Morgunblaðið - 25.01.2003, Page 21
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 21
ÞÓRA Jenný Gunnarsdóttir lauk á
síðasta ári meistaranámi í hjúkrun
frá háskólanum í Minnesota. Henn-
ar sérsvið eru óhefðbundin lækn-
ingarform og er lokaverkefni henn-
ar byggt á viðtölum við gesti
Heilsustofnunarinnar í Hveragerði.
Þóra Jenný segir að það hafi ráðið
úrslitum um verkefnaval sitt að
Heilsustofnun bauð henni aðstöðu
til að vinna að verkefninu, ásamt
fæði og húsnæði. Það hafi svo ekki
spillt fyrir að hún fékk að kynnast
af eigin raun þeim meðferðum sem
gestum er boðið upp á.
Sumarið 2001 var Þóra Jenný
hér í Hveragerði í fimm vikur og
vann að verkefninu sínu. Tilgangur
þess var að öðlast skilning á því
hver reynsla gesta á HNLFÍ er af
að nota margar sérhæfðar með-
ferðir. Einnig að ljá þessum gestum
rödd svo reynsla þeirra megi heyr-
ast til að hægt sé að meta áhrif
þeirra meðferða. Þátttakendur
urðu að uppfylla ákveðin skilyrði,
þeir urðu að vera gestir á HNLFÍ í
fyrsta sinn og þeir urðu að fara í
fleiri en tvær meðferðir. Alls tóku
átta gestir þátt í verkefninu, sex
konur og tveir karlar. Tekin voru
tvö viðtöl við gestina, rétt eftir
komu og rétt fyrir brottför.
Upplifun gesta er skipt niður í
fjóra meginþætti þ.e. umhverfi,
tími, samskipti og líkami. Upplifun
umhverfisins var sterk hjá gest-
unum og þeir tjáðu sig allir um það.
Kyrrðin og rólegheitin ýttu undir
slökun. Nokkur sýnishorn af um-
mælum gesta fara hér á eftir:
„Mér líkar svo vel hér, ég get far-
ið í burtu frá mínu umhverfi. Það er
eitthvað í mínu umhverfi sem hefur
þessi áhrif á mig og gerir mig
svona ofvirka svo það sennilega
gerir mér gott að vera einhvers
staðar annarsstaðar en í Reykja-
vík …“
„Ég hefði ekki getað fundið betri
tíma fyrir sjálfa mig því heima er
maður alltaf upptekinn við að þrífa
eða eitthvað þú veist, maður gerir
ekki svona nema í einhverju fríi,
svo mér finnst þetta vera algjör lúx-
us, hvort mér finnst.“
„ … Heitu pottarnir, ég verð að
komast í þá líka þegar ég fer heim
því að mér finnst ég slaka á öllum
vöðvum og ég er líka að hugsa um
að fara í laugarnar … ég veit að ég
stend frammi fyrir langtíma verk-
efni og ég má ekki flýta mér.“
„En ég er ákveðin í að gefast
ekki upp og um leið og ég kem heim
þá ætla ég að halda áfram þessum
æfingum. Reyna að gefast ekki
upp.“
Stuðningur annarra
gesta mikilvægur
Þegar spurt var um upplifun í
samskiptum gesta koma aðallega
tvennt fram. Annars vegar um-
hyggja og leiðbeiningar starfsfólks,
sem leiddi til aukins trausts til fag-
fólksins og hins vegar stuðningur
annarra gesta, það að vera hluti af
einhverjum hópi.
„Þessir þjálfarar hér eru svo frá-
bærir að það er eins og þeir viti
hvað þú ert að hugsa þegar þeir eru
með þig í æfingum þetta er svo vel
skipulagt hérna … og að teygja á
öllum þessum vöðvum, ég vissi ekki
að ég hefði svona marga vöðva. Það
kom mér skemmtilega á óvart. En
það var eins og að í hverjum tíma
væri eitthvað nýtt að læra.“
„Nú í morgun var ég í viðtali hjá
bæði næringarfræðingi og lækni og
þau sýndu mér fram á leið til að
halda áfram því sem ég vil gera og
mun gera. Það er ekki eins og ég
skilji ekki að ég þurfi hjálp við það
sem ég er að gera, það er ljóst. Ég
bara vona að ég sé nógu sterk til að
gera það og leita eftir hjálp þegar
ég þarf hana. Ég á von á því að ég
verði það því ég finn hvernig ég hef
fengið aukinn líkamlegan styrk og
ég er að komast í betra form þó að
ég sé ennþá of þung.“
Líkamlega upplifunin skiptist
í fernt. Að kjósa að annast sjálf-
an sig, að finna jafnvægi í heild,
að hreyfa orku og sá ávinn-
ingur sem hlýst af mörgum
meðferðarformum.
„Ég hef reynt að hjálpa mér
sjálf því læknirinn minn hefur
ekki gefið mér neinar leiðbein-
ingar um hvað skal gera og
hann skaffaði mér bara töflur
en ég gat ekki sofið og ég var að
nudda mig sjálf. Ég varð að
gera eitthvað til að bjarga mér,
eitthvað annað en borða töflur.
