Morgunblaðið - 25.01.2003, Side 10

Morgunblaðið - 25.01.2003, Side 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ BÆJARSTJÓRN og hafnar- nefnd Fjarðabyggðar hafa á sameiginlegum fundi sínum samþykkt drög að hafnarsamn- ingi við Fjarðaál og veitt bæj- arstjóranum, Guðmundi Bjarnasyni, fullt umboð til að ganga til samninga við ríkið um kaup Fjarðabyggðar og hafnar- sjóðs á jörðum ríkisins í Reyð- arfirði. Bæjarstjórnin hefur jafn- framt samþykkt þau ákvæði í drögum að fjárfestingarsamn- ingi milli ríkisins og Alcoa er varða Fjarðabyggð, þ.e. vegna fasteignaskatts, gatnagerðar- gjalda og byggingarleyfis- gjalda, ásamt ákvæðum um þjónustu sveitarfélagsins. Fjarða- byggð sem- ur við ríkið BRIMBORG hefur innkallað 17 Citroën-bifreiðar af gerðinni C3 sem eru í umferð á Íslandi. Boð hafa komið frá Citroën- verksmiðjunum um þessa inn- köllun vegna rakamyndunar í stjórntölvu ABS kerfis-bílanna. Það getur valdið því að aðvör- unarljós fyrir ABS-kerfið logar í mælaborði og ABS-kerfið er þá óvirkt. Þetta hefur ekki áhrif á almenna bremsukerfið sem er alltaf virkt óháð þessu. Brimborg hefur því sett í gang viðeigandi ferli. Í því felst öflun upplýsinga um bilun og pöntun varahluta sem þegar hefur verið gert. Síðan verður viðskiptavinum sent ábyrgðar- bréf þar sem þeir verða boðaðir í viðgerð og fá allir bíl til afnota frítt á meðan á viðgerð stendur að því er fram kemur í tilkynn- ingu. Innkalla 17 Citroën- bifreiðar MIKIÐ tjón varð á veggirðingu sem aðskilur akbrautir á Breið- holtsbraut í Reykjavík er ekið var á hana í fyrrakvöld eða fyrri- nótt. Lögreglan í Reykjavík lýs- ir eftir vitnum að atvikinu. Af verksummerkjum að dæma virðist sem bíl hafi verið ekið upp brautina og ökumaður misst stjórn á honum og hafnað á veggirðingunni. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hver var þarna að verki eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Mikið tjón á veggirðingu TÍU sjúklingar og sextán starfs- menn á St. Jósefsspítala í Hafnar- firði hafa smitast af veirusýkingu á undanförnum dögum sem gert hefur vart við sig á lyflækningadeild spít- alans. Um er að ræða samskonar veirusýkingu, Calici-veiru, og kom upp á Hrafnistu í Hafnarfirði og Reykjavík í október á síðasta ári. Hún veldur uppköstum, niður- gangi og hita og er bráðsmitandi og gengur venjulegast yfir á tveimur dögum. Að sögn Guðrúnar Sig- mundsdóttur, smitsjúkdómalæknis hjá landlæknisembættinu, er þetta samskonar veirusýking og gengið hefur meðal almennings að undan- förnu, þegar hún berst inn á sjúkra- hús er hins vegar oft erfitt að eiga við hana og í sumum tilfellum getur hún reynst hættuleg þegar mjög veikir einstaklingar eiga í hlut. Eng- in slík tilfelli hafi þó komið upp nú. Búið er að loka fyrir innlagnir á með- an veiran er til staðar á sjúkrahúsinu og ekki er útskrifað á aðrar sjúkra- stofnanir. Þeim sjúklingum, sem fengið hafa veiruna, hefur verið haldið frá öðrum sjúklingum á með- an þeir eru veikir og næstu tvo sólar- hringa á eftir. Þá hefur verið brýnt fyrir starfsmönnum að þvo hendur reglulega og snertifletir eru sótt- hreinsaðir. Eftir að veirusýkingin er liðin hjá á sjúkrahúsinu er ráðgert að þrífa lyflækningadeild spítalans. Guðrún segir að sennilega séu margir stofnar af umræddri veiru að ganga meðal almennings. Ekki sé hér um nýtt vandamál að ræða og í Bandaríkjunum og Evrópu glími menn við svipað vandamál. „Þetta er í raun vandamál alls staðar þar sem fólk safnast saman og eitthvað sem mun koma upp aftur og aftur.