Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 17 Bæjarlind 2, Kópavogi Sími: 544 2210 www.tolvuskolinn.is tolvuskolinn@tolvuskolinn.isK ó p a v o g i o g R e y k j a n e s b æ KA LL IO R @ M AD .I S OPIÐ HÚS Byrjendanám Almennt tölvunám Eldri borgarar (BYRJENDUR) Eldri borgarar (FRAMHALD) Tölvu- og skrifstofunám Vefsíðugerð 1 Vefsíðugerð 2 Tölvuviðgerðir Meðferð stafrænna mynda & myndavéla 60 stunda róleg yfirferð fyrir byrjendur. kr. 36.000,- 60 stunda námskeið fyrir fólk með góðan tölvugrunn. kr. 38.000,- 30 stundir fyrir 60 ára og eldri með grunn þekkingu. kr.18.000,- Vinsæl 200 stunda starfsnámsbraut – kvöldkennsla. kr. 124.000,- 40 stunda nám fyrir byrjendur í vefsíðugerð. kr. 36.000,- 68 stunda fyrir lengra komna í vefsíðugerð og vefhönnun. kr. 58.000,- Tveggja daga námskeið í bilanagreiningu og sjálfshjálp við tölvubilanir. kr. 25.000,- Tveggja kvölda námskeið (9 stundir). kr. 9.000,- 30 stunda róleg yfirferð 60 ára og eldri. kr.18.000,- Bæjarlind 2 Kópavogi frá kl. 13-16 í dag, laugardag English speaking Students UM HELGINA 2 seats are still available in our daytime MCSA – Microsoft Certified Systems Administrator course, which will be held in English. For further academic information and registration on the course please contact the School´s counselor – Tel. 862 5415, visit us at www.tolvuskolinn.is or visit us today on the day of open house, Saturday Jan. 11, from 13:00 – 16:00. Kerfishönnun – MCSA/MCSE hraðnám Kerfisumsjón – MCSA helgar- eða kvöldnám LINUX+ kvöldnám Comptia A+ helgarnám Server + Gagnagrunnsumsjón – MCDBA helgarnám Nám til undirbúnings æðstu kerfisstjórnargráðu Microsoft, Microsoft Certified System Engineer. Námskeið fyrir alla þá sem koma að rekstri tölvukerfa fyrirtækja og stofnana. Námskeið fyrir þá sem koma að rekstri og hönnun gagnagrunna í tölvukerfum. Nám sem mætir aukinni þörf fyrir sérþekkingu á þessu öfluga stýrikerfi Nám til að auka þekkingu á virkni tölvunnar, bæði vélbúnaðar og stýrikerfis. Alþjóðleg gráða sem vottar grunn kunnáttu í tækniþáttum netþjóna. Kíktu í heimsókn og kynntu þér fjölbreytt námsframboð skólans og frábæra kennsluaðstöðu. Kennarar og námsráðgjafi verða á staðnum. EINU lengsta umsátri í breskri glæpasögu lauk í gær er lögreglan fann lík mannsins, sem setið var um, í íbúð í London. Þar hafði hann verið í tvær vikur og lengi með einn gísl, sem slapp þó frá honum. Eldur kom upp í íbúðinni á fimmtudag og er talið, að maðurinn, Eli Hall, 32 ára, hafi kveikt hann. Nokkru síðar skaut lögreglan gas- kúlum eða hylkjum inn í íbúðina til að yfirbuga manninn og þegar hún réðst til atlögu í fyrrinótt kom hún að honum látnum. Hugsanlegt er, að hann hafi látist af reykeitrun. Hall skiptist á skotum við lög- regluna öðru hverju og síðast á fimmtudagsmorgni en talið var, að hann væri með tvær skammbyssur og mikið af skotfærum. Umsátrið hófst 26. desember sl. þegar lögreglumenn ætluðu að fjar- lægja bíl, sem talinn var tengjast skotárás í West End í London á síð- asta sumri. Hélt Hall einum manni sem gísli í 11 daga en hann slapp út úr íbúðinni eins og fyrr