Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 42
MINNINGAR 42 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Gylfi Harðarsonfæddist í Reykja- vík 7. júní 1943. Hann lést á heimili sínu í Vestmannaeyjum 2. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Hörður Kristinsson, f. 13. sept. 1920, d. 27. jan. 1983, og Unn- ur Jónsdóttir, f. 24. maí 1922. Systkini Gylfa eru Birgir Örn, f. 27. okt. 1946, Krist- inn Már, f. 23. ágúst 1948, Anna, f. 23. júní 1951, Guðrún, f. 22. des. 1952, og Matthías, f. 14. apríl 1961. Fyrir átti Hörður dótturina Hrafnhildi. Árið 1962 kynntist Gylfi Birnu Kristínu Þórhallsdóttur, f. 12. ágúst 1946, og gengu þau í hjóna- band 27. feb. 1965. Þau slitu sam- vistum árið 1986. Gylfi kvæntist ekki aftur. Börn þeirra hjóna eru fjögur, þau eru: 1) Gylfi Anton vélfræðing- árið 1959 og starfaði þar fram til ársins 1961. Á næstu árum starfaði Gylfi við vélsmíði og vélaviðgerðir m.a. hjá Vélsmiðjunni Hamri og Vélsmiðju Péturs Auðunssonar í Hafnarfirði. Árið 1963 réðst Gylfi sem smyrjari á ms. Laxá og síðar á ms. Rangá og starfaði þar þar til í janúar 1974 þegar hann fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Vest- mannaeyja. Þar hóf Gylfi störf hjá Vélsmiðjunni Þór og starfaði þar fram til ársins 1976. Gylfi var vél- stjóri og matsveinn á Danska Pétri VE 423 frá 1976 til 1979 þegar hann réðst sem vélstjóri á nótaskip- ið Kap II VE 4 þar sem hann var næstu ellefu árin. Gylfi lauk form- legu vélstjórnarnámi frá Vélskól- anum í Vestmannaeyjum árið 1985. Árið 1990 réð hann sig sem yfirvél- stjóra á nótaskipið Berg VE 44 og starfaði þar allt til dánardags. Gylfi var virkur félagi í Golf- klúbbi Vestmannaeyja. Hann var bridsspilari og forfallinn flug- áhugamaður og átti mikið safn flugherma. Gylfi hafði mikinn áhuga á kjara- og öryggismálum sjómanna og sat á sínum tíma í stjórn sjómannafélagsins Jötuns. Útför Gylfa verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 14. ur, f. 19. apríl 1965, kvæntur Lindu Hrönn Ævarsdóttur og sam- an eiga þau þrjú börn, Tryggva Þór, Axel Frey og Hörpu Valey. 2) Ólafur Þór, BA í stjórnmálafræði og MSc í aðferða- og töl- fræði, f. 26. ágúst 1970, kvæntur Ingi- björgu Arnarsdóttur viðskiptafræðingi. 3) Unnur Heiða húsmóð- ir, f. 8. febrúar 1972, gift Þresti Friðberg Gíslasyni og eiga þau þrjár dætur, Sóley Rut, Telmu Hrönn og Svandísi Dögg. 4) Bjarki Týr Gylfason bifreiðastjóri, f. 12. janúar 1980, er í sambúð með Sig- ríði Reynisdóttur og saman eiga þau tvo drengi, Garðar Frey og Úlfar Þór. Eftir að hafa reynt fyrir sér til sjós á síðutogurum um skeið hóf Gylfi að læra vélsmíði hjá Vélsmiðj- unni Bjargi í Höfðatúni í Reykjavík Ég veit þú fékkst engu, vinur, ráðið um það, en vissulega hefði það komið sér betur, að lát þitt hefði ekki borið svo bráðan að. Við bjuggumst við að hitta þig oft í vetur. Og nú var um seinan að sýna þér allt það traust, sem samferðafólki þínu hingað til láðist að votta þér. Það virtist svo ástæðulaust að vera að slíku fyrst daglega til þín náðist. En dánum fannst okkur sjálfsagt að þakka þér og þyrptumst hljóðir um kistuna fagurbúna. Og margir báru þig héðan á höndum sér, sem höfðu í öðru að snúast þangað til núna. En þetta er afrek, sem einungis látnum vinnst, í allra þökk að gerast virðingamestur. Því útför er samkoma, þar sem oss flestum finnst í fyrsta sinn rétt, að annar sé heiðursgestur. En hópur þeirra, sem áttu þig lengst af að, var, eins og þú skilur, þyngstum söknuði hlaðinn. Og víst hefði margur maðurinn kosið það að mega fylgja