Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 39 ✝ Guðrún Björns-dóttir fæddist á Hofsá í Svarfaðardal hinn 24. desember 1899. Hún lést á heimili sínu á Dalbæ, dvalarheimili aldr- aðra á Dalvík, hinn 4. janúar síðastliðinn. Foreldrar Guðrúnar voru Björn Björns- son, f. á Karlsá á Upsaströnd 25. sept. 1871, d. 26. apríl 1934, og Guðbjörg Guðjónsdóttir, f. á Hólmavaði í Aðaldal 14. júní 1867, d. 25. desember 1954. Systkini Guðrúnar voru: Jón, Sig- fús, Sigríður, Jóhanna, Björn, Hjalti, Kolbeinn og Jónína Svan- hildur og eru þau öll látin. Hinn 1. júlí 1930 gengu Guðrún og Þórarinn Þorsteinsson, f. á Dal- vík 3. mars 1905, d. 14. apríl 1966, í heilagt hjónaband. Börn Guðrúnar og Þórarins eru: 1) Friðþjófur, f. á Karlsá á Upsaströnd 7. mars 1932, kvæntur Kristínu Gestsdóttur, f. í Bakkagerði í Svarfaðardal 8. jan. 1930. Synir þeirra eru: a) Þor- steinn, f. á Akureyri 21. október 1955, maki Harpa Sigfúsdóttir, f. í fjarðar og bjó m.a. í Hlíð í Hjaltadal og Unastöðum í Kolbeinsdal. Guð- rún gekk í skóla á Hólum, en kennsla þar var í formi farskóla- kennslu og aðeins kennt örfáar vik- ur í senn og því skólaganga Guð- rúnar stutt. Hún vann fyrir sér víða á sveitaheimilum í Skagafirði, en um tvítugt gerist hún vinnukona í Reykjavík. Einnig vann hún á sumrum við síldarsöltun á Siglu- firði. Einn vetur vann hún á sauma- stofu í Reykjavík og öðlaðist hald- góða kunnáttu í kjólasaumi. Ennig sótti hún dönskutíma og las dönsk blöð og tímarit sér til ánægju og lífsfyllingar. Hafa bæði bóklestur og margvísleg handavinna, ásamt garðrækt verið hennar helsta tóm- stundagaman. Eitt sumar var Guð- rún í vist á Lágafelli í Mosfellssveit, og þar kynntist hún tilvonandi mannsefni sínu. Guðrún og Þórarinn byrjuðu bú- skap sinn á Karlsá á Upsaströnd, en faðir Þórarins átti jörðina og ráku þeir feðgar þar nokkurs kon- ar félagsbúskap. Árið 1935 fluttust þau til Dalvíkur og byggðu sér hús það er heitir Bjarnarhóll. Guðrún bjó í Bjarnarhóli til árs- ins 1979 en þá fluttist hún á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvík, og var ein af fyrstu íbúunum þar. Þeg- ar Guðrún lést var hún elsti borg- ari Dalvíkurbyggðar. Útför Guðrúnar verður gerð frá Dalvíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Reykjavík 6. janúar 1961. Börn þeirra eru Silja, og Andri Freyr. Þau búa í Reykjavík. b) Björn, f. á Akureyri 29. mars 1958, kvænt- ur Helgu Níelsdóttur, f. á Litlu-Hámundar- stöðum á Árskógs- strönd 19. maí 1960. Börn þeirra eru Atli Viðar, Kristinn Þór og Rúnar Helgi. Þau búa á Dalvík. 2) Ingibjörg Hildigunnur, f. á Karlsá á Upsaströnd 25. ágúst 1933, var gift Bjarne Kristinsson, f. í Kaup- mannahöfn 4. febrúar 1936, d. í Reykjavík 12. janúar 1968. Börn þeirra eru: a) Kristinn Jón f. í Reykjavík 6. ágúst 1964, býr í Washington DC í Bandaríkjunum. b) Þórarinn, f. í Reykjavík 19. febr- úar 1967, maki Erna Björnsdóttir, f. í Reykjavík 2. júní 1967. Börn þeirra: Þorbjörn og Hildigunnur, sambýlismaður hennar er Sigurjón Jóhannsson. Þau búa í Reykjavík. Þegar Guðrún var á barnsaldri flutti fjölskylda hennar í Bakka- gerði í Svarfaðardal og fáum