Morgunblaðið - 05.01.2003, Side 40

Morgunblaðið - 05.01.2003, Side 40
40 SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ                                                     BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÉG las fyrir nokkru grein í Morg- unblaðinu þar sem haft var eftir Ingibjörgu Sólrúnu borgarstjóra að hún hefði þá hug- mynd að láta rífa Hlemm og hafa aðalstoppistöð- ina á torginu. En lítið hefur heyrst meir um það mál. Það vakna marg- ar spurningar um hvað muni þá verða um allt þetta fólk sem hangir á Hlemmi? Þetta fólk er engir aumingjar hef ég heyrt, dæmi eru til um að margt þeirra sé sprenglært fólk sem hefur orðið fyrir þeirri ógæfu að falla fyr- ir dópi og drykkju. Þetta fólk er ekki fært um að sinna vinnu og margir þeirra eru lýstir öryrkjar, í stað þess að hanga heima hjá sér fer þetta fólk á Hlemm til þess að drepa tímann. Fólk sem hins vegar fer á Hlemm einungis til þess að nota strætisvagnana verður oft vitni að slagsmálum, verður jafnvel fyrir áreitni og fleiru. Veit ég um margt fólk sem gefist hefur upp á strætisvagnakerfinu, ekki einungis út af Hlemmi, heldur einnig sí- breytilegum leiðarkerfum og tíma- setningum sem SVR er þekkt fyrir að gera ár hvert, svo ég tala nú ekki um að margir forðast það að bíða inni á Hlemmi og standa úti í hvern- ig veðri sem er og bíða eftir vagn- inum sínum, margt af þessu fólki endar á því að kaupa sér bíl. Ef borgarstjóri er sífellt með þessar herferðir um að fólk eigi að ferðast með strætó frekar en að keyra bíl þá er ég með smáráðleggingu, það þarf að gera einhverjar róttækar breytingar sem koma öllum aðilum í hag. Ég tel hugmyndina um að rífa Hlemm vera mjög góða, en vitan- lega viljum við ekki svipta þetta ágæta fólk sem hangir þar húsnæði til þess að hanga í. Hvernig væri þá að láta byggja einhverja hangmið- stöð þar sem þetta fólk gæti verið í og eða fundið eitthvað húsnæði fyr- ir slíkt og jafnvel haft einhvern bar í líkingu við gamla Keisarann þar. Kannski myndi jafnvel fólkið sem sækir í krána í Austurstræti jafnvel sækja í þessa hangmiðstöð og myndi það eflaust gleðja verslunar- eigendur í Austurstræti sem hafa kvartað sáran undan ónæði vegna gesta kráarinnar. Ég tel það bara ekki fara saman að hafa strætis- vagnastöð sem hangmiðstöð, það er að vísu ekki bara þetta ágæta fólk sem ég talaði um áðan sem hangir á Hlemmi, heldur hefur það komist í tísku hjá unglingum að hittast þar á kvöldin og hanga þar og hrella aðra sem bíða eftir vögnum. Ég tók einn- ig eftir því að farið er að hafa stund- um öryggisverði á Hlemmi til þess að hindra slagsmál og fleira. Tel ég það ólíklegt að ef Hlemmur yrði rif- inn að þau myndu færa sig niður á stoppistöðina á torginu og hanga þar, húsnæðið er miklu minna og í raun miklu hentugra sem biðskýli fyrir strætisvagna, en óhentugra sem hangmiðstöð. Að lokum vil ég geta þess að ég er meðvitaður um að umræður um Hlemm eru við- kvæmt málefni í dag og ég vona að ég hafi engan sært með þessari grein, en mér finnst vera löngu kominn tími fyrir breytingar af þessu tagi og vona að með þessari grein geti eitthvað farið að þokast áfram í slíkri breytingu, sem verði öllum til hins betra. Ég vill einnig nota tækifærið og óska öllum gleði- legs nýs árs. DANÍEL HALLDÓR GUÐMUNDSSON, prentsmiður, Austurbergi 30. Ný hangmiðstöð! Frá Daníel Halldóri Guðmundssyni: MIG langar að koma á framfæri upp- lýsingum um lélega þjónustu hjá Sporthúsinu í Smáranum. Við vinkonurnar (rétt skriðnar yf- ir þrítugt!) förum reglulega í líkams- rækt og höfum þvælst víða í gegnum árin til að sinna þessu áhugamáli okkar. Við erum búnar að prófa nokkra staði og höfum almennt verið ánægðar. En þrátt fyrir það höfðum við hug á að skipta yfir þegar ný lík- amsræktarstöð var opnuð í nágrenni við heimili okkar, nefnilega Sport- húsið í Smáranum. Við erum vanar þeirri sjálfsögðu kurteisi að fyrsti tíminn í leikfimi sé frír. Það gefur væntanlegum viðskiptavinum tæki- færi á að kynna sér aðstæður áður en fjárfest er til lengri tíma eins og t.d. í kaupum á 3ja mánaða korti. Þegar ég hafði samband við Sporthúsið til að afla mér upplýsinga komst ég að því að hjá Sporthúsinu þarf að borga 950 kr. fyrir stakan tíma, vilji maður kynna sér aðstæður. Reyndar er tek- ið fram að þessi upphæð fæst end- urgreidd sé keypt kort, en aðeins í þeim tilfellum. Við vinkonurnar er- um 5. Það hefði ekki kostað Sport- húsið krónu að bjóða okkur í 1 af þeim leikfimistímum sem þeir eru hvort eð er með í sinni tímatöflu. Í staðinn verða þeir örugglega af hugsanlegum árstekjum upp á 234.000 kr. (árskort – 46.800 x 5=234.000) en það eru þær tekjur sem fyrirtækið hefði af viðskiptum okkar ef okkur hefði líkað prufutím- inn. Það er óþarfi að taka það fram að við erum ekki væntanlegir við- skiptavinir Sporthúsins lengur. Þess í stað munum við segja öðrum frá þessari lélegu þjónustu og þeir segja öðrum og svo koll af kolli. Fyrir okk- ur voru fyrstu kynni Sporthússins á þann veg að okkur langar ekki að kynnast innviðunum lengur, við bara höldum okkar striki og mætum í Sundlaug Kópavogs áfram og til Báru í Lágmúlanum – en fyrir áhugasama bendi ég á að þar er boð- ið upp á fría prufutíma! GUÐRÍÐUR ARNARDÓTTIR, Galtalind 4. Léleg þjónusta Sporthússins Frá Guðríði Arnardóttur:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.