Morgunblaðið - 11.01.2003, Page 2

Morgunblaðið - 11.01.2003, Page 2
ÓLAFUR Örn Har- aldsson alþingismað- ur tilkynnti í gær að hann hygðist hætta þingmennsku en Ólafur hefur verið alþingismaður síðan 1995. Hann sendi frá sér yfirlýsingu um málið, en þar segir: „Ég hef ákveðið að hætta þingmennsku næsta vor og mun því ekki bjóða mig fram á lista Framsóknarflokksins í næstu þing- kosningum. Þrjár ástæður eru fyrst og fremst fyrir þessari ákvörðun. Fyrst er þar til að taka að ég hef alltaf viljað skipta lífsferli mínum í áfanga þar sem hver hluti starfs- ævinnar gæfi áhugaverð og krefjandi viðfangsefni. Þingmennskan er ein- mitt slíkur kafli sem hefur gefið mér ómælda reynslu og ánægju. Tel ég að ég hafi getað látið eitthvað gott af mér leiða í þessu starfi sem mér hef- ur verið treyst fyrir. Nú er komið að því að leggja í næsta áfanga hver sem hann kann að verða. Í annan stað snýr ákvörðun mín að fjölskyldu- og einkahögum og áhuga- málum. Í þriðja lagi finn ég áhuga meðal borgarbúa að stjórnmálaflokkar bjóði fram ungt fólk í bland við þá sem eldri eru á þingi. Ég vona að ákvörð- un mín geti greitt þeim sjónarmiðum leið inn á framboðslista Framsókn- arflokksins ef félagsmenn kjósa að svo verði. Það hefur verið ánægjulegt að starfa fyrir framsóknarmenn á Al- þingi og mun ég vinna dyggilega með þeim í kosningabaráttunni. Ég vil þakka þann eindregna stuðning sem ég hef fengið í annað sætið í Reykja- vík norður og um leið bið ég félaga mína að virða þessa ákvörðun.“ Björn Ingi og Árni Magnússon í framboð? Á næstu dögum munu uppstilling- arnefndir ljúka vinnu við gerð fram- boðslista í norður- og suðurkjör- dæmi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins þykja þeir Björn Ingi Hrafnsson, skrifstofustjóri Framsóknarflokksins, og Árni Magn- ússon, framkvæmdastjóri Framsókn- arflokksins, líklegastir til að skipa annað sætið í Reykjavíkurkjördæm- unum. Ekki mun þó frágengið hvor þeirra verður í framboði í norður- kjördæmi og hvor í suðurkjördæmi. Mun það skýrast á allra næstu dög- um. Ólafur Örn býður sig ekki fram aftur Ólafur Örn Haraldsson FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ALCOA REISIR ÁLVER Stjórn bandaríska álrisans Alcoa samþykkti í gær að reisa 320.000 tonna álver við Reyðarfjörð og einn- ig samþykkti stjórn Landsvirkjunar samning um rafmagnssölu til Alcoa í gær. Álverið á að heita Fjarðaál en gert er ráð fyrir að samningar verði endanlega undirritaðir í byrjun febrúar. Áætlað er að framkvæmdir við álversbygginguna hefjist árið 2005 og að álverið hefji framleiðslu árið 2007. Um er að ræða eina um- fangsmestu fjárfestingu sem ráðist hefur verið í á Íslandi. Segja sig frá sáttmála Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fordæmdi í gær ákvörðun stjórnvalda í Norður- Kóreu um að segja sig frá sáttmál- anum gegn útbreiðslu kjarn- orkuvopna. Norður-Kóreumenn eru með ákvörðun sinni sagðir stefna friði á Kóreuskaga í hættu. Hagnaður hjá Baugi Baugur Group skilaði 8,8 millj- arða króna hagnaði eftir skatta á fyrstu níu mánuðum uppgjörsárs- ins, þ.e. á tímabilinu frá 1. mars til 30. nóvember 2002. Þar réð mestu hagnaður af sölu Arcadia í sept- ember sl., alls um 7,4 milljarðar króna. Ólafur Örn hættur Ólafur Örn Haraldsson, þingmað- ur Framsóknarflokksins í Reykja- vík undanfarin átta ár, tilkynnti í gær að hann ætlaði að hætta þing- mennsku og að hann gæfi ekki kost á sér í framboð vegna kosninga í vor. DeCODE hækkar Gengi hlutabréfa í deCODE, móðurfélagi Íslenskrar erfðagrein- ingar, var 2,97 dalir á Nasdaq- hlutabréfamarkaðnum í New York við lokun í gær. Hækkaði gengið um 41,43% um daginn. Áður hafði bandarískt verðbréfafyrirtæki, JP Morgan, hækkað verðmat sitt á de- CODE og mælir það nú með kaup- um á hlutabréfum í fyrirtækinu. Tveir handteknir Þýska lögreglan handtók í gær tvo menn sem grunaðir eru um að vera meðlimir al-Qaeda-hryðju- verkasamtakanna. Báðir koma mennirnir frá Jemen og er annar sagður vera fjármálastjóri Osamas bin Ladens, leiðtoga al-Qaeda. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 34 Viðskipti 12 Umræðan 34/38 Erlent 16/19 Minningar 39/42 Höfuðborgin 22 Kirkjustarf 43 Akureyri 23 Staksteinar 46 Suðurnes 24 Myndasögur 48 Árborg 25 Bréf 48/49 Landið 24/25 Dagbók 5/51 Heilsa 26 Leikhús 52 Neytendur 27 Fólk 52/57 Úr Vesturheimi 28 Bíó 54/57 Listir 29 Ljósvakamiðlar 58 Forystugrein 30 Veður 59 * * * L a u g a r d a g u r 11. j a n ú a r 2 0 0 3 2003  LAUGARDAGUR 11. JANÚAR BLAÐ B SVO getur farið að Stefan Lövgren, fyrirliði Evrópumeistara Svía og einn albesti hand- knattleiksmaður heims, geti ekki verið á HM í Portúgal. Ann-Sofie Claesson, eiginkona Löv- grens, á von öðru barni þeirra hjóna hinn 26. janúar, sama dag og Svíar mæta Dönum í síð- ustu umferð riðlakeppninnar. Bengt Johanns- son, landsliðsþjálfari Svía, hefur ekki afskrifað að Lövgren komi til móts við liðið og hann kem- ur því líklega til með að halda einu plássi lausu fyrir fyrirliða sinn þegar hann velur end- anlegan hóp fyrir átökin á HM. Svíar leika um helgina tvo æfingaleiki við Júgóslava í Jönköp- ing. Lövgren er í Kiel með eiginkonu sinni og verður ekki með í þessum leikjum en Bengt Jo- hannsson vonast til Lövgren verði með í leikn- um við Íslendinga á fimmtudaginn í næstu viku sem er lokaundirbúningur fyrir HM. Lövgren ekki með Svíum á HM? menn eru með meiri leikskilning en hún. Ég hef trú á að hún geti leikið gegn og með körlum,“ segir Kul- mala. Þess má geta að Wickenheiser reyndi að komast að hjá ítölsku liði en var hafnað af ítalska íshokk- ísambandinu þar sem hún er kona. Reuters Kanadíska stúlkan Hayley Wickenheiser er hér með keppnistreyju sína, sem hún mun klæðast í kappleikjum í Finnlandi. Wickenheiser brýtur ísinn KANADÍSKA íshokkíkonan Hayley Wickenheiser hefur fengið leyfi frá finnska íshokkísambandinu til þess að leika með atvinnumannaliðinu Salamat sem leikur í efstu deild í Finnlandi og hefur fram til dagsins í dag einungis verið skipað körlum. Wickenheiser brýtur þar með ís- inn á þessu sviði en hún er fyrsta konan sem leikur úti á ísnum með karlaliði en áður hafa þrjár konur leikið sem markmenn með íshokkí- liðum. Wickenheiser er 24 ára göm- ul og var áberandi best í gull- verðlaunaliði Kanada á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000 og segir þjálfari finnska liðs- ins að hún sé frábær leikmaður. „Ef hún vill taka áskoruninni og leikur vel þá verður hún mikilvæg- ur hlekkur í þessu liði,“ segir Markku Kulmala þjálfari liðsins sem er staðsett í bænum Salamat sem er með 30.000 íbúa og er 30 km vestur af höfuðborginni Helsinki. Wickenheiser fær eigið búnings- herbergi en félagar hennar í liðinu segja við finnska fjölmiðla að þeir geti ekki þekkt hana frá öðrum leikmönnum þegar hún sé að leika úti á vellinum í öllum „herklæðum“. Kulmala segir að leikmenn liðs- ins hafi gengið úr skugga um að hún þyldi álagið sem fylgir því að leika gegn líkamlega sterkum leik- mönum. „Hún er ekki sú besta á skautunum, skotin eru heldur ekki þau bestu í okkar liði, en fáir leik- Hins vegar fórum við á stundumilla að ráði okkar í opnum fær- um, en í heildina voru jákvæð merki í þessum leik, en það er ljóst að við verð- um að gera miklu betur gegn Dönum,“ sagði Guðmundur. Íslenska liðið mætir Dönum í Hels- inge í dag, en Danir unnu Egypta, 30:20, í gær. Guðmundur sagði að í fyrri hálf- leik hefði verið ekki verið nógu mikil ró yfir mönnum og því hefði íslenska liðið farið of oft illa með upplögð unina á dauðafærunum er