árum síðar fluttist fjölskyldan til Skaga- Þegar ég var tólf ára fékk ég það verkefni í skólanum að skrifa ritgerð sem átti að heita „Mín heitasta ósk“. Ritgerðin byrjaði svona: „Heitasta ósk mín er að eiga heima á Dalvík. Þar á hún amma mín heima, og þar hef ég verið á hverju sumri frá því ég fæddist …“ Ég var sem sagt svo ljónheppinn að fá að verja öllum sumrum og mörgum jóla- og páskafríum hjá ömmu, ýmist með hinum í fjölskyldunni eða einn. Sjálf- sagt hef ég stundum reynt á þol- inmæði hennar en aldrei man ég eft- ir að hún byrsti sig við mig, ekki heldur daginn sem ég kom fimm sinnum blautur heim eftir að hafa dottið í tjörnina, þar sem við fé- lagarnir vorum með útgerð. Hún bara klæddi mig í þurr föt og ég fór aftur af stað upp að tjörn. Amma hafði alltaf nógan tíma fyrir mig og var lagið að tala við mig eins og jafn- ingja. Á kvöldin spjölluðum við sam- an eða spiluðum kasínu og hún las fyrir mig. Og þannig minnist ég samskipta ömmu við mig, oftast upp- byggilegra. Amma var fædd í Svarfaðardal, en flutti nokkurra ára í Skagafjörð þar sem hún ólst upp. Hún fór snemma að vinna fyrir sér eins og títt var um börn í upphafi síðustu aldar, í fyrstu var hún matvinnungur og síðar vinnukona á ýmsum sveitaheimilum í Skagafirði. Um tvítugt fór hún ásamt Jóhönnu, systur sinni, til Reykjavíkur þar sem þær gerðust báðar vinnukonur. Þar var amma næstu árin á vetrum, en á sumrin fóru þær systur til Siglufjarðar og söltuðu síld. Hún kynntist afa mín- um, Þórarni Þorsteinssyni frá Dal- vík, á Lágafelli í Mosfellssveit þar sem þau voru bæði vinnufólk. Þau fluttu til Dalvíkur 1930 og giftu sig það ár. Á Dalvík bjó hún svo það sem eftir var ævinnar, lengst af í húsi sínu, Bjarnarhóli, sem hún var gjarnan kennd við. Hún hafði mikinn áhuga á garðrækt og frá því ég man eftir mér var húsið hennar falið af háum trjám. Of háum og of mörgum sögðu sumir, því það sást ekkert út um stofugluggana á sumrin, hvað þá að þar skini sól inn, en svona vildi hún hafa þetta. Hún kunni að gera mikið úr litlu, enda var lífsbaráttan oft hörð á hennar yngri árum. Henni var líka meinilla við að skulda nokkrum peninga, og pósturinn hafði varla sleppt takinu af gíróseðl- unum þegar hún var lögð af stað á pósthúsið til að borga þá. Amma flutti á dvalarheimili haustið 1979. Það reyndist henni erfitt að flytja úr húsinu sínu og frá garðinum sínum og kom það nokkuð niður á lífsgleði hennar fyrst á eftir þótt hún léti mig aldrei finna fyrir því. Ég hitti hana síðast í haust. Þá var mjög af henni dregið og hún sagði fátt. Samt fannst mér hún þekkja mig, við héldumst í hendur og ég fann frá henni sömu hlýju og alltaf þegar ég hitti hana. Hún var nýorð- in 103 ára þegar hún lést og náði að lifa á þremur öldum, var fædd í lok þeirrar nítjándu, lifði alla tuttug- ustu öldina og fyrstu ár þeirrar tuttugustu og fyrstu. Þetta var því orðin löng ævi og amma var södd lífdaga þegar hún dó. Ég kveð ömmu mína og þakka henni fyrir þann tíma sem hún gaf mér. Hann var mér ómetanlegur. Þórarinn Bjarnason. Látin er í hárri elli amma mín, Guðrún Björnsdóttir, sem áður bjó í Bjarnarhóli á