Morgunblaðið - 11.01.2003, Page 38

Morgunblaðið - 11.01.2003, Page 38
UMRÆÐAN 38 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ HÆFILEIKI til að stýra sam- skiptum og umræðu í jákvæðan far- veg, ásamt því að hafa skýr og heið- arleg viðmið, með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi, eru ein- kenni á stjórnmálaferli Ingibjargar Sólrúnar. Nú á þessi ljómi að vera horfinn á einni nóttu og hún er ásökuð um óheilindi. Hún var hins vegar sönn í því að vilja vinna að framgangi Reykjavíkurlistans og standa við það fyrirheit að gegna starfi borgarstjóra út kjörtímabilið. Borgarstjóri hefur gefið sinn fyrsta tón inn í kosningabaráttuna. Það verður kosið um ríkisstjórn. Hún hefur lýst því yfir að hún bjóði sig fram undir þeim merkjum að koma ríkisstjórn Davíðs Oddssonar frá völdum. Sú gamla klisja að „allir gangi óbundnir til kosninga“ hefur í raun merkt það, að kjósandinn hef- ur ekki haft nema hálfgildingskosn- ingarétt. Hann hefur ekki vitað hvort Framsóknarflokkur eða áður Alþýðuflokkur hlypu undan merkj- um félagshyggju og jafnaðar inn í samvinnu við íhaldið. Það er von- andi að fleiri þori að lýsa því yfir hvers konar ríkisstjórn þeir vilja sjá eftir kosningar. Markmið með stofnun Samfylkingarinnar var að vera vettvangur félagshyggjufólks, trúverðugt mótvægi við Sjálfstæð- isflokkinn, með hliðstæðum hætti og Reykjavíkurlistinn í borginni, Röskva í háskólanum og fleiri slík framboð. Með tilkomu borgarstjóra hefur slagkraftur Samfylkingar stóraukist. Fyrir kosningarnar í vor þarf að stilla strengi þannig að hér verði valkostur sem býður upp á opna og lýðræðislega samfélagspóli- tík, en því tímabili fari að ljúka að þróun landsmála sé mótuð baksviðs í valdaklíkum flokkanna, með helm- ingaskipti eða annað sem vinnuregl- ur. Fulltrúar einstakra flokka hafa komið fram á síðustu dögum og lát- ið eins og þeir séu talsmenn sann- leika og trausts, en samtímis brigsl- að borgarstjóra um óheilindi. Almennt er trúlega farsælast að reyna að ná árangri út frá stefnu- málum sínum eða störfum og standa á eigin verðleikum. Undar- leg er sú sjálfseyðingarhvöt sem drífur vinstri græna áfram. Það er fróðlegt að sjá Steingrím Joð meta stöðuna svo, að með tilkomu Ingi- bjargar Sólrúnar í landsmálin hafi minnkað líkur á að koma Sjálfstæð- isflokknum frá völdum. Hann virð- ist vera að spila á sömu nótum og hann gerði fyrir seinustu kosningar að eyða meira púðri í árásir á Sam- fylkinguna og liðsmenn hennar en í vinnu gegn íhaldinu og sameigin- lega sókn á þeim vígstöðvum. Stein- grímur segir að Ingibjörg Sólrún muni skipa sér á bekk með „hægri krötum“. Þetta er neikvæð klisja sem á að „skadda“ Ingibjörgu Sól- rúnu. Trúir einhver á þessa flokk- unarfræði hjá þeim rétttrúnaðar- mönnum, sem telja sig hafa einkaleyfi á sannleikanum? Þeir ættu að vera henni þakklátari. En hver veit nema þeir fái annað tæki- færi á landsmálavettvangi til að sýna henni kurteisi. Synir og dætur samvinnuhreyf- ingarinnar virðast vera tilbúnir að gera allt til að reyna að halda völd- um. Þar ráða ekki málefni, heldur sjálfhverft valdatafl. Alfreð Þor- steinsson var tilbúinn að leysa upp Reykjavíkurlistann, til að þvinga fram