eitthvað sem við verðum að vera þolinmóðir yfir og vinna í. Síðan má heldur ekki gleyma því að á bak við sterka vörn varði Guðmundur (Hrafnkelsson) af- ar vel. Saman unnu þessir þættir á tíðum vel saman,“ sagði Guðmundur sem var að mörgu leyti sáttur við sóknarleikinn. „Spilið gekk um margt vel, leikkerfin gengu vel upp og okkur tókst að opna vörn Pólverja upp á gátt alloft. Þrátt fyrir að mörg tækifæri færu í súginn í fyrri hálfleik var ég ánægð- ur með þá þolinmæði sem leikmenn sýna þolinmæði og hafa gaman af því að vera inni á vellinum. Við fundum að vörnin var að smella saman og þegar það gerist þá léttir það á öllu. Það skilaði sér í upphafi síðari hálf- leiks þegar við sögðum skilið við Pól- verjana. Nú er bara að sjá hvar við stöndum gegn hinu frábæra liði Dana, þeir segjast aldrei hafa verið eins góðir og nú. Það er mikil áskor- un að mæta Dönum á þeirra heima- velli í því formi sem þeir eru í. Við verðum að leika af mikill skynsemi gegn þeim, það er deginum ljósara, til þess að eiga í fullu tré við þá verð- um við að eiga mjög góðan leik og bæta það sem aflaga hefur farið í síð- ustu leikjum,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í Farum, í gærkvöldi. Varnarleikur Íslands small saman í Farum „ÞAÐ voru ljósir punktar í þessum leik, einkum í varnarleiknum,“ sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknatt- leik, eftir öruggan sjö marka sigur Íslendinga á Pólverjum í fyrsta leiknum í fjögurra þjóða mótinu á Sjálandi, 29:22. „Að þessu sinni sá maður að vörnin er að komast í gang á nýjan leik.“ Ívar Benediktsson skrifar frá Farum B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A MAREL Baldvinsson landsliðs- maður í knattspyrnu, sem leikur með norska liðinu Stabæk, heldur í dag til Belgíu til viðræðna við forráðamenn belgíska 1. deildar- liðsins Lokeren. Samkomulag er í burðarliðnum á milli Lokeren og Stabæk um að Stabæk láni Marel til Lokeren fram til 30. júní í sumar og fylgir þessu samkomulagi kaupréttur Lokeren á leikmanninum semjist um rétt kaupverð. Hins vegar er ekki um forkaupsrétt að ræða því komi hærra tilboð í Marel frá öðru félagi getur Stabæk tekið því. „Það er rétt að ég er að fara til Belgíu að ræða við Lokeren. Það er of snemmt að segja til um hvort ég gangi til liðs við Lokeren. Ég held að það sé best að segja sem minnst á þessu stigi enda er mér enn minnisstætt þegar fjölmiðlar hér úti sögðu frágengið að ég færi til Nürnberg í Þýskalandi í haust. Ég ætla að sjá hvað kemur út úr þessum viðræðum við Lokeren og skoða í kjölfarið hvað ég geri,“ sagði Marel í samtali við Morg- unblaðið í gær. Þrír íslenskir landsliðsmenn eru fyrir hjá Lokeren – Rúnar Kristinsson, Arnar Þór Viðarsson og Arnar Grétarsson. Liðið er í fimmta sæti deildarinnar eftir 17 umferðir en deildakeppnin hefst þar í landi eftir vetrarhlé 18. þessa mánaðar Lokeren vill fá Marel BORGARAFUNDUR helgaður Kárahnjúkum verður haldinn í Borgarleikhúsinu nk. miðvikudag. Á fundinum, sem ber yfirskriftina Leggjum ekki landið undir, verður katsljósinu beint að ýmsum þáttum Kárahnjúka í tengslum við fyrirhug- aðar virkjunarframkvæmdir. Að sögn Maríu Ellingsen, eins af skipuleggjendum fundarins, byggist tímasetning hans á fundi borgar- stjórnar á fimmtudag í næstu viku þar sem tekin verður afstaða til beiðni Landsvirkjunar um ábyrgðir vegna Kárahnjúkavirkjunar. „Ég held að það sé aldrei mik- ilvægara en þegar mál eru komin á þetta stig að raddir okkar heyrist og það séu alveg skýr skilaboð um það að við erum ekki sammála þessum framkvæmdum,“ segir María. Gert er ráð fyrir að á fundinum verði lögð fram áskorun til borgaryfir- valda um að greiða atkvæði gegn framkvæmdum við Kárahnjúka á fundi borgarstjórnar á fimmtudag. Sérstakur gestur