Morgunblaðið - 11.01.2003, Síða 24
SUÐURNES
24 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
MARGIR bændur hafa yndi af
forystufé enda er starfandi fé-
lagsskapur um 140 fjáreigenda
sem stofnaður var í þeim tilgangi
að halda við þessum stofni sem er
einstakur í heiminum.
Þau Hanna Lára Bjarnadóttir
og Loftur Þorsteinsson, bændur í
Haukholtum í Hreppum, eiga
meðal annarra góðra gripa for-
ystusauðinn Nasa sem nú er sex
vetra. Hann er fallega van-
inhyrndur og hin mesta prýði í
hjörðinni.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmunds
Hjarðarprýði
í Haukholtum
Hrunamannahreppur
NÝ kennsluálma með þremur
kennslustofum og fjölnota rými,
sem nýtist m.a. til tónlistar og leik-
sýninga, var tekin í notkun við
Hamarsskóla í Vestmannaeyjum á
þrettándanum. Með tilkomu þessa
áfanga er því langþráða takmarki
náð að einsetja skólann.
Arnar Sigurmundsson, formaður
skólamálaráðs, greindi frá sögu
byggingarinnar, lýsti húsakostum
og gat um verktaka við verkið en
flestir voru þeir heimamenn. Arki-
tekt að byggingunni var Hallur
Kristvinsson. Fjöldi gesta var við
opnun álmunnar, þar á meðal
menntamálaráðherra, Tómas Ingi
Olrich, og starfsmenn menntamála-
ráðuneytis.
Við sama tækifæri var stofnuð
Fræðslu- og símenntunarstöðin
Viska en að stofnuninni standa 18
stofnanir og fyrirtæki í Vestmanna-
eyjum. Markmið Visku er að efla
menntun í Vestmannaeyjum með
því að standa fyrir fræðslustarfsemi
sem ekki heyrir undir námskrár-
bundið nám á grunnskóla og fram-
haldsskólastigi. Það verður gert
með því að hafa forgang um fræðslu
og fjarkennslu og miðla því til at-
vinnulífs og almennings.
Menntamálaráðuneytið mun líkt
og við stofnun annarra fræðslumið-
stöðva leggja 9 milljónir til Visku og
18 fyrirtæki og stofnanir í Vest-
mannaeyjum leggja fram stofnfé og
tryggja rekstrargrunn Visku. Á
næstunni verður auglýst eftir
starfsmanni til að sjá um rekstur-
inn.
Að lokinni undirskrift stofnsamn-
ings var kjörin stjórn fyrir Fræðslu-
miðstöðina en hana skipa Arnar
Sigurmundsson formaður, aðrir í
stjórn eru Páll Marvin Jónsson frá
Háskólasetrinu í Vestmannaeyjum,
Davíð Guðmundsson frá Tölvun,
Guðrún Erlingsdóttir frá Verslunar-
mannafélagi Vestmannaeyja og
Baldvin Kristjánsson, skólastjóri
Framhaldsskóla Vestmannaeyja.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Frá undirskrift stofnsamnings Visku í Framhaldsskólanum. Við borðið sitja
fulltrúar þeirra fyrirtækja og stofnana sem standa að verkefninu. Standandi
fyrir miðju er Arnar Sigurmundsson, formaður stjórnar Fræðslu- og sí-
menntunarstöðvarinnar Visku, og honum á vinstri hönd er mennta-
málaráðherra, Tómas Ingi Olrich, og bæjarstjórinn Ingi Sigurðsson.
Hamarsskóli ein-
settur og Viska
tekur til starfa
Vestmannaeyjar
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra tekur fyrstu skóflustung-
una að tvöfaldri Reykjanesbraut
klukkan 14 í dag. Athöfnin fer
fram við Kúagerði og markar upp-
haf framkvæmda við fyrsta áfanga
tvöföldunarinnar milli Hafnar-
fjarðar og Reykjanesbæjar.