kröfuna um afsögn Ingibjarg- ar. Sagt var að það færi ekki saman að vera borgarstjóri og í fimmta sæti á lista Samfylkingar. Óform- legar viðræður voru hafnar við Sjálfstæðisflokkinn, þar sem borg- arstjóraefnið var jafnframt þing- maður þess flokks. Sama tilhögun og átti ekki að genga hjá Ingi- björgu. Hver sér ekki virðingarleys- ið gagnvart kjósendum Reykjavík- urlistans? Hvers vegna þarf Valgerður Sverrisdóttir að lýsa því sérstaklega yfir að Ingibjörg Sólrún sé „pólitískur andstæðingur“ henn- ar? Eiga þeir framsóknarmenn, sem vilja kenna þann flokk við fé- lagshyggju, ekki rétt á að hún lýsi því einnig sérstaklega yfir að Davíð Oddsson sé pólitískur andstæðingur hennar? Jafnframt talar hún í þá veru að það sé spurning hvort Sam- fylkingunni sé treystandi fyrir landsmálastjórninni. Þarna kemur enn fram virðingarleysi gagnvart kjósendum, því það er ekki hennar að ákveða hverjir halda um taum- ana. Áramótaræða forsætisráðherra einkenndist meðal annars af „hálf- sannleika“ og aðdróttunum að borg- arstjóra. Hann taldi mikilvægt að stjórnmálamenn væru heiðarlegir og traustsins verðir. Það hefði farið betur á því að hann liti sér nær varðandi háttalag þeirra sem flokk- urinn hefur skipað í forsvar fyrir hinar og þessar ríkisstofnanir og innleitt hafa sjálftöku í launa- greiðslum og hlunnindum, ásamt því að líta til þeirra mála þar sem þingmenn flokksins hafa verið dæmdir fyrir þjófnað, fjármálamis- ferli eða orð þeirra verið dæmd ómerk af dómstólum. Segir þetta ekki sannleika um eðli flokks þar sem sérhagsmunapot og græðgi eru oft stutt undan. Forsætisráðherra virðist ekkki hafa áhyggjur af því að eitthvað í eðli flokksins stuðlar að því að helmingur þjóðarinnar, konur, nær ekki árangri í prófkjör- um hans. Það er ekki nóg að telja sig full- trúa sannleikans, því honum verður að fylgja hæfilega stór skammtur af sanngirni, sveigjanleika og sjálfs- gagnrýni. Nýjabrumið í litaflóru stjórnmálanna næstu mánuði verð- ur án efa tengt framboði borgar- stjóra. Hún er vænting og von um framgang lýðræðislegra og sam- félagslegra vinnubragða. Sanngirni og sannleikur Eftir Gunnlaug B. Ólafsson „Það er ekki nóg að telja sig fulltrúa sannleik- ans, því hon- um verður að fylgja hæfilega stór skammt- ur af sanngirni, sveigj- anleika og sjálfsgagn- rýni.“ Höfundur vinnur við kennslu og ferðaþjónustu. ÞRÁTT fyrir aukna þekkingu á eðli geðsjúkdóma, betri geðlyf og auðveldara aðgengi að læknisþjón- ustu eru geðsjúkdómar og áhrif þeirra ekki á undanhaldi. Af tíu helstu sjúkdómum sem valda varan- legri örorku flokkast fimm sem geð- sjúkdómar. Ekki hefur það heldur hjálpað í hagsmunabaráttu geð- sjúkra að málefni þeirra eru oft sér á báti, líklega vegna fordóma og að sjaldan er reynt að finna sameigin- legan flöt með öðrum sjúkdómum. Sérfræðiþekking geðheilbrigðis- starfsfólks hefur einnig einangrast inni á stofnunum, og tengist fyrst og fremst sérfræðikunnáttu á gangi og eðli geðsjúkdóma. Byggja þarf upp breiðari þekkingargrunn; þekkingu sem byggist á geðrækt, þ.e.a.s. styrkleika og aðlögunarmöguleikum, ekki eingöngu í einstaklingnum sjálfum heldur líka í umhverfi hans. Rannsóknir síðustu ára hafa leitt í ljós áhrif