Morgunblaðið - 25.01.2003, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SVO gæti farið að Peter Gentzel,
annar markvörður sænska lands-
liðsins í handknattleik, leiki ekki
meira með á HM í handknattleik,
a.m.k. líst honum þannig á stöð-
una í dag. Gentzel er meiddur á
baki og gat ekkert tekið þátt í
leiknum við Brasilíu á fimmtudag-
inn og útséð þykir um að hann
verði með á móti Alsír í dag.
Læknir sænska landsliðsins, Fred-
rik Nyquist, segir bakmeiðsli
Gentzels vera erfið viðureignar,
vera kunni að hann jafni sig á
stuttum tíma en alveg eins geti
farið svo að hann leiki ekki meira
með á HM.
Það yrði gríðarlegt áfall fyrir
Svía ef Gentzel yrði ekki meira
með því ekki er möguleiki á að
kalla inn annan markvörð í hans
stað.
Bengt Johansson hefur þegar
notað sextán leikmenn í mótinu,
en hann skráði sextánda og síð-
asta manninn, Kim Andersson, til
leiks gegn Brasilíu í fyrrakvöld.
Verði raunin sú að Gentzel leiki
ekki meira með á HM verða Svíar
að setja allt sitt traust á Tomas
Svensson, en á undanförnum mót-
um hafa þeir félagar skipt leikj-
unum á milli sín. Svensson er eng-
inn aukvisi því hann hefur að
margra mati verið besti mark-
vörður heims undanfarin ár.
ÁTÖK brutust út á milli blaða-
manna og leikmanna frá Sádi-Arab-
íu, eftir að lið þeirra tapaði fyrir
Ungverjalandi, 36:25, á HM í Portú-
gal í fyrrakvöld. Upphafið var að
Turki Bedhi, leikmaður Sádi-Arab-
íu, sneri sér að landa sínum, blaða-
manni, í fréttamannamiðstöðinni og
hellti yfir hann vökva úr dós.
BEDHI virtist vera óhress með
eitthvað sem blaðamaðurinn hafði
skrifað um sádi-arabíska liðið.
Blaðamaðurinn brást hinn versti við
og upphófust slagsmál þar sem fleiri
leikmenn komu við sögu. Að lokum
þurfti að kalla til lögreglu til að stilla
til friðar en Bedhi þurfti á aðhlynn-
ingu lækna að halda eftir átökin.
Blaðamaðurinn kvaðst ekki ætla að
kæra árásina.
MEIRI gleði var í herbúðum
Egypta eftir sigurinn á Slóvenum í
fyrrakvöld. Þar stökk fréttamaður
frá egypska sjónvarpinu inn í miðjan
hóp leikmanna þar sem þeir fögnuðu
sigri. Dansaði hann og söng með
löndum sínum og gleymdi því alveg
að hann átti að taka viðtöl í leikslok.
Eftir nokkra stund kallaði hann á
myndatökumann sinn og sagði hon-
um að taka þátt í sigurdansinum og
lét myndatökumaðurinn ekki segja
sér það tvísvar.
DANSKA landsliðið í handknatt-
leik fór í heimsókn í skóverksmiðju í
nágrenni Sao Joao da Madeira í gær
og slakaði þar á í góðu yfirlæti áður
en að það mætir Egyptum í dag.
EFTIR að hafa tapað fyrir Þjóð-
verjum í Viseu í fyrradag þá stökk
grænlenska landsliðið upp í rútu og
fór til Sao Joao da Madeira og fylgd-
ist með viðureign Dana og Alsírbúa.
Vart þarf að taka fram að græn-
lensku leikmennirnir voru á bandi
danska landsliðsins í leiknum og
hvatti það áfram með hrópum.
MOGENS Jeppesen fyrrverandi
landsliðs markvörður Dana segir að
án Kaspers Hvidts, markvarðar
danska landsliðsins, hefðu Danir leg-
ið fyrir Alsír í fyrrakvöld.
MARTIN Boquist, landsliðsmaður
Svía í handknattleik, er að öllum lík-
indum á leið til þýska liðsins HSV
Hamburg. Boquist hefur verið besti
leikmaður sænsku úrvalsdeildarinn-
ar síðustu tvö ár. Samningur hans
við Redbergslid rennur út í vor. Fyr-
ir hjá Hamburg eru tveir sænskir
landsliðsmenn, þeir Tomas Svens-
son og Jonas Ernelind.
ÞÁ má telja nær fullvíst að Red-
bergslid missi annan leikmann úr
liði sínu því Martin Frändesjö geng-
ur væntanlega til liðs við Nordhorn í
sumar, en þá tekur Ola Lindgren,
fyrirliði sænska landsliðsins, við
þjálfun Nordhorn og hættir um leið
með sænska landsliðinu.