Áhugahópur um öryggi á
Reykjanesbraut stendur að at-
höfninni ásamt verktökunum,
Jarðvélum, Háfelli og Eykt. Dag-
urinn í dag, 11. janúar, er valinn
sem upphafsdagur fram-
kvæmdanna meðal annars vegna
þess að liðin eru nákvæmlega tvö
ár frá því haldinn var fjölmennur
borgarafundur í Reykjanesbæ þar
sem lögð var fram krafa um að
framkvæmdinni yrði flýtt. Um það
leyti afhenti áhugahópurinn sam-
gönguráðherra skóflu til að taka
fyrstu skóflustunguna og mun
hann nota hana við verkið í dag.
Dagskráin hefst klukkan 13.30
með því að lagður verður blóm-
sveigur að vörðunni við Kúagerði
til að minnast þeirra vegfarenda
sem látist hafa í slysum á Reykja-
nesbrautinni. Skóflustunga verður
síðan tekin hinum megin vegarins,
þar sem verktakar hafa komið sér
upp vinnubúðum. Þá munu við-
staddir geta tekið forskot á sæluna
því í tilefni dagsins verður braut-
inni skipt á nokkurra kílómetra
kafla þannig að þeir geta ekið á
„tvöfaldri“ Reykjanesbraut í áttina
að Reykjanesbæ.
Klukkan 15 verður síðan mót-
taka í félagsheimilinu Stapa í
Njarðvík þar sem starfsmenn
verktaka og áhugahópur um ör-
yggi á Reykjanesbraut koma sam-
an ásamt öðrum áhugamönnum.
Þar verður gerð grein fyrir því
hvað verður um skófluna sem not-
uð verður við athöfnina fyrr um
daginn.
Fyrsta
skóflu-
stungan
að tvö-
földun
Reykjanesbraut
KRISTÍN Lea Henrysdóttir, nem-
andi í 9. bekk Holtaskóla í Keflavík,
sigraði í einstaklingskeppni í söng-
keppni SamSuð og í hópakeppni
sigruðu Halla Karen Guðjónsdóttir
og Guðmunda Áróra Pálsdóttir,
nemendur í 9. bekk Njarðvíkur-
skóla.
Sigurvegarar í báðum keppnun-
um voru fulltrúar félagsmiðstöðvar-
innar Fjörheima í Reykjanesbæ en
keppnin fór fram á sal Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja í fyrrakvöld. Auk
þeirra voru þátttakendur frá
Þrumunni í Grindavík, Skýjaborg í
Sandgerði, Truflaðri tilveru í Garði
og Borunni í Vogum.
Sigurvegarinn í einstaklings-
keppninni, Kristín Lea Henrysdótt-
ir, verður fulltrúi Suðurnesjamanna
í söngkeppni Samfés, Samtaka fé-
lagsmiðstöðva á Íslandi, sem fram
fer 25. þessa mánaðar. Í keppninni
söng hún Alanis Morisette-lagið
Ironic og Valgarður Davíðsson,
nemandi í 10. bekk í Myllubakka-
skóla í Keflavík, lék undir á gítar.
Kristín Lea segist hafa mikinn
áhuga á sönglistinni. Hún sótti söng-
tíma um skeið og hefur komið fram í
skólanum og víðar síðustu árin.
Áhuginn er svo mikill og sýnilegur
að amma hennar gaf henni tíma í
hljóðveri hjá Geimsteini í jólagjöf og
hefur hún verið að undirbúa sig fyrir
upptöku á lagi þar. Það kom sér því
vel að meðal verðlauna í keppni
SamSuð voru hljóðverstímar í Geim-
steini. Segist Kristín Lea nú geta
tekið upp fleiri lög. Áformin voru
einungis þau að eiga lag á geisla-
diski fyrir sjálfa sig og vini sína og
hún segist ekki hafa í hyggju að
standa í útgáfu á efninu, það geri
hún að minnsta kosti ekki sjálf.
