Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 51 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake STEINGEIT Afmælisbörn dagsins: Þú átt auðvelt með að skemmta öðrum og ert fljótur að eignast vini og kunningja. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast þótt eitt- hvað blási í móti. Mundu að erfiðleikarnir eru til þess að sigrast á þeim. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það getur verið auðvelt að breyta velgengni í grát og gnístran tanna. En með að- gæslu og fyrirhyggju má forðast slíkt. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Leyfðu íhaldsseminni að ráða ferðinni í fjármálum. Mundu að ákvarðanir á því sviði hafa langvarandi áhrif, hvort held- ur er til góðs eða ills. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Viljir þú standa öruggum fót- um skaltu beita dómgreind þinni af skarpskyggni og ekki láta neitt fram hjá þér fara. Þannig nærðu árangri. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það getur verið gaman að fara ótroðnar slóðir en til þess þarf bæði kjark og þrautseigju. En lítil ævintýri geta líka glatt svo þú skalt ekki fúlsa við þeim. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það er eitthvað sem ruglar þig í ríminu. Leitaðu þér hjálpar því betur sjá augu en auga og þá verður auðveldara að ráða fram úr hlutunum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Ekkert jafnast á við stund- arkorn í ró og næði. Veltu fyrir þér gæðum lífsins og sjáðu hversu verðmæti hluta og verðgildi þeirra eru af- stæð. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það mun reyna verulega á hæfni þína á næstunni og þú mátt búa þig undir að sum verka þinna verði fyrir óvæg- inni gagnrýni. Láttu hana ekki á þig fá. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þótt þér finnist þú hafa orku til allra hluta, skaltu gæta þess að ganga ekki fram af þér í tilraunum til þess að fanga athygli annarra. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Stundum skjóta gamlir draugar upp kollinum og hafa áhrif á okkur. Gakktu frá þessum málum og stefndu ótrauður fram á við. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Margur verður af aurum api segir máltækið og það er gott að hafa það í huga þótt ekki sé um neinar stórupphæðir að ræða. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú verður upp fyrir haus í vinnu í dag. Megnið af verk- efnunum eru hlutir, sem þú hefur dregið á langinn, en getur ekki lengur. Drífðu þá af. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Árnað heilla 60 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 11. janúar, er sextug frú Guð- rún S. Guðbjörnsdóttir, af- greiðslukona, Bogabraut 12, Skagaströnd. Eiginmað- ur hennar er Gylfi Sigurðs- son. Eru þau skötuhjú á ferðalagi um Taíland í tilefni dagsins. 70 ÁRA afmæli. Nk. mánudag, 13. janúar, verður sjötug-ur Jón Bjarman, fyrrverandi fangaprestur og sjúkrahúsprestur. Eiginkona hans, Hanna Pálsdóttir, verð- ur sjötug 10. febrúar nk. Af þessu tilefni ætla þau að taka á móti vinum sínum og ættingjum 13. janúar í safnaðarsal Digraneskirkju í Kópavogi kl. 17. Þau óska eftir því að þeir sem hafa hugsað sér að gleðja þau með gjöfum eða blómum láti heldur Hjálparstarf kirkjunnar njóta þess. LJÓÐABROT HUGGUN Ertu nú horfin, þú unaðs tíð, er álfur í hverri lilju bjó? Og hvernig er rósin blessuð og blíð og blómin á fjarrum heiðar mó! Ertu nú horfin, þú yndis tíð, er Alvitur fýstist á myrkvan við, og Svanhvít á dúni svanafríð söngfugla gladdist við ástarklið? - - - Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. g3 e5 7. Rb3 Be7 8. Bg2 Rbd7 9. O-O b5 10. Bd2 O-O 11. He1 He8 12. a4 b4 13. Rd5 Rxd5 14. exd5 a5 15. c3 bxc3 16. Bxc3 Db6 17. Ha3 Rc5 18. Rxa5 Hxa5 19. b4 Ha7 20. a5 Dc7 21. bxc5 Dxc5 22. Da1 Ba6 23. Bd2 Dc8 24. Hc1 Hc7 25. Hac3 Hxc3 26. Hxc3 Da8 27. h3 Hb8 28. Hc6 Bb5 Staðan kom upp á Evrópumeistara- mótinu í atskák sem fram fór á Krít sl. haust. Sigurvegari mótsins, Sergei Movsesjan, hafði hvítt gegn Loek Van Wely. 29. a6! Bxc6 30. dxc6 e4 31. Bxe4 Bf6 32. Da4 og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. 