öðrum vinum í staðinn. En þó að við treystumst til þess að lifa hér er tryggð okkar söm – og jafnvel þó að svo færi, að mynd þín gleymdist öllum, sem unna þér, er engan veginn gefið, hvers sökin væri. Mér dylst að vísu þín veröld á bak við hel, en vænti þess samt, og fer þar að prestsins orðum, að þú megir yfirleitt una hlut þínum vel, því okkar megin gengur nú flest úr skorðum. Og hér eru margir horfnir frá þeirri trú, að heimurinn megi framar skaplegur gerast, og sé honum stjórnað þaðan, sem þú ert nú, mér þætti rétt að þú létir þau tíðindi berast. (Tómas Guðmundsson.) Hvíl í Guðs friði, elsku bróðir. Birgir Örn, Kristinn Már, Anna, Guðrún, Matthías og Hrafnhildur. Gylfi Harðar er fallinn frá, langt fyrir aldur fram. Hann byrjaði sem yfirvélstjóri hjá okkur á Bergi VE 44 árið 1990. Þá var vélin Bergen Diesel 1040 HP., en áður hafði hann keyrt sams konar vél í Kap VE og þekkti hann því vel til. Það voru aldrei vandræði um borð eftir að Gylfi kom, ef eitthvað kom upp á þá var því reddað. Hvort sem verið var á veiðum eða keyrslu. Hann gætti þess ávallt að eiga nóg af varahlut- um um borð eins og dælur og allar tegundir af klussaslöngum ásamt öðru tilheyrandi. Þann tíma sem Gylfi var á Bergi var farið til Pól- lands í tvígang. Í bæði skiptin var Gylfi okkar maður í Póllandi og sá um eftirlit með framkvæmdunum og var sómi af. Gylfi talaði um að hann ætlaði að fara í land og hætta til sjós þegar hann næði 60 ára aldrinum og slaka á. En það er nú einu sinni svo, að við ráðum ekki alltaf okkar stað eða tíma. Við strákarnir á Bergi sem höfum róið með Gylfa öll þessi ár þökkum fyrir góða samveru og vin- áttu. Útgerðin Bergur ehf. þakkar GYLFI HARÐARSON Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærrar móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, VALBORGAR GÍSLADÓTTUR, Bergöldu 4, Hellu, áður Mávahlíð 34. Hulda S. Eggertsdóttir, Eggert Ólafsson, Eggert V. Guðmundsson, Eygló Bergs, Sigurður B. Guðmundsson, Jaroon Nuamnui og barnabarnabörn. Hjartkær eiginmaður minn og elskulegur faðir okkar, FRIEDEL KÖTTERHEINRICH, Túngötu 49, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum Fossvogi miðviku- daginn 8. janúar. Ingibjörg Sveinsdóttir, Kristín Luise Kötterheinrich, Markús Sveinn Kötterheinrich. Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, TÓMASAR EMILSSONAR, Öldugötu 11, Seyðisfirði. Þórdís Bergsdóttir, Bergur Tómasson, Ásdís Benediktsdóttir, Sigurður Tómasson, Hafdís Guðmundsdóttir, Hildur Tómasdóttir, Valdimar Jörgensen, Þórdís Tómasdóttir, Þór Ingólfsson, Emil Tómasson, Anna Karlsdóttir, Tómas Tómasson, Berglind Sigurðardóttir, afabörn og langafabörn. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, BIRGIR FINNSSON fyrrverandi forstöðumaður Tjaldanesheimilisins, lést á gjörgæsludeild Landspítalans föstudaginn 3. janúar síðastliðinn. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Knútur Birgisson, Gyða Vigfúsdóttir, Kristín Birgisdóttir, Darren Foreman, Snjólaug Sigurjónsdóttir, Hildur Erna Sigurjónsdóttir. Faðir okkar, afi, bróðir og vinur, GUNNAR STURLAUGSSON FJELDSTED, síðast til heimilis á Langárfossi, Borgarbyggð, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju mánu- daginn 13. janúar kl. 14.00. Aðstandendur. Ástkær dóttir okkar og systir, RAGNA GARÐARSDÓTTIR, lést í London þriðjudaginn 24. desember sl. Jarðarförin hefur farið fram. Garðar Snorrason, Svala Þórhallsdóttir, Kristín Lilja Garðarsdóttir, Rut Garðarsdóttir. ✝ Elín Böðvars-dóttir sauma- kona fæddist á Ból- stað í Mýrdal 20. júní 1909. Hún lést á Elli- og hjúkrunarheim- ilinu Grund 16. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Böðvar Sigurðs- son bóndi á Bólstað, f. 4.2. 1866, og kona hans, Hugborg Run- ólfsdóttir, f. 16.4. 1881. Börn þeirra voru níu: Steinunn, f. 1902, látin sama ár, Sigurður, f. 8.3. 1903, látinn; Markús, f. 24.12. 1904, látinn; Hjálmar, f. 8.10. 1906, látinn; Vil- helmína, f. 18.1. 1908, látin; Katr- ín, f. 17.10, 1910, látin, Sigurjón, f. 23.10. 1911, látinn. Eftirlifandi er Sigurbjörg Sóley, f. 23.10. 1912. Börn Elínar eru Sigurbjörn, f. 8.5. 1936, faðir hans var Guðmundur Krist- jánsson, f. 25.10. 1907, látinn, og Kol- brún Elín, f. 21.5. 1944, faðir hennar var Ralph William Anderson, f. 22.5. 1918, látinn. Barna- börnin eru níu og barnabarnabörnin 19, þar af eitt látið. Elín starfaði aðal- lega við saumaskap og ræstingar. Hún var ráðskona til margra ára hjá Pétri Guðmundssyni. Bjó hún svo í húsi Öryrkjabandalagsins í Há- túni til 1994, er hún fór á Elli- og hjúkrunarheimilið Grund. Útför Elínar fór fram í kyrr- þey. Þrýtur líf og þrek í öldnum taugum þeim er fyrrum spruttu úr móður jörð. Þá er ljúft að loka þreyttum augum, láta duftið frjóvga nýjan svörð. Er faðir lífsins vekur barn sitt, vorið, og veldi ljóssins sigrar enn á ný guðlegt frjómagn er þá endurborið, andi minn, hann verður hluti af því. Svo kveð ég sáttur granna mína góðu, gömlum vinum þakka sálaryl. Ég hrópa yfir hina miklu móðu: „Mer finnst gott að hafa verið til.“ (Kristján Árnason, Skálá.) Elsku amma mín er dáin og komin á betri stað. Það er svo margt sem rifjast upp þegar hugsað er til baka. Það sem ég man best um ömmu er þegar við fjölskyldan skruppum til Reykjavíkur en þá var alltaf gist hjá henni og Pétri (amma var ráðskona hjá honum í mörg ár) í Ármúlanum. Ég man alltaf eftir litla húsinu með græna þakinu þar sem Hótel Ísland stendur núna. Þegar við komum var alltaf til kók eða appelsín í ísskápn- um. Amma passaði mig stundum á meðan foreldrar mínir voru að er- indast í bænum. Mér fannst hafragrautur vondur en enginn nema amma fékk mig til að borða hann, hún sagði alltaf sögu til að fá mig til að borða hann, en hún var um beinagrind sem æti grautinn ef ég vildi hann ekki og þá mun ég verða horuð og veslast upp eins og beinagrindin. Ég var svo hrædd við beinagrindina að ég vildi frekar borða grautinn minn en að beina- grindin borðaði hann og nú finnst mér hafragrautur góður, þökk sé henni ömmu minni. Það er svo margt sem ég gæti tínt til til þess að rifja upp góðu tímana í Ármúlanum. Amma var alltaf að tala um að ég væri of feit eða þybbin og að ég ætti frekar að vera eins og hún og svo klappaði hún á lærið á sér (að mínu mati var amma of grönn) og bætti við að hún vissi hvað væri að vera þybb- in því hún var það þegar hún var ung. Amma sýndi aldrei neinar tilfinn- ingar enda þegar hún var að alast upp þá var það víst veikleiki, en þeg- ar við mamma sögðum henni frá að afi væri dáinn var það eina sem gerð- ist að hún þagði og varð fjarræn. Seinna sagði hún okkur mömmu að þegar afi hefði farið aftur út til Bandaríkjanna (en hann var her- maður á vellinum) þá hafi hún sofnað með mynd af honum ofan á sér. Þetta sýndi mér að amma lokaði ekki alveg á tilfinningar sínar. Hún gat opnað sig og sýnt okkur þær hliðar á sér sem við vorum ekki vön að sjá. Þín dótturdóttir og barnabarna- barn, Fanney Erla A. Friðjónsdóttir og Kolbrún Sara Anderson. Elsku Ella mín. Mig langar að byrja á því að þakka þér, elsku vin- ELÍN BÖÐVARSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.