Kristín viðurkennir að ekki hafi
verið auðvelt að byrja á því að koma
fram en það venjist eftir því sem hún
syngi oftar. „Þetta verður sífellt
skemmtilegra,“ segir hún.
Töluverður tími fór í undirbúning
hjá henni og Valgarði fyrir SamSuð-
keppnina og nú þurfi þau að fara að
búa sig undir Samféskeppnina. „Ég
hlakka mikið til hennar,“ segir
Kristín Lea.
Sigraði í söngkeppni Samtaka félagsmiðstöðvanna
Ljósmynd/Trufluð tilvera
Kristín Lea Henrysdóttir syngur og Valgarður Davíðsson leikur undir.
Verður
sífellt
skemmti-
legra
Keflavík
HREPPSNEFND Vatnsleysu-
strandarhrepps hefur samþykkt að
afsala til ríkissjóðs jörðinni Flekku-
vík. Hún var á sínum tíma keypt
vegna fyrirhugaðrar byggingar ál-
vers Atlantsáls hf. á Keilisnesi.
Þegar unnið var að Atlantsáls-
verkefninu varð það að samkomulagi
milli Vatnsleysustrandarhrepps og
iðnaðarráðherra að hreppurinn
keypti jörðina Flekkuvík og úthlut-
aði þar lóð fyrir álverið. Gert var ráð
fyrir því að jarðarverðið fengist til
baka á ákveðnum árum með lóðar-
leigu frá álverinu.
Hreppurinn var þó ekki reiðubú-
inn að kaupa jörðina á eigin ábyrgð
og varð að samkomulagi að ríkissjóð-
ur fjármagnaði kaupin. Þannig var
gengið frá samningum að endur-
greiðsla Vatnsleysustrandarhrepps
væri háð því að ef það yrði ekki af
byggingu og rekstri álversins myndi
hreppurinn verða skaðlaus vegna
landakaupanna og ríkissjóður yfir-
taka allar skuldbindingar hreppsins
vegna þeirra.
Nú er verið að ganga frá þessu
máli. Hreppurinn hefur samþykkt að
afsala jörðinni til ríkisins gegn því að
skuldir hreppsins við ríkissjóð vegna
málsins falli niður.
Jón Gunnarsson, oddviti Vatns-
leysustrandarhrepps, tekur ekki
undir þau orð að með þessu sé
hreppsnefndin búin að gefa upp á
bátinn vonir um álver á Keilisnesi,
segir að ef slíkt komi upp að nýju
skipti ekki öllu máli hvort lóðin sé í
eigu hreppsins eða ríkisins.
Ríkið mun eignast
álverslóðina á Keilisnesi
Vatnsleysuströnd
NOKKRIR íbúar í Reykjanesbæ
hófu síðdegis í gær mótmælasetu á
biðstofu heilsugæslustöðvar Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja. Til-
gangurinn var að vekja athygli á
læknaskorti á stöðinni.
Þegar haft var samband við
Helgu Valdimarsdóttur, einn skipu-
leggjenda mótmælanna, tóku átta
einstaklingar þátt í aðgerðunum og
von var á fleirum. Hún sagðist ekki
hafa hitt framkvæmdastjóra Heil-
brigðisstofnunarinnar sem hún
hefði vonast til að gæfi hópnum ein-
hverjar skýringar á ástandinu. „Við
verðum hér eitthvað frameftir,“
sagði Helga.
Að sögn Sigrúnar Ólafsdóttur,
hjúkrunarframkvæmdastjóra
heilsugæslustöðvarinnar, var Sig-
ríður Snæbjörnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðisstofn-
unarinnar, ekki látin vita af því að
fólkið kæmi. Hún hefði gjarnan vilj-
að hitta hópinn en því miður hefði
hún verið búin að ráðstafa sér á ár-
íðandi fund í Reykjavík á þessum
tíma.
„Sitjum eitthvað frameftir“
Keflavík
Morgunblaðið/Hilmar Bragi