Morgunblaðið - 25.01.2003, Blaðsíða 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 49
Menn með kústa
(Men with Brooms)
Gamanmynd
Kanada 2002. Myndform VHS. (101
mín.) Öllum leyfð. Leikstjórn og handrit
Paul Gross. Aðalhlutverk Paul Gross,
Molly Parker, Leslie Nielsen.
JÆJA, hér með er örugglega búið
að gera bíómyndir um allar íþróttir,
fyrst búið er að gera mynd um kurl,
þ.e.a.s. „íþróttina“ þar sem menn
renna granítsteinum á ís og reyna að
koma þeim sem næst ákveðnum mið-
punkti. Og til þess að stjórna ferð
steinsins nota
menn kústa sem
þeir hamast á
framan við renn-
andi steininn – sem
skýrir titil myndar-
innar; Menn með
kústa. Og til að
glöggva ykkur enn
frekar á eðli þess-
arar myndar þá
skuluð þið bara ímynda ykkur Full
Monty, nema bara með kurli í staðin
fyrir stripp. Auðvitað er þetta þunn-
ur þrettándi líkt og flestar „íþrótta-
myndir“ og ekki hvarflar að mönn-
um að koma áhorfendum á óvart með
því að bregða út af þeirri formúlu
sem slíkum myndum ber að fylgja.
En samt, þrátt fyrir allar þessar
klisjur er eitthvað örlítið við þessa
mynd sem heldur manni allt til enda,
fram yfir lokakeppnina „æsilegu“. Á
köflum tekst manninum sem hér er
allt í öllu, Paul Gross, að laða fram
nokkuð skondnar aðstæður, með
góðri aðstoð þessa fína kanadíska
leikaraliðs. Þetta er í það minnsta
besta mynd Leslie Nielsen í lengri
tíma – sem segir nákvæmlega ekki
neitt.
Nei annars, það er ekki búið að
gera bíómyndir um allar íþróttir.
Handboltinn er eftir. Hvenær ætli
einhver íslenski kvikmyndagerðar-
maðurinn láti verða af því? Hún gæti
heitið „Strákarnir okkar“ eða „Menn
með harpix“. Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Sópað til
sigurs
HÓLMFRÍÐUR Sævarsdóttir í
9. bekk sigraði í Söngvakeppni
Óðals 2003 sem fór fram
mánudagskvöldið 20. janúar.
Hólmfríður lék á gítar og söng
lagið ,,Itchy Palms“ sem Hera
Hjartardóttir gerði vinsælt á síðasta
ári. Í öðru sæti urðu þær Edda Berg-
sveinsdóttir og Hafdís Ólafsdóttir og
í því þriðja Lilja Karen Jónsdóttir.
Alls voru flutt 16 atriði á söngva-
keppninni og voru flytjendur nem-
endur á unglinga-
stigi í Grunnskóla
Borgarness og
Varmalands-
skóla. Áhorf-
endur fylltu húsið
og fögnuðu kepp-
endum ákaft.
Vinningslagið
verður framlag
Óðals í Söngva-
keppni Samfés
sem haldin verð-
ur í Laugardalshöll laugardaginn
25. janúar og Hólmfríður fær það
tækifæri sem marga dreymir um, að
syngja fyrir framan þrjú þúsund
manns á stóra sviðinu og upplifa þá
stemmningu sem því fylgir.
Hólmfríður Sævarsdóttir
Með kláða
í lófum
Sigurvegari söngvakeppni Óðals söng lag með Heru
Borgarnesi. Morgunblaðið.
Laugavegi 83 s: 562 3244
[s
v
a
rt á
h
v
ítu
]
D J A S S • T Ó N L I S T A R F L Y T J A N D I Á R S I N S
Ý M I S T Ó N L I S T • H L J Ó M P L A T A Á R S I N S
M Y N D B A N D Á R S I N S
D J A S S • H L J Ó M P L A T A Á R S I N S
B J A R T A S T A V O N I N
Búdrýgindi
Jóel Pálsson • Septett
Óskar Guðjónsson og Skúl i Sverr isson
Eft i r þögn
Singapore Sling • Listen
www.edda.is