Morgunblaðið - 25.01.2003, Blaðsíða 36
MINNINGAR
36 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Sigurður JónKristmundsson
fæddist á Ólafsfirði
7. maí 1940. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akur-
eyri 20. jan. síðastlið-
inn. Foreldrar hans
eru Sigurlína Sigurð-
ardóttir, f. 15. jan.
1919, og Kristmund-
ur Stefánsson, f. 20.
jan. 1912, d. 22. nóv-
ember 1993. Systkini
Sigurðar eru: Hann-
es, f. 29. sept. 1945,
maki Sigurbjörg
Gísladóttir, Elley, f. 28 febrúar
1949, maki Sigurjón Kristjánsson
og Guðlaug, f. 6. jan. 1951, maki
Úlf H. Bergmann.
Sigurður kvæntist 22. apríl
1962 Birnu Sveinbjörnsdóttur, f.
29. sept. 1942. Þau
eiga fjögur börn,
þau eru: Vigdís, f. 2.
ágúst 1962, maki
Anton Harðarson,
þau eiga tvær dætur.
Sigurður, f. 17. júlí
1963, maki Sigríður
Jóhannsdóttir, þau
eiga fjóra syni.
Kristmundur, f. 19.
ágúst 1965, maki
Árný Hólm Stefáns-
dóttir þau eiga fjög-
ur börn. Sylvía, f. 12.
maí 1978, maki
Sindri S. Stefánsson,
þau eiga einn son.
Mestan hluta ævi sinnar stund-
aði Sigurður sjómennsku.
Útför Sigurðar verður gerð frá
Dalvíkurkirkju í dag og og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Hann Siggi Nonni bróðir okkar er
látinn. Föstudaginn 13. des. barst
okkur sú dapra fregn að hann væri al-
varlega veikur og við skildum fljótt
að við fengjum ekki að hafa hann
mikið lengur hjá okkur.
Jólin nálguðust en allt var öðruvísi,
hvar var spenningurinn og gleðin?
Það var helst þegar við höfðum
hringt til hans og rætt saman að við
fengum smávon, það var alltaf hann
sem hressti okkur við, þetta skyldi
hann komast yfir eins og allt annað,
hann skyldi borða út krabbann um
jólin en ekki krabbinn hann. En
blessaður kallinn, eins og við kölluð-
um hann svo oft, varð að láta undan.
Við systkinin ákváðum að fara öll
norður til hans og eiga góðar stundir
saman. 9. jan. mættumst við í
Reykjavík til að keyra norður, Siggi
Nonni hlakkaði mikið til og var með
matseðilinn á hreinu, hann hafði
ákveðið að það skyldi vera gamaldags
og gott, siginn fiskur og selspik,
skötu skyldum við líka fá og hangi-
kjöt. Allt þetta hafði hann útvegað
þegar við komum norður, en hann,
blessaðan karlinn, vantaði, hann var
fluttur á sjúkrahús sama dag. Sköt-
una gaf hann okkur leyfi til að borða
en allt annað urðum við að geyma þar
til hann kæmi heim og væri með okk-
ur. Allt fór á annan veg, við sáum dag
frá degi hvað stundin nálgaðist fljótt.
Siggi Nonni sýndi aldrei að hann
væri bitur eða að hann vissi að hverju
dró. Öll fjölskyldan safnaðist saman
hjá honum og var þar frá morgni til
kvölds, en hann passaði alltaf að
Birna færi heim að hvíla sig, hann
vissi að hún væri búin að ganga í
gegnum veikindin með honum í mörg
ár og væri orðin langþreytt, og oft
sagði hann: „Mikið er ég heppinn
með börnin mín og alla fjölskylduna.“
Við systurnar vorum með honum 8
síðustu sólarhringana á sjúkrahúsinu
og verðum við að segja að það var
sterk upplifun, mikil gleði og mikil
sorg, við hlógum og grétum mikið
saman nótt og dag, þegar hann hafði
krafta kom hann með hvert gullkorn-
ið á eftir öðru sem við eigum eftir að
ylja okkur við í framtíðinni.
