Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 41 ✝ Guðrún Ár-mannsdóttir fæddist í Hraunkoti í Aðaldal 28. október 1915. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga hinn 30. desember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Hálfdánía Ingibjörg Jóhannes- dóttir, f. 30.1. 1879, d. 17.1. 1963, og Ár- mann Guðni Þor- grímsson, f. 2.1. 1873, d. 24.7. 1957, bóndi í Hraunkoti. Systkini Guðrúnar voru: Sigur- jón, f. 20.8. 1896, d. 30.3. 1998; Þorgrímur, f. 13.4. 1898, d. 30.1. 1978; Jóhannes, f. 9.1. 1900, d. 14.2. 1959, Björn, f. 19.1. 1902, d. 18.8. 1970; Halldór, f. 26.3. 1906, d. 8.2. 1908; Halldór, f. 8.2. 1909, d. 13.4. 1940; Guðrún, f. 22.4. 1913, d. 20.12. 1914; og Júlíana, f. 22.10. 1918, d. 30.4. 1988. Hinn 3. nóvember 1935 gekk Guðrún að eiga Jónas Andrésson frá Sílalæk í Aðaldal, f. 5.8. 1899, d. 6.10. 1966. Foreldrar hans voru Elín Sigurveig Jónasdóttir, f. 11.3. 1865, d. 10.4. 1920, og Andrés Jónasson, f. 11.7. 1863, d. 8.3.1906. Börn Guðrúnar og Jón- asar eru: 1) Vilhjálmur, f. 1935, búsettur á Sílalæk, kvæntur Sig- rúnu Baldursdóttur, f. 1939. Þau eignuðust sex börn og tíu barna- börn. 2) Andrés Sverrir, f. 1937, búsettur í Garði á Suðurnesjum, kvæntur Guðlaugu Þóru Braga- dóttur, f. 1942. Þau eiga þrjá syni og þrjár sonardætur. 3) Halldór, f. 1942, búsettur á Byrgisholti í Aðaldal, kvæntur Elínborgu Rósu Hólmgeirsdóttur, f. 1947. Þau eignuðust fjóra syni. 4) Elín, f. 1946, búsett á Húsa- vík, gift Emil Ragn- arssyni, f. 1946. Þau eiga fjögur börn og sjö barnabörn. 5) Hálfdánía Árdís, f. 1948, búsett á Dal- vík, gift Rafni Huga Arnbjörnssyni 1949. Þau eiga eina dóttur og einn dótturson. 6) Friðjón, f. 1952, d. 1973, var búsettur á Sílalæk. 7) Guð- mundur Karl, f. 1954, búsettur á Hellum, Aðaldal. Sambýliskona hans var Olga Ingi- mundardóttir. Þau eiga tvær dætur en fyrir átti Olga eina dótt- ur. 8) Þröstur, f. 1956, búsettur á Sílalæk. Alla sína hjúskapartíð bjuggu Guðrún og Jónas á Sílalæk í Að- aldal. Þar stunduðu þau búskap meðan heilsa Jónasar leyfði en hann andaðist árið 1966 eftir nokkurra ára erfið veikindi. Þá voru Vilhjálmur, elsti sonur þeirra, og Sigrún, kona hans, tek- in við búskapnum en fjögur yngstu börnin voru enn í for- eldrahúsum. Guðrún hafði alla tíð mikið yndi af ljóðum og lausavísum hvers konar. Þær lærði hún á auðveldan hátt og mundi allt til hins síðasta. Til hennar var oft leitað varðandi upprifjun á göml- um kveðskap og sögum. Guðrún var félagi í Kvenfélagi Nessóknar og heiðursfélagi þar hin síðari ár. Hún hélt heimili með Þresti, syni sínum, til dánardags en hann tók við búskap á Sílalæk árið 1974. Útför Guðrúnar fer fram frá Neskirkju í Aðaldal í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku amma og langamma. Þetta ljóð er eins og það sé ort um þig. Jafn umhyggjusama og góða manneskju er varla hægt að finna. Svo fróð, víðsýn og fordómalaus. Með eindæmum minnug á alla hluti svo að unun var á að hlusta. En um- fram allt svo góð. Við eigum eftir að sakna þín mikið þegar við komum á Sílalæk og alltaf, en björt minning þín mun ávallt lifa í hjörtum okkar. Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð barna þinna. Þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa og eykur þeirra afl og trú. En það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum – eins og þú. Ég flyt þér, móðir, þakkir þúsundfaldar, og þjóðin öll má heyra kvæði mitt. er Íslands mestu mæður verða taldar, þá mun það hljóma fagurt, nafnið þitt. Blessuð sé öll þín barátta og vinna. Blessað sé hús þitt, garður feðra minna, sem geymir lengi gömul spor. Haf hjartans þakkir, blessun barna þinna – og bráðum kemur eilíft vor. (Davíð Stef.) Með virðingu og þökk fyrir allt. Hvíldu í Guðs friði, elsku amma. Þín Bragi, Guðrún, Guðbjörg Anna, Guðlaug Ósk og Berglind Sunna, Keflavík. Elsku langamma. Skrifuð á blað verður hún væmin bænin sem ég bið þér – en geymd í hugskoti slípast hún eins og perla í skel – við hverja hugsun, sem hvarflar til þín. (H.Á.H.) Þín Katrín Ragnarsdóttir. GUÐRÚN ÁRMANNSDÓTTIR augasteinninn þinn – og alla mína ævi féll varla úr sá dagur að við hitt- umst ekki eða töluðum að minnsta kosti saman í síma. Mér finnst því ósköp mikið vanta nú, þegar þú ert farin héðan; þú varst svo stór þáttur í lífi mínu. En það er huggun harmi gegn að ég veit að þú ert horfin til víðari og bjartari sviða þar sem eng- in þjáning er en friður og kærleikur Guðs ríkir einn og óskoraður um ei- lífð. Við Bjarki trúum að þar munum við finna þig og afa aftur, þegar að okkur kemur. Elsku amma, Guð geymi þig. Áslaug. Elsku Ida amma! Þetta er frá ömmustelpunni þinni, henni Kötlu í Mexíkó. Fyrst af öllu vil ég segja að ég elska þig mjög mik- ið og að þú hefur alltaf verið mér mjög mikilvæg. Mér fannst alltaf gott að koma til þín á Hringbrautina og seinna í Breiðholtið, að spjalla. Síðustu árin hittumst við ekki oft, en ég hafði samt alltaf ánægju af vís- unum þínum og sögunum um gamla tíma. Þegar ég kvaddi þig á spítalanum áður en ég fór til Mexíkó, held ég að við höfum báðar hugsað það sama: Að kannski væri þetta í síðasta sinn sem við sæjumst og föðmuðumst. Ég veit að þú varst orðin mjög gömul og þreytt, og að hvíldin er líklega það besta sem þú gast fengið. En mér finnst sárt að hafa ekki verið hjá þér til að kveðja þig almennilega og að vera við jarðarförina. Mér finnst þetta allt svo óraunverulegt þegar ég er svona langt í burtu. Ég mun aldrei gleyma stundunum með þér. Þegar ég var lítil og þú spil- aðir svo oft á munnhörpuna fyrir okkur, þegar ég sagði „Amma, áttu ís?“, þegar við Gunna systir lékum okkur með slæðurnar þínar og eyrnalokkana. Ég man eftir Ísak afa að borða fiskibollur og eftir kara- mellubúðingnum sem þú bjóst alltaf til á Hringbrautinni. Ég man þegar Gutti var pínulítill kettlingur að fela sig á bak við sófann og þegar pabbi varð veikur og þú og ég stóðum við gluggann og vinkuðum bless í sjúkrabílinn. Elsku amma, nú verður allt gott og þú þarft aldrei aftur að stilla heyrnartækin þín eða fara í hárlagn- ingu. Þú þarft aldrei framar að hafa áhyggjur af neinu og finnur aldrei aftur til. „Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið.“ (Opb. 21.4). Elsku amman mín. Þó að ég sé löngu orðin stór stelpa, fannst mér ég samt alltaf vera litla ömmustelp- an þín þegar þú hélst höndunum mínum í stóru ömmulófunum þínum, og þannig mun ég alltaf vera þegar ég minnist þín. Þú munt alltaf lifa í hjarta mínu og verður alltaf hjá mér. Katla. Elsku amma mín, nú ertu farin. Ég mun aldrei gleyma þér og öllum heimsóknunum til þín. Ég man svo vel þegar ég var lítil og við Katla lékum okkur með klút- ana þína eða þegar við fengum göngugrindina þína lánaða til þess