“ Í desember á síðasta ári kom Cal- ici-veiran upp á öldrunardeild Land- spítala – háskólasjúkrahúss í Foss- vogi og smitaði u.þ.b. tvo þriðju sjúklinga og helming starfsfólks, að sögn Hjördísar Harðardóttur, yfir- læknis á sýkingavarnadeild LSH. Þá komu upp nokkur tilfelli af sömu veirusýkingu á hjartadeild LSH við Hringbraut milli jóla og nýárs. Ákveðið var að opna sérstaka deild á spítalanum þar sem innan við tugur sjúklinga víðsvegar að fékk með- höndlun. Engin alvarleg tilfelli komu upp og var deildinni lokað skömmu upp úr áramótum. Að sögn Hjördísar er hér ekki um nýtt vandamál að ræða. Heilbrigð- isyfirvöld hafi hert eftirlit og aðgerð- ir komi slík tilfelli upp. 10 sjúklingar og 16 starfsmenn á St. Jósefsspítala hafa smitast af Calici-veirunni undanfarna daga Lokað fyrir innlagnir um stundarsakir MARGIR notfærðu sér kynningu sem fór fram á alþjóðadegi Háskóla Íslands í Háskólabíói á fimmtudag og var fullt út úr dyrum á tímabili. Kynningin fór fram með ýmsum hætti. Erlendir stúdentar við Há- skóla Íslands og íslenskir fyrrver- andi skiptistúdentar veittu upplýs- ingar um nám í ýmsum löndum. Í öðru lagi kynntu ýmiss fyrirtæki, stofnanir og fulltrúar sendiráða þjónustu sína við námsmenn og í þriðja lagi voru flutt erindi um stúdentaskipti og nám erlendis. Alþjóðadagur Háskóla Íslands hef- ur verið haldinn með svipuðu sniði undanfarin ár. Guðný Gunnars- dóttir, verkefnisstjóri Alþjóðaskrif- stofu háskólasviðsins, segir að kynning með þessum hætti sé mjög mikilvæg, en tilgangurinn sé að gefa íslenskum stúdentum innsýn í alla þá möguleika, sem þeir hafa til að taka hluta af námi sínu erlendis, en í mörgum tilfellum sé skylda að taka hluta námsins erlendis. Jafn- framt gefist erlendum stúdentum tækifæri til að kynna sína heima- skóla auk þess sem stofnanir kynni þjónustu sína. Guðný segir að æ fleiri erlendir stúdentar óski eftir að læra við HÍ og íslenskir nemendur nemi æ fleiri lönd. „Þessi stúdentaskipti verða æ ríkari þáttur og alþjóðadagurinn skiptir miklu máli í því sambandi enda kunna stúdentar vel að meta þennan kynningardag og við erum ánægð með viðtökurnar." Morgunblaðið/Kristinn Margir kynntu sér námsmöguleika og fleira viðkomandi námi á alþjóðadegi Háskóla Íslands í Háskólabíói. Mikill áhugi á alþjóðadegi EFTIRFARANDI athugasemd hefur borist frá Arnþóri Helgasyni framkvæmdastjóra Öryrkjabanda- lags Íslands: „Í Morgunblaðinu 24. janúar 2003 er frétt undir heitinu „tilnefn- ingar ekki borist frá fötluðum“ þar sem fjallað er um þann seinagang sem orðið hefur á framkvæmd til- lögu Kjartans Magnússonar, borg- arfulltrúa, um úrbætur í bílastæða- málum hreyfihamlaðra í Reykja- vík. Tillaga þessi var samþykkt í janúar 2002 eins og fram kemur í fréttinni. Tillaga Kjartans var lögð fram í samráði við Öryrkjabandalag Ís- lands og eitt af aðildarfélögum þess, Sjálfsbjörg, landsamband fatlaðra. Hins vegar barst Öryrkja- bandalaginu ekki ósk frá Reykja- víkurborg um tilnefningu í starfs- hóp um bílastæði fatlaðra fyrr en 23. þessa mánaðar. Bréf Reykjavíkurborgar var rit- að deginum áður eða 22. þessa mánaðar. Öryrkjabandalagið hefur þegar brugðist við og skipað fulltrúa í starfshópinn. Er það einlæg von bandalagsins að hópurinn taki hið fyrsta til starfa og skili raunhæfum tillögum til úrbóta. Þá er það einlæg von bandalags- ins að almenningur hætti að mis- nota þessi stæði og sýni hreyfi- hömluðu fólki þá virðingu að það fái notið réttar síns.