Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 50
DAGBÓK
50 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ivan
Shadr kemur í dag.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Þorrablót
félagsins verður laug-
ardaginn 25. janúar.
Sæluvika á Hótel Örk 2.
mars til 7. mars. Skrán-
ing og upplýsingar í
Hraunseli, sími 555 0142.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Opið hús verð-
ur í Gjábakka kl. 14.
Myndasýning, upplestur
og fleira. Kaffi og með-
læti.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in kl. 10–13 virka daga.
Morgunkaffi, blöðin og
matur í hádegi. Nám-
skeið í brids fyrir byrj-
endur hefst 16. janúar,
leiðbeinandi Ólafur Lár-
usson, skráning er hafin
á skrifstofu félagsins.
Skrifstofa félagsins er í
Faxafeni 12, sími
588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf. Í
dag kl. 13–16 myndlist-
arsýning Árna Sighvats-
sonar, listamaðurinn á
staðnum. Á þriðjudögum
eftir hádegi þrívídd-
armyndir, leiðsögn Krist-
ín Hjaltadóttir, á föstu-
dögum kl. 10 kortagerð,
servéttumyndir og fleira,
leiðsögn Óla Kristín
Freysteinsdóttir. Allir
velkomnir. Allar upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma
575 7720.
Gönguklúbbur Hana-nú.
Morgunganga kl. 10
laugardagsmorgna frá
Gjábakka. Krummakaffi
kl. 9. Allir velkomnir.
Félag einhleypra. Fund-
ur í kvöld kl. 21 í Konna-
koti, Hverfisgötu 105.
Nýir félagar velkomnir.
Munið gönguna mánu-
og fimmtudaga.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s. 530 3600.
Stuðningsfundir fyrrver-
andi reykingafólks. Fólk
sem sótt hefur námskeið
gegn reykingum í Heilsu-
stofnun NLFÍ í Hvera-
gerði, fundur í Gerðu-
bergi á þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í Sel-
tjarnarneskirkju (kjall-
ara), kl. 20.30 á fimmtu-
dögum í fræðsludeild
SÁA Síðumúla 3–5 og í
Kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugardögum kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis, fund-
ir mánudaga kl. 20 að
Sólvallagötu 12. Stuðst er
við 12 spora kerfi AA-
samtakanna.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið hús
alla laugardaga frá kl. 14.
Kattholt. Flóamarkaður í
Kattholti, Stangarhyl 2,
er opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Leið 10 og 110 ganga að
Kattholti.
Kvenfélag Grens-
ássóknar verður með
fund mánudaginn 13. jan-
úar kl. 20. Félagsvist,
veitingar og fleira. Allar
konur velkomnar.
ITC Fífa. Fyrsti fundur
eftir áramót verður hald-
inn kl. 12 á hádegi í dag,
laugardag, í kaffiteríunni
í Gerðarsafni, Kópavogi.
Bókakynning, félagar
munu kynna nokkrar
áhugaverðar bækur. All-
ir velkomnir. Upplýs-
ingar í síma 698 0144,
Guðrún. Heimasíðan er
www. simnet.is/itc.
Í dag er laugardagur 11. janúar 11.
dagur ársins 2003. Brettívumessa.
Orð dagsins: Halt þú þeirri trú, sem
þú hefur með sjálfum þér fyrir Guði.
Sæll er sá, sem þarf ekki að áfella
sig fyrir það sem hann velur.
(Róm. 14, 22.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 vextir, 4 ný, 7 hitann, 8
þjáist, 9 reið, 11 mýrar-
sund, 13 hugboð, 14 ætt-
arnafn, 15 vatnsfall, 17
atlaga, 20 bókstafur, 22
sori, 23 krapasvað, 24
nauða á, 25 þjálfi.
LÓÐRÉTT:
1 raunveruleiki, 2 synja,
3 fífl, 4 fjall, 5 fer á hesti,
6 húsdýrið, 10 fimur, 12
lofttegund, 13 á litinn, 15
ánægð, 16 örlagagyðja,
18 huglausum, 19 skarni,
20 espa, 21 skrifaði.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 gaumgæfir, 8 þolls, 9 dauða, 10 sói, 11 gutla, 13
rengi, 15 sekks, 18 endur, 21 lof, 22 Eldey, 23 nýtni, 24
gangbraut.
Lóðrétt: 2 atlot, 3 messa, 4 ældir, 5 Iðunn, 6 óþæg, 7
vani, 12 lok, 14 enn, 15 skel, 16 kodda, 17 slyng, 18 efnir,
19 duttu, 20 reið.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI rakst á athyglisverð-an pistil á ágætri heimasíðu
hljómsveitarinnar Sálarinnar hans
Jóns míns. Þar svarar fulltrúi sveit-
arinnar, sem notar fangamarkið SH
og hlýtur að vera söngvari sveitarinn-
ar, Stefán Hilmarsson, kvörtun um
að sveitin hafi ekki spilað nógu lengi á
gamlárskvöld – en þá lék sálin á
Broadway. SH svarar því skilmerki-
lega á þann veg að ekki hafi verið
samið um annað við staðarhaldara og
leyfi frá lögreglu ekki boðið upp á að
dansleikurinn stæði lengur. SH seg-
ist jafnframt líta á þessa kvörtun sem
tilvalið tækifæri fyrir sig til að svara í
eitt skipti fyrir öll þesslags „hvimleið-
um“ kvörtunum sem hann segir ber-
ast reglulega. SH segir engan vafa
leika á hver ástæðan sé; breyttur og
rýmri afgreiðslutími skemmtistaða.
