Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 43
MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 43
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11:00.
Guðsþjónusta kl. 14:00. Kór Áskirkju
syngur. Organisti Kári Þormar. Kaffisala
Safnaðarfélagsins eftir messu. Kirkjubíll-
inn ekur. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11.00. Hljómsveit ungmenna. Foreldrar
hvattir til þátttöku með börnum sínum.
Guðsþjónusta kl. 14:00. Organisti Sigrún
Þórsteinsdóttir. Prestur sr. María Ágústs-
dóttir.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Sr. Jak-
ob Ágúst Hjálmarsson prédikar. Dómkór-
inn syngur. Marteinn Friðriksson leikur á
orgelið. Barnastarf á kirkjuloftinu meðan á
messu stendur. Eftir messu er fundur í
safnaðarfélagi Dómkirkjunnar. Þar mun
Thuy Ngo segja frá starfsemi Alþjóðahúss-
ins.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Hreinn S. Hákonarson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11:00.
Guðsþjónusta kl. 11:00. Kirkjukór Grens-
áskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarn-
arson. Sr. Ólafur Jóhannsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna-
starf kl. 11:00. Umsjón barnastarfs
Magnea Sverrisdóttir. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti
Jón Bjarnason. Sr. Jón Dalbú Hróbjarts-
son.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11:00. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir og
Guðrún Helga Harðardóttir. Organisti Dou-
glas A. Brotchie. Messa kl. 14:00. Org-
anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir.
LANDSPÍTALI – Háskólasjúkrahús: Foss-
vogur: Guðsþjónusta kl. 10:00. Prestur
Kjartan Örn Sigurbjörnsson. Hringbraut:
Guðsþjónusta kl. 10:30. Prestur Ingileif
Malmberg. Landakot: Guðsþjónusta kl.
11:30. Prestur Kjartan Örn Sigurbjörns-
son.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa og barnastarf kl. 11:00.
Prestur Jón Helgi Þórarinsson. Organisti
Jón Stefánsson. Félagar úr Kór Langholts-
kirkju leiða söng. Barnastarfið hefst í kirkj-
unni en síðan fara börnin í safnaðarheim-
ilið. Kaffisopi eftir messuna.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11:00. Kór Laugarneskirkju
syngur undir stjórn Gunnars Gunn-
arssonar. Bjarni Karlsson þjónar ásamt
Sigurbirni Þorkelssyni og sunnudaga-
skólakennurunum Hildi Eiri, Heimi og Þor-
valdi. Messukaffi. Messa kl. 13:00 í Dag-
vistarsalnum Hátúni 12. Gunnar
Gunnarsson leikur, Þorvaldur Halldórsson
leiðir sönginn. Bjarni Karlsson prédikar,
en Guðrún Karlsdóttir leiðir stundina
ásamt Margréti Scheving og hópi sjálf-
boðaliða. Messa kl. 14:00 í hjúkr-
unarheimilinu Sóltúni. Prófasturinn Jón
Dalbú Hróbjartsson heimsækir heimilið,
prédikar og þjónar ásamt Bjarna Karlssyni
sóknarpresti og djáknunum Jóni Jóhanns-
syni, Fjólu Haraldsdóttur og Jóhönnu Guð-
mundsdóttur. Gunnar Gunnarsson leikur á
píanó og stjórnar söng.
NESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Kór Nes-
kirkju syngur. Organisti Steingrímur Þór-
hallsson. Prestur sr. Frank M. Hall-
dórsson. Sunnudagaskólinn og 8 og 9 ára
starf á sama tíma.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl.
11:00. Altarisganga. Össur Skarphéð-
insson flytur hugleiðingu. Sunnudagaskól-
inn hefur göngu sína með skemmtilegu
ívafi. Börnin hvött til að mæta. Organisti
Viera Manasek. Prestur Sigurður Grétar
Helgason.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjónusta kl.
14:00. Barnastarf á sama tíma. Maul eftir
messu.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barnamessa
klukkan 11. Barn borið til skírnar. Falleg
og skemmtileg barnastund. Umsjón með
tónlistinni hefur okkar frábæri tónlistar-
stjóri Carl Möller. Silli kemur í heimsókn
frá Vestmannaeyjum. Við fréttum af æv-
intýrum hans yfir jól og áramót. Að fastri
venju lýkur stundinni með því að við förum
niður að tjörn og gefum öndunum brauð.
