Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 45
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 45 ALFA er tíu vikna námskeið, einu sinni í viku, þar sem fjallað er um grundvallaratriði kristinnar trúar á einfaldan og þægilegan hátt. Auk þess fara þátttakendur eina helgi saman út úr bænum. Fjallað er um mikilvægustu spurningar lífsins. Hvorki eru gerð- ar kröfur um trúarafstöu né heima- lærdóm eða aðrar kröfur gerðar til þátttakenda. Á Alfanámskeiðinu gefst fólki tækifæri til að spyrja spurninga og taka þátt í skapandi umræðu um líf- ið og tilveruna. Alfa er öllum opið og er fyrir þá sem vilja leita svara við spurningum um tilgang lífsins og vilja kynna sér grundvallaratriði kristinnar trúar og þá sem langar til að velta fyrir sér hvaða gildi móta í raun líf okkar og samfélag. Alfa er fyrir þá sem trúa, sem efast og síðan ekki síst fyrir þá sem ekki trúa, eða eru leit- andi á trúarsviðinu. Alfanámskeiðið mun standa yfir í 10 vikur, á miðvikudagskvöldum frá kl. 19 til kl. 22. Hvert kvöld hefst með léttum málsverði. Síðan er um- ræðuefnið útskýrt og rætt í um- ræðuhópum. Námskeiðið mun hefjast 15. jan- úar með kynningarfundi kl. 20, í safnaðarheimili Vídalínskirkju. Vertu með og láttu skrá þig. Inn- ritun stendur yfir á skrifstofu Ví- dalínskirkju í síma 565 6380. Tómstunda- og kóra- starf í Háteigskirkju HÁTEIGSSÖFNUÐUR stendur fyr- ir fjölbreyttu tómstundastarfi fyrir börn og unglinga. Í dag, laugardag- inn 11. janúar, er opið hús í Háteigs- kirkju frá kl. 13–16 til kynningar á tómstunda- og kórastarfi kirkj- unnar fyrir börn og unglinga. Þessi kynning er hluti hverfisdagskrár forvarnafélagsins Samtaka: Degi Nella nágranna. Auk aldurskipts kórastarfs undir stjórn Julians Isaacs býður Háteigs- kirkja upp á tómstundastarf þar sem lögð er áhersla á fræðslu, upp- byggilega leiki, föndur og fleira fyrir börn og unglinga á grunn- skólaaldri. Starfið hefst aftur að loknu jólafríi sem hér segir: TTT-klúbbur: Mánudaginn 13. janúar kl. 16.30 til 18. Ævintýrabirnirnir: Þriðjudaginn 14. janúar kl. 16 til 16.50. Ævintýraklúbburinn: Þriðjudag- inn 14. janúar kl. 17.10 til 18.30. Æskulýðsfélagið: Þriðjudaginn 14. janúar kl. 19 til 21. Ævintýrabirnirnir eru hugsaðir fyrir börn úr fyrsta og öðrum bekk, ævintýraklúbburinn fyrir börn úr þriðja og fjórða bekk og TTT- klúbburinn fyrir börn úr fimmta til sjöunda bekk. Æskulýðsfélagið, öðru nafni MEME, er opið öllum unglingum úr áttunda, níunda og tí- unda bekk. Nánari upplýsingar gefur Guð- rún Helga Harðardóttir, æskulýðs- fulltrúi Háteigskirkju, í síma 699 3990. Auk þess minnum við á barna- guðsþjónustur alla sunnudaga klukkan ellefu í Háteigskirkju og foreldramorgna alla fimmtudaga klukkan tíu. Össur flytur hugvekju í Seltjarnarneskirkju Á MORGUN, sunnudaginn 12. jan- úar, flytur Össur Skarphéðinsson, alþingismaður og formaður Sam- fylkingarinnar, hugvekju í messu í Seltjarnarneskirkju sem hefst kl. 11 f.h. Í vetur flytja leikmenn hugvekju við messu einu sinni í mánuði í Sel- tjarnarneskirkju og er Össur þriðji í röðinni á eftir Siv