100 ÁRA afmæli. Ídag, laugardaginn 11. janúar, verður 100 ára Jónatan Sveinsson til heim- ilis að Hrafnistu í Reykja- vík, áður til heimilis á Reykjavíkurvegi 40, Hafn- arfirði. Heitt verður á könn- unni milli kl. 18 og 20 í Helgafells kaffisalnum á Hrafnistu, Reykjavík. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson ÞAÐ voru hressir krakkar úr 7. bekk NA í Setbergsskóla sem komu við á Morg- unblaðinu fyrir stuttu í þeim til- gangi að kynna sér ferlið við vinnslu á dagblöðum. Þegar höfðu þau unnið með dagblöð í tímum og því upplagt að fá kynn- isferð um alvörudagblað. Bestu þakkir fyrir komuna, krakkar! Morgunblaðið/Golli FRÉTTIR AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 70ÁRA afmæli. Á morg-un 12. janúar, verður sjötugur Álfþór B. Jóhanns- son, fyrrverandi bæjarritari á Seltjarnarnesi, Látra- strönd 2, Seltjarnarnesi. Af því tilefni taka hann og eig- inkona hans, Björg Bjarna- dóttir, á móti ættingjum og vinum í Golfskálanum í Suð- urnesi, Seltjarnarnesi, í dag milli kl. 17-20. MORGUNBLAÐIÐ birt- ir tilkynningar um af- mæli, brúðkaup, ættar- mót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Reykjavíkurmótið í sveita- keppni hófst á þriðjudaginn með þátttöku 16 sveita og spila allar sveitirnar inn- byrðis 16 spila leiki. Fjórum umferðum er lokið og er sveit Skeljungs í efsta sæti með 89 stig. Sjö umferðir verða spilaðar um helgina, fjórar í dag og þrjár á morg- un. Síðustu umferðirnar verða svo spilaðar á þriðju- dag- og miðvikudagskvöld í næstu viku. Mótið er haldið í húsnæði BSÍ í Síðumúla 37 og eru áhorfendur velkomn- ir. Á næstu dögum verður þátturinn helgaður Reykja- víkurmótinu og við skulum byrja á úrspilsdæmi úr fyrstu umferð. Suður spilar fjóra spaða án afskipta mót- herjanna og fær út smátt lauf: Norður ♠ D105 ♥ K642 ♦ 972 ♣K42 Suður ♠ ÁKG73 ♥ G987 ♦ Á54 ♣Á Fyrsta hugsun sagnhafa er þessi: Tígli skal hent í laufkóng og síðan verður að byggja upp tvo slagi á hjarta. (Það er út af fyrir sig íhug- unarefni hvernig best er að vinna úr hjartalitnum til að tryggja tvo slagi. Rétta íferð- in mun vera þessi: Níunni er hleypt yfir til austurs. Ef hann tekur með drottningu, er litlu hjarta næst spilað úr blindum á gosann. Ef nían er drepin með tíu, er svínað fyr- ir drottninguna næst. Þessi íferð tryggir tvo slagi í 88% tilfella.) Þegar til kemur þarf að taka tillit til fleiri þátta. Sagnhafi spilar trompi tvisv- ar og vestur reynist eiga ein- spil. Nú er komin upp hætta á styttingi ef laufkóngur er tekinn strax. Hvernig á að bregðast við? Norður ♠ D105 ♥ K642 ♦ 972 ♣K42 Vestur Austur ♠ 8 ♠ 9642 ♥ ÁD1053 ♥ -- ♦ 1063 ♦ KDG8 ♣9853 ♣DG1076 Suður ♠ ÁKG73 ♥ G987 ♦ Á54 ♣Á Það verður að taka á lauf- kónginn og henda tígli. Af- trompa svo austur og spila hjartaníu með því hugarfari að svína. Vestur tekur með ás og spilar laufi og nú hend- ir suður tígli heima! Þetta er lykilspilamennskan. Næsta lauf er trompað og hjarta spilað. Vestur fær þriðja slag varnarinnar á hjarta, en á ekki lauf til og sagnhafi fær afganginn. Svona spilaði Guðmundur Pálsson í sveit Félagsþjónustunnar og sjálf- sagt einhverjir fleiri. En ekki þó allir, því spilið tapaðist á 5 borðum af 16. SKEMMTUN FYRIR ALLA Í DANSHÚSINU KÓPAVOGI danshusid@islandia.is - www.islandia.is/danshusid Innritun til 12. janúar, sími 862 6168 eða Dansfélagið Hvönn Jóga morgun, hádegi og síðdegi • Borgartúni 20, 4.hæð Byrjendanámskeið hefst 14. janúar 8 vikur þriðjud. og fimmtud. kl.18.45 - 20.00 Verð kr. 13.500, jógabæklingur innifalinn. Fjölskyldujóga hefst 11.janúar 8 vikur laugard. kl. 13.00 - 14.00 Verð kr. 9.600 fyrir tvo. anda inn róandi • anda út brosandi ný námskeið • fríir prufutímar Ásta Arnardóttir astaarn@mi.is s:862 6098 Jóga Lótus jógasetur Auktu styrk þinn -Til að ná betri stjórn á lífi þínu og líðan. 5 kvölda námskeið í Reykjavík dagana 14.–15. jan., 21. jan. og 28.–29. jan. Námskeið til sjálfshjálpar í uppbyggingu á persónustyrk þínum þar sem þú finnur út: • Hver þú ert. • Hvað þú getur. • Hvað þú vilt og vilt ekki. • Hvert þú vilt stefna. Námskeiðinu verður svo fylgt eftir með mánaðarlegum fræðslu- og vinnufundum. Leiðbeinandi er Guðrún Óladóttir reikimeistari og ráðgjafi. Upplýsingar í síma 553 3934 og 897 7747.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.