Allir hjartanlega velkomnir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11:00. Brúðuleikhús Helgu Stef-
fensen verður með leikrit. Kaffi og kirkju-
kex á eftir. Nú er allt starfið að hefjast á ný
eftir hátíðina og um að gera að byrja árið
með krafti og gleði í kirkjunni. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Messa á sama tíma. Léttar veit-
ingar að guðsþjónustu lokinni. Gísli Jón-
asson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur
sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti Kjart-
an Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju B-
hópur. Sunnudagaskóli í kapellu kl.
11:00. Léttur málsverður í safnaðarsal
eftir messu (sjá nánar www.digra-
neskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11:00. Prestur sr. Guðmundur Karl
Ágústsson. Organisti: Lenka Matéová.
Ritningarlestur: Benedikta G. Waage.
Barnaguðsþjónusta á sama tíma. Um-
sjón: Elfa Sif.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Organisti: Ester Ólafsdóttir.
Sunnudagaskóli kl. 11:00. Sr. Bjarni Þór
Bjarnason. Umsjón: Sigríður Rún, Sigurvin
og Signý. Undirleikari: Guðlaugur Vikt-
orsson. Sunnudagaskóli kl. 13:00 í Engja-
skóla. Sr. Bjarni Þór Bjarnason. Umsjón:
Sigríður Rún, Sigurvin og Signý. Undirleik-
ari: Guðlaugur Viktorsson.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Íris Kristjánsdóttir þjónar. Félagar úr kór
kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng.
Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Barna-
guðsþjónusta kl. 13. Við minnum á bæna-
og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Prest-
arnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 11:00. Guðs-
þjónusta kl. 11:00. Sr. Sigurjón Árni Eyj-
ólfsson héraðsprestur prédikar og þjónar
fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur og
leiðir safnaðarsöng. Organisti Julian Hew-
lett. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
LINDAKIRKJA í Kópavogi: Guðsþjónusta
kl. 11 í Lindaskóla. Fermingarbörn sjá að
mestu um helgihaldið. Sr. Guðmundur
Karl Brynjarsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11.00. Mikill söngur, sögur, líflegt sam-
félag! Nýjar bækur og límmyndir! Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson
prédikar. Organisti Gróa Hreinsdóttir.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguð-
sþjónusta kl.11.00. Fræðsla fyrir börn og
fullorðna. Ingunn Björnsdóttir kennir.
Samkoma kl.20.00. Mikil lofgjörð og fyr-
irbænir. Edda Matthíasdóttir Swan predik-
ar. Allir velkomnir. Þáttur kirkjunnar „Um
trúna og tilveruna“ verður sýndur á sjón-
varpsstöðinni Ómega kl.13.30. Heima-
síða kirkjunnar er: www.kristur.is
FRÍKIRKJAN VEGURINN: Bænastund kl.
16. Samkoma kl. 16:30, Högni Valsson
predikar, brauðsbrotning, krakkakirkja,
ungbarnastarf, lofgjörð og fyrirbænir. Allir
hjartanlega velkomnir. Ath. skráning á
Alfanámskeiðið er hafin.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur:
Bænastund kl. 19.30. Hjálpræð-
issamkoma kl. 20. Majórarnir Turid og
Knut Gamst stjórna og tala. Mánudagur:
Kl. 15 heimilasamband. Majór Turid
Gamst talar. Kl. 17.30 Barnakór. Öll börn
velkomin.
KEFAS, Vatnsendabletti 601: Samkoma
sunnudag kl. 14.00. Sigrún Einarsdóttir
talar. Bænastund fyrir samkomu kl.
13.30. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt
barnastarf fyrir 1–5 ára börn og 6–12 ára.
Eftir samkomu er boðið upp á kaffi og
meðlæti selt á vægu verði. Þá er gott
tækifæri til að hitta fólk og spjalla saman.
