Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 47 NÝ dansnámskeið eru að hefjast hjá Dansskóla Jóns Péturs og Köru. Í vetur verður sem fyrr boðið upp á námskeið í barna- dönsum, samkvæmisdönsum, gömlu dönsunum og fleiru fyrir fólk á öllum aldri, jafnt byrjendur sem lengra komna. Einnig verða kenndir nýjustu tískudansarnir og dans ársins. Fyrir yngstu nemendurna 4 til 5 ára er boðið upp á dans, söng og leik og þessu fléttað saman við tónlist. Hjá eldri börnum og unglingum er boðið upp á námskeið í sam- kvæmisdönsum og tískudöns- unum. Fyrir fullorðna verður boðið upp á námskeið í samkvæm- isdönsum. Í framhaldshópum barna, ung- linga og fullorðinna er haldið áfram að byggja upp dansinn á þeim grunni sem fyrir er og bætt inn fleiri dönsum og sporum. Einnig munu verða merkjapróf Dansráðs Íslands. Samhliða danskennslu í Reykja- vík fara kennarar á vegum Dans- skóla Jóns Péturs og Köru víða út á land með dansnámskeið. Inn- ritun á dansnámskeið skólans stendur yfir daglega kl. 12 – 19 í síma eða með tölvupósti dans- @dansskoli.is. Kennsla hefst mánudaginn 13. janúar. Dansskóli Jóns Péturs og Köru STJÓRN Verkalýðsfélagsins Hlífar samþykkti nýlega ályktun þar sem skorað er á fjármálaráðherra, „að hætta öllum undanbrögðum og gera nú þegar ráðstafanir til að jafna innvinnslu lífeyrisréttinda hjá því fólki sem vinnur hjá ríkinu og láta ekki stéttarfélagsaðild ráða þar neinu um.“ Félagið vísar þarna í fyrirheit sem fjármálaráðherra gaf um líf- eyrismál ASÍ-fólks sem starfar hjá ríkinu. „Það er óásættanlegt að starfs- menn ríkisins sem eru í félögum op- inberra starfsmanna fái allt að því tvöfalt hærra lífeyrissjóðsframlag frá ríkinu en þeir sem eru í stétt- arfélögum innan Alþýðusambands Íslands. Með þessu er ríkisvaldið að misnota opinbera fjármuni og mis- muna launþegum eftir félagsaðild þeirra og knýja starfsmenn sína til að eiga fremur aðild að félögum op- inberra starfsmanna en að stétt- arfélögum innan ASÍ. Þetta er víta- verð framkoma sem ber að leiðrétta hið fyrsta. Verði fyrrgreint óréttlæti ekki leiðrétt í vetur skorar fundurinn á almenning að hafa þetta í huga þeg- ar hann gengur að kjörborðinu í kosningum til Alþingis næsta vor,“ segir í ályktuninni. Ráðherra jafni lífeyr- isréttindi Nýársball fyrir fatlaða í Árseli verður haldið í kvöld, laugardags- kvöldið 11. janúar, kl. 19.30 og stendur til kl. 22.30. Boðið verður upp á fordrykk í boði hússins, dans- kort og rósir. Veitingasalan verður opin. Verð kr. 400. Í DAG Ferðafélag Íslands fer í dagsferð í Herdísarvík á morgun, sunnudaginn 12. janúar. Páll Sigurðsson prófess- or verður leiðsögumaður og segir sögu staðarins og frá lífi Einars Benedikssonar og Hlínar Johanson, sambýliskonu hans, og frá síðustu æviárum skáldsins í víkinni. Lagt verður af stað kl. 11 frá BSÍ með við- komu í Mörkinni 6. Heimkoma er áætluð um kl. 17. Ferðalangar hafi með sér nesti. Verð er 2.000 kr. fyrir félagsmenn og 2.500 kr. fyrir aðra. Íþróttahátíð Íþrótta- og tóm- stundaráðs Kópavogs verður haldin á morgun, sunnudaginn 12. janúar, kl. 17, í Félagsheimili Kópa- vogs. Lýst verður kjöri á íþrótta- konu og íþróttakarli Kópavogs. Einnig verða afhentir árangurs- tengdir afreksstyrkir og íþróttafólki veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu 2002. Kaffiveitingar verða í tilefni dagsins og eru Kópa- vogsbúar velkomnir. Á MORGUN Vigdís Hauksdóttir, varaþingmað- ur Framsóknarflokksins í Reykja- vík, gefur kost á sér í forystusveit Framsóknarflokksins í borginni fyr- ir komandi þingkosningar. Í yfirlýs- ingu frá Vigdísi segir: „Það er erfitt að vera framsóknarmaður í Reykja- vík á þessum tímum og geta lítið annað gert en horft á andstæðinga okkar niðurlægja okkur, og í raun gera tilraunir til að útrýma flokkn- um endanlega. Að vísu hafa andstæðingar okkar ákveðið forskot á Framsóknarflokk- inn í borginni því ekki er enn búið að ganga frá framboðslistum flokksins. Það er lífsspursmál fyrir Framsókn- arflokkinn að ná góðri kosningu á höfuðborgarsvæðinu og tefla fram öflugu og kraftmiklu