Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 31 Þ AÐ hefur varla farið framhjá nokkrum nú í upphafi árs að kosningavetur er genginn í garð. Fjöl- miðlar keppast við að birta kann- anir þar sem afstaða fólks til manna og málefna er mæld og frambjóðendur fengnir til að tjá sig um stöðuna og spá í fram- haldið. Ef marka má líflega um- ræðu allra síðustu daga er ljóst að áhugamenn um stjórnmál þurfa ekki að kvíða vorinu og því sem eftir lifir vetrar. Stjórnmála- umræðan verður spennandi og enginn getur gengið að nokkru vísu um endanleg úrslit. Mitt í óvissunni eru þó ákveðnir þættir sem við getum notað sem leið- arvísa á næstu vikum og mán- uðum til að draga upp mynd af þeirri stöðu sem hér gæti orðið að loknum kosningum. Ísland hefur á undanförnum árum náð miklum og einstæðum árangri á mjög mörgum sviðum. Við búum nú í samfélagi sem stenst samanburð við það besta sem þekkist. Lífskjör eru með því allra besta og allar helstu hagstærðir sýna að við lifum nú mesta samfellda hagsæld- artímabil sem þjóðin hefur geng- ið í gegnum. Þessa sjást víða merki og hefur ítrekað verið staðfest í innlendum og erlend- um rannsóknum. Hagvöxtur eykst, atvinnuleysi hefur verið með því minnsta sem þekkist, verðbólga með því lægsta og kaupmáttur ráðstöfunartekna vaxið samfleytt í níu ár og aukist um þriðjung frá árinu 1994. Óhætt er að fullyrða að önnur eins kaupmáttaraukning á jafn- stuttu tímabili er vandfundin meðal annarra þjóða. Í frétt á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins fyrr í vikunni kemur fram að kaupmáttur lágmarkskauptaxta hefur aukist um 58% frá því í janúar 1995 og kaupmáttur lág- markstekjutryggingar á sama tíma aukist um 65%. Að auki hafa skattar verið lækkaðir og nú er svo komið að skattbyrði ís- lenskra heimila er með því lægsta sem þekkist í OECD- ríkjunum. Eignarskattar hafa verið lækkaðir um helming og tekjuskattar á fyrirtæki lækk- aðir í 18%, sem hefur m.a. gert það að verkum að skilyrði til at- vinnurekstrar hér á landi eru með því besta sem þekkist. Allar þessar framfarir hafa átt sér stað á sama tíma og hið op- inbera hefur dregið úr afskiptum sínum, greitt niður erlendar skuldir, selt ríkisfyrirtæki og tryggt samkeppni á flestum svið- um. Ráðdeild og skynsemi í rík- isfjármálum hefur fært okkur þann árangur að nú er Ísland komið í hæsta gæðaflokk þegar alþjóðleg fyrirtæki meta láns- hæfi þjóða. Á sama tíma eru út- gjöld hins opinbera til velferð- armála meiri en annars staðar þekkist og öryggisnetið traust- ara en víðast hvar. Allt þetta og svo margt, margt fleira er ástæða þess að Ísland er nú sannarlega land tækifæranna. Komandi kosningar eiga um- fram allt að snúast um að fólk og fyrirtæki fái enn frekari tæki- færi til bættra lífskjara, auk- innar menntunar og góðrar vel- ferðarþjónustu en um leið frelsi til athafna og framfara. Um þetta eiga frambjóðendur og flokkar að takast á í kosninga- baráttunni. Sumir frambjóð- endur hafa reyndar þegar slegið allt annan tón og segja aðalatriði kosninganna að koma núverandi ríkisstjórn frá. Slík greining á stærsta viðfangsefni stjórnmál- anna ber ekki vott um fyrirferð- armiklar hugsjónir eða mikla virðingu fyrir kjósendum og þeirra hag. Flest annað virðist eiga hug þessara stjórnmála- manna, enda varð fátt um svör hjá fráfarandi borgarstjóra og verðandi frambjóðanda Samfylk- ingarinnar þegar hún var nýlega spurð um stefnu sína í komandi kosningum. Hún sagði biðina þó brátt á enda því hún myndi fljót- lega opna sitt pólitíska Pandóru- box, sem veit varla á gott þegar haft er í huga hvað upp úr því boxi kom. Og þegar „nútímalegir vinstrimenn eru með jafnóljósar pólitískar hugsjónir og dæmin sanna og segja það tákn um „nýja