Friðleifsdóttur umhverfisráðherra og Pétri Péturs- syni prófessor í guðfræði. Prestur verður séra Sigurður Grétar Haraldsson, Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngur og org- anleikari er Viera Manásek. Hjónakvöld Digraneskirkju NÆSTA hjónakvöld Digranes- kirkju verður sunnudagskvöld 12. janúar kl. 20.30. Gestur okkar verð- ur Rannveig Einarsdóttir fjöl- skylduráðgjafi og kennslufræð- ingur. Um áramót strengja margir ýmis áramótaheit, til dæmis að stefna að því að verða betri manneskjur, sinna fjölskyldunni betur og margt fleira. Af þessu tilefni ætlum við að hafa efni kvöldsins í þeim anda sem gæti hjálpað okkur áleiðis í þessum efnum. Það sem Rannveig mun fjalla um er: Ágrenningur: að takast á og sættast. Mismunandi þrár og lang- anir: þörf á nálægð og fjarlægð. Samskiptamunstur: tilfinningar og áhrif þeirra á samskipti. Fyrirlesturinn verður í nýju kap- ellunni á neðri hæð Digraneskirkju. Eins og vanalega verður boðið upp á stutta kyrrðarstund á eftir fyrirlestri fyrir þá sem vilja og geta. Dagskránni lýkur milli kl. 22 og 22.30. Fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð SÉRA Haukur Ingi Jónasson sjúkrahúsprestur flytur fyrirlestur í Grafarvogskirkju um sorg og sorgarviðbrögð nk. mánudag kl. 20. Eins og undanfarin ár verður starfræktur sorgarhópur í Grafar- vogskirkju. Síðastliðið ár voru hóp- arnir tveir. Hópstarfið hefst 13. jan- úar nk. Þá mun séra Haukur Ingi Jónasson sjúkrahúsprestur flytja erindi. Fundurinn hefst kl. 20. Kaffiveitingar eftir fundinn. Allir velkomnir. Prestar Grafarvogskirkju. Biblíulestur í Landakoti SR. Halldór Gröndal heldur áfram Biblíulestri sínum mánudaginn 13. janúar kl. 20 í safnaðarheimili kaþ- ólskra á Hávallagötu 16. Allir sem áhuga hafa á því eru hjartanlega velkomnir. Fjölskyldan saman í Ástjarnarkirkju SÖFNUÐUR Ástjarnarkirkju kem- ur saman til sameiginlegs helgi- halds alla sunnudaga kl. 11. Hver samvera skiptist í þrennt. Fyrst er helgihald með söng, bænum, biblíu- lestrum og sögum, leikjum og öðru, sem höfðar til allra aldurshópa og skilningarvita. Þá koma léttar veit- ingar og spjall. Þriðji hlutinn er einskonar klúbbastarf, Stutt dag- skrá fyrir börn, s.s. framhaldssaga og litir, æfa söngva, spila á spil og fara í leiki. Auk þess verða flutt er- indi eða boðið upp á samræður eftir efni og aðstæðum hverju sinni. Sunnudaginn 12. janúar mun sr. Carlos Ferrer sóknarprestur flytja stutt erindi um verðmætamat og fyrirmyndir. Helgihald í Ástjarnarkirkju er alla sunnudaga kl. 11–12:30 í sam- komusal Hauka á Ásvöllum í Hafn- arfirði. Frá Árbæjarkirkju FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA verður í Árbæjarkirkju kl. 11. Helga Steffensen kom í heimsókn í janúar í fyrra með brúðurnar sínar við góðar undirtektir sóknarbarna í Árbæjarkirkju. Nú fáum við Helgu aftur í heimskókn og sýnir hún leik- rit um Stein Bollason. Við hvetjum mömmur, pabba, afa og ömmur til að fjölmenna með börnunum í kirkju á sunnudag. Barn verður borið til skírnar. Kaffi, djús og kex í boði í safn- aðarheimilinu að stundinni lokinni. Alfanámskeið í Vídalínskirkju Morgunblaðið/Árni Sæberg Vídalínskirkja Í UPPHAFI árs 2002 fór fram einvígi milli Nigels Short og Hann- esar Hlífars Stefánssonar sem Taflfélagið Hellir stóð fyrir. Fé- lagið hyggst halda einvígi sem þetta á hverju ári og nú hefur ver- ið ákveðið, að 10.