Snyrtimennska og heiðarleiki var
ofarlega í huga hans. Þegar við vor-
um að raka hann og greiða honum
sagðist hann vera búinn að passa
þessa greiðu í 9 ár og það var alveg
rétt, hann hafði fengið greiðuna eftir
pabba þegar hann lést og varðveitt
hana alla tíð, ákveðinn í að skila henni
aftur og við trúum því að þeir feðgar
skiptist á að nota hana núna.
Dánardagur hans var afmælisdag-
ur pabba og eins og börnin hans
sögðu hefur varla nokkur fengið
stærri og betri afmælisgjöf en afi.
Elsku Siggi Nonni, við systkinin
þökkum þér fyrir allt sem þú hefur
verið okkur í gegnum árin og biðjum
góðan guð að varðveita þig. Elsku
mamma, Birna, Vigga, Siggi, Krissi,
Sylvía, og fjölskyldur, guð veri með
ykkur og styrki í sorginni. Að lokum
viljum þakka öllu starfsfólki á lyfja-
deild Fjórðungssjúkrahúss Akureyr-
ar fyrir frábæra umönnun og blíðu
við ökkur öll. Þín systkini
Hannes, Elley og Guðlaug.
SIGURÐUR JÓN
KRISTMUNDSSON
✝ Margrét Sæ-mundsdóttir
fæddist í Reykjavík
9. júní 1914. Hún
lést á Garðvangi í
Garði 16. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
Margrétar voru Sæ-
mundur Þorsteins-
son trésmiður, f. 30.
maí 1889 á Vatns-
skarðshólum í V-
Skaftafellshreppi, d.
5. nóvember 1923,
og Guðrún Marsibil
Jónsdóttir, f. 1.
mars 1893 á Eiði í
Garði, d. 13. maí 1949. Systir Mar-
grétar var Jóna Sæmundsdóttir,
f. 20. júlí 1916, d. í maí 1985, eig-
inmaður hennar var Sigurður
Jónsson bakarameistari sem einn-
maí 1941, búsettur í Garði, kvænt-
ur Jennýju Aðalsteinsdóttur. 6)
Geirdís, f. 16. júní 1942, búsett í
Garði, gift Guðlaugi Jóhannssyni.
7) Ólafur, f. 7. október 1943, d. 22.
október 1983. 8) Sigurjón, f. 20.
september 1944, búsettur í Njarð-
vík, kvæntur Ágústu Guðmunds-
dóttur 9) Sigurgeir, f. 20. mars
1946, búsettur í Garði með Hrönn
Bergsdóttur. 10) Torfhildur Mar-
grét, f. 15. janúar 1948, býr á
sambýli í Garðabæ. 11) Jón Gunn-
ar, f. 29. júní 1949, búsettur í
Garði, kvæntur Hrönn Edvins-
dóttur. 12) Rafn, f. 29. september
1950, búsettur í Miðhúsum í
Garði, kvæntur Auði Guðmunds-
dóttur. 13) Svandís, f. 29. septem-
ber 1951, búsett á Blönduósi, gift
Braga Árnasyni. 14) Magnús f. 12.
nóvember 1952, búsettur í Garði,
kvæntur Jósefínu Arinbjarnar-
dóttur. Barnabörnin og barna-
barnabörnin eru nú 83 talsins.
Margrét verður jarðsungin frá
Útskálakirkju í Garði í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
ig er látinn.
Hinn 20. október
1935 giftist Margrét
Torfa Sigurjónssyni
bónda frá Kringlu í
Grímsnesi, f. 14. mars
1906, d. 13. febrúar
1996. Margrét og
Torfi eignuðust 14
börn, og eitt af þeim
er látið. Þau eru: 1)
Guðrún, f. 6. maí
1936, búsett í Reykja-
vík, gift Andrési Má
Vilhjálmssyni. 2) Gísl-
ína, f. 8. júní 1937, bú-
sett í Garði, gift
Ágústi F. Friðgeirssyni. 3) Þór-
unn, f. 19. september 1938, búsett
í Keflavík, gift Elíasi Nikolaisyni.
4) Sæmundur, f. 4. janúar 1940,
búsettur í Garði. 5) Þorsteinn, f. 3.