þunglyndis á líkamlegt heilbrigði. Gera verður því ráð fyrir þunglyndi sem áhættuþætti, á sama hátt og reykingum, kyrrsetu, háum blóðþrýstingi, áfengisneyslu og óhollri fæðu. Hvort sem við erum kven- eða karlkyns, ófötluð eða fötluð, verðum við að takast á við ákveðin lífsspurs- mál: Hvernig á ég að framfleyta mér, á hvern hátt get ég orðið sjálfstæður einstaklingur, hvað get ég lagt af mörkum til samfélagsins og hvernig ætla ég að verja tíma mínum? Í skarkala nútímans er mikilvægt að staldra við og athuga í hvað tíminn fer. Ver ég honum í það sem ég trúi á og er þess virði að stunda klukkutím- unum, dögum, vikum, mánuðum og árum saman? Heilbrigði er að geta náð mark- miðum sínum þrátt fyrir fötlun. Til þess að svo megi verða gegna um- hverfisþættir lykilhlutverki. Hversu vinveitt er íslenskt umhverfi fólki sem sker sig úr á einhvern hátt, í hegðun, útliti, tungumáli, aldri, kyni o.s.frv. Taka má geðfatlaðan einstak- ling sem dæmi: Hve mikilli orku og fjármunum er varið í að finna út hvað skiptir hann máli, hvað honum finnst þess virði að gera, hvaða hæfileikum hann býr yfir, miðað við þá fjármuni sem fara í að „lækna“ það sem hing- að til hefur talist ólæknandi? Geðsjúklingar eru notendur geð- heilbrigðiskerfisins, þeir skapa störf, en hvað hafa þeir að segja um þjón- ustuna, hvaða völd, virðingu og áhrif hafa þeir? Kannski vilja geðfatlaðir verja fjármunum á annan hátt en gert er. Ef til vill vilja þeir fá frekari aðstoð til að geta lifað lífinu utan stofnana. Kannski þæðu þeir aðstoð við að sækja sér menntun eða öðlast tækifæri til að eignast heimili og vini, fá vinnu við hæfi eða njóta sam- vista við aðra en geðsjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Hvaða val hafa geðsjúkir þegar þjónustan stenst ekki væntingar? Hafa íslenskir geð- sjúklingar eitthvert val varðandi þjónustu eða endurhæfingu? Heilsugæslan og sjúkrahúsin eru mikilvæg í heilbrigðisþjónustunni, en til að dæmið gangi upp fyrir þá sem berjast við langtímaveikindi, er sú þjónusta aðeins byrjunin. Hin raunverulega aðstoð fer fram í eig- inlegu umhverfi manneskjunnar og þar af leiðandi getur sú vinna aldrei farið fram inni á stofnunum, skrif- stofum sérfræðinga né í formi efna- sambanda. Það hlýtur mörgum að finnast for- vitnilegt að komast að ástæðu þess að sumir geta notið sín þrátt fyrir „slæm“ gen, lélegan aðbúnað, áföll og fatlanir. Fjöldinn allur af fólki telst ólæknanlegur frá læknisfræði- legu sjónarhorni, en nær samt að njóta lífsins og vera virkur þátttak- andi í samfélaginu. Í þessum ein- staklingum býr þekking sem þarf að virkja á skipulagðan hátt. Þannig má deila völdum, áhrifum og fjármagni og setja mark á stefnumótun. Heil- brigðiskerfið þarf svo sannarlega á nýrri nálgun að halda, því hin hefð- bundna virðist aðeins kalla á meiri mannafla, fleiri stofnanir og meiri kostnað. Á vegum Geðhjálpar er starfandi hópur sem kallar sig „Notendahóp- urinn“. Þessi hópur vill nýta þá þekkingu og krafta sem geðsjúkir búa yfir. Einstaklingarnir innan þessa hóps vilja ekki aðeins vera þiggjendur og bíða endalaust eftir að aðrir finni lausnirnar. Þeir vilja sjálf- ir leggja eitthvað af mörkum og taka aukna ábyrgð