Dalvík. Það var alltaf tilhlökkun að fara til Dalvíkur á vor- in þegar ég var lítill til að vera hjá ömmu yfir sumarið. Hún bjó ein í húsinu sem þau afi byggðu um 1935. Hjá ömmu var alltaf gott að vera, frá henni stafaði ró og hlýju og hún lét sér annt um velferð okkar. Aldr- ei heyrði ég hana tala illa um nokk- urn mann. Hún var nægjusöm, hafði yndi af handavinnu og prjónaði mik- ið á okkur á meðan heilsan leyfði. Mikill kærleikur var á milli ömmu og systkina hennar. Hún átti átta systkini sem komust til fullorðins- ára og var ég svo lánsamur að kynn- ast þeim þeirra sem bjuggu í Reykjavík. Skólaganga ömmu var styttri en hún sjálf hefði óskað, enda hvatti hún okkur óspart til að læra það sem hugur okkar stóð til. Þegar hún vann í Reykjavík á sínum yngri ár- um sótti hún þó einkatíma í dönsku. Eftir það las hún dönsk blöð og bækur sér til ánægju. Amma fylgd- ist vel með fram á síðustu ár, bæði fréttum af landsmálum og því sem gerðist innan sveitar. Amma kom upp fallegum garði við húsið sitt þar sem hún ræktaði matjurtir, blóm og tré. Trén urðu allhá og veittu gott skjól fyrir vindi og juku þannig notagildi garðsins. Þau byrgðu þó einnig sýn úr flest- um gluggum hússins nema eldhús- glugganum, þaðan sem var góð út- sýn til Böggvisstaðafjallsins. Þrátt fyrir háan aldur var amma vel ern fram á síðustu ár. Sjón og heyrn var þó farin að daprast og hafa síðustu tvö árin verið henni erfið. Ég þakka ömmu fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Megi hún hvíla í friði. Kristinn Jón Bjarnason. Það var ekki með öllu óvænt þeg- ar ég fékk þær fréttir sl. laugardag að hún amma mín hefði látist þá um morguninn. Ævin orðin löng, 103 ár, og hún sátt við Guð og menn. Síð- ustu árin var heilsan á undanhaldi og ljóst að hverju stefndi. Við bræður ólumst upp á Dalvík í næsta húsi við afa og ömmu í Bjarn- arhóli og nutum því þess að um- gangast þau frá barnæsku. Þvæld- umst við oft með afa í vörubílnum meðan hans naut við. Þórarinn, afi minn, lést 1966 en amma bjó í Bjarnarhóli allt þar til hún fór á Dalbæ árið 1979. Ævi ömmu minnar var ekki alltaf dans á rósum. Heimili foreldra hennar var barnmargt og stundum þröngt í búi. Fór hún því ung að vinna fyrir sér eins og títt var á þeim tíma. Því varð minna um skólagöngu en hugur hennar stóð til. Eftir að við ömmustrákarnir fjórir komumst á legg, þá fylgdist hún alltaf vel með skólagöngu okkar og hvatti okkur áfram í náminu, taldi það nauðsynlegan grunn fyrir framtíðina. Þá minnumst við þess hve gestrisin hún var og lét sér annt um að gestir hennar færu mettir heim. Fullvissaði sig um í hvert skipti að ekki mætti bjóða manni meira svo vitnað sé til orða hennar. Hún amma mín stóð alltaf vörð um hagsmuni fjölskyldu sinnar. Fylgdist með hvernig gekk hjá hverjum og einum og stóð með sínu fólki á hverju sem dundi. Síðustu æviárin naut hún ein- stakrar umönnunar á Dalbæ, heim- ili aldraðra á Dalvík. Starfsfólki þar eru færðar bestu þakkir fyrir þeirra fórnfúsa starf í hennar þágu. Þá verður að geta þess að foreldrar mínir hafa nánast upp á hvern dag öll þessi ár heimsótt hana og stutt og styrkt á alla lund. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég ömmu mína hinsta sinni, fullviss þess að hún mun standa vörð um hag sinna hér eftir sem hingað til. Þorsteinn Friðþjófsson. Ég kynntist Guðrúnu fyrir rúm- um tuttugu árum, þegar ég kom fyrst með Þorsteini sonarsyni henn- ar til Dalvíkur. Guðrún var ekki allra og því var ég vöruð við að alls ekki væri víst að hún tæki mér. Ég var undir það búin að fara í stutta heimsókn og gera gott úr hlutunum. En ekki aldeilis. Guðrún var búin að ákveða fyrirfram að ég væri eng- ill. Hún var alla tíð mjög stolt af börnunum og barnabörnunum og einhvernvegin féll maður ósjálfrátt inn í þennan fullkomna hóp. Ekki þurfti að dvelja lengi hjá Guðrúnu til að sjá hvað skipti hana mestu máli. Veggirnir voru þaktir myndum af hennar fólki. Hún fylgd- ist með öllum og þurfti margs að spyrja. Gladdist yfir velgengni af- komenda sinna, fátt gladdi meira en góður námsárangur. Guðrún var komin yfir áttrætt þegar ég kynntist henni og heilsan að bila. Henni leið ekki alltaf vel, hvorki á sál né líkama, stundum var erfitt að sjá björtu hliðarnar á tilver- unni. Ný lyf áttu eftir að hjálpa henni mikið. Hún varð svo miklu glaðari og bjartara yfir dögunum. Hundrað ára afmælið var haldið með sóma og þar tók Guðrún á móti gestum, glöð í bragði. Eftir þau tímamót tók smám saman að halla undan fæti, heilsan gaf sig. Síðustu árin hefur hún þurft mikla umönnun. Ég veit að starfsfólk Dalbæjar hefur staðið sig með mikilli prýði og sinnt henni af alúð. Guðrún var ekki ein af þeim sem eru afskiptir í ellinni. Sú umönnun sem hún naut frá börnum sínum og tengdadóttur er einstök. Ingibjörg býr í Reykjavík og fylgdist vel með og fór reglulega norður að heimsæja móður sína. Hún var hjá henni þegar kallið kom, hafði setið yfir henni um nóttina. Tengdaforeldrar mínir, Kristín og Friðþjófur, hafa verið óþreytandi að sinna Guðrúnu. Þau hafa vakað yfir velferð hennar nótt og dag og verið meira á Dalbæ síð- ustu sólahringana en heima hjá sér. Ég dáist að trygglyndi þeirra og ósérhlífni. Silja er stödd erlendis og getur ekki fylgt langömmu sinni síð- asta spölinn. Frá henni og Andra Frey eru góðar kveðjur til allra að- standenda. Harpa Sigfúsdóttir. GUÐRÚN BJÖRNSDÓTTIR ✝ Ragna Garðars-dóttir fæddist í Reykjavík 5. október 1973. Hún lést í London 24. desember síðastliðinn. Foreldr- ar hennar eru hjónin Garðar Snorrason og Svala Þórhallsdóttir. Systur Rögnu voru Kristín Lilja, f. 3. júní 1970, og Rut, f. 18. ágúst 1972. Ragna ólst upp í Garðabæ og útskrif- aðist á nýmálalínu við Fjölbrautaskólann í Garðabæ en flutti í vesturhluta Reykjavíkur þegar hún hóf nám við Háskóla Ís- lands árið 1993. Ragna lauk B.A. námi í bókmenntafræði við Há- skóla Íslands og í framhaldi af því lauk hún mastersnámi í almennri bókmenntafræði við sama skóla. Jafnframt lauk hún B.A. námi í sagn- fræði/heimspeki við Háskóla Íslands en heimspekina stund- aði hún nær ein- göngu við Techn- ische Universität í Berlín. Að því loknu starfaði Ragna við Hugvísindastofnun Háskóla Íslands sem og við menningar- vefritið Kistuna í eitt ár, jafnframt starf- aði hún