fólki, fólki með reynslu úr flokksstarfinu, úr at- vinnulífinu og fólki með framtíð- arsýn,“ segir í yfirlýsingu frá Vig- dísi. Samfylkingin í Norðaustur- kjördæmi hefur ráðið Sigurð Þór Salvarsson fjölmiðlafræðing á Ak- ureyri í stöðu kosningastjóra flokks- ins fyrir alþingiskosningarnar í vor. Sigurður Þór tekur til starfa um miðjan janúar, en aðalkosn- ingaskrifstofa Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi verður á Ak- ureyri. STJÓRNMÁL SVÞ – Samtök verslunar og þjón- ustu og Logos lögmannsþjónusta efna til námstefnu 16. janúar undir heitinu Leikreglur samkeppninnar – Hvaða kröfur eru gerðar í sam- keppnislögum og -reglum til fyr- irtækjastjórnenda. Leitast verður við að varpa ljósi á mörk leyfilegrar og bannaðrar háttsemi í samkeppni fyr- irtækja og afleiðingar samkeppn- islagabrota. Framsögu hafa: Óttar Pálsson hdl., Helga Melkorka Óttars- dóttir hdl., Þórunn Guðmundsdóttir hrl., Gestur Jónsson hrl., Andri Árnason hrl., Gunnar Sturluson hrl., Jón Hákon Magnússon, sérfræð- ingur í almannatengslum, og Stefán Már Stefánsson, prófessor og for- maður áfrýjunarnefndar samkeppn- ismála. Námstefnustjóri verður Tryggvi Jónsson, formaður SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu og forstjóri Heklu hf. Námstefnan verður haldin í Efsta- leiti 5 og hefst kl. 13. Þátttöku þarf að tilkynna á tölvupóstfangið emil@svth.is eða í síma. Þátttöku- gjald er 12.000 kr. Málþing um Vatnajökulsþjóðgarð og Jöklasetur á Hornafirði verður haldið föstudaginn 17. janúar kl. 15– 19, í ráðstefnusal Nýheima á Höfn og er öllum opið. Málþingið halda Há- skólasetrið á Hornafirði, Framhalds- skólinn í Austur-Skaftafellssýslu og Menningarmiðstöð Hornafjarðar. M.a. verður gerð grein fyrir stöðu og horfum þjóðgarðsverkefnisins og ræddar hugmyndir um eflingu rann- sókna og atvinnutækifæra sem Vatnajökulsþjóðgarður hefði í för með sér. Þjóðgarðar í sunnanverðri Afríku verða kynntir. Einnig verður kynnt skýrsla ársins 2003 úr rann- sóknarverkefninu Vatnajök- ulsþjóðgarður: Náttúruvernd og at- vinnulíf grannbyggða. Ungliðastarf Samtakanna ’78 á vorönn 2003 er hafið. Hist er í húsi samtakanna á Laugavegi 3, 4. hæð fyrsta og þriðja sunnudag hvers mánaðar, kl. 20–23. Umsjónarmenn Dofri Örn Guðlaugsson og Sara Dögg Jónsdóttir. Markmið starfsins er að veita ungu fólki undir tvítugu vett- vang til að hittast, kynnast og efla samkennd sam- og tvíkynhneigðs ungs fólks, segir í fréttatilkyningu. Frekari upplýsingar er hægt að nálg- ast á heimasíðu samtakanna www.samtokin78.is/unglidar. Einnig er hægt að senda tölvupóst á net- fangið unglidar@samtokin78.is Námskeið í sálrænni skyndihjálp verður hjá Kópavogsdeild Rauða kross Íslands dagana 21. og 23. jan- úar kl. 20–22, í húsnæði Kópavogs- deildar Rauða krossins í Hamraborg 11, 2. hæð. Þátttakendur læra m.a. hvernig þeir geti veitt stuðning og umhyggju og hvaða úrræði sam- félagið hefur upp á að bjóða í tengslum við sálræna skyndihjálp og mannlegan stuðning. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Kolbrún Þórð- ardóttir hjúkrunarfræðingur. Þátt- tökugjald er 3.000 kr., námsefni og skírteini eru innifalin. Skráning er fyrir 18. janúar í síma eða með tölvu- pósti á kopavogur@redcross.is. Námskeið fyrir almenning hjá Karuna eru að hefjast. Gen Nyingpo kennir „lífsstíl búddista“ á þriðju- dagskvöldum. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur og verður dagana 14., 21. og 28. janúar. Á mánudagskvöldum kennir Elín Agla á námskeiði um streitustjórnun. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur og verður dagana 13., 20. og 27. janúar. Bæði þessi námskeið eru kennd í Karuna mið- stöðinni í Bankastræti 6. Gjald er 800 kr. fyrir hvert skipti eða 2.000 kr. fyr- ir öll þrjú. Atvinnulausir, nemar og öryrkjar 500 kr. eða 1.200 kr. fyrir öll skiptin. Einnig er hugleiðsla og hádeg- isverður á fimmtudögum kl. 12–13, þar leiðir Gen Nyingpo einfalda hug- leiðslu. Gjald er 500 kr. og boðið upp á léttan hádegisverð ókeypis. Á NÆSTUNNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.