Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 35 HANN var einkar athyglisverð- ur leiðarinn sem Gunnar Smári Egilsson ritstjóri Fréttablaðsins skrifaði í blað sitt s.l. fimmtudag, 9. janúar. Þar undraðist hann tvennt í starfsemi annarra blaða að undanförnu. Fyrra dæmi hans var, að DV skyldi á dögunum hafa birt skoðanakönnun um fylgi við stjórnmálaflokka, sem sýndi meira fylgi við Samfylk- inguna en Sjálfstæðisflokkinn. Þetta væri skrítið vegna þess að DV hefði orðið æ hliðhollara Sjálfstæðisflokknum undanfarin misseri. Síðara dæmið var greinaflokkur Agnesar Braga- dóttur blaðamanns á Morgun- blaðinu, sem Gunnar telur fjalla um afskipti „bláu handarinnar“ af baráttu tveggja viðskipta- blokka um Íslandsbanka. Þetta virtist honum vera enn skrítnara en hitt dæmið, þar sem Mogginn hefði verið sammála Davíð Odds- syni í nánast öllum málum und- anfarin ár! Ekki er ég nú viss um að Agnes blaðamaður myndi sam- þykkja þessa lýsingu ritstjórans á efni greinanna. Látum það liggja milli hluta. Hitt er athygl- isvert, að ritstjóri þessi virðist ganga út frá því sem vísu, að fjöl- miðlar velji sér fréttaefni og framreiði það fyrir lesendur sína eftir því hvernig efnið henti fyrir þann málstað sem ritstjórinn tel- ur viðkomandi fjölmiðil þjóna. Stundum er sagt, að menn séu betur til þess fallnir að lýsa sjálf- um sér en öðrum. Þetta virðist vera svo gott dæmi sem verða má um þetta. Ritstjórinn er bara að furða sig á því, að hin blöðin skuli ekki vinna eftir þeirri for- skrift, sem hann notar sjálfur. Ritstjórinn, sem lýsir sjálfum sér með þessum hætti, vill ekki upplýsa lesendur Fréttablaðsins um hverjir eigi blaðið. Flogið hefur fyrir, að Jón Ásgeir Jó- hannesson, forstjóri Baugs, eigi þar langstærstan hlut. Svo vill til, að stjórntök ritstjórans á fréttaflutningi blaðsins og stjórnmálaskrif hans benda ákveðið til þess, að þetta kunni að vera rétt. Efni blaðsins er svo til daglega litað slíkum litum. Af hverju vill hetjan í stóli ritstjór- ans ekki upplýsa lesendur um þetta? Hefur hann eitthvað að fela? Vill hann geta sinnt erind- um sínum í blaðinu, án þess að lesendur fái að vita hverjum hann þjónar á þann hátt sem hann lýsti í leiðaranum? Hann ætti kannski að biðja siðanefnd blaðamannafélagsins að leið- beina sér. Hæg væru þá heima- tökin, því hann sat sjálfur til skamms tíma í nefndinni. Lík- lega hefur hann verið skipaður í það sæti vegna sérþekkingar sinnar á siðferði við blaðaútgáfu. Jón Steinar Gunnlaugsson Að lýsa sjálfum sér Höfundur er prófessor við HR. FJÁRMÁLASTJÓRI Lands- virkjunar heldur því fram í frétt í Morgunblaðinu 7. janúar sl. að ég gefi mér rangar forsendur og hafi vísvitandi í frammi villandi málflutn- ing um arðsemi Kárahnjúkavirkjun- ar. Í leiðara Morgunblaðsins 8. jan- úar sl. er fullyrt að „kjörnir fulltrúar“ setji fram staðhæfingar um efni máls án þess að byggja þær á haldgóðum upplýsingum. Þessar fullyrðingar eru hrein firra. Reynt hefur verið að halda grund- vallarupplýsingum um Kárahnjúka- virkjun leyndum gagnvart almenn- ingi og kjörnum fulltrúum. Að kröfu undirritaðs voru fulltrúar í borgar- ráði upplýstir um orkusölusamning Landsvirkjunar og Alcoa og orku- verð Kárahnjúkavirkjunar á fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í desem- bermánuði sl. Þessar haldgóðu upp- lýsingar auk annarra traustra heim- ilda og vandaðrar vinnu lágu að baki ræðu minni í borgarstjórn Reykja- víkur 2. janúar sl. sem mikið hefur verið fjallað um. Fram hefur komið að viðmiðunar- verð áltonnsins í orkusölusamningn- um er 1.550 $ eða 13% hærra en gildandi heimsmarkaðsverð, sem er 1.370 $. Einnig að orkuverðið sé inn- an við 16 mills miðað við stöðuna í dag eða vel innan við 1,30 krónur á kílówattstund. Þetta útsöluverð á raforku skýrist aðeins af þeim póli- tíska ásetningi að virkja við Kára- hnjúka hvað sem það kostar! Þess hefur verið krafist af kjörn- um fulltrúum að þeir héldu vitn- eskju sinni um orkuverð frá fyrir- hugaðri Kárahnjúkavirkjun leyndri en síðan er þeim núið um nasir að þeir viti ekkert um málið! Þessi staða og blekkingarleikurinn í kringum Kárahnjúkavirkjun er með öllu óviðunandi þar sem um afar þýðingarmikið og alvarlegt mál er að ræða fyrir þjóðina. Orkuverð samkvæmt orkusölusamningi Landsvirkjunar og Alcoa er undir velsæmismörkum og gæfi miðað við núverandi álverð og tryggða orku- sölu aðeins um 4 milljarða króna ár- legar tekjur af virkjuninni að frá- dregnum rekstrarkostnaði og mótvægisaðgerðum. Eigendaskýrsla Landsvirkjunar er fyrst og fremst endurskoðun á út- reikningum Landsvirkjunar á henn- ar eigin forsendum, sem eru vægast sagt hæpnar og áróðurskenndar. Engu að síður koma fram margar alvarlegar viðvaranir í skýrslunni sem stangast á við þá niðurstöðu skýrsluhöfunda að yfirgnæfandi lík- ur séu á jákvæðri arðsemi Kára- hnjúkavirkjunar. Undirritaður hefur skýr rök fyrir þeirri skoðun, að í Kárahnjúkavirkj- un felist niðurgreidd náttúruspjöll. Hann treystir því ekki að álverð hækki um 14% á næstu 5 árum, en í grunnforsendum eigendaskýrslunn- ar er verð áltonnsins 1.564 $. Enn síður treystir hann því að stofn- kostnaður virkjunarinnar verði inn- an áætlunar eða 95 milljarðar króna. Upphafleg kostnaðaráætlun var 102 milljarðar króna, sem lækkaði í 97 milljarða eftir tilboð Impregilo. Í hvorugu tilvikinu var vaxtakostnað- ur á framkvæmdatímabilinu innifal- inn. Hér gæti því skeikað nógu miklu til að núvirði virkjunarinnar yrði neikvætt. En jafnvel þó að bjartsýnustu spár um þróun álverðs rætist og kostnaðar- og tímamörk virkjunar- innar haldi myndi arðsemi hennar aldrei verða nógu mikil til að vega upp gífurlega umhverfisröskun á 3.000 ferkílómetra áhrifasvæði virkjunarinnar. Engar forsendur eru fyrir því að skuldsetja hvern einasta íbúa Reykjavíkur um 600 þúsund krónur vegna Kárahnjúka- virkjunar. Þess vegna eiga kjörnir fulltrúar Reykvíkinga að hafna þátt- töku borgarinnar í virkjuninni. Ég skora hér með á Morgunblaðið að leggja sitt af mörkum til að upp- lýsa almenning um hið alltof lága orkuverð Kárahnjúkavirkjunar í stað þess að fara fram með órök- studdar dylgjur í garð borgarfull- trúa. Eftir Ólaf F. Magnússon „Blekking- arleikurinn í kringum Kárahnjúka- virkjun er með öllu óviðunandi.