–15. febrúar næstkomandi fari fram einvígi milli Hannesar og Sergei Movsesj- an. Það verður haldið í húsakynn- um Olís, aðalstyrktaraðilans, en Guðmundur Arason veitir einnig liðsinni sitt til að atburðurinn geti orðið að veruleika. Sergei Movsesjan er lítt kunnur hér á landi, en á síðustu árum hef- ur stjarna hans í skákheiminum risið hratt. Hann vakti fyrst at- hygli með frábærri frammistöðu á heimsmeistaramóti FIDE í Las Vegas 1999 þar sem hann komst í átta manna úrslit. Á leið sinni þangað bar hann m.a. sigurorð af Peter Leko en á nýju ári á sá að tefla ein- vígi við Vladimir Kramnik um hvor komist í hið svokall- aða sameiningarein- vígi um heimsmeist- aratitilinn. Í vor varð Sergei einn efstur í gríðarlega öflugu skákmóti í Sarajevo en á meðal þátttak- enda voru Ivan Soko- lov, Alexey Shirov, Alexey Dreev og fleiri ofurstór- meistarar. Á haustmánuðum varð hann síðan Evrópumeistari með félagi sínu, Bosna Sarajevo, ásamt því að verða Evrópumeistari í at- skák. Hann er 24 ára og er í 39. sæti yfir stigahæstu skákmenn heims með 2.651 skákstig. Helsti styrkleiki Sergei er hversu fljótur hann er að reikna út flóknar leikjaraðir. Innsæi hans í taktík er óviðjafnanlegt sem gerir hann að mjög kraftmiklum skák- manni. Ein af þeim skákum sem honum þykir eftirminnilegust er sigur hans á Alexey Shirov í næst- síðustu umferð á ofurmótinu í Sar- ajevo árið 2000 en þýðing sigursins var mikil þar eð Shirov, er hafði haft forystu á mótinu nánast allan tímann, missti þá forystuna í hend- ur Garry Kasparovs. Hvítt: Alexey Shirov Svart: Sergei Movsesjan Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Dc7 5. Rc3 e6 6. Be2 a6 7. O-O Rf6 8. Be3 Be7 9. f4 d6 10. De1 O-O 11. Dg3 Rxd4 12. Bxd4 b5 13. a3 Bb7 14. Kh1 Bc6 15. Hae1 Db7 Þetta hefur verið teóría svo lengi sem elstu menn muna. Á sín- um tíma lögðu Kasparov og Nikit- in mikið til fræðanna í þessu af- brigði með skákum Kasparovs og bók þeirra félaga um Sikileyjar- vörn. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá en í hnotskurn ætl- ar svartur sér að nýta veikleika hvíts á drottningarvæng en hvítur vill hefja sókn á kóngsvæng. Hinn góðkunni lettneski skákþjálfari Lanka orðaði það svo að svartur teflir upp á b2-peðið á meðan hvít- ur teflir upp á mát! Mér er til efs að Sergei líti svo á málin enda hef- ur hann teflt þetta afbrigði á svart með góðum árangri. 16. Bd3 16. Bf3 er hér annar möguleiki sem e.t.v. er sterkari þar sem þá hefur biskupinn auga með h5-reitnum. 16. – b4 17. Rd1 bxa3 18. bxa3 Hac8 19. Rf2 Fram að þessu hafði taflið fylgt skák Lautiers og Movsesj- an í Sigeman-mótinu sem fram fór 1999. Í þeirri skák fékk Ser- gei frumkvæðið eftir 19. Re3 Bxe4 20. Bxf6 Bxf6 21. Rg4 Bxd3 22. Rxf6+ Kh8 23. Hb1 De7 24. Dxd3 Dxf6 25. Dxd6 Hfd8 en henni lauk þó að lokum með jafntefli. 