“ Athugasemd frá Öryrkjabandalaginu SVIÐSTJÓRAR á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi gerðu almennt góð- an róm að úttekt landlæknisembætt- isins á stöðu sameiningar Ríkis- spítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur sem hófst fyrir tæpum þremur ár- um. Í úttektinni, sem byggðist á könnun meðal starfsfólks, kemur m.a. fram að 60% starfsmanna telja illa staðið að sameiningu sjúkrahús- anna og um helmingur starfsfólks telja sjúklinga útskrifaða of fljótt. Sigurður Guðmundsson landlækn- ir ræddi við sviðstjóra LSH á hádeg- isverðarfundi í gær og fékk þá að heyra viðbrögð þeirra við úttektinni. Sviðstjórar lýstu ánægju með að Landlæknisembættið hefði þor til að segja LSH til, í svolitlum umvönd- unartón, þótt þeir tækju niðurstöð- um úttektarinnar með fyrirvara m.a. vegna lágs svarhlutfalls (50%) og að hún hefði verið gerð á tímum umróts, þ.e. í miðju sameiningarferli. Hærra svarhlutfall Sigurður sagði um þá áleitnu spurningu hvort úttektin hefði verið gerð of snemma, að þörf hefði verið á að kanna ástand mála eins og það lá fyrir þá með það fyrir augum að breyta hugsanlega þeirri stefnu sem mörkuð hefði verið í starfsemi spít- alans. Hann sagðist þó hafa viljað sjá hærra svarhlutfall og kallaði eftir betri viðbrögðum í næstu könnun. Einn sviðstjórinn sagði það hafa komið á óvart að aðeins 10 sviðstjór- ar svöruðu spurningalistunum. Varpaði hann því því fram að e.t.v. hefði þeim þótt óþægilegt að svara af ótta við að svörin yrðu persónugrein- anleg. Þetta þyrfti að endurskoða í næstu úttekt. Sigurði fannst þetta góð ábending og kannaðist vel við ótta starfsfólks við að þekkjast á svörunum en sagði það ekki síður vera áhyggjuefni fyrir Landlæknis- embættið en LSH. Sagði hann að fyllsta trúnaðar hefði engu að síður verið gætt við meðferð upplýsing- anna, þrátt fyrir að ekki teldust þær viðkvæmar. Annar sviðstjóri sagði gríðarlega mikilvægt að láta gera svona könnun og jafnframt endurtaka hana til að fá samanburð við þær niðurstöður sem nú lægju fyrir. Þá vakti hann athygli á þeirri niðurstöðu, að sá hópur starfsfólks LSH, sem væri óánægð- astur með að koma lítið eða ekki að stefnu spítalans, væri samt hvað ánægðastur í starfi. Spurði hann hvort skilaboðin væru þá þau að halda fólki óupplýstu til að auka starfsánægju. Var því svarað á þá leið að svörin við spurningunni um starfsánægju væru vandtúlkuð og hefði heyrst að hún hefði valdið nokkrum misskilningi. Sviðstjórar almennt ánægðir með úttekt Landlæknis BANDARÍSKI kvikmyndaleikarinn Paul Newman hefur gefið Barna- spítala Hringsins fimm hjarta- og öndunarvaka að verðmæti 5,2 millj- ónir króna. Á síðustu árum hefur hann gefið sem nemur 42 milljónum til góðgerðarmála á Íslandi. Lang- stærstur hluti fjárins hefur runnið til veikra barna og þar af hafa 25 milljónir runnið til Barnaspítala Hringsins. Gjöfina afhenti Ursula Gwynne, vinkona Newmans, forsvars- mönnum sjúkrahússins í gær en hún hefur starfað með Newman frá því hann stofnsetti fyrirtækið Newman’s Own. Sjálfur átti New- man ekki heimangengt þar sem hann leikur á sviði þessa dagana. Auk þess að láta af hendi rakna há- ar fjárhæðir til veikra barna hefur hann sett á stofn sumarbúðir fyrir langveik börn og hefur á sjötta tug íslenskra barna þáð boð hans um að dvelja í sumarbúðum á Írlandi og víðar. Allur ágoði af sölu varanna frá Newmańs Own rennur til góð- gerðarmála. Gefur Barna- spítalanum 5,2 milljónir Morgunblaðið/Golli Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir Barnaspítalans (t.v.), Gillian Holt hjúkrun- arfræðingur, Ursula Gwynne, vinkona Pauls Newmans, Gunnlaugur Sig- fússon og Magnús Ólafsson yfirlæknar við afhendingu gjafarinnar. INNLENT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.