sem lausráð- inn blaðamaður við menningar- síðurnar hjá Morgunblaðinu. Ragna var í doktorsnámi við Goldsmiths University of London þegar hún lést. Útför Rögnu fór fram frá Garðakirkju 10. janúar. Hún hvíl- ir í Garðakirkjugarði. Störin á flánni er fölnuð og nú fer enginn um veginn annar en þú. Í dimmunni greinirðu daufan nið og veizt þú ert kominn að vaðinu á ánni. (Hannes Pétursson) Dauðinn ber misfast að dyrum. Hann barði bæði fast og lengi hjá Rögnu frænku minni og það endaði með því að þau sættust á að nú væri stundin komin. Og hann hvíslaði í eyra hennar: „Ég ætla að leiða þig til ljóssins og lífsins.“ Okkur er bara gefinn einn dagur í senn. Sumum tekst betur en öðr- um að nýta hvern dag. Ragna varð að nota tímann vel því hann var naumur. Það gerði hún svo sann- arlega. Á kveðjustund streyma minningar liðinna 29 ára um hug- ann, allar ljúfar og góðar. Minn- ingar um brosið, glettnina í aug- unum og faðmlögin hlýju. Mér finnst eins og okkur sé úthlutað kvóta í þessu lífi og sá sem það ger- ir var höfðinglegur þegar kom að Rögnu. Hún var skarpgáfuð og hennar frábæru námshæfileikar fengu að njóta sín til fulls. Hún var langt komin í doktorsnámi í menn- ingarfræði og hefði lokið því á næsta ári. Hún hafði yndi af lestri góðra bóka og elskaði ljóð. Her- bergi hennar var nánast fullt af bókum enda komu mörg tækifæri til bókagjafa við öll hennar lokapróf á langri skólagöngu. Með þakkar- kossunum fylgdi alltaf: „Þetta er einmitt bókin sem mig langaði í.“ Ég verð henni ævinlega þakklát fyrir að kynna mér eitt af uppá- haldsskáldum sínum, Stefán Hörð Grímsson. Ragna sjálf byrjaði barn- ung að semja ljóð og gaman væri að sjá ljóðin hennar á bók. En allra bestu kostir hennar voru umhyggja hennar og falslaus vin- átta. Hún var góð dóttir, góð systir og góð frænka. Vinátta Rögnu og Unnar ömmu hennar var einstök. Hún kom ósjaldan í búðina til mín til að kaupa fallega flík á ömmu sína. Þá geystist hún inn á lager og vildi ótrufluð velja gjöfina. Fjölskylda Rögnu var henni allt. Garðar bróðir minn og Svala mág- kona mín umvöfðu dætur sínar ást og umhyggju. Heimilið var opið öll- um vinum og frændfólki, þar var ör- yggi fjölskyldunnar í fyrirrúmi. Systurnar fengu hvatningu og stuðning til náms og starfa. Syst- urnar Lilja, Rut og Ragna bera all- ar sínu góða heimili fagurt vitni. Vinátta þeirra systranna var afar náin. Saman glöddust þær á góðum stundum og saman leystu þær vandamál líðandi stundar. Minningarorðum mínum lýkur með þessu fallega erindi Einars Benediktssonar: Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. Nú hefur Ragna okkar séð „upp- himin fegri“. Ég veit að nú líður henni vel, umvafin ljósinu sem hún eflaust vill senda til allra, einkum þeirra sem myrkrið hrjáir. Elsku Ragna mín, ég kveð þig um stund, þakklát fyrir brosin glettnu og faðmlögin hlýju – alla vináttuna, sem ég hefði svo gjarnan viljað njóta lengur. Ég bið algóðan Guð að blessa þig og fjölskyldu þína alla. Bertha frænka. RAGNA GARÐARSDÓTTIR Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn ein- stakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.