Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. – leiðandi í lausnum Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001 BAUGUR Group hf. skilaði ríflega 8,8 milljarða króna hagnaði á fyrstu níu mánuðum yfirstandandi uppgjörsárs. Hagnaður af sölu hlutar Baugs ID í Arcadia nam um 85% af heildarhagnaði, eða 7,4 milljörðum króna. Alls nam hagn- aður Baugs ID rúmum 10 millj- örðum króna en aðrar einingar samstæðunnar, Baugur Ísland og Baugur USA, skiluðu samtals um 1,2 milljarða króna tapi. Tap Baugs Ísland nam 297 milljónum króna og hjá Baugi USA var tapið 892 milljónir króna. Jón Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs Group, sagðist í sam- tali við Morgunblaðið ánægður með heildaruppgjörið en kvaðst telja afkomu Baugs Ísland óvið- unandi. Sagði hann að þegar hefði verið gripið til aðgerða í því skyni að lækka kostnað. Þá sagði hann að í kjölfar þess að óarðbærum verslunum Bonus Stores hefði ver- ið lokað væri gert ráð fyrir að Baugur USA myndi rétta sig af á næstunni. Salan á Arcadia nam um 85% af heildarhagnaði  Hagnaður/12 Baugur Group var með um níu milljarða hagnað JÓNATAN Sveinsson, sem býr á Hrafnistu í Reykjavík, fagnar 100 ára afmæli sínu í dag. Sjómennsku stundaði hann frá sextán ára aldri eða þar til hann varð sjötugur. „Þá mátti ég ekki vera á sjó lengur,“ segir Jónatan, sem notar nú tímann til að hlusta á sögur af snældum en einnig útvarp, og er það oftast popptónlist sem verður fyrir valinu. Á árunum 1916–1922 reri Jón- atan árabátum á Arnarfirði. „Þá var ég orðinn uppgefinn á árabátunum. Við vorum allt árið að þvælast á þeim,“ segir hann. Í tilefni dagsins verður heitt á könnunni milli kl. 18 og 20 í Helgafellskaffisalnum á Hrafnistu. Hlustar mest á popp Morgunblaðið/Þorkell Jónatan Sveinsson er 100 ára í dag  Var þreytandi/6 KNATTSPYRNUMENN á Íslandi eru vanari því að stunda útihlaup og lyftingar af krafti á þessum árstíma í undirbúningi sínum fyrir Ís- landsmótið sem hefst í maí. Með tilkomu knattspyrnuhúsa á höfuðborg- arsvæðinu, í Reykjanesbæ og á Akureyri geta knattspyrnulið nú keppt og æft við bestu að- stæður í stað þess að glíma við kynduga ís- lenska veðráttu á gervi- og malarvöllum undir berum himni. Knattspyrnuráð Reykjavíkur reið á vaðið í gær er Reykjavíkurmótið hófst í Egilshöllinni í Grafarvogi en þar áttust við Léttir og Íslands- meistaralið KR í opnunarleik mótsins. Átta lið eru skráð til keppni að þessu sinni og spannar keppnistímabil margra íslenskra liða því 10 mánuði að þessu sinni. Deildabik- arkeppni KSÍ tekur við að afloknu Reykjavík- urmótinu og eins og áður segir hefst Íslands- mótið í maí og stendur það yfir allt fram til loka septembermánaðar. Morgunblaðið/Kristinn Tíu mánaða knattspyrnuvertíð BIÐLISTI eftir líffæraígræðslu hefur verið að lengjast og hefur heilbrigðisráðuneytið, að tillögu líffæraflutninganefndar, óskað eftir upplýsingum frá Noregi, Svíþjóð og Danmörku um bið eftir ígræðslum. Í skýrslu líf- færaflutninganefndar segir að upplýsingar frá Scandiatrans- plant bendi til þess að biðlisti eftir líffærum sé styttri í Noregi og Svíþjóð en í Danmörku, en ís- lensk stjórnvöld eru með samn- ing við Ríkisspítalann í Kaup- mannahöfn. Í árslok 2001 voru þrettán á biðlista eftir nýju nýra, en árið á undan voru níu á biðlista. Ekki fengust upplýsingar í gær um hve margir væru nú á biðlista. Tveir sjúklingar fóru nýlega í nýrnaskiptaaðgerð. „Bið eftir líffæraígræðslu hef- ur verið að lengjast og við höfum áhyggjur af því. Við höf- um skrifað Dönum og spítulum á öðrum Norðurlönd- um til að fá