Morgunblaðið - 11.01.2003, Page 52
FÓLK Í FRÉTTUM
52 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SKERJAFJARÐARSKÁLDIÐ
Kristján Hreinsson hefur komið víða
við sem ljóðskáld, leikritahöfundur
en einnig sem tónlistarmaður og á að
baki nokkrar hljómskífur. Síðustu
tvö ár eða svo hafa
verið æði gjöful,
tvær plötur í ætluð-
um þríleik komnar
út; Í stuði með Guði
og Á kvisti með
kristi (hvar er Í
botni með drottni?) og nú Eftir dans-
inn sem er sálmaplata.
Áferð plötunnar er viðkvæmnisleg
og hér er værð yfir öllu saman. Sálm-
arnir og sálmalíkin dragnast áfram á
silalegan hátt en um leið einkenni-
lega þægilegan. Þeim vindur letilega
áfram og eru hverjum öðrum líkir.
Hljóðfæranotkun er þannig sparleg
og þjónar smíðunum vel. Orgel oft-
ast í aðalhlutverki en fiðlur, sög,
dragspil og gítar kíkja stundum í
heimsóknir og haga sér þá prúð-
mannlega. Einnig ber að geta inn-
slaga söngvarans Guðna Freys Sig-
urðssonar sem eru hin prýðilegustu.
Söngrödd Kristjáns er þá kafli út
af fyrir sig. Oftast hljómar hann eins
og svefndrukkinn og annkannalegur
Tom Waits og ómurinn sá nær að
vekja upp lævi blandið andrúmsloft.
Textarnir spila eðlilega stóra rullu
og maður leggur eyrun ósjálfrátt við.
Á tímum miður vel ortra popptexta
er næstum því unaður að hlýða á
texta sem eru stuðlaðir, bera höfuð-
stafi og ríma. Á stundum fer Krist-
ján hamförum í þessari viðleitni sinni
og er bara gaman að því. Líkt og
hann sé að bæta hér upp fyrir rímna-
fötlun annarra. Dæmi: „Svo vilja
börnin slóttug slást/Og slafra í sig
súpu/Við borðið soltnir kjaftar
kljást/Við kjöt af dauðri rjúpu“ (úr
„Jólakveðjur í bundnu máli“).
Ljóðin eru annars vangaveltur um
tilgang lífsins, snerta á hugðarefnum
eins og dauðanum, náungakærleik
og ástinni. Þess ber að geta að Krist-
ján hefur það m.a. að starfi að dæla
út yfirborðskenndum textum fyrir
aðra og því greinilegt að dýptina
sparar hann fyrir sjálfan sig.
Eftir dansinn er sérkennilega
heillandi verk og munar þar helst um
hversu einstök hún er: eins konar
innlit til, að því er virðist, slafrandi
byttu sem syngur sig kórrétt í gegn-
um sálm eftir sálm eftir sálm.
Og á einhvern lúmskan hátt er
þetta að virka. Furðu gott.
Tónlist
„Af gáska
dansinn stígur“
Kristján Hreinsson
Eftir dansinn
Gutti/Edda
Eftir dansinn er sálmaplata eftir Kristján
Hreinsson. Flutningur er í höndum Krist-
jáns og hljómsveitarinnar Hans. Hana
skipa hér þeir Kjartan Már Kjartansson
(fiðla, lágfiðla), Jon Kjell Seljeseth
(strengjagervlar, orgel, flautugervill), Jón
Ólafsson (orgel), Tryggvi Hübner (gítar),
Sigurður Flosason (baríton-saxófónn,
bassaklarinett), Þórir Úlfarsson (orgel),
Magnús Kjartansson (orgel, harm-
onikka), Vilhjálmur Guðjónsson
(hringla), Jóhann Egill Jóhannsson (sög)
og Guðni Freyr Sigurðsson (söngur).
Kristján sjálfur syngur og leikur á hljóm-
borð og gítar. Tónlist og textar eru allir
eftir Kristján. Upptaka og hljóðblöndun
var í höndum Kristjáns, Jon Kjells, Jóns
Ólafssonar og Rafns Jónssonar. Um
hljómjöfnun sá Milli.
Arnar Eggert Thoroddsen
Sáttur
(Happy Now)
Spennugrín
Bretland 2001. Sam myndbönd. (92
mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn
Philippa Cousins. Aðalhlutverk Susan
Lynch, Om Puri og Paddy Considine.
UNG stúlka er ein á ferð á fáförn-
um sveitavegi í Wales. Árið er 1988
og það var verið að kjósa hana feg-
urstu stúlkuna í sveitinni. Bíllinn
hennar bilar og hún bíður aðstoðar.
