Morgunblaðið - 11.01.2003, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 9
SAMKVÆMT íbúaskrá þjóðskrár
1. desember sl. voru 86,6% íbúa
skráðir í þjóðkirkjunni, 4,2% í frí-
kirkjum, 4,2% í öðrum skráðum
trúfélögum, 2,7% í óskráðum trú-
félögum og með ótilgreind trúar-
brögð og 2,3% utan trúfélaga. Hlut-
fall sóknarbarna í þjóðkirkjunni
hefur lækkað um 0,5% frá því 1.
desember 2001 en þá var það
87,1%. Á síðustu 10 árum hefur
hlutfall sóknarbarna í þjóðkirkj-
unni lækkað um 5,6%, en árið 1992
tilheyrðu 92,2% þjóðkirkjunni.
Í tilkynningu frá Hagstofunni
kemur fram, að sú breyting hafi
orðið á trúfélögum síðan í fyrra að
dóms- og kirkjumálaráðuneytið við-
urkenndi til skráningar 21. mars
2002 serbnesku rétttrúnaðarkirkj-
una „Fæðing Heilagrar Guðsmóð-
ur“.
Samkvæmt lögum um sóknar-
gjöld skilar ríkissjóður ákveðnum
hluta tekjuskatts til þjóðkirkjusafn-
aða, skráðra trúfélaga og Háskóla-
sjóðs. Þessi fjárhæð nefnist sókn-
argjald og er það ákvarðað sem
tiltekin upphæð ár hvert fyrir
hvern mann sem er orðinn 16 ára
31. desember árið áður en gjaldár
hefst. Þegar gjaldinu er ráðstafað
til þjóðkirkjusafnaða og skráðra
trúfélaga er miðað við lögheimili og
skráningu fólks í trúfélög 1. desem-
ber árið áður en gjaldár hefst.
Gjaldið er greitt til safnaðar þeirra
sem eru skráðir í þjóðkirkjuna og
til skráðs trúfélags einstaklinga
sem eru ekki í þjóðkirkjunni en til
Háskóla Íslands vegna einstaklinga
sem standa utan trúfélaga eða eru í
trúfélagi sem ekki hefur hlotið
skráningu.
86,6% þjóðarinnar eru í þjóðkirkjunni
Hlutfallið lækkaði
um 5,6% á 10 árum
er hafin
Auðbrekku 14, Kópavogi.
Símar 544 5560 og 820 5562,
www.yogastudio.is
Jógakennaraþjálfun 2003
Næstu helgi hefst ný jógakennaraþjálfun en þjálfunin
hefur fest sig í sessi í starfsemi okkar frá því sú fyrsta
var haldin árið 1997. Kennari er sem fyrr Ásmundur
Gunnlaugsson, þekktur fyrir námskeiðið ,,Jóga gegn
kvíða”. Þjálfunin er ekki aðeins fyrir þá sem vilja verða
jógakennarar heldur einnig yfir-gripsmikið og öflugt
sjálfsþekkingar- og þroska-námskeið, tækifæri til að
nema af kennara með mikla reynslu og þekkingu á ís-
lenskum starfsvettvangi. Hún hentar t.d. öllum sem eru
í einhvers konar vinnu með einstaklinga eða hópa og/eða þeim sem
vilja gera breytingar á lífsháttum sínum. ,,Ég reyni að fá nemendurna til
þess að skilja hjartað í verkinu, gera sér ljóst hvað jóga er eða öllu
heldur hvaða möguleika það hefur til að verða” segir Ásmundur. Ekki er
krafist mikillar reynslu og ástundunar af jóga, mikilvægast er áhugi og
jákvætt hugarfar. Einhver grundvallar-þekking á jóga er þó æskileg.
Lokafrestur til að staðfesta þátttöku er miðvikudaginn 15. janúar.
Kennaraþjálfunin er alls 6 helgar (auk mætingar í jógatíma):
17.–19. janúar, 7.–9. febrúar, 28. feb.–2. mars, 28.–30. mars, 11.–13.
apríl og 2.–4. maí. Kennt er fös. kl. 20-22, lau. og sun. kl. 9-15.
Opnir jógatímar fyrir vana eru alla daga nema sunnudaga.
Næsta grunnnámskeið hefst miðvikud. 15. janúar kl. 18.30.
Næsta ilmkjarnaolíunámskeið verður dagana 24. og 25. janúar.
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Útsala
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10-14.
Útsala
Laugavegi 63, sími 551 4422
STÓR
Ú
T
S
A
L
A
20-50%
Afsláttur
Austurh
raun 3,
Garðab
æ
Sími 55
5 2866
Kays 20
03 listin
n er ko
minn!
Hátíska
í stærðu
m á alla
fjölskyld
una
Verslun
KaysNý
tt
Útsala
á útsölu
- Ótrúl
egt ver
ð!
Rýmum
fyrir nýj
um vöru
m - mik
ið úrval
í búðinn
i
Fatnaðu
r, gjafav
ara, ska
rtgripir,
snyrtivö
rur o.fl.
o.fl.
Stór útsala
Gallabuxur, sparibuxur, stretsbuxur
Nýtt kortatímabil
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—15