á borgarafund- inum verður Lloyd Austin, fram- kvæmdastjóri Konunglega breska fuglaverndarfélagsins. Aðrir gestir á fundinum verða Hilmar Örn Hilm- arsson, tónlistamaður og allsherjar- goði, Sigurður Jóhannesson hag- fræðingur og Pétur Gunnarsson rithöfundur, auk annarra. Þá munu m.a. koma fram hljómsveitirnar Sig- ur Rós, Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona, og kórarnir Vox Fem- inae, Gospelsystur og Stúlknakór- inn. Fundurinn hefst kl. 20.30 og er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir að því er fram kemur í tilkynningu frá skipuleggjendum hans. Borgarafundur helg- aður Kárahnjúkum Bótakröfur nema 12 milljónum auk vaxta Tveir menn eru ákærðir í málverkafalsanamálinu EFNAHAGSBROTADEILD rík- islögreglustjóra hefur gefið út ákæru á hendur Pétri Þór Gunn- arssyni og Jónasi Freydal Þor- steinssyni vegna málverkafalsana- málsins svonefnda og eru þeir ákærðir fyrir skjalafals og fjársvik. Skaða- og miskabætur og bætur vegna lögfræðikostnaðar nema 12 milljónum auk vaxta. Háttsemi ákærðu varðar sektum eða allt að eins árs fangelsi og í öðru lagi allt að 6 ára fangelsi. Ákært er fyrir falsanir á 103 listaverkum. Pétur Þór Gunnarsson „er sak- aður um að hafa sem fram- kvæmdastjóri og eigandi Gallerís Borgar hf. með skipulögðum hætti blekkt viðskiptavini á listmuna- uppboðum og í verslun fyrirtæk- isins til að kaupa myndverk sem hann bauð eða lét bjóða þar til sölu eftir að hafa falsað upplýsingar sem lutu að tilurð verkanna. Hafði ákærði ýmist falsað eða látið falsa myndverkin og höfundarmerkingu þeirra, í sumum tilvikum með því að mála yfir myndverk annars höf- undar, eða merkt eða látið merkja myndverk óþekktra höfunda með nöfnum þekktra listamanna, í sum- um tilvikum eftir að hafa afmáð eða látið afmá höfundarmerkingu á myndverkum hinna óþekktu“. Margir listamenn Um er að ræða sölu á 32 mál- verkum sem seld voru sem lista- verk Kristínar Jónsdóttur, Þórar- ins B. Þorlákssonar, Jóhannesar S. Kjarvals, Nínu Tryggvadóttur, Jóns Stefánssonar, Guðmundar Thorsteinssonar (Muggs), Júlíönu Sveinsdóttur, Þorvalds Skúlason- ar, Ásgríms Jónssonar, Asgers Jorns og Svavars Guðnasonar. Í öðru lagi er Pétur Þór sakaður um að hafa látið bjóða til sölu í Danmörku 1995 og 1996 tvö fölsuð olíumálverk sem listaverk Svavars Guðnasonar. Í þriðja lagi er hann sakaður um að hafa á árunum 1990 til og með ársins 1996 blekkt Leif Jensen, eiganda Galleri Leif Jen- sen í Kaupmannahöfn, Danmörku, til að kaupa myndverk sem hann bauð til sölu með röngum upplýs- ingum um höfund þeirra. Þá er Pétur Þór sakaður um að hafa falsað eða látið falsa olíumál- verk óþekkts listamanns með því að gera breytingar á málverkinu og afmá höfundarmerkingu lista- mannsins, yfirmála höfundarmerk- ingarsvæði myndflatarins og setja nýja höfundarmerkingu. Jónas Freydal er sakaður um að hafa blekkt viðskiptavini til að kaupa níu myndverk, sem hann hafði ýmist falsað eða látið falsa, og voru þau seld sem listaverk Ás- gríms Jónssonar, Jóhannesar S. Kjarvals, Nínu Tryggvadóttur eða Svavars Guðnasonar á tímabilinu frá 7. mars 1993 til 28. mars 1996. Ennfremur eru Pétur Þór og Jónas Freydal ákærðir fyrir að hafa látið bjóða til sölu falsað olíu- málverk sem listaverk Svavars Guðnasonar á uppboði í Dan- mörku. VEÐRIÐ hefur leikið við landsmenn í vetur og þeir sem vinna við að byggja hús hafa ekki þurft að hafa áhyggjur af því að steypan skemmist vegna frosta. Í gær var verið að steypa við þjónustuíbúð dval- arheimilisins Eirar í Grafarvogi og var ekki að sjá annað en allt gengi vel. Byrjað verður að slá frá strax eftir helgina og reisa ný steypumót fyrir næsta áfanga. Morgunblaðið/Kristinn Gengur vel að steypa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.