Morgunblaðið - 11.01.2003, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 11.01.2003, Qupperneq 23
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 23 Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. 250 fm skrifstofur, 5 hæð. Einstakt tækifæri. Glæsilegar fullbúnar skrifstofur við Reykjavíkurhöfn. Frábært útsýni, allt nýtt, nýtt parket, eldhús, gardínur, tölvulagnir og fl. Laust strax. Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242. Tryggvagata - 101 Rvík TIL LEIGU SVEITARSTJÓRN Grímseyjar- hrepps vinnur nú að því að tryggja að ferjan Sæfari, sem er í siglingum milli lands og eyjar, fái að flytja fleiri en 12 farþega í ferð til Grímseyjar næsta sumar, en eins og staðan er nú er útlit fyrir að svo geti orðið. Garðar Ólason, sem á sæti í sveitarstjórn Grímseyjarhrepps, sagði að ferjan hefði leyfi til að flytja 12 farþega að vetrarlagi, en á sumrin er hús sett á ferjuna og þá má hún flytja á bilinu 90 til 100 farþega. „Eins og staðan er núna virðist sem ekki fáist leyfi til að setja húsið upp næsta sumar og þá má einungis flytja 12 farþega í ferð,“ sagði Garðar. Hann sagði að um væri að ræða tilskipun frá Brussel, en ef ekki fengist und- anþága frá henni myndi það setja mikið strik í reikninginn varðandi sívaxandi ferðaþjónustu í Gríms- ey. Skýringuna á því að ekki megi flytja fleiri farþega taldi hann vera þá að skipið væri skráð sem vöruflutningaskip, en ekki far- þegaskip. Þá væri Sæfari einnig gamalt skip, „og það líður örugglega ekki á löngu þar til það fær ekki haf- færisskírteini lengur, það er farið að ganga úr sér.“ Skipið var keypt gamalt til Ís- lands í kringum 1990 frá Noregi til að sinna ferjusiglingum milli lands og eyjar. Því taldi Garðar brýnt að hefja fljótlega vinnu við að fá nýtt skip í þetta verkefni „Við vonum að þessu verði kippt í liðinn,“ sagði hann. Hermann Guðjónsson forstjóri Siglingamálastofnunar sagði að málið væri til skoðunar og unnið væri að því að fá undanþágu frá tilskipuninni. Þyrfti að breyta skipinu Skipið væri gamalt og kröfur varðandi farþegaflutninga væru sífellt að aukast. Ljóst væri að breyta þyrfti skipinu umtalsvert ætti það að fá leyfi til að flytja fleiri farþega og ekki víst nú hvað menn væru tilbúnir að leggja í mikinn kostnað við endurbætur á því. „Það er verið að kanna þetta mál og reyna að finna á því við- unandi lausn,“ sagði Hermann. Þetta mál var það sem heitast brann á íbúum Grímseyjar sem sóttu íbúaþing í fyrrakvöld þar sem fjárhagsáætlun var kynnt auk þess sem menn höfðu tækifæri til að koma hugmyndum sínum og skoðunum á málefnum hreppsins á framfæri. Útlit fyrir að Sæfari f́ái ekki að flytja nema 12 farþega í einu Óvíst hvort leyfi fæst til að setja hús á ferjuna UM áramótin sameinuðust endur- skoðunar- og ráðgjafafyrirtækin Deloitte & Touche hf. og Endurskoð- un Norðurlands hf. Markmiðið með þessari sameiningu er að efla fagleg vinnubrögð og starfsemi á svæðinu, viðskiptavinum fyrirtækisins á Norðurlandi til hagsbóta, að sögn Ragnars Jóhanns Jónssonar hjá Endurskoðun Norðurlands hf. Í fréttatilkynningu frá fyrirtæk- inu kemur fram að á undanförnum árum hafi samstarf milli þessara fyr- irtækja byggst fyrst og fremst á fag- legum forsendum en nú sé þetta samstarf innsiglað með sameiningu félaganna. Endurskoðun Norðurlands hefur rekið skrifstofur á Akureyri, Sauð- árkróki og Siglufirði. Með samein- ingunni hefur skrifstofum Deloitte & Touche utan höfuðborgarsvæðisins fjölgað úr sjö í tíu, en fyrir eru skrif- stofur félagsins á Akranesi, Egils- stöðum, í Fjarðabyggð, Grundar- firði, Reykjanesbæ, Snæfellsbæ og Vestmannaeyjum. Sú starfsemi sem Endurskoðun Norðurlands hefur haft með hönd- um, þ.e. skrifstofurnar á Akureyri, Sauðárkróki og Siglufirði, verða þar með starfsstöðvar innan Deloitte & Touche sem þá starfar um landið