést. Ég gleymi
því aldrei þegar ég kom fyrst til þín
með Arnari Smára og þú brostir í
gegnum sorgmædd augun og bauðst
mig velkomna á þitt heimili. Þú hafð-
ir þennan styrk sem Arnar Smári
hlýtur nú frá þér. Ég fékk aldrei að
að kynnast Gunnari, eða Helga, eins
og þú kallaðir hann, manninum þín-
um. En við tvær áttum ófáar og góð-
ar stundir saman í eldhúsinu þínu við
kertaljós og mynd af honum og
spjölluðum um hann. Með orðum þín-
um og minningum um Helga varð ég
fyrst vitni að skilyrðislausri ást og
virðingu. En nú ert þú aftur komin í
faðm mannsins þíns, sem þú þráðir
svo mikið, og ást ykkar mun fylgja
börnunum ykkar og barnabörnum
sem þú varst svo stolt af og þreyttist
aldrei á að dást af.
Ég hitti þig síðast fyrir nokkrum
vikum síðan. Stoppið var stutt en ég
lofaði þér að koma aftur eftir prófin.
En kveðjan í dyragættinni í Bláskóg-
unum var sæt og síðasta setning þín
til mín mun alltaf vera mér ofarlega í
huga og hjarta: ,,Heiða, við getum
alltaf verið vinkonur.“ Þú gafst mér
svo góðar og skemmtilegar minning-
ar til að lifa með.
Það er bara engin leið fyrir mig að
lýsa því hve mikið þú hefur kennt
mér og gefið, og ég vona að Guð gefi
mér að ég muni aldrei gleyma því
meðan ég lifi.
Malla (amma), ég mun aldrei
gleyma þér. Takk fyrir allt.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa.)
Mínar dýpstu samúðarkveðjur
sendi ég Arnari Smára, Heiðu, Stein-
dóri, Jóhanni Inga og fjölskyldum.
Álfheiður (Heiða litla).
Hún Malla okkar er farin frá okk-
ur. Söknuðurinn er mikill. Hlutirnir
gerast hratt. Malla var með okkur á
árlegri jólagleði á föstudegi, fór í
„smáaðgerð“, að við töldum, á þriðju-
degi en var öll á laugardegi. Nógu
slæmt var til þess að hugsa að SH
ætti aðeins eftir að njóta starfskrafta
Möllu í eitt ár til viðbótar og þótti
okkur vinnufélögum hennar erfitt að
sætta okkur við þá tilhugsun en það
að við værum að kveðja hana í hinsta
sinn hvarflaði ekki að neinum.
Alltaf var Malla mætt með þeim
fyrstu, hress og kát í bragði. Hún var
ekki aðeins góður vinur, heldur einn-
ig úrræðagóð í vinnu, bæði nákvæm
og rösk. Ekki var verið að draga til
morguns það sem hægt var að gera í
dag. Það var alltaf gott að leita til
Möllu. Hún var ætíð tilbúin að hlusta
og hjálpa til við að leysa hlutina.
Gamli verkstjórinn úr Sjófangi var
aldrei langt undan. Malla var ekki
bara glæsileg kona sem bar sig með
mikilli reisn heldur var hún líka
AFMÆLIS- og minningar-
greinum er hægt að skila í tölvu-
pósti (netfangið er minning-
@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt
um leið og grein hefur borist), á
disklingi eða í vélrituðu handriti.
Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt
er að símanúmer höfundar og/
eða sendanda (vinnusími og
heimasími) fylgi með. Bréfsími
fyrir minningargreinar er 569
1115. Ekki er tekið við hand-
skrifuðum greinum.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein aðalgrein af hæfilegri
lengd á útfarardegi, en aðrar
greinar séu um 300 orð eða 1.500
slög (með bilum) en það eru um
50 línur í blaðinu (17 dálksenti-
metrar). Tilvitnanir í sálma eða
ljóð takmarkast við eitt til þrjú
erindi. Einnig er hægt að senda
örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5–15 línur, og votta
virðingu án þess að það sé gert
með langri grein. Greinarhöf-
undar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsingum
um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til að
þetta komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna frests.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina
Látið minninguna lifa um ókomna tíð á gardur.is!
upplýsingar í síma 585 2700 eða hjá útfararstjórum.
gardur.is
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
MAGNDÍS MAGNÚSDÓTTIR,
Magga Magg frá Patreksfirði,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði mánudaginn
30. desember.
Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnar-
firði þriðjudaginn 7. janúar kl. 15.00.
Kristinn Jónsson,
Þórdís B. Kristinsdóttir, Samson Jóhannsson,
Auður Kristinsdóttir,
Kristinn Samsonarson,
Jóhann Samsonarson,
Magni Þór Samsonarson,
Hugi Hreiðarsson,
Bogi Leiknisson,
Auður Magndís Leiknisdóttir
og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐFINNA MAGNEY GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Reykjarfirði,
Víkurtúni 1,
Hólmavík,
lést á Sjúkrahúsi Akraness á nýársdag.
Kveðjuathöfn verður í Háteigskirkju miðviku-
daginn 8. janúar kl. 15.00.
Jarðsett verður frá Árneskirkju föstudaginn 10. janúar kl. 14.00.
Bjarnveig Elísabet Pálsdóttir, Sævar Hr. Benediktsson,
Jensína Guðrún Pálsdóttir, Eysteinn Gunnarsson,
Páll Lýður Pálsson, Gíslína V. Gunnsteinsdóttir,
Júlíana Ágústsdóttir, Jón Vilhjálmur Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabarn.