Morgunblaðið - 11.01.2003, Síða 55
Þetta er þó ekki eina samstarfs-
verkefni tvíeykisins því Birgir vinn-
ur að nýrri plötu Daníels og kom
hingað til lands í kringum Iceland
Airwaves-tónleikahátíðina og spil-
aði á tónleikum með Daníel.
Þess á milli skiptist hann á hug-
myndum við samstarfsfólk í gegn-
um Netið. „Ég var að klára verk-
efni í LA eftir að ég kom hingað
heim. Ég vinn mikið á Netinu,“ seg-
ir hann.
Einhver vinna er eftir við dans-
verkið. „Það á eftir að huga að ein-
hverjum smáatriðum en það er að
komast mynd á þetta. Vinnuferlið
er kannski búið að vera lengra en
það hefði þurft að vera því við erum
búin að vera að flakka fram og til-
baka með hugmyndir.“
Þegar því er lokið heldur áfram
vinna við plötu Daníels Ágústs.
„Við stefnum á að klára hana á
þessu ári,“ segir hann.
Af hverju Bix?
„Þetta Bix-nafn límdist við mig
þegar ég var 13 eða 14 ára. Þá hékk
ég oft í spilatækjasal niðri í bæ.
Þegar maður var í tölvuleik og fékk
„high score“ var bara hægt að
stimpla inn þrjá stafi. Mér fannst
BKS ekki nógu kúl þannig að ég
skrifaði Bix. Svo voru svo margir
Biggar í bænum að ég var kallaður
Biggi Bix til aðgreiningar og það
festist við mig.“
Gælunafnið Bix kemur sér vel
fyrir Birgi úti í Bandaríkjunum.
„Ameríkaninn getur ekki sagt
Biggi eða Birgir. Annaðhvort segja
þeir Burger eða Piggy.“
Birgi virðist ekki skorta verk-
efnin en hvað skyldi vera næst á
dagskrá? „Maður veit aldrei hvað
er handan við hornið. Sem er kost-
ur og ókostur. Mér finnst þetta
voðalega skemmtilegt. Níu-til-
fimm-vinna á mjög illa við mig. Ég
verð bara andlaus á því. Það er
voða gott að geta ráðið tíma sínum
sjálfur.“
TENGLAR
.....................................................
www.bixpender.com
ingarun@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 55
www.regnboginn. is
Sýnd kl. 2.30, 6.30 og 10.30. Sýnd kl. 2.30, 4.30, 6.30, 8.30 og 10.30. B.i.14 ára
Hverfisgötu 551 9000 Nýr og betri
„Turnarnir gnæfa yfir
bestu myndir ársins“
SV. MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
„Besta mynd ársins“
FBL
YFIR 60.000 GESTIR Á 13 DÖGUM
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B.i.12 ára
Frumsýning
DV
RadíóX
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
YFIR 60.000 GESTIR STÆRSTA BONDMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
LEON OG LE FEMME NIKITA
Fantaflottur spennutryllir með ofurtöffaranum
Jason Stratham úr Snatch
Hraði , spenna og slagsmál í svölustu mynd
ársins.
38
ÞREP
ÚTSALA
opið frá 10-18 / laugavegi 49 / sími 561 5813
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 8 og 10.30. B. i. 12 ára.
Sýnd kl. 2.15, 3.30, 5.40, 7, 9 og 10.30.
Sýnd kl. 2, 4 og 6 með íslensku tali.
Stórkostlegt ævintýri frá Disney byggt á
hinu sígilda og geysivinsælu ævintýri um
GullEyjuna eftir Robert Louis Stevenson
„Turnarnir gnæfa yfir bestu myndir
ársins“
SV. MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
„Besta mynd ársins“
FBL
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
RadíóX
DV
YFIR 60.000 GESTIR Á 13 DÖGUM
YFIR 60.000 GESTIR STÆRSTA BONDMYND
ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI
FORSÝNING
EMINEM
FORSÝND kl. 12.30
eftir miðnætti.
Miðasala opnar kl.2.
DANSVEISLA MTV verður hald-
in á Broadway í kvöld á vegum
þáttarins The Lick, sem Trevor
Nelson stjórnar. Ekki er nóg með
að fram komi óvæntur gestur held-
ur stíga fulltrúar Íslands einnig á
svið.
Real Flavaz, tvíburasysturnar
Brynja og Drífa Sigurðardætur, og
Rottweilerhundarnir ætla að koma
fram fyrir hönd íslensks r&b og
hipphopps í kvöld.
Arnar Laufdal hjá Broadway
segir MTV hafa haft áhuga á að ís-
lenskir tónlistarmenn kæmu þarna
fram og þessar tvær sveitir urðu
fyrir valinu.
Báðar sveit-
irnar taka
tvö lög en
partýið
verður jafn-
framt tekið
upp og sýnt
í þætti Trev-
ors tveimur
vikum síðar.
„Þetta er
geysilegt
tækifæri
fyrir þessa
listamenn að
fá að koma
fram á
MTV. Marg-
ar milljónir eiga eftir að sjá þetta,“
segir Arnar.
Dansveisla MTV á Broadway
Real Flavaz
með ásamt
Rottweiler
Ljósmynd/Friðrik Örn
Real Flavaz stíga á
svið í kvöld.
The Lick-partý á Broadway frá kl.
23 í kvöld. Miðaverð er 1.800 kr.
Maurice Gibb,
meðlimur í Bee
Gess liggur nú á
milli heims og helju
á sjúkrahúsi í
Miami eftir hjarta-
áfall. Gibb er 53
ára …
Yasmine Bleeth, fyrrum Strand-
varðaskutla, opnaði sig á dögunum
hvað kókaínfíkn sína varðar en hún
hefur barist við fíkniefnadjöfulinn í
fimm ár. „Ég átti aldrei von á því að
verða háð eiturlyfjum,“ segir hún.
„En fyrr en varði var ég farinn að
panta þetta heim til mín eins og
Kínamat. Ég hætti að tala við vini
mína og verslaði á netinu í staðinn.“
Bleeth hné svo í ómegin í júlí 2000, á
meðan ljósmyndataka var í gangi.
Bleeth er nú á batavegi …
FÓLK Ífréttum