19. – Rh5 20. Df3 g6 21. Rg4 f6 22. f5 exf5 23. Rh6+ Kh8 24. Rxf5 gxf5 25. Dxh5 fxe4 Hvítum hefur tekist að opna kóngsstöðu svarts á kostnað eins peðs. Svarta staðan leynir þó á sér. Með næsta leik herðir hvítur enn frekar sóknartökin en Sergei hef- ur ráð undir rifi hverju. 26. Dg5! Hf7! 26. – exd3 gekk ekki upp þar sem eftir 27. Hxe7 Dxe7 28. Hxf6 vinnur hvítur. Eftir textaleikinn getur hvítur ekki tekið peðið á f6 þar sem eftir 27. Hxf6 Bxf6 28. Bxf6+ Hxf6 29. Dxf6+ Dg7 stend- ur svartur betur. 27. Bc4 Hg8 28. De3 d5 29. Bb3 Dd7 30. Hf4 Hg4 31. Hf2 Kg8 32. c4 De6 33. cxd5? Eins og síðar var sýnt fram á gat hvítur fengið mun betra tafl eftir 33. Dh3 f5 34. cxd5 Bxd5 35. Hxf5! Dxf5 36. Bxd5 Hf4 37. Dg3+. Í framhaldinu nær svartur að stilla saman strengi sína og hefja gagnsókn. 33. – Bxd5 34. Bd1 Hg5 35. h4?! Hgg7 36. Bb2 Bd6! 37. Hd2 Hg3 38. Bf3 38. – Hxf3! 39. Dxf3 Hvítur yrði mát eftir 39. gxf3 Dh3+ 40. Kg1 Hg7+. 39. – exf3 40. Hxe6 Bxe6 og hvítur gafst upp enda hrókstap óumflýjanlegt eftir 41. Hxd6 f2 42. Hd1 Bc4. Skákþing Reykjavíkur 2003 Skákþing Reykjavíkur 2003 hefst sunnudaginn 12. janúar kl. 14. Tefldar verða 11 umferðir eftir svissnesku kerfi. Í fyrstu tveimur umferðunum verður keppenda- hópnum skipt í tvennt og tefla menn þá saman innan þessara tveggja hópa eftir svissneska kerf- inu. Þetta er gert til að styrkleika- munur milli keppenda verði ekki of mikill í fyrstu og annarri umferð. Tímamörkin verða stytt frá fyrri mótum og eru nú 1,5 klst. á 30 leiki + 30 mínútur, en þessi nýju tímamörk gáfust vel á u-2000 mótinu sem haldið var í TR fyrir stuttu. Í stað þess að umferðir hefjist kl. 19.30 á kvöldin, eins og tíðkast hefur undanfarin ár, verður byrjað kl. 19. Þessi breyting, auk hinna nýju tímamarka, þýðir að nú munu umferðir einungis standa frá 19– 23. Verðlaun hafa verið aukin fyrir skákmenn undir 2000 stigum og fyrir konur. Verðlaun fyrir skák- menn undir 2.000 stigum eru 15.000, 10.000 og 5.000 og fyrir konur eru verðlaunin þau sömu. Aðalverðlaunin verða 60.000, 35.000 og 20.000. Þátttökugjald er 3.500 fyrir 16 ára og eldri og 2.000 fyrir 15 ára og yngri. Venju samkvæmt verða umferð- ir tefldar á sunnudögum, miðviku- dögum og föstudögum, auk þess sem mánudagsumferð verður einnig skotið inn í. Dagskrá móts- ins verður því þessi: 1. umf. sunnud. 12.1. kl. 14–18 2. umf. miðv.d. 15.1. kl. 19–23 3. umf. föstud. 17.1. kl. 19–23 4. umf. sunnud. 19.1. kl. 14–18 5. umf. mánud. 20.1. kl. 19–23 6. umf. miðv.d. 22.1. kl. 19–23 7. umf. föstud. 24.1. kl. 19–23 8. umf. sunnud. 26.1. kl. 14–18 9. umf. miðv.d. 29.1. kl. 19–23 10. umf. föstud. 31.1. kl. 19–23 11. umf. sunnud. 2.2. kl. 14–18 Evrópumeistari gegn Íslandsmeistara Daði Örn Jónsson Helgi Áss Grétarsson Sergei Movsesjan SKÁK Höfuðstöðvar Olís, Sundagörðum 2 OLÍS-EINVÍGIÐ 10.–15. feb. 2003 dadi@vks.is Góðir skór Skóbúðin Miðbæ Háaleitisbraut 58-60  Sími 553 2300 Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15. alltaf á föstudögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.