Morgunblaðið - 25.01.2003, Side 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 41
Sókn í atvinnumálum
Kjördæmaþing
reykvískra sjálfstæðismanna
laugardaginn 25. janúar á Hótel Sögu, Sunnusal
Opinn fundur um atvinnumál
Kl. 14.30 Formaður Varðar - Fulltrúaráðsins flytur inngangsorð.
Geir H. Haarde, fjármálaráðherra.
Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar.
Guðmundur Hallvarðsson, alþingismaður.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, námssálfræðingur
og verkefnisstjóri AUÐAR í krafti kvenna.
Guðmundur Ólafsson, lektor við HÍ.
Pallborðsumræður
Stjórnandi: Katrín Fjeldsted, alþingismaður.
Þingforseti: Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi.
Allir velkomnir.
Kjördæmisþinginu lýkur
með Þorrablóti í Valhöll í kvöld.
Heiðursgestur: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
alþingismaður.
Blótsstjóri: Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður.
Vörður – Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í ReykjavíkSJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Dagskrá
Kl. 13.15 Aðalfundur Varðar - Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
1. Skýrsla stjórnar, Margeir Pétursson formaður Fulltrúaráðsins.
2. Kjör stjórnar.
3. Tillaga kjörnefndar um skipan framboðslista í Reykjavíkurkjördæmunum.
4. Ávarp formanns Sjálfstæðisflokksins og
forsætisráðherra, Davíðs Oddssonar.
ÚTSALA
Enn meiri verðlækkun!
Yfirhafnir, peysur, skyrtur,
buxur...fyrir dömur og herra.
Úrval af stórum stærðum
XXL, XXXL — fyrir herra.
Laugavegi 1 • sími 561 7760
[s
v
a
rt á
h
v
ítu
]
Kringlunni & Hamraborg
568 4900 552 3636
15%
AUKA
AFSLÁTTUR
Nýjar
vörur
komnar
Á ÚTSÖLU
GUÐBRANDUR Örn Arnarson,
markaðsstjóri EJS hf., hefur af-
hent þeim Magnúsi Ólafssyni og
Gunnlaugi Sigfússyni, sviðstjórum
á Barnaspítala Hringsins, tvær
Dell-tölvur. Afhendingin fór fram
á Landspítala – háskólasjúkrahúsi
við Hringbraut.
Tölvurnar verða notaðar sem
samskiptatæki fyrir börn og for-
eldra til að auðvelda þeim dvölina
á Barnaspítala Hringsins. EJS hef-
ur um árabil styrkt aðila sem vinna
að góðgerðar- og líknarmálum
með ýmsum hætti. Nú hefur EJS
ákveðið að í stað margra smárra
styrkja, komi einn veglegur styrk-
ur. Í ár hefur verið ákveðið að
veita liðsinni aðstandendum lang-
veikra barna á barnaspítala
Hringsins, segir í fréttatilkynn-
ingu.
EJS gefur Barnaspítala
Hringsins tvær Dell-tölvur
NÝ námskeið á sviði stjórnunar og
rekstrar, fjármála, markaðsmála og
upplýsingatækni og rafrænna við-
skipta eru haldin hjá Stjórnenda-
skóla Háskólans í Reykjavík á vor-
önn. Leiðbeinendur á námskeiðum
eru úr röðum kennara við Háskólann
í Reykjavík auk þess sem leitað er til
sérfræðinga úr atvinnulífinu þegar
við á.
Meðal nýrra opinna námskeiða má
nefna Frumkvöðlasmiðjuna, sem
hest 18. febrúar og er byggð á nám-
skeiðinu FrumkvöðlaAUÐI. Komið
verðurinn á alla helstu þætti fyrir-
tækjareksturs. Setið í stjórnum fyr-
irtækja er nýtt 4 tíma námskeið sem
haldið verður í byrjun mars þar
verður fjallað um hlutverk stjórna
fyrirtækja og skyldur og ábyrgðir
stjórnarmanna.
Innra markaðsstarf og fyrirtækja-
menning er nýtt 8 tíma námskeið,
sem hefst 20. mars og er fyrir stjórn-
endur með ákvarðanavald í innri
uppbyggingu fyrirtækja. Einnig er
boðið upp á lengra námskeið, t.d.