að ýta hvor annarri eftir ganginum, það var svo skemmtilegt. Eða þegar þú spilaðir á munnhörpuna þína og sagðir okkur sögur frá því þegar þú varst ung. Þú talaðir svo mikið og það var svo skemmtilegt að hlusta á þig og hlæja með þér. Þú átt góðan stað í hjartanu þínu og þar lifir þú enn. Ég mun sakna þín á hverjum degi og þú munt alltaf vera góð minning í huga mínum. Ég á líka eftir að sakna þess að þú vermir ekki á mér hend- urnar í stóru, hlýju lófunum þínum þegar kalt er úti. Ég á aldrei eftir að gleyma því þegar ég kom að heim- sækja þig í Gaukshólana og þú sast í stóra stólnum þínum eða frammi í eldhúsi. Þú varst og verður alltaf hugrökk og yndisleg í mínum aug- um. Ég elska þig, amma mín. Þín Guðrún (Gunna litla). Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og styrk við andlát og útför hjartkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langa- langömmu, ÖNNU BJARGAR JÓNSDÓTTUR frá Hvannstóði, Borgarfirði eystra. Sveinn Bjarnason, Geirlaug Sveinsdóttir, Sveinn Jóhannsson, Ágústa Sveinsdóttir, Helgi Eyjólfsson, Karl Sveinsson, Margrét Bragadóttir, Bóthildur Sveinsdóttir, Bernard Gerritsma, Bjarni Sveinsson, Jón Sveinsson, Ingibjörg Sveinsdóttir, Guðrún Hvönn Sveinsdóttir, Skúli Sveinsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN E. KRISTJÁNSSON kaupmaður, Skólagerði 6, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánu- daginn 13. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd. Hulda Klein Kristjánsson, Sóphus Klein Jóhannsson, Áslaug Ingólfsdóttir, Ottó R. Jóhannsson, Elín M. Jóhannsdóttir, Bergrún Sigurðardóttir, Brynja Jóhannsdóttir, Rúnar Gíslason, Pálmey Jóhannsdóttir, Niels Krogh Andersen, Hjördís Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra, ANNA VILMUNDARDÓTTIR frá Löndum, Grindavík, andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudaginn 7. janúar. Steinólfur Jóhannesson, Lúther Kristjánsson, Elín Káradóttir, Halldór Kristjánsson, Guðný Guðjónsdóttir, Ólafur Kristjánsson, Erla S. Ingólfsdóttir, Anna Dóra Lúthersdóttir, Hreinn Líndal Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. Sambýliskona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SVEINBJÖRG LINDA EINARSDÓTTIR, Holtsgötu 20, Hafnarfirði, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Foss- vogi fimmtudaginn 9. janúar. Sigurbjörn Sigfússon, Kristinn Sigursveinsson, Guðbjörg Torfadóttir, Hulda Íris Sigursveinsdóttir, Leifur Gauti Sigurðsson, Elsa María Sverrisdóttir, Gísli Birgir Gíslason, Arnar Sverrisson og barnabörn. Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JÓSEFÍNA ÁGÚSTSDÓTTIR BLÖNDAL frá Seyðisfirði, lést að morgni miðvikudagsins 8. janúar Svala Halldórsdóttir, Ólavía Halldórsdóttir, Lárus Halldórsson, Herbert Halldórsson, Kristín Halldórsdóttir, tengdabörn, ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Innilegar þakkir sendum við þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför JÓHANNESAR KRISTJÁNSSONAR bónda, frá Ytri-Hjarðardal, Hlíf II, Ísafirði. Bestu þakkir til starfsfólks öldrunardeildar Sjúkrahúss Ísafjarðar og Hlífar II fyrir góða umönnun. Ingibjörg Jóhannesdóttir, Eiríkur Ásgeirsson, Guðný Þorvaldsdóttir, Kristján Jóhannesson, Guðrún Jónsdóttir, Elín Jóhannesdóttir, Gísli Þorsteinsson Helga Jóhannesdóttir, Arnór Jósefsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.