Í dag kveð ég kæra tengdamóður
mína hinstu kveðju. Magga, eins og
hún var alltaf kölluð var alltaf
traust, góð, hlý og róleg kona og
aldrei sá maður hana skipta skapi.
Magga var mikill fagurkeri, hafði
mjög gaman af því að vera alltaf vel
til höfð og fín, með fínt hárið og
perlufestina sína, eða nælur og
eyrnalokka, hún puntaði sig svo
lengi sem hún gat, hún var mikil
listakona í sér, labbaði oft fjöruna
við Miðhús og tíndi þar skeljar,
kuðunga og steina og bjó til heilu
listaverkin úr þessu, einnig tíndi
hún þara og bjó til myndir úr þurrk-
uðum þara. Á seinni árum fór hún
að teikna heilu landslagsmyndirnar
sem hún litaði.
Magga og Torfi í Miðhúsum hófu
sinn búskap þar árið 1940 og voru
þar með eitt stærsta kúabú á Suð-
urnesjum. Þegar þau komu í Mið-
hús voru þau með fjögur börn, en á
næstum hverju ári hækkaði sú tala
því börnin urðu 14 talsins á 16 ár-
um, þau hjónin voru mjög samstillt í
uppeldi og umönnun á þessum stóra
barnahópi, og alltaf var nóg pláss í
þeirra faðmi, fyrir barnabörnin
þegar þau komu í heimsókn, þau
fengu nóg af athygli og umönnun.
Magga hafði mikið yndi af blóm-
um og þegar börnin voru flest farin
að heiman og hún fór að geta sinnt
sínum áhugamálum meira, var
útbúinn lítill blómagarður fyrir
hana sem hún sinnti af alúð á meðan
heilsan leyfði, en garðurinn var fal-
legur og snyrtilegur hjá henni, og
margar blómategundir. Magga
hafði líka gaman af útsaumi og eru
til margar myndir og púðar eftir
hana sem hún hefur saumað. Einnig
hafði hún gaman af því að mála á
dúka, svuntur, vöggusett og fleira
og fleira og allt voru þetta mjög fal-
legir og vel gerðir hlutir. Alltaf á
jóladag ár hvert komu börn,
tengdabörn og barnabörn Möggu
og Torfa í heimsókn í Miðhús í
súkkulaði og kökur, en þegar hóp-
urinn var orðinn svo stór að ekki
komust allir fyrir í Miðhúsum fór
fjölskyldan að leigja sal í Garðinum
til að halda áfram gömlum siðum og
venjum og hittast um jól, byrjað var
á Sæborg sem var alveg fínasta
húsnæði fyrir 95–100 manns en
fljótlega sprengdum við það utan af
okkur og þurftum samkomuhúsið í
Garðinum og höfum mætt þar á
jólaball í sjö ár.
Hinn 11. janúar 1996 fór Magga á
dvalarheimilið Garðvang, en þá var
Torfi kominn á Sjúkrahúsið í Kefla-
vík, þar sem hann lést svo hinn 13.
febrúar 1996. Á Garðvangi leið
Möggu mjög vel og talaði hún oft um
það hvað allir væru góðir við sig þar.
Þar gat hún líka verið í föndrinu og
málað, saumað og búið til alls konar
hluti sem hún hafði svo gaman af.
Þarna var hún líka í bingói, boccia
og fleiru skemmtilegu. En á síðast-
liðnu ári fór heilsunni að hraka hjá
henni og hún gat ekki lengur sinnt
þessum áhugamálum sínum. Á
Garðvangi naut Magga góðrar
umönnunar og vil ég fyrir hönd fjöl-
skyldunnar þakka öllu starfsfólki
Garðvangs mjög vel fyrir allt sem
fyrir hana var gert.
Ég vil þakka Möggu minni inni-
lega fyrir samfylgdina og elskuleg-
heit í minn garð. Fjölskyldunni allri
votta ég mína innilegustu samúð.
Guð blessi minningu Margrétar
Sæmundsdóttur.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ágústa Guðmundsdóttir.
Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna
og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð.