Nýjan stjórnenda- og lífsstílll sem
er 40 tímar og hefst 11. febrúar. CIM
– sérsniðið markaðsfræðinám með
vinnu hefst þriðjudaginn 18. febrúar.
Þá hefur Stjórnendaskólinn und-
anfarið boðið sérsniðið nám fyrir
ákveðna faghópa þar sem lögð er
áhersla á að kynna lykilatriði fjár-
málafræða og stjórnunarfræða fyrir
þátttakendum. 5. febrúar hefst slíkt
rekstrarnám fyrir lögfræðinga og
lögmenn og mánuði síðar hefst
rekstrarnám fyrir skólastjóra. Alls
er um að ræða 72 tíma nám fyrir
hvorn hóp.
Frekari upplýsingar má nálgast á
síðunni www.stjornendaskoli.is
Nám á vorönn
Stjórnenda-
skóla HR
Rangt föðurnafn
Rangt var farið með föðurnafn
Styrmis Barkarsonar, eins aðstand-
enda vefsvæðisins djammari.is, í
frétt á blaðsíðu 21 í blaðinu í gær.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
LEIÐRÉTT
Mótmælastaða við bandaríska
sendiráðið Friðarsinnar munu
koma saman við bandaríska sendi-
ráðið við Laufásveg kl. 14 á laug-
ardögum til að leggja áherslu á kröf-
ur sínar um frið. Einnig hefur verið
ákveðið að efna að nýju til aðgerða
hinn 15. febrúar nk. en á þeim degi
munu friðarsinnar um allan heim
standa fyrir mótmælum, segir í
fréttatilkynningu. Nánari upplýs-
ingar má finna á vefsvæðunum:
www.fridur.is og www.aldeilis.net.
Upplýsinga- og baráttufundur um
virkjanamál á hálendi Íslands verð-
ur haldinn á efri hæð Grand Rokk í
dag, laugardaginn 25. janúar kl. 15–
17. Allir velkomnir. Ragnhildur
Gísladóttir, Jakob Magnússon og
Guðni Finnsson leika. Erindi halda,
Andri Snær Magnason rithöfundur
og Árni Finnsson, formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands.
Í DAG
Þorrahús Stangaveiðifélags
Reykjavíkur verður haldið föstu-
daginn 31. janúar kl. 20 á Háaleit-
isbraut 68. Stefán Jón Hafstein, rit-
stjóri Veiðimannsins, spjallar um
framtíð blaðsins, Kristín Helga
Gunnarsdóttir rithöfundur talar fyr-
ir minni veiðimanna og Samúel Örn
Erlingsson íþróttafréttamaður fyrir
minni veiðikvenna. Fræðslunefnd
SVFR kynnir vetrarstarf sitt. Boðið
verður upp á veitingar.
Á NÆSTUNNI
VG í Norðausturkjördæmi Þrír
efstu frambjóðendur Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs í
Norðausturkjördæmi, þau Stein-
grímur J. Sigfússon, Þuríður Back-
man og Hlynur Hallsson halda fund
á morgun, sunnudaginn 26. janúar,
kl. 15 á Kaffihúsinu Sogni á Dalvík
og í Glaumbæ á Ólafsfirði kl. 20.
Framboðslisti hreyfingarinnar í
Norðausturkjördæmi verður kynnt-
ur sem og þau málefni sem Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð setur á
oddinn í komandi kosningarbaráttu.
Allir velkomnir.
STJÓRNMÁL
♦ ♦ ♦
Í JÓLASÖFNUN Hjálparstarfs
kirkjunnar fyrir hreinu vatni í Afr-
íku söfnuðust 17,5 milljónir króna
sem duga fyrir 195 brunnum. Hver
þeirra sér um 1.000 manns fyrir
hreinu vatni í marga áratugi.
Þegar hefur verið hafist handa við
að ákvarða hvar brunnarnir verða
grafnir en Lútherska heimssam-
bandið sem Hjálparstarf kirkjunnar
er aðili að mun hafa milligöngu um
það eins og fyrr. Gerður er skrifleg-
ur samningur við þorpsbúa á hverj-
um stað en verkið getur tekið nokkra
mánuði eftir aðstæðum á hverjum
stað.
Jólasöfnuninni lýkur formlega 1.
febrúar en tekið er við framlögum á
reikning 1150 26 50886 í SPRON,
segir í frétt frá Hjálparstarfi kirkj-
unnar.
17,5 milljónir
í jólasöfnun