allt og í raun á alþjóðavísu. Deloitte & Touche hf. hefur frá árinu 1994 verið fullgildur aðili að al- þjóðaendurskoðunar- og ráðgjafa- fyrirtækinu Deloitte Touche Toh- matsu, sem hefur yfir 90 þúsund starfsmenn í 133 löndum. Starfs- menn Deloitte & Touche á Íslandi eru um 190 talsins. Félagið starfar fyrst og fremst á sviði endurskoð- unar, reikningsskila og skattaráð- gjafar. Félagið veitir auk þess fjár- málaráðgjöf og er eignaraðili að ráðgjafafyrirtækinu IMG Deloitte. Með tengslum sínum við Deloitte Touche Tohmatsu hefur félaginu tekist að byggja upp sérþekkingu á sínu sviði, auk þess að hafa beinan aðgang að sérfræðingum og þekk- ingu hins alþjóðlega fyrirtækis, þ.m.t. aðferðarfræði í endurskoðun og tölvuvæddu endurskoðunarkerfi, sem þróað hefur verið af Deloitte Touche Tohmatsu í samstarfi við Microsoft. Endurskoðun Norðurlands hf. sameinast Deloitte & Touche hf. Markmiðið að efla fagleg vinnubrögð Starfsmenn hjá Endurskoðun Norðurlands, f.v. Unnur Hreiðarsdóttir, Ragn- ar Jóhann Jónsson, Aðalsteinn Þór Sigurðsson og Kristjana Hreiðarsdóttir. BÓNUS hefur gert samstarfssamn- ing við Fimleikaráð Akureyrar. Bónus greiðir styrk til FRA og eru nýir æfingagallar fimleikaráðs með merki Bónuss á bakinu. Styrkurinn var afhentur í Bónusversluninni á Akureyri nýlega. Jóhannes Jónsson afhenti Guðríði Sveinsdóttur, yf- irþjálfara FRA, styrkinn. Með þeim á myndinni eru Rannveig Inga Óm- arsdóttir og systurnar Tinna og Björk Óðinsdætur. Morgunblaðið/Kristján Bónus styrkir FRA SNJÓMOKSTUR og hálkueyðing kostaði Akureyrarbæ um 36 milljónir króna á nýliðnu ári. Upphæðin skiptist þannig að um 31,5 milljónir fóru í snjó- mokstur og 4,5 milljónir í hálkueyð- ingu. Þetta er nokkru hærri upphæð en varið var til snjómoksturs og hálkueyð- ingar árið á undan, 2001, sem þá kost- aði samtals um 20,5 milljónir króna, en svipaður kostnaður og var tvö ár þar á undan, 1999 og 2000, þegar kostnaður- inn var 31 og 35 milljónir króna. Lítið hefur þurft að hreyfa snjómoksturs- tæki á Akureyri frá því í byrjun nóv- ember síðastliðnum en nokkuð hefur verið um aðgerðir til að verjast hálku á götum bæjarins, að sögn Guðmundar Guðlaugssonar, verkfræðings hjá Ak- ureyrarbæ. „Útlitið virðist ágætt fram í miðja næstu viku að minnsta kosti,“ sagði Guðmundur, en það sem af er ári hefur verið einmuna blíða og snjór ekki sést í bænum. Snjómokstur og hálkueyðing á liðnu ári Kostnaður um 36 milljónir SÚLUR, björgunarsveitin á Ak- ureyri hefur eignast nýjan harð- botna slöngubát. Að sögn Ingimars Eydals, formanns sveitarinnar, er þetta kærkomin viðbót í tækjaflota sveitarinnar en gamli báturinn var orðinn mjög lúinn. Nýi báturinn er af Zodiac-gerð og harður plast- botninn gerir það að verkum að hægt er að nota bátinn við erfiðari skilyrði, t.d. er hægt að sigla hon- um þar sem ísskæni er og eins er hægt að athafna sig í töluverðum sjógangi. Báturinn hentar vel til leitar- og björgunarstarfa og hægt er að flytja allt að sex kafara með fullum búnaði í honum. Einnig er hægt að koma fyrir sjúkrabörum í bátnum. Báturinn verður hafður á kerru, þannig er með skjótum hætti hægt að bregðast við útköll- um hvert á land sem er. Til að byrja með verður notast við mót- orinn af gamla bátnum en það er 40 hestafla Yamaha-mótor. Vonir standa til að hægt verði að fara í mótorkaup strax á næsta ári en nýi báturinn er gefinn upp fyrir 50–90 hestafla mótor. Jón Snæ- björnsson hjá Ellingsen flutti bát- inn inn til landsins, Olís sá svo um að koma bátnum til Akureyrar og kann björgunasveitin þeim bestu þakkir fyrir. Morgunblaðið/Kristján Jón Snæbjörnsson frá Ellingsen, t.v., og björgunarsveitarmennirnir Þórhall- ur Birgisson, Jóhann Jónsson og Ingimar Eydal formaður í nýja bátnum. Súlur eignast nýjan björgunarbát

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.