Og hann segir að „þó að ákveðnir
staðir kjósi að hafa opið fram á morg-
un“ þá kjósi „Sálverjar“ að haga sín-
um tónleikatíma á svipaðan hátt og
var „fyrir breytingu“. – „Dettur ein-
hverjum í hug að heimta það af Clash
eða Coldplay að þeir spili til dagrenn-
ingar? Nei, enda er slíkt út í hött.
Tónleikarnir hefjast og þeim lýkur.
Svo er bara spurning um að vera á
staðnum á meðan á þeim stendur.“
SH telur víst að tengja megi svona
kvartanir þeirri tilhneigingu að meta
frammistöðu hljómsveita út frá
hversu lengi þær tóra á sviði, að þær
sveitir sem leiki lengst séu bestar á
balli. Á þetta viðhorf rætur að rekja
til útihátíða, að mati SH. En hann
segir engum greiða gerðan með því
að hljómsveitir „hangi uppá sviði
fram á dagmál, bara vegna þess að
einhverjir tónleikagestir sjá sér ekki
fært að mæta fyrr en seint um síðir“.
SH segir „Sálverja“ engan veginn
geta ýtt undir aðra eins leiða ávana
„enda væri hætt við því að meirihluti
tónleikagesta yrði óhress ef hljóm-
sveitin stílaði inná það að þóknast
hinum seina minnihluta“.
SH segir „Sálverja“ telja sig „tví-
mæla- og kinnroðalaust til spilaglað-
ari sveita á landinu“, og á dæmigerð-
um tónleikum standi þeir á sviðinu í
hartnær tvo og hálfan tíma í það
heila, stundum lengur. Það sé meira
en gangi og gerist í bransanum og
tekur sem dæmi að Coldplay hafi
spilað í tæplega einn og hálfan tíma:
„[O]g ekki varð ég var við að mönnum
þætti það snubbótt eða skítt. Öðru
nær. Það er enda sitthvað, magn og
gæði.“
SH telur tilætlunarsemi ballgesta
á stundum fara fram úr hófi og eftir
að afgreiðslutími hafi verið lengdur
hafi komið fyrir – jafnvel um fimm-
leytið – að sveitarmenn hafi heyrt
„hlálega frasa einsog: „Ætlið’ekk’ að
spila lengur? – Ég sem var að
koma!““
SH segir ekki hægt að svara slík-
um glósum öðruvísi en að benda fólki
á að sveitin sé ekki í neinni keppni um
að spila sem lengst. Því skorar hann á
fólk að mæta fyrr til að missa ekki af
bandinu. „Seinþreyttir geta síðan
okkur að harmlausu haldið áfram að
skemmta sér, ef staðurinn er opinn
lengur.“
x x x
VÍKVERJI tekur heils hugarundir með SH, „Sálverjum“ og
öðrum tónlistarmönnum sem fengið
hafa viðlíka umkvartanir, eins og lík-
ast til Jón Ólafsson kórstjóri, söng-
leikjaséní og liðsmaður Nýrra
danskra sem vekur athygli á grein-
inni á sinni heimasíðu. Það er orðinn
hvimleiður ávani hjá landanum að
mæta seint á dansleiki, löngu eftir að
hljómsveitir hafa hafið leik sinn, og
svo er farið að agnúast út í hversu
stutt þær leika þegar ballinu lýkur
þegar komið er undir morgun.
Gleymum ekki að um er að ræða
listamenn en ekki partímaskínur –
þ.e.a.s. oftast nær.
HINGAÐ til hefur undirrit-
aður ekki haft ástæðu til
annars en að treysta því að
bankar væru stofnanir sem
legðu sig fram um að þjóna
viðskiptavinum sínum af
kostgæfni. Eitt af því sem
boðið hefur verið á því sviði
er svonefnd greiðsluþjón-
usta, sem felst í því að
greiða reglulega tiltekna
reikninga fyrir þá viðskipta-
vini sem þess óska. Þetta
hafa margir notfært sér og
til skamms tíma fengið
kvittanir fyrir greiðslunum
sendar í pósti og meira að
segja sérstaka möppu til að
halda þeim til haga. Fyrir
þetta er greitt tiltekið gjald
og það tekið út af reikningi
viðkomandi viðskiptavinar.
Þannig líða mánuðirnir,
reikningar greiddir, kvitt-
anir berast til greiðanda og
reglusemi í hávegum höfð;
traust og öryggi ríkir milli
banka og viðskiptavina
þeirra og allir una glaðir við
sitt.