SÆNSKA landsliðið í handknatt-
leik er óðum að ná sér á strik eftir
magakveisu sem gerði vart við sig í
herbúðum þess í byrjun vikunnar.
Snör handtök læknis liðsins, þegar
hann setti nokkra menn í einangrun
þegar kveisan kom upp, þykir hafa
bjargað því sem bjargað varð.
AÐEINS einn leikmanna Dana er
lítillega meiddur, Torsten Laen.
Aðrir eru við hestaheilsu. „Þetta er
meðal annars sá munur sem er á liði
okkar í dag og fyrir ári á EM í Sví-
þjóð. Þá voru margir leikmenn mínir
að glíma við meiðsli,“ segir Torben
Winther, landsliðsþjálfari Dana.
KIM Andersson, Svíinn ungi sem
lék Íslendinga grátt á lokamínútun-
um í vináttuleik þjóðanna fyrir HM,
er mjög eftirsóttur. Alfreð Gíslason
hjá Magdeburg vill fá hann, sem og
kollegar hans hjá Kiel og Nordhorn.
STÉPHANE Stoecklin, örvhenta
skyttan sem lék stórt hlutverk í
heimsmeistaraliði Frakka á Íslandi
1995, er á heimleið eftir að hafa leikið
í Japan. Stoecklin, sem er 34 ára,
stefnir á að komast í franska lands-
liðið fyrir Ólympíuleikana og lið í
Þýskalandi og á Spáni hafa falast
eftir honum.
FÓLK
ÍSLENSKA landsliðið mæt-
ir Katar í dag í HM – í fyrstu
viðureign þjóðanna í hand-
knattleik.
Þar sem það eru ekki allir
sem vita hvað Katar er, þá er
það að segja að landið er á Ar-
abíuskaga – tangi út frá Sádi-
Arabíu, sem liggur út í Persa-
flóa. Handan flóans er Íran, en
í botni hans Kúveit og Írak.
Katar, sem taka nú í fyrsta
skipti þátt í heimsmeist-
arakeppni, ætla að sækja um
að halda HM 2007.
Samkvæmt tölum frá al-
þjóða handknattleiks-
sambandinu, IHF, eru níu
handknattleiksfélög í Katar
og iðkendur eru 2.010.
Ahmed Al-Saad er at-
kvæðamesti leikmaður Katar í
heimsmeistarakeppninni til
þessa. Hann skoraði 13 mörk
gegn Ástralíu í fyrradag og er
fimmti markahæsti leikmaður
keppninnar með 24 mörk.
Katar við
Persaflóa
RAKEL Ögmundsdóttir, knatt-
spyrnukona, er hætt hjá bandaríska
atvinnuliðinu Philadelphia Charge.
Hún hefur verið þar í tvö ár, spilaði
mikið með því tímabilið 2001 en
missti alveg af síðasta tímabili eftir
að hún sleit krossbönd í hné rétt áð-
ur en það hófst.
Jörundur Áki Sveinsson, lands-
liðsþjálfari, sagði við Morgunblaðið
að hann hefði haft samband við
þjálfara Charge til að kanna hvort
Rakel gæti leikið með landsliðinu
gegn Bandaríkjunum 16. febrúar.
„Hann sagði mér að hún væri ekki
lengur á samningi hjá félaginu og
hún virðist ekki vera að leika knatt-
spyrnu um þessar mundir. Hún
verður því tæplega með lands-
liðinu á næstunni,“ sagði
Jörundur Áki.
Rakel er 26 ára og hefur
skorað 7 mörk í 10 lands-
leikjum fyrir Ísland. Hún
lék í hálft þriðja ár með
Breiðabliki áður en hún
gerðist leikmaður með
Charge og skoraði þá 33
mörk í 26 leikjum í úrvals-
deildinni.
Rakel hætt
hjá Charge
Rakel
Ögmundsdóttir
ÚTSENDARAR þýskra 1. deild-
arfélaga eru fjölmennir í Portúgal,
tilbúnir að klófesta bestu leikmenn-
ina sem geta verið á lausu. Þrír leik-
menn utan Evrópu eru ofarlega á
óskalistum margra, argentínska
stórskyttan Eric Gull og skytturnar
frá Túnis, þeir Sobhi Sioud og Ouiss-
em Bousnina. Þeir Gull og Sioud
leika báðir í frönsku 1. deildinni.
Henning Fritz, markvörður Kiel
og þýska landsliðsins, segir að Sioud
sé skotharðasti leikmaður heims um
þessar mundir.