upplýsingar um biðtím- ann. Það hafa enn ekki komið nein svör. Við teljum hugsanlegt að biðin sé styttri í Svíþjóð en við viljum fá nákvæm svör um það,“ sagði Sigurður Thorlacius, trygginga- yfirlæknir og formaður líffæra- flutninganefndar. Íslensk stjórnvöld gerðu upp- haflega samning við Svía um líffæraígræðslur, en árið 1996 var ákveðið að semja við Rík- isspítalann í Kaupmannahöfn um ígræðslur. Samningurinn hefur verið endurnýjaður einu sinni. Ef segja á honum upp verður að taka ákvörðun um það fyrir 1. júlí nk. og rennur hann þá úr gildi um næstu áramót. Upplýsingar um líffæra- ígræðslur á síðasta ári hafa ekki verið teknar saman, en árið 2001 voru gerðar sex nýrnaígræðslur, þar af fengu þrír sjúklingar nýru frá lifandi gjafa. Einn sjúklingur fór utan í lungna- ígræðslu á árinu 2001, en hann tafðist á leiðinni af óviðráðanleg- um orsökum og kom of seint, þannig að ekki varð af ígræðslu. Sex nýrnaígræðslur voru gerðar árið 2000 og lifur var grædd í einn sjúkling. Biðlisti eftir líffæra- ígræðslu lengist    9 9 9 9 9 H I K L H EMBÆTTI landlæknis hefur fengið að- stöðu á Austurströnd 5 á Seltjarnarnesi. Verða skrifstofur þess opnaðar þar á mánu- daginn. Frá árinu 1981 hefur landlæknir verið til húsa á Laugavegi 116 en að sögn Sigurðar Guðmundssonar landlæknis var farið að þrengja að starfseminni og því var ákveðið að flytja í hentugra húsnæði. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem landlækn- ir fær aðstöðu á Seltjarnarnesi því þegar embættið varð til árið 1760 var landlæknir þar allt til ársins 1834 þegar embættið var flutt til Reykjavíkur. Aftur á Nesið eftir 169 ár  Flytur á ný /22 HELMINGSMUNUR var á kíló- verði á suður-afrískum vínberjum, stundum nefnd jólavínber, skv. lauslegri verðkönnun Morgunblaðs- ins í hádeginu í gær. Verð á vínberjum hefur lækkað umtalsvert í þessari viku en 30. desember síðastliðinn kostaði kílóið af slíkum berjum 798–998 krónur í verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Eggert Gíslason, framkvæmda- stjóri Mötu ehf. sem flytur inn Cape-vínber, segir að verðið hafi lækkað um 36% síðastliðinn mánu- dag. Samkvæmt könnun Morgun- blaðsins í gær voru berin ódýrust í Bónus, kostuðu 499 krónur kílóið, en dýrust voru þau í Nóatúni, 998 kr. kílóið. Í Fjarðarkaupum og Sparverslun kostuðu þau 559 kr., í Nettó 799 kr. kílóið og 949 kr. í Hagkaupum. Helmings- verðmunur á vínberjum  Jólavínberin hafa/27 JP MORGAN mælir með kaupum á hluta- bréfum í deCODE, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar. Telur verðbréfafyrirtækið að eðlilegt gengi hlutabréfa félagsins sé á bilinu 4–5 Bandaríkjadalir en það hefur verið í kringum 2 dalir að undanförnu. Þetta kemur í kjölfar tilkynningar frá Ís- lenskri erfðagreiningu um að ákveðnum áfanga hafi verið náð í lyfjaþróun hjá félag- inu. JP Morgan hefur vegna þessa breytt ráðgjöf sinni varðandi hlutabréf deCODE og mælir nú með kaupum á hlutabréfunum í stað hlutlausrar ráðgjafar áður. Gengi hlutabréfa deCODE á Nasdaq- hlutabréfamarkaðinum í New York hækk- aði um 41,43% í gær í kjölfar birtingar skýrslunnar. Gengi bréfanna nú er því ná- lægt 3 dölum. DeCODE hækkar um 41,5%  Verðmat/12 MEÐAN náttúran er í vetrardvala og bíð- ur sumars þá er þó eitt sem vex ríkulega í froststillum þvílíkum sem verið hafa í Mý- vatnssveit að undanförnu. Þetta eru ís- kristallar en þeir eiga til ótrúlega fjöl- breytni og fegurð sem oft minnir á blómskrúð. Hrímið sem þannig myndast skreytir tré og runna fagurlega. Morgunblaðið/BFH Hélublóm ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.