“ Höfundur er læknir og borgarfulltrúi. Orkuverð Kárahnjúka- virkjunar í dagsljósið EFTIRLAUNAALDURINN getur orðið stórt vandamál þ.e.a.s. draumurinn um að geta notað tím- ann í eigin þágu. Það gleður mig að eldast, heyrir maður fólk segja. En að vísu gengur það ekki alltaf upp sem það hafði vonað. Við höfum ekki gert nægilega mikið af því að uppfræða fólk um ell- ina. Tíminn er lengi að líða og ein- manaleikinn drepandi. Ellilaunin nægja ekki þeim sem hefur lengi verið virkur á vinnumarkaði og skyndilega stendur frammi fyrir því að hafa ekki lengur vinnu vegna ald- urs. Verra er hafi hann verið í hjónabandi og makinn fallið frá. Sá er eftir lifir telur sig yfirgefinn og svikinn svo ekki er annað eftir en sjónvarpið og lausn á krossgátum. Maður getur nú fundið eitthvað fyr- ir sig í sjónvarpinu segja margir. Og afþreyingin verður innihald þeirra er á horfa. Seneca segir að ellin sé óheil- brigður sjúkdómur. En Maurice Chevalier, sem er fljótur til and- svara, sagði að það væri ekki svo slæmt að verða gamall ef maður væri jákvæður. Cicero hefur sagt um ellina að enginn sé svo gamall að hann hafi ekki trú á að hann geti lif- að eitt ár til viðbótar. Spurningin er, hvað hefur þú gert til að verða gam- all? Og henni verður ekki svarað á einn einfaldan hátt. Í enskum kirkjugarði má sjá leg- stein með áletrun: Hún drakk gott öl, og sterkt púns og vín og lifði til 99 ára aldurs. Amerískur djassisti var heimsóttur á 100 ára afmæli sínu en þar var haft eftir honum að ef hann hefði vitað að hann næði svo háum aldri hefði hann hugsað betur um heilsuna. Innan við kirkjudyr við kirkju eina í Englandi er veggskrift frá árinu 1610 svohljóðandi: Herra, þú veist betur en ég sjálfur að ég er við það að verða eldri og brátt gamall. Forðaðu mér frá þeim hræðilega vana að ég þurfi nauðsynlega að út- tala mig um hin og önnur málefni þar sem ég veit ávallt betur en aðrir. Forðaðu mér frá þeirri þörf minni að skipta mér af högum annarra. Veittu mér umhyggju en ekki leiða, hjálpsemi en ekki afskiptasemi. Gefðu mér auðmýkt og að ég við- urkeknni að ég geti haft rangt fyrir mér af og til. Þessi merku orð þyrft- um við að hafa fyrir augum okkar daglega en kannski erum við hrædd við að lesa þau of oft. Illt er til þess að vita að fylgi- fiskur margra sem náð hafa eftir- launaaldri er fátækt. Það þarf ekki að vera svona. Fátækt er ekkert lög- mál innbyggt í þjóðfélag nútímans. Þetta er heimatilbúið af núverandi ríkisstjórn, eins og verðbólgan sem kostaði Þjóðhagsstofnun lífið fyrir að segja sannleikann. Lesandi góður. Frjálslyndi flokk- urinn er flokkur alþýðunnar og at- hafnamannsinns. Flokkur sem ber hag allra fyrir brjósti. Kynntu þér stefnumál flokksins t.d. á heimasíðu hans www.xf.is, eða hringdu einfald- lega í okkur. Að eldast Eftir Björgvin E. Vídalín Höfundur er formaður kjördæma- félags Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður. „Illt er til þess að vita að fylgi- fiskur margra sem náð hafa eftirlaunaaldri er fátækt. Það þarf ekki að vera svona.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.