Það vakti því furðu mína
þegar þessar kvittanir
hættu að berast frá bankan-
um mínum, Íslandsbanka, á
miðju síðasta ári. Í fyrstu
hélt ég að póstþjónustan
hefði brugðist og lent í vill-
um með þessar mánaðar-
legu sendingar. Við eftir-
grennslan kom hins vegar í
ljós að bankinn hafði ein-
hliða ákveðið að hætta að
senda þessar kvittanir og
taldi heldur ekki ástæðu til
að senda yfirlit af nokkru
tagi um gang þessara við-
skipta. Það sem beit þó höf-
uðið af skömminni var að
bankinn hafði ekki fyrir því
að tilkynna viðskiptavinum
sínum þessa breytingu og
heldur ekki að lækka mán-
aðargjaldið sem nam skertri
þjónustu. Þegar mér varð
þetta dæmalausa virðingar-
leysi ljóst varð ég bæði
undrandi og raunar
hneykslaður.
Þó þetta sé að sönnu ekki
stórt mál þá lýsir það við-
horfi sem ekki er sæmandi
fyrirtæki sem vill kenna sig
við þjónustu. Það kann ekki
góðri lukku að stýra að
koma fram við viðskiptavini
sína með slíkri lítilsvirðingu.
Sérhvert þjónustufyrirtæki
sem hagar sér þannig í
smáum málum elur á tor-
tryggni í hinum stærri.
Ingólfur Sverrisson,
Kaplaskjólsvegi 39, R.
Óþarfa sprengingar
BJÖRGVIN vildi koma því
á framfæri að hann væri
ósáttur við allar þessar
sprengingar sem hafa verið
undanfarið utan hefðbund-
inna „sprengidaga“. Segir
hann að þetta valdi mörgum
óþægindum, bæði mönnum
og dýrum. Eins vill hann
benda foreldrum á að brýna
fyrir börnum sínum að vera
ekki að misnota flugelda og
sprengiefni. Björgvin vill
einnig benda fólki á að hirða
eftir sig ruslið sem er eftir
sprengingarnar en ekki láta
þetta liggja úti um allt.
Tapað/fundið
Víkinganæla týndist
VÍKINGANÆLA (Ola
Gorie, Orkneyjum) úr silfri
týndist fyrir jól. Skilvís finn-
andi hafi samband við Erlu í
Stykkishólmi í síma
438 1166.
Eyrnalokkar
í óskilum
TVEIR eyrnalokkar eru í
óskilum hjá Þvottahúsinu A.
Smith á Bergstaðastræti 52.
Hafa líklega komið með dúk
sem kom í þvott fyrir jól.
Upplýsingar í síma
551 7140.
Dýrahald
Kettlingar fást gefins
FJÓRIR glæsilegir og ynd-
islegir kettlingar fást gefins.
1 svartur, 1 gulur og 2 rauð-
ir. Aðeins koma til greina af-
ar ástrík heimili með kost á
útiveru. Uppl. sími 699 3388.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Þröngt í búi á Tjörninni.
Virðingarleysi
FRÉTTIR
TVÆR sýningar verða opnaðar í
Galleríi Skugga, Hverfisgötu á
morgun, laugardag, kl. 17. Á jarð-
hæð opnar málverkasýning Ásgeirs
Jóns Ásgeirssonar sem ber yf-
irskriftina „neo–naive“. Hann út-
skrifaðist úr málaradeild MHÍ 1997
og lærði auk þess í eitt ár við Hog-
eschool for de kunst í Utrecht í Hol-
landi.
Í kjallara gallerísins opnar Hans
Alan Tómasson sýninguna „Und-
irmyndir“. Um er að ræða lág-
myndir sem unnar eru með bland-
aðri tækni s.s. M.D.F. bíla spartli,
olíulakki, gólfbóni og öðrum tilfall-
andi efnum. Hans Alan útskrifaðist
frá myndlistardeild Listaháskóla
Íslands vorið 2001.
Sýningarnar standa yfir til 26.
janúar. Galleríið er opið frá kl. 13–
17 alla daga nema mánudaga.
Verk eftir Ásgeir Jón Ásgeirsson.
Málverk og lágmyndir
í Galleríi Skugga
EFTIRFARANDI ályktun hefur
borist frá stjórn matvæladeildar
Verkalýðsfélags Akraness en hún
var samþykkt nýlega á fundi stjórn-
arinnar:
„Stjórn Matvæladeildar Verka-
lýðsfélags Akraness mótmælir harð-
lega þeim hækkunum sem boðaðar
hafa verið í heilbrigðisþjónustunni.
Slíkar hækkanir bitna verst á þeim
sem síst skyldi og minnst mega sín.
Jafnframt telur stjórnin að með
þessum hækkunum sé hið opinbera
að brjóta á bak aftur þá viðleitni
sem Alþýðusamband Íslands og
Samtök atvinnulífsins hafa haft for-
göngu um, að halda verðlagi í skefj-
um.“
Mótmæla hækkunum
í heilbrigðisþjónustu