Furðufugl þorpsins
kemur og býðst til
að sækja aðstoð. Á
meðan koma gaur-
ar tveir, annar
fyrrum kærasti,
hinn algjör pest,
sjálfumglaður
tuddi. Hann abbast
upp á fegurðardís-
ina, hún fellur, rekur höfuðið í grjót
og deyr. Drengirnir flýja og kenna
furðufuglinum um sem hent er í
steininn. Málið upplýst. Nei. 14 árum
síðar kemur stúlka í bæinn sem lítur
út alveg eins og hin látna og við það
fýkur rykið burt af vel falinni fortíð
og félagarnir tveir fara á taugum.
Góð spennugrínmynd þarf að hafa
tvennt til brunns að bera, spennu og
grín. Þessi hefur hvorugt. Björgin
felst í góðum leik, sér í lagi hjá Cons-
idine sem leikur pestina. Takið eftir
honum í framtíðinni, t.a.m. í næstu
mynd Írans Jims Sheridans In Am-
erica.
Skarphéðinn Guðmundsson
Falin fortíð
Morgunblaðið/Jim Smart
„Á tímum miður vel ortra popp-
texta er næstum því unaður að
hlýða á texta sem eru stuðlaðir,
bera höfuðstafi og ríma,“ segir í
umfjöllun um nýjasta verk Skerja-
fjarðarskáldsins.
Myndbönd
12. jan. kl. 14. örfá sæti
19. jan. kl. 14. örfá sæti
26. jan. kl. 14. laus sæti
5. feb. kl. 14. laus sæti
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka
daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19
sýningardaga. Ósóttar pantanir seldar
4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700
Sun 12/1 kl 21
Lau 18/1 kl 21
Fös 24/1 kl 21 Uppselt
Fös 31/1 kl 21
Hversdagslegt
kraftaverk
eftir Évgení Schwarz
Leikstjóri: Vladimír Bouchler.
Sérlega skemmtileg fjölskyldusýning
sýn. sun. 12. jan. kl. 15.
sýn. lau. 18. jan. kl. 19
sýn. sun. 26. jan. kl. 15
sýn. lau. 1. feb. kl. 19
sýn. sun. 9. feb. kl. 15
sýn. lau. 15. feb. kl. 19
Aðeins þessar sýningar.
Barn fær frítt í fylgd með fullorðnum
Miðasölusími sími 462 1400
www.leikfelag.is
Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi
5. sýn. í dag. 11. jan. kl.16
6. sýn. sun. 12. jan. kl. 16
7. sýn. lau. 18. jan. kl. 16
8. sýn. sun. 19. jan. kl. 16
Aðeins 10 sýningar
Miðalsala í Hafnarhúsin
alla daga kl. 10-17. Sími 590 1200
Smurbrauðsverður innifalinn
Miðasala Iðnó í síma 562 9700
Hin smyrjandi jómfrú
sýnt í Iðnó
Lau. 11. jan. kl. 20
Sun. 12. jan. kl. 15
Sun. 19. jan. kl. 15 og 20
Stóra svið
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Frumsýning Í kvöld kl. 20 UPPSELT
2. sýn su 12/1 kl 20 gul kort, UPPSELT
Aukasýning þri 14/1 UPPSELT
3. sýn fö 17/1 kl 20 rauð kort
4. sýn lau 18/1 kl 20 græn kort
5. sýn fö 24/1 kl 20 blá kort
Lau 25/1 kl 20, Fö 31/1 kl 20, Lau 1/2 kl 20
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Su 19/1 kl 20
Su 26/1 kl 20
Fi 30/1 kl 20
Sýningum fer fækkandi
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 12/1 kl 14
Su 19/1 kl 14
Su 26/1 kl 14
Nýja svið
Litla svið
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Lau 18/1 kl 19
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Í kvöld kl 20, Fö 17/1 kl 20, Lau 25/1 kl 20,
Fö 31/1 kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Lau 18/1 kl 21, Su 26/1 kl 21
Ath. breyttan sýningartíma
Þriðja hæðin
PÍKUSÖGUR-GINUSÖGUR-VAGINA
MONOLOGER á íslensku, færeysku og dönsku
Kristbjörg Kjeld, María Ellingsen, Birita Mohr,
Charlotte Böving
Lau 25/1 kl 20
Grettissaga
saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt
á Grettissögu
Lau 18. jan, kl 20, nokkur sæti
fim 23. jan kl. 19,
ath breyttan sýningartíma
Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midavefur.is
Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00.
Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni
fyrir sýningu á www.hhh.is
Allra síðustu sýningar
Fim. 16. jan kl. 21, forsýning
til styrktar Kristínu Ingu
Brynjarsdóttur, UPPSELT.
Föst. 17. jan. kl. 21,
frumsýning, UPPSELT.
Lau. 25. jan. kl. 21, nokkur sæti.
Lau 1. febr. Föst. 7. febr.
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Hljómsveitarstjóri: Peter Guth
Einsöngvari: Garðar Thór Cortes
Einleikari: Lucero Tena
Í dag, laugardag kl. 17:00
Vínar-
tónleikar
í Háskólabíói
UPPSELT