Þú vaktir yfir velferð barna þinna,
þú vildir rækta þeirra ættarjörð.
Frá æsku varstu gædd þeim góða anda,
sem gefur þjóðum ást til sinna landa,
og eykur þeirra afl og trú,
en það er eðli mjúkra móðurhanda
að miðla gjöfum eins og þú.
Ég flyt þér, móðir, þakkir
þúsundfaldar,
og þjóðin öll má heyra kvæðið mitt.
Er Íslands bestu mæður verða taldar,
þá mun þar hljóma fagurt nafnið þitt.
Blessuð sé öll þín barátta og vinna,
blessað sé hús þitt, garður feðra minna,
sem geymir lengi gömul spor.
Haf hjartans þakkir, blessun barna
þinna,
og bráðum kemur eilíft vor.
(Davíð Stef.)
Jenný.
Í dag kveðjum við þig, elsku
amma mín, og langar mig að minn-
ast þín í fáeinum orðum.
Þær voru margar samverustund-
irnar sem við áttum saman í Mið-
húsum og nú síðari árin á Garðvangi
eftir að afi féll frá. Já, mikið var það
sem við spjölluðum saman, en oft
sátum við saman langt fram á nótt
og ræddum um hin ýmsu mál sem
oftar en ekki voru á andlegu nót-
unum. Já, amma, þú gafst mér svo
ótal margt, með þinni einlægu hlýju,
kærleika og ást sem þú áttir enda-
laust af. Það var alveg sama hvað
gekk á, alltaf varst þú jafn róleg og
yfirveguð og það var einhvern veg-
inn svo að manni gat ekki annað en
liðið vel í návist þinni svo góð var þín
nærvera.
Fyrstu ár ævi minnar þá er ég bjó
hjá ykkur afa ásamt mömmu og
Gísla bróður áttu eftir að móta mig
fyrir lífstíð. Öll sú hlýja og sá kær-
leikur sem þið gáfuð okkur, sögurn-
ar sem þið sögðuð og hið daglega
amstur hafði sín áhrif á mann. Það
voru sannkölluð forréttindi að fá að
alast upp á heimili ykkar afa og mun
ég búa að því alla ævi og þakka ykk-
ur fyrir það.
Nú kveð ég þig, mín elskulega
amma, í hinsta sinn, en ótæmandi
minningar um þig og afa geymi ég í
hjarta mínu um ókomna tíð.
Megi ljósið leiða þig á áfangastað,
þar sem ástvinir bíða með sitt opið
faðmlag.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyirr allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Minning um þig mun lifa að eilífu.
Þín,
Una Marsibil.
MARGRÉT
SÆMUNDSDÓTTIR
Fleiri minningargreinar um
Margréti Sæmundsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HILDUR ÁRNASON,
frá Vestur-Sámsstöðum í Fljótshlíð,
til heimilis á Kirkjuhvoli,
Hvolsvelli,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi
fimmtudaginn 23. janúar.
Unnur Sigurðardóttir, Alfred Rohloff,
Valborg Sigurðardóttir,
Sara H. Sigurðardóttir, Gunnar Ólafsson,
Árni Þ. Sigurðsson, Aagot Emilsdóttir,
Þórunn B. Sigurðardóttir, Árni M. Emilsson,
Hrafnhildur I. Sigurðardóttir, Óskar Magnússon,
Þórdís A. Sigurðardóttir, Gunnar B. Dungal,
barnabörn og barnabarnabörn.
Alúðarþakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar og ömmu,
MARÍU GUÐBJARGAR JÓNSDÓTTUR,
Garðvangi,
Garði,
áður til heimilis á
Suðurgötu 14,
Keflavík.
Guð blessi ykkur öll.
Jón Hensley,
Sóley Sigursveinsdóttir,
Jóhann Ósland Jósefsson,
Guðlaugur Smári Jósefsson,
Bergsteinn Ingi Jósefsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
RÚRIK HARALDSSON
leikari,
Skólabraut 5,
Seltjarnarnesi,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti að
kvöldi fimmtudagsins 23. janúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Björn Rúriksson,
Haraldur Steinn Rúriksson,
Ragnhildur Rúriksdóttir.