á eigin málum og hafa áhrif á þróun geðheilbrigðismála. Þeir vita að í þeirra röðum er hæfi- leikafólk sem gæti þess vegna orðið stjórnmálamenn, rannsakendur eða stefnumótunaraðilar væri rétt að þeim búið. Með þátttöku í notenda- hópnum opnast leið fyrir fjölda fólks. Árið 2003 er alþjóðlegt ár fatlaðra og hvet ég valdhafa og aðra sem áhuga hafa á málefninu og búa yfir þekkingu á einhverju því sviði sem nýst gæti hópnum að veita honum at- hygli og brautargengi. Stuðning við slíkan hóp er hægt að veita með ýmsu móti, bein fjárframlög eru að- eins ein leið. Það er ekki síður mik- ilvægt að miðla þekkingu, sýna áhuga, gefa svolítið af tíma sínum og taka virkan þátt í afmörkuðum verk- efnum. Þannig græðum við öll!! Eftir Elínu Ebbu Ásmundsdóttur „Hvort sem við erum kven- eða karlkyns, ófötluð eða fötluð, verðum við að takast á við ákveðin lífsspursmál.“ Höfundur er forstöðuiðjuþjálfi geðsviðs LHS og lektor við HA. Þora, geta, vilja ÞAÐ er merkilegt að hugsa til þess að það eru aðeins liðin rétt rúm 50 ár frá því að lyf fóru almennt að gera líf manna léttbærara. Fyrir þann tíma höfðu læknar að vísu notast við ýmiss konar lyfjaglundur en þá var það trú- in á glundrið sem var miklu öflugri en eiginleg verkun þess. Í dag eru að- eins notuð örfá lyf (t.d. asperin) frá fyrri tíð. Byltingin í lyfjaþróun byrjaði rétt fyrir 1950 og náði hámarki um 1980. Tilkoma nýrra lyfja hefur gerbreytt lífi almennings víða um heim, forðað mörgum frá ótímabærum dauða, en hjá langflestum hafa lyf þó fyrst og fremst bætt líðan og lífsgæði. Hér má t.d. nefna verkjalyf, hægðalyf og svefnlyf, sem mikið eru notuð til að bæta líðan og lífsgæði og er þá ekki alltaf spurt um fínar sjúkdómsgrein- ingar. Rannsóknir sýna að lengd meðal- ævi almennings á Vesturlöndum hef- ur lítið með lækna og lyf að gera, þar hafa félagslegar aðgerðir skipt miklu meira máli. Trú lækna og almennings á þróun nýrra lyfja við ýmiss konar sjúkdómum og kvillum var um tíma nær takmarkalaus. En eftir 1980 hef- ur hægt á þróuninni og síðan þá hafa tiltölulega fáar stórar uppgötvanir verið gerðar í lyfjavísindum. Ýmis mjög gagnleg lyf hafa þó komið fram á þessum tíma og má þar t.d. nefna betri lyf til að hemja sýruframleiðslu í maga og nýja kynslóð lyfja við þung- lyndi og kvíða. Það eru einmitt síðasttöldu lyfin sem mig langar til að gera að umtals- efni. Þessi lyf hafa orðið vandlætur- um af ýmsu tagi tíðrætt umræðuefni. Fussað hefur verið yfir notkun „gleðipilla“ og gefið í skyn að neyt- endur þeirra séu hálfgerðir dópistar eða vesalingar og jafnvel að læknarn- ir sem gefa þau græði sjálfir á notkun þeirra. Alloft hafa slíkir vandlæting- armenn komið úr læknastétt og pakka þeir gjarnan fussi sínu og sveii inn í fræðilegar pakkningar. Þeir halda því m.a. fram að kollegar þeirra sem upp á lyfin skrifa hafi ekki gert nægilega skýrar sjúkdómsgreiningar áður en lyfin eru gefin – og að þau séu jafnvel gefin við „eðlilegu ástandi“. Stundum er gengið enn lengra og það gefið í skyn að læknar sem skrifa upp á lyf við þunglyndi eða kvíða geri það í miklu snarhasti án þess að gefa sér tíma til þess að ræða við skjólstæð- inga sína. Ofangreind viðhorf komu einkar glöggt