segir. Olli umsátrið mikilli röskun á daglegu lífi íbúa í húsinu og nærliggjandi húsum en fjórum götum var lokað og vopnaðir lögreglumenn á hverju strái. Löngu umsátri lokið í London London. AFP. KOMIÐ hefur í ljós að starfsmaður við farangursafgreiðslu á Charles- de-Gaulle-flugvelli í París, sem handtekinn var grunaður um aðild að hryðjuverkasamtökum, var fórn- arlamb samsæris og er saklaus. Hef- ur fyrrverandi hermaður, sem sagð- ist hafa séð manninn handleika skotvopn á bílastæði við flugvöllinn, viðurkennt að hafa tekið þátt í sam- særinu. Hinum meinta hryðjuverkamanni var sleppt úr haldi í gær. Hann er 27 ára gamall, af alsírsku bergi brotinn og heitir Abderazak Besseghir. Að sögn lögmanns Besseghirs lögðu fyrrverandi tengdaforeldrar Bess- eghirs fæð á hann eftir að Louisa dóttir þeirra lést í eldsvoða á heimili þeirra hjóna í úthverfi Parísar í fyrra. Louisa stökk út um glugga á íbúðinni og kenndi fjölskyldan Bess- eghir um. Besseghir var handtekinn eftir að Marcel Le Hir, sem eitt sinn var í frönsku útlendingahersveitinni, vís- aði á hann. Í kjölfarið fundust fimm túpur af sprengiefni, sjálfvirk skammbyssa og vélbyssa í fórum Besseghirs. Besseghir, sem ekki hefur nein tengsl við hryðjuverkahópa, hélt stöðugt fram sakleysi sínu og lög- reglu þótti grunsamlegt að Le Hir skyldi hafa verið staddur á umræddu bílastæði klukkan 6 á laugardags- morgni. Le Hir var kallaður til yfirheyrslu í síðustu viku og aftur í fyrradag. Í gær voru einnig fjölskyldumeðlimir úr tengdafjölskyldu Besseghirs yfir- heyrðir. Það leiddi lögreglu m.a. á rétta braut að á myndbandi sem tekið var í brúðkaupi Besseghirs sást Le Hir meðal veislugesta. Reuters Abderazak Besseghir (t.h.) heldur á 15 mánaða syni sínum eftir að hann var látinn laus úr fangelsi í gær og hreinsaður af ásökunum um aðild að hryðjuverkasamtökum. Með honum eru móðir hans og lögfræðingur. Franskur flugvallarstarfsmaður Var fórnar- lamb samsæris París. AFP. HUGSANLEGT er talið, að eitthvað hafi verið athugavert við hæðarstýri Beech 1900-skrúfuþotunnar, sem fórst í Charlotte í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum síðastliðinn mið- vikudag. Þá er einnig verið að kanna hleðslu vélarinnar en haft er eftir flugvallarstarfsmönnum, að hún hafi virst þung. Flugriti vélarinnar sýnir einhverj- ar undarlegar hreyfingar í hæðar- stýrinu og kemur það fram í öllum níu flugferðum vélarinnar eftir reglulegt viðhald sl. mánudag. Er síðasta flugtaki vélarinnar lýst þann- ig, að hún hafi farið eðlilega upp í fyrstu og var klifurhornið þá 7%. Síðan jókst það snögglega í 52% og eftir það snerist hún til hægri og tap- aði strax hæð með þeim afleiðingum, að hún rakst á flugskýli við völlinn. Fyrir flugtakið kom einnig til ágreinings með þeim, sem hlóðu vél- ina, og voru þeir ekki á einu máli um hvort of mikið af farangri væri komið inn í stélhluta farangursrýmisins. Eftir viðræður við flugstjórann var það niðurstaðan, að engin hætta væri á ferðum. Flugslysið í Bandaríkjunum Röng hleðsla og bilun í hæðarstýri? Charlotte. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.