Þýsk lið
fylgjast
með Gull
Argentínumenn tóku fyrst þátt íheimsmeistarakeppninni árið
1997, í Japan. Þeir töpuðu öllum sín-
um leikjum, stærst fyrir Svíum,
36:17, en öðrum leikjum með 4–10
marka mun og enduðu í 22. sæti af
24 þjóðum. Tveimur árum síðar, í
Egyptalandi, fékk liðið sitt fyrsta
HM-stig með jafntefli gegn Mar-
okkó og endaði í 21. sæti. Í Frakk-
landi 2001 komu fyrstu sigrarnir,
gegn Kúveit og Brasilíu, auk jafn-
teflis við Alsír, og Argentína komst
þar með í 16 liða úrslit þar sem Sví-
ar voru of erfiðir andstæðingar og
sigruðu, 32:23. Niðurstaðan var 15.
sæti.
Nú er argentínska liðið í erfiðasta
riðlinum á HM, með heimsmeistur-
um Frakka og tveimur síðustu Ól-
ympíumeisturum, Rússum og
Króötum, auk Ungverja og Sádi-
Araba. Fæstir gerðu ráð fyrir því að
Argentína kæmist áfram úr riðla-
keppninni en nú eru góðar líkur á að
það takist.
Eftir sigur á Króötum, 30:29, og
jafntefli gegn Rússum, 26:26, í
tveimur fyrstu leikjunum voru arg-
entínsku strákarnir skotnir niður á
jörðina af frönsku heimsmeisturun-
um í fyrrakvöld, 35:18. Eftir sem áð-
ur er staða þeirra góð og við blasir
að sigur á Sádi-Aröbum dugi þeim
til að komast áfram. Það sem meira
er, þeir geta hæglega farið með eitt
eða tvö stig með sér, gegn Rússum
eða Króötum.
Frammistaðan kemur kannski
ekki öllum á óvart. Argentínska liðið
stóð sig mjög vel í Álfukeppninni í
Moskvu á síðasta ári og tapaði þar
naumlega fyrir Rússum, 25:27, og
Svíum, 20:21. Þar vann liðið sigra á
Alsírbúum og Sádi-Aröbum.
„Við ætluðum okkur að komast í
milliriðil, enda þótt við vissum að við
fengjum mjög erfiða, evrópska and-
stæðinga að þessu snni. Við erum á
réttri braut,“ segir Mauricio Torres,
þjálfari Argentínu.
Stórskyttan Eric Gull einn
sá besti í Frakklandi
Besti handboltamaður Argentínu
er Eric Gull, hávaxin og örvhent
stórskytta. Gull, sem er 29 ára og
2,04 metrar á hæð, hefur skorað 20
mörk í fyrstu þremur leikjunum og
er í 8.–10. sæti yfir markahæstu
leikmenn mótsins. Hann gerði 18
mörk í fyrstu tveimur en Frakkar
náðu að halda honum í aðeins 2
mörkum í fyrrakvöld. Þeir þekkja
hann manna best, Gull hefur nefni-
lega leikið undanfarin ár með Sel-
estat í frönsku 1. deildinni við góðan
orðstír. Hann er núna næstmarka-
hæsti leikmaður deildarinnar með
74 mörk í 12 leikjum og aðeins
franski landsliðsmaðurinn Daniel
Narcisse hjá Chambéry hefur gert
betur. Þá er hann í fjórða sæti yfir
þá sem eiga flestar stoðsendingar í
deildinni og samkvæmt útreikning-
um netmiðilsins Handzone er hann
fjórði besti leikmaðurinn í deildinni,
efstu deild sjálfra heimsmeistar-
anna.
Gull er einn af átta leikmönnum
argentínska liðsins sem leika er-
lendis. Af hinum spila fjórir í Bras-
ilíu, tveir í 2. deild á Spáni og einn í
1. deild í Portúgal.AP
Eric Gull, stjarna argentínska liðsins, reynir að brjótast í
gegnum vörn Frakka í leik þjóðanna í fyrrakvöld.
Argentína
á stöðugri
uppleið
ARGENTÍNA er tvímælalaust sú þjóð sem mest hefur komið á óvart
til þessa í heimsmeistarakeppninni í handknattleik sem nú stendur
sem hæst í Portúgal. Til þessa hafa það fyrst og fremst verið frækn-
ir knattspyrnukappar sem hafa borið hróður Argentínu hæst á al-
þjóðavettvangi í íþróttum og fáir hafa tekið handboltalandslið þjóð-
arinnar alvarlega. Nú er það að breytast.
Mikið áfall
fyrir Svía
ÍÞRÓTTIR