fram í grein læknanna Jó- hanns Ág. Sigurðssonar og Linn Getz í nýjasta hefti Læknablaðsins. Í greininni er lögð áhersla á að ýmiss konar andleg vanlíðan sé eðlilegur fylgifiskur lífsins og á milli línanna má lesa að það sé einstaklingnum bæði hollt og gott að finna fyrir sál- arkreppu ef aðstæður í lífi hans gefi tilefni til. Þá sé réttast fyrir lækninn að tala við („beita samtalsmeðferð“) viðkomandi, en lyfjameðferð eigi í mörgum tilvikum ekki við. Höfundar tala um „manninn í myrkrinu“, og það sem hann þurfi á að halda: „hann þarf að sjá nýja möguleika í stöðunni. Til þess þarf hann tíma, að það sé hlustað á hann og að honum sé sýnd virðing, samkennd og þolinmæði.“ Þetta eru falleg orð, en þó kannski ekki svo mjög þegar það læðist að manni sá grunur að höfundar séu að gefa í skyn að ekkert af þessu sé nú í boði hjá kollegum þeirra sem eru að skrifa upp á kvíðalyfin. Að þeir fleygi bara lyfseðlinum orðalaust í skjól- stæðinga sína áður en þeir ýta þeim út. Satt best að segja er ég orðinn dauðleiður á málflutningi af þessu tagi. Ég myndi þó ekki nenna að ansa svona vitleysu nema af því að þetta spillir fyrir möguleikum mínum til að aðstoða skjólstæðinga mína sem þurfa á hjálp að halda. Margir þeir sem fá kvíðalyf eiga við ólýsanlega vanlíðan að stríða og eftir nokkurra vikna lyfjameðferð er oft sem fargi sé lyft af brjósti þeirra. Þá er gaman að vera læknir. Ég þykist vita það að einhvers staðar séu misbrestir á því hversu mikinn tíma fólk í sálarkreppu fær hjá læknum sínum, en hitt veit ég líka vel að flestir læknar sinna skjólstæð- ingum sínum með alúð, „hlusta á þá og sýna þeim virðingu, samkennd og þolinmæði“. En þar að auki gefa þeir oft kvíðalyf til að bæta líðan þeirra og stundum svefnlyf svo þeir sofi nú vel í einsemd sinni og kvíða. Þessum læknum stendur á því augnabliki nokk á sama um það hvaða efni það eru í heilanum sem lyfin virka á, líka um það hvað nákvæm sjúkdóms- greining kvillans heitir á latínu, þeir eru ekki að velta fyrir sér almennum heimspekihugleiðingum læknapró- fessora um hversu „eðlileg“ sálar- kreppa skjólstæðings sé miðað við aðstæður. Nei, þessum læknum gengur það eitt til að bæta líðan skjólstæðings í vanda á sem bestan og fljótlegastan hátt. Hin fjölmörgu nýju lyf af „Prozac gerð“ er vart hægt að misnota og verkun þeirra er auðvelt að meta. Það er gert með því að spyrja við- komandi hvort honum líði betur á sál- inni nokkru eftir að meðferð er hafin. Svo einfalt er það nú. Sé svarið ját- andi, þá er lyfjameðferðin að gera gagn. Á þeirri stundu skiptir það ekki meginmáli fyrir lækninn hvort sálar- kreppa viðkomandi er tilkomin vegna gjaldþrots, hjónaskilnaðar eða sorg- ar. Í þeim málum þarf líka að vinna eftir ýmsum leiðum, en það gengur betur að leysa úr þeim ef viðkomandi líður betur og er í sæmilegu jafnvægi. Við aðstæður sem þessar þarf hvorki læknirinn né skjólstæðingur hans á því að halda að fjölmiðlar eða fólk með fínar gráður tali niður til þess sem þeir eru að gera. Lyf og líðan Eftir Árna Tómas Ragnarsson „Margir þeir sem fá kvíðalyf eiga við ólýs- anlega van- líðan að stríða.“ Höfundur er læknir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.