Allir eru hjartanlega velkomnir. Þriðjud.:
Bænastund kl. 20.30. Miðvikud.: Sam-
verustund unga fólksins kl. 20.30. Lof-
gjörð, hugleiðingar, fróðleiksmolar og vitn-
isburðir. Allir velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma
kl. 17. Upphafsorð: Kristín Möller. Hrönn
Sigurðardóttir talar. Barnastarfið heldur
áfram í Undralandi. Matsala verður að
samkomu lokinni. Vaka kl. 20: Guðlaugur
Gunnarsson fjallar um framtíðina sem
blasir við. Mikill söngur og lofgjörð. Allir
innilega velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti,
dómkirkja og basilíka: Sunnudaga: Há-
messa kl. 10.30. Messa á ensku kl.
18.00. Alla virka daga: Messa kl. 18.00.
Laugardaga: Barnamessa kl. 14.00 að
trúfræðslu lokinni.
Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laug-
ardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka
daga: Messa kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16.00. Miðvikudaga kl. 20.
Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Miðvikudaga: Messa kl.
18.30
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.00.
Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.00. Fimmtu-
daga: Skriftir kl. 19.30. Bænastund kl.
20.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.00.
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.00.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.00.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 11
fyrsta barnaguðsþjónusta á nýju ári. Kl.
14 guðsþjónusta. Kór Landakirkju undir
stjórn Guðmundar H. Guðjónssonar.
LÁGAFELLSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11.00. Upphaf barnastarfsins á nýju
ári með þátttöku sunnudagaskólans,
Kirkjukrakka, TTT og æskulýðsfélagsins.
Umsjón: Þórdís Ásgeirsdóttir djákni,
Hreiðar Örn og Jónas Þórir. Jón Þor-
steinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl.11. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn
Antoniu Hevesi. Prestur sr.þórhildur Ólafs.
Sunnudagaskólinn í kirkjunni heimsækir
krakkana í Hvaleyrarskóla. Rútan fer frá
kirkjunni kl.11.00 og heim aftur kl.12.00.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Nú hefst barna-
starfið aftur eftir jólafrí. Afhentar verða nýj-
ar bækur og nýjar myndir. Morgunverður í
safnaðarheimilinu á eftir. Guðsþjónusta
kl. 14. Kirkjukór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Úlriks Ólasonar.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Umsjón hafa Edda, Sig-
ríður Kristín, Hera og Örn. Góð og upp-
byggileg stund fyrir alla fjölskylduna.
Guðsþjónusta kl. 13. Örn Arnarson og
hljómsveit kirkjunnar leiða tónlist og
söng. Umfjöllunarefni guðsþjónustunnar
verður fermingin og fermingarundirbún-
ingur. Altarisganga. Að lokinni guðsþjón-
ustu verður stuttur fundur með ferming-
arbörnum og fjölskyldum þeirra um
fermingarstarfið. Einar Eyjólfsson og Sig-
ríður Kristín Helgadóttir.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli í Stóru-
Vogaskóla í dag, laugardag, kl. 11.15.
ÁSTJARNARKIRKJA: Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta í Samkomusal Hauka á Ás-
völlum sunnudag kl. 11.
VÍDALÍNSKIRKJA: Þótt jólin séu liðin er
faðmur kirkjunnar opinn. Við hefjum starf-
ið með messu kl. 11.00. Kirkjukórinn leið-
ir sönginn. Organisti Jóhann Baldvinsson.
Sr. Friðrik J. Hjartar og Nanna Guðrún
djákni þjóna. Fermingarbörn lesa ritning-
arlestra. Sunnudagaskólinn er á sama
tíma. Nýtt efni afhent börnunum. Fyrir þau
börn sem ekki hafa verið áður er heppilegt
að byrja einmitt núna. Foreldrarnir eru
hvattir til að fylgja börnum sínum.
Við minnum á að Alfa-námskeið er að hefj-
ast. Kynningarfundur á miðvikudag kl.
20.00. Njótum samveru í kirkjunni. Allir
velkomnir. Prestarnir.
BESSASTAÐAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14.00. Sunnudagaskólinn
mætir þar ásamt Ásgeiri Páli og Kristjönu.