tíma í stjórnmálum, þá getum við einungis treyst tvennu: Þeir munu standa við orð sín með svipuðum hætti og þeir hafa áður gert og þeir munu framkvæma í framtíð- inni líkt og þeir hafa fram- kvæmt í fortíðinni. Við þurfum varla að staldra við það hversu vel pólitísk lof- orð margra vinstrimanna halda en lítum aðeins á stjórn- arhætti þeirra. Við þekkjum öll þær skattahækkanir, þá skulda- aukningu og óðaverðbólgu sem iðulega hafa verið einkenni ís- lenskra vinstriríkisstjórna. Sem betur fer er nokkuð um liðið frá því vinstrimenn fóru síðast með landsmálin og því ágætt að líta til málefna Reykjavíkur, þar sem aðferðir vinstrimanna hafa verið ráðandi í tæpan áratug. Ef verk- in þar segja eitthvað um áherslur þeirra, þá getum við treyst því að þeir hækka skatta, auka skuldir, blása út hið op- inbera kerfi og draga svo úr at- hafnafrelsi fólks og fyrirtækja að margir sjá þann kost vænstan að fara annað. Þetta eru því miður staðreyndirnar um stjórnartíð R-listans í Reykjavík. Allar til- lögur um lækkun skatta eru felldar og þykja ekki umræðunn- ar virði. Skuldir hafa tífaldast í valdatíð þessa meirihluta á sama tíma og stjórnsýslan í ráðhúsinu bólgnar út. Biðraðir eru eftir grunnþjónustu, vegna lóðaskorts og lítils metnaðar í uppbyggingu hafa mörg fyrirtæki kosið að starfa annars staðar og und- anfarin ár hefur fjölgun íbúa ver- ið mun meiri í nágrannasveit- arfélögunum en í Reykjavík. Allt eru þetta afleiðingar af stjórn vinstrimanna sem telja leið op- inberra afskipta yfirleitt farsælli en leið eintaklings- og athafna- frelsis. Þótt engin leið sé að spá fyrir um niðurstöður komandi kosn- inga getum við með talsverðri vissu sagt að kostirnir séu skýr- ir. Kosningarnar munu fyrst og fremst snúast um það hvort Ís- land verður áfram land tækifær- anna eða land þar sem frelsi fólks og fyrirtækja verður tak- markað með aðferðum vinstri- manna sem þeir á tyllidögum kjósa að kalla „nýjar“. Land tækifær- anna eða „nýrra“ leiða vinstri- manna Eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur ’ Kosningarnar munu fyrst og fremst snúast um það hvort Ísland verður áfram land tækifæranna fyr- ir fólk og fyrirtæki. ‘ Höfundur er borgarfulltrúi og aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. um sé ekki sins. Evrópu- ri, að EES- væði hans rt á móti er EES- gum innan undnu tinu, að ef r milli Ís- samnings- hug á að r (fyrir utan inu 1989. maí 1992 SB. Í þjóð- Svisslend- ð Íslandi, utan EES d að ESB r aðild- EFTA- og ar 25. júní ði gengið í kin eiga nú lldu síðan 28. nóv- íki, Finn- regur urðu slóst vangi og í gerðust. di og hefur plega 1100 r, forseti g aðildina m hætti. askrám um EES-samningurinn er ólíkur öðrum alþjóðasamn- ingum að því leyti, að hann tekur sífelldum breytingum með nýrri löggjöf eða reglum, sem koma til sögunnar á grundvelli EES-samstarfsins. Samningurinn er hins veg- ar sama eðlis og aðrir alþjóðasamningar, að hann bindur aðila sína með skýrum hætti, eins og til dæmis ákvæðið í 128. grein hans um skyldu nýrra aðildarríkja ESB til að gerast aðilar að EES-svæðinu. Í þessu efni hafa ESB-ríki ekkert val en hins vegar ráða EFTA-ríki því, hvort þau eru í EES eða ekki eins og sést af sérstöðu Sviss. x x x Á vefsíðu EFTA birtist hinn 9. janúar eftirfarandi frá- sögn af fundinum um stækkun EES með fulltrúum ESB fyrr um daginn: „Af EFTA hálfu var lögð áhersla á að tilgangur samn- ingaviðræðnanna væri að stækka EES en ekki að end- ursemja EES-samninginn. Vegna hins skamma tíma til að leiða viðræðurnar til lykta ætti ekki að taka upp flókin efni. EES-ríkin innan EFTA lögðu auk þess áherslu á, að stækkun EES ætti ekki að leiða til nýrra hindrana í við- skiptum með fisk og fiskafurðir.“ Evrópusambandið sagði einnig frá viðræðunum á vef- síðu sinni hinn 9. janúar. Þar segir meðal annars: „Meginviðfangsefni samningaviðræðnanna snertir til- lögu [ESB] um að auka fjárframlög þessara þriggja landa [Íslands, Noregs og Liechtensteins] til uppbyggingar og félagslegrar samheldni á hinum stækkaða innri markaði. Einnig verður rætt um umþóttunartíma, sjávarafurðir og landbúnaðarafurðir. Chris Patten, sem annast utanríkissamskipti í fram- kvæmdastjórninni, sagði: „Hinn gífurlegi, væntanlegi ár- angur af einum markaði ræðst af fjárhagsstuðningi, sem auðveldar fátækari þjóðum að nýta sér sem best frjálsa samkeppni. Það er einfaldlega sanngjarnt að allir, sem njóta góðs af þessum markaði, þ. á m. Ísland, Liechten- stein og Noregur, beri þennan kostnað.“ Framkvæmdastjórn ESB mun semja fyrir hönd ESB á grundvelli umboðs, sem ráðherraráðið hefur samþykkt. Stækkunin árið 2004 mun auka þörf fyrir ráðstafanir til að tryggja félagslega og efnahagslega samheldni innan ESB. Farið er fram á aukin fjárframlög frá Íslandi, Liechtenstein og Noregi (sem einnig eru nefnd EES- EFTA-ríkin) í fyrsta lagi vegna aukins kostnaðar ESB- ríkja til að hrinda stækkun ESB í framkvæmd og í öðru lagi til að endurspegla hag EES-EFTA-ríkjanna af því að tengjast stærri markaði, þegar um 75 milljón nýir neyt- endur koma þar til sögunnar. ESB leggur þess vegna til að framlög EES-EFTA-ríkjanna skuli verða sambærileg og framlög ESB-ríkja. Til að niðurstaðan verði sann- gjörn, verður tekið tillit til sérstakra aðstæðna í hverju landi, þar með landfræðilegra, efnahagslegra og fé- lagslegra málefna. Ekki er nýtt, að EES-EFTA-ríkin leggi fé af mörkum til þróunar innan ESB. Í 115. gr. EES-samningsins eru greinileg tengsl milli „stöðugrar eflingar viðskipta- og efnahagstengsla samningsaðila“ annars vegar og „þess að draga úr efnahagslegu og fé- lagslegu misræmi“ hins vegar.“ x x x Sendiherra ESB á Íslandi hafði orð á því við Morg- unblaðið á dögunum, að hagvöxtur hér hefði verið miklu meiri en í löndum Evrópusambandsins og við hefðum vel efni á því að láta fé af hendi rakna til Evrópusambands- ríkja. Þetta sjónarmið réð greinilega ferðinni á fyrsta samningafundinum vegna stækkunar ESB fimmtudaginn 9. janúar. Mörgum þótti nóg um, þegar ESB krafðist fyr- ir nokkru 27-földunar á framlögum EES-ríkjanna til sjóða ESB. Á samningafundinum hafði þessi krafa ekki lækkað heldur var nú krafist 38-földunar, eða 3,8 millj- arða króna. Þessi krafa er með ólíkindum. Talsmenn ESB virðast ætla að nota stækkun EES til að gjörbreyta meginfor- sendum EES-samningsins, þvert á skýr ákvæði 128. greinar hans. Langsótt er að túlka 115. grein EES- samningsins á þann veg, að í henni felist skuldbinding af hálfu EES-EFTA-ríkjanna til að greiða fé í sjóði ESB, Að ESB krefjist offjár fyrir viðskiptafrelsi kann að leiða til þess, að ekki verður unnt að stækka EES sam- hliða ESB. Þá stæðu ESB-ríkin frammi fyrir nýjum og áður óþekktum vanda gagnvart EES-ríkjunum. Er sér- kennilegt að tæknileg útfærsla á EES-samningnum vegna stækkunar ESB skuli sett í þennan farveg af máls- vörum ESB. Skynsamlegast er að ljúka stækkuninni og ræða önnur álitamál í samskiptum ESB og EES-EFTA- ríkja undir öðrum formerkjum. Fjárkröfur ESB á hendur EES-EFTA-ríkjunum eru ekki hluti af stækkunarferli Evrópusambandsins. ðskiptafrelsi bjorn@centrum.is 14. apríl 1992. g menn geta þegar gert sér í hug- ru vandkvæði á því að réttareining Evrópska efnahagssvæðinu þegar larréttarreglurnar eru ekki lengur til þær sömu á gervöllu svæðinu. m slíkar grundvallarreglur sem lengur samhljóða eru ákvæði EES- sins og samningsins um Evrópu- ið um ríkisstyrki. Samkvæmt num um Evrópubandalagið geta kir til stuðnings menningu og við- fleifðar talist samrýmanlegir fram- samningsins (að öðrum form- og yrðum uppfylltum). Þessi hluti rík- reglna Evrópusambandsins kom amninginn um Evrópubandalagið astricht-samningnum og því vantar a hliðstætt ákvæði í EES-samning- TA-ríkin gerðu sér hins vegar lengi að ákvæði EES-samningsins yrði ákvæðum samningsins um Evrópu- ið í túlkun stjórnvalda og dóm- stóla, en EFTA-dómstóllinn skellti ræki- lega hurðinni á slíkar væntingar í máli Harðar Einarssonar gegn Íslandi (þar sem tekist var á um virðisaukaskatt á bókum). Í sama dómi má raunar segja að dómstóllinn hafi gefið sterklega undir fótinn með að all- ur munur á grunnreglum EES-samningsins og samningsins um Evrópubandalagið, sem rætur á að rekja til breytinga á síðarnefnda samningnum eftir undirskrift hins fyrr- nefnda, muni fá sömu afgreiðslu. Hin hlið þessa vandamáls lýtur að af- leiddu reglunum sem áður var getið. EES- samningurinn er þannig upp byggður að reglur í meginmáli samningsins kveða upp úr um það hvaða reglur viðaukar við samn- inginn geta geymt. Þannig geymir megin- mál samningsins t.a.m. einhverja grunn- reglu og einnig ákvæði um að í tilgreindum viðauka við samninginn séu nauðsynleg ákvæði varðandi framkvæmd grunnregl- unnar. Nú er málum hins vegar þannig komið að sumar þær grunnreglur sem finn- ast í meginmáli EES-samningsins og nánari reglur eiga að vera um í viðauka, eru ekki lengur samhljóða þeim grunnreglum í samningnum um Evrópubandalagið sem þær í upphafi endurspegluðu. Má sem dæmi nefna grunnregluna um frjálsa fjármagns- flutninga. Sá vandi sem hér blasir við er þessi: Hvernig á að fara með Evrópusam- bandslöggjöf sem leidd er af þessum nýjum eða breyttum ákvæðum í samningnum um Evrópubandalagið í EES-samhengi? Þau tvö dæmi sem nefnd hafa verið um tvenns konar aðskilin en tengd álitaefni sem uppi kunna að vera í tengslum við EES-samn- inginn, eru á engan hátt einstök. Fleiri dæmi hefði mátt nefna og hvað síðara atrið- ið varðar eru tilvikin afar margslungin. Hins vegar kann að vera umdeilt hversu al- varleg þessi vandkvæði eru og hvort þau eru þjóðréttarleg, stjórnskipuleg, pólitísk – eða allt þrennt. Hitt er víst að áhugavert verður að fylgjast með því hvernig viðeig- andi dómstólar eiga eftir að taka á þessum málum í komandi framtíð, komi þau til þeirra kasta. Ekki verður síður áhugavert að sjá hvort Evrópusambandið tekur á end- anum undir óskir EFTA-ríkjanna um „tæknilega uppfærslu EES-samningsins“ til að bregðast við þessum vanda, enda um sameiginlegt hagsmunamál samningsaðil- anna að ræða. Þá er skálarræðunni að ljúka og tak- markinu náð, enda markmið slíkra ræðna ávallt það sama: að minna afmælisbarnið á að það hafi mátt muna fífil sinn fegurri. En að fortíð skal hyggja er framtíð skal byggja og ekki verður framhjá því litið að EES- samningurinn hefur reynst Íslendingum hinn mesti happafengur. Og þótt hann sé ekki gallalaus, er ekki þar með sagt að hann gæti ekki þjónað sínum tilgangi eitthvað áfram. Svartsýnismenn, eins og ég er á stundum, mættu draga lærdóm af for- göngumönnum sínum á því sviði og spá- dómsgáfu þeirra. Eru mér í því samhengi einkum minnisstæðar bölspár hæstvirts nú- verandi félagsmálaráðherra þegar hann gerði grein fyrir atkvæði sínu gegn frum- varpi til laga um Evrópska efnahagssvæðið og sagði: „…þetta er vondur samningur, óhagstæður og hættulegur okkur Íslend- ingum –… Þessi samningur kemur til með að færa okkur ósjálfstæði, atvinnuleysi, fá- tækt og auðnuleysi…“ Morgunblaðið/Sverrir a, og Davíð Oddsson forsætisráðherra við afgreiðslu EES-samningsins á Alþingi. Höfundur er forstöðumaður Evrópurétt- arstofnunar Háskólans í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.