Nú fá börnin nýtt efni og heppilegt er að
byrja núna, fyrir þá sem ekki hafa verið
með fram að þessu. Álftaneskórinn kemur
og leiðir sönginn. Organisti Hrönn Helga-
dóttir. Sr. Friðrik J. Hjartar og Gréta Kon-
ráðsdóttir djákni þjóna. Fjölskylduvænt
samfélag sem ungir og aldnir eru hvattir til
að taka þátt í. Prestarnir.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Aldursskiptur
sunnudagaskóli kl. 11. Starfsfólk sunnu-
dagaskólans er: Arnhildur H. Arnbjörns-
dóttir, Guðrún Soffía Gísladóttir, Laufey
Gísladóttir, Margrét H. Halldórsdóttir,
Samúel Ingimarsson, Sigríður H. Karls-
dóttir og undirleikari í sunnudagaskóla er
Helgi Már Hannesson. Messa kl. 14.
Samfélagið um Guðs borð. Félagar í mál-
fundafélaginu FAXA fjölmenna til kirkju.
Endurskoðuð textaröð B: Jer. 31. 10–14
eða Rut 1.15–19a , Ef. 6. 1–4. Gsp. Mk.
10. 13–16 Slíkra er Guðs ríki. Prestur:
Ólafur Oddur Jónsson. Ræðuefni: „Ótti er
ekki í elskunni“. Kór Keflavíkurkirkju leiðir
söng. Organisti og stjórnandi: Hákon
Leifsson. Meðhjálpari: Hrafnhildur Atla-
dóttir. Sóknarnefnd býður til kaffidrykkju
eftir messu. Sjá Vefrit Keflavíkurkirkju:
keflavikurkirkja.is.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl.
11. Sunnudagaskólinn er á sama tíma og
léttur hádegisverður að messu lokinni.
Morguntíð sungin þriðjudag til föstudags
kl. 10. Kaffisopi að henni lokinni. For-
eldrasamvera miðvikudaga kl. 11. Sókn-
arprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Kl. 11 sunnu-
dagaskólinn byrjar með lífi og fjöri. Nýjar
bækur og límmiðar, mikill söngur og gleði.
Kl. 17 orgelstund, góð kyrrðarstund undir
orgelhljómi með bæn og íhugun.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa verður
sunnudag 12. janúar kl. 14. Kór Versl-
unarskólans syngur undir stjórn Hreiðars
Þorsteinssonar. Sóknarprestur.
HNÍFSDALSKAPELLA: Guðsþjónusta kl.
11. Kvennakór Hnífsdals syngur undir
stjórn Huldu Bragadóttur. Sunnudagaskóli
kl. 13. Sóknarprestur.
GLERÁRKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
AKUREYRARKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Svavar A. Jónsson. Félagar úr Kór Akureyr-
arkirkju syngja. Organisti Björn Steinar
Sólbergsson. Sunnudagaskóli kl. 11.
Fyrst í kirkju síðan í safnaðarheimili. Um-
sjón Ingunn Björk og Laufey Brá, leikkona.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnu-
dagur: Kl. 11 sunnudagaskóli. Kl. 19.30
bænastund. Kl. 20 almenn samkoma.
HVÍTASUNNUKIRKJAN á Akureyri: Í dag,
laugardag, verður fræðsla í kirkjunni un
náðargjafir Heilags anda. Eftir fræðsluna
og kaffihlé munum við biðja saman og
sækjast eftir gjöfunum sem andinn útbýtir
að vild sinni. Allir velkomnir. Sunnudagur:
Brauðsbrotning kl. 11.30. Reynir Valdi-
marsson prédikar. Á meðan fer fram kröft-
ugt og skemmtilegt barnastarf. Kl. 16.30
er síðan vakningarsamkoma í umsjá Krist-
ins Óskarssonar. Þar verður fjölbreytt lof-
gjörðartónlist og fyrirbænaþjónusta.
Barnapössun fyrir börn yngri en 7 ára. Allir
velkomnir. Bænastundir alla virka morgna
kl. 7 og 12.30.
KFUM og KFUK, Sunnuhlíð Akureyri. Al-
menn samkoma kl. 20.30 á sunnudags-
kvöldið. Ræðumaður Skúli Svavarsson
kristniboði. Allir velkomnir.
Morgunblaðið/SverrirKotstrandarkirkja.
Guðspjall dagsins:
Þegar Jesús var tólf ára.
(Lúk. 2.)
MINNINGAR
fyrir sig. Hafi hann þökk fyrir vel
unnin störf. Samúðarkveðja til
barna, móður og ættingja.
Megi minning góðs drengs vera
ljós í lífi okkar.
Sævald, Elías Geir,
Sigurgeir og Ásdís.
Mig langar að minnast Gylfa
Harðarsonar í örfáum orðum.
Ég kynntist Gylfa er við vorum á
loðnuveiðum saman á mb. Kap VE 4,
haustið 1980 og veturinn ’81. Mér lík-
aði strax vel við Gylfa. Hann var góð-
ur félagi og urðum við góðir vinir alla
tíð. Hann var dálítið sérstakur kar-
akter, hann lá yfirleitt ekki á skoð-
unum sínum og lét þær óspart í ljós
og var þá sama hvort verið var að
ræða um stjórnmál eða verkalýðsmál
en þau voru honum afar hugleikin.
Hann var alltaf með sitt á hreinu
gagnvart kjaramálum. Gylfi var
hörku duglegur, góður sjómaður og
klár vélstjóri. Leiðir okkar Gylfa
lágu aftur saman um 1990 er hann
hóf störf sem vélstjóri á Bergi VE 44,
sem tengdafjölskylda mín á og gerir
út. Við unnum mikið saman, þar sem
ég vann sem vélvirki og suðumaður
en hann vélstjóri og lærði ég mikið af
honum. Var oft mikið að gera hjá
okkur í ýmsum breytingum sem
fylgja útgerð svona skips. Gylfi var
ekki alltaf sammála útgerðaraðilum
hvernig ætti að reka skipið. Fékk ég
oft að heyra frá honum hvernig ætti
að gera hlutina og ætlaðist hann að
sjálfsögðu til að ég kæmi því áfram
til réttra aðila.
Þótt Gylfi væri ákveðinn og léti
ekki vaða ofan í sig átti hann erfitt
með að hemja þann gamla fjanda
Bakkus. Við hann er ekki hægt að
ræða neitt réttlæti.
En kæri vinur ég kveð þig nú með
söknuði. Þú varst góður maður Gylfi
og það var synd að þú skyldir ekki
getað notið þess sem þú varst búinn
að hlakka svo til að njóta. Það var að
hætta til sjós og njóta þess lífeyris
sem þú hafðir svo sannarlega unnið
fyrir. Þú varst mikið búinn að tala
um það að halda upp á 60 ára afmæli
þitt í sumar með fjölskyldu þinni og
vinum. Þú ætlaðir einnig að njóta
þess að geta farið að spila golf. Ég
vona Gylfi minn að þér líði vel á nýj-
um miðum.
Ég vil að endingu votta aðstand-
endum Gylfa mína dýpstu samúð.
Far þú í friði kæri vinur.
Hallgrímur Tryggvason.
kona, fyrir allar þær yndislegu
stundir sem við áttum saman.
Ég kynntist Ellu fyrir u.þ.b. 45 ár-
um þegar við bjuggum í sama húsi í
Nökkvavoginum. Aldrei féll skuggi á
vináttu okkar allan þennan tíma og
gaf það mér mikið að eiga svo góða
vinkonu í gegnum öll þessi ár.
Síðustu árin dvaldi Ella á hjúkr-
unarheimilinu Grund og þar leið
henni vel og starfsfólkið var henni
gott. Mikið var hún þakklát þegar
þetta elskulega fólk bauð mér að
drekka með henni kaffibolla þegar
ég kom í heimsókn á Grund enda var
Ella einstaklega gestrisin og gjaf-
mild með eindæmum, já, maður kom
aldrei að tómum kofunum þar. Ekki
má gleyma pönnukökunum hennar
sem voru þær bestu í heimi, og
margt fallegt hefur hún gert í hönd-
unum í gegnum árin, sem geymir og
varðveitir minningu hennar. Við Ella
sátum oft saman og skoðuðum
myndir af fallegu barnabörnunum
hennar, þau voru það dýrmætasta
sem hún átti og henni fannst gaman
að segja mér frá þeim og það var
notaleg stund hjá okkur báðum.
Elsku vinkona, ég kveð þig nú með
söknuð í hjarta, hafðu þökk fyrir allt.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi.
Hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast
þér.
(Ingibj. Sig.)
Elsku Kolbrún, Siggi og fjölskyld-
ur, innilegar samúðarkveðjur til
ykkar allra. Megi guð vera með ykk-
ur.
Ingibjörg Guðmannsdóttir.