Ég varð að finna einhverja
lausn og ég fór til læknisins og
spurði hann hvort ég mætti
ekki bara fara í Hveragerði og
hann sagði það skaltu gera. Svo
að ég fann í raun lausnina
sjálf.“
„Ég varð að játa að ég þurfti
hjálp ég gat ekki gert þetta án
hjálpar … og ég er stolt af mér
að hafa játað að þetta var of
mikið fyrir mig. Þegar ég hafði tek-
ið þessa ákvörðun um að koma
hingað þá breyttist þetta, því þá
vissi ég að ég hafði farið yfir ein-
hverja rauða línu. Eitthvað breytt-
ist. Þegar ég kom hingað hafði ég
farið yfir þessa línu. Það varð ein-
hver breyting og ég sagði við sjálfa
mig núna verð ég að gera eitthvað
og núna verð ég að breyta hugsun
minni. Ég veit að þessi vinna er ein-
hvers virði og skiptir öllu máli en
ég má ekki hætta. Ég gat al-
gjörlega fundið það þegar ég fór yf-
ir þessa línu.“
Betri líðan
Þóra Jenný segir að hver einasti
þátttakandi hafi talað um jákvæð
áhrif af meðferðunum og hversu
vel þeim hafi liðið af dvölinni á
Heilsustofnun. Ávinningurinn hafi
falist í betri líðan, auknum styrk,
auknu jafnvægi, léttari hreyfingum
og meiri sveigjanleika. Þóra Jenný
segir einnig að í síðara viðtalinu
hafi hún tekið eftir því hvað allir
litu vel út og voru með glampa í
augunum, sem hún varð ekki vör
við í fyrra skiptið sem hún hitti við-
mælendur sína. Hvað stendur svo
upp úr að mati Þóru, hún svarar því
til að verkefni sem þetta gefi hug-
mynd um hvað gestir Heilsustofn-
unar eru að upplifa þegar þeir
dvelja þar. Einnig gefur þetta
mynd af því hve áhrifaríkt það er
að bjóða upp á meðferð í anda Nátt-
úrulækninga eins og hér er gert.
Könnun framkvæmd á reynslu gesta Heilsustofnunar
í Hveragerði af óhefðbundnum meðferðum
Meðferð hafði jákvæð áhrif
Þóra Jenný Gunnarsdóttir (t.v.) afhend-
ir Önnu Pálsdóttur, upplýsingafulltrúa
HNLFÍ, meistaraverkefni.
Hveragerði
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
MENNTAMÁLARÁÐHERRA,
bæjarstjóri Árborgar og fulltrúar
þriggja héraðsnefnd undirrituðu í
gær samning um byggingu íþrótta-
húss fyrir Fjölbrautaskóla Suður-
lands á Selfossi. Aðilar að samningn-
um eru menntamálaráðuneyti og
fjármálaráðuneyti fyrir hönd ríkisins
en Sveitarfélagið Árborg og héraðs-
nefndir Árnessýslu, Rangárvalla-
sýslu og Vestur-Skaftafellssýslu fyr-
ir hönd sveitarfélaga á Suðurlandi.
Hið nýja íþróttahús er staðsett á
skólalóð Fjölbrautaskólans í næsta
nágrenni við íþróttavallasvæðið á
Selfossi. Í fyrirhugaðri byggingu er
gert ráð fyrir íþróttasal og búnings-
klefum og böðum. Einnig er gert ráð
fyrir að koma fyrir kennslustofum í
byggingunni en þær munu nýtast
skólanum sem undanfarin ár hefur
verið með mun fleiri nemendur en
skólahúsið var gert fyrir.
Íþróttastarfsemin á Selfossi hefur
lengi beðið eftir úrbótum á þessu
sviði og er því nýr íþróttasalur hreyf-
ingunni mjög kærkominn en mikil og
fjölbreytt íþróttastarfsemi er á Sel-
fossi og hefur verið um árabil en búið
við þröngan kost varðandi aðstöðu til
íþróttaiðkunar innanhúss sem utan í
fjölmörg ár. Hið nýja hús er skref til
betri tíma varðandi íþróttaaðstöðu á
Selfossi en húsið mun þjóna íþrótta-
hreyfingunni eftir að skólatíma lýk-
ur.
Samningur undir-
ritaður um bygg-
ingu íþróttahúss
Selfoss
Ljósmynd/Bjarni Harðarson
Samningurinn undirritaður, f.v.: Þorvaldur Guðmundsson, Tómas Ingi Ol-
rich, Einar Njálsson, Árni Þór Elíasson og Guðmundur Ingi Gunnlaugsson.
UNDANKEPPNI fyrir söngva-
keppni félagsmiðstöva landsins var
haldin hér í Hveragerði í byrjun vik-
unnar. Félagsmiðstöðin Skjálftaskjól
hefur nú verið opnuð aftur eftir gagn-
gerar breytingar og stækkun. Stóra
Samféskeppnin verður svo haldin í
dag, laugardag, í Laugardalshöllinni,
þar sem saman koma söngvarar frá
öllum félagsmiðstöðvum og reyna
með sér.
Alls voru fjögur atriði sem kepptu
um að komast í stóru keppnina.
Kynnar kvöldsins voru þau Ágúst
Leó Sveinsson og Sunna Björk Guð-
mundsdóttir, en þau eru í unglingar-
áði Skjálftaskjóls. Dómnefndin í ár
var skipuð þeim Bryndísi Valdimars-
dóttur kennara, Margréti Stefáns-
dóttur tónlistarkennara og Magna
Ásgeirssyni tónlistamanni, söngvara
hljómsveitarinnar Á móti sól.
Bikarinn og farseðil í Samfé-
skeppnina hlaut Birgitta Dröfn Sölva-
dóttir, en hún söng lagið Brúin yfir
boðaföllin. Þess má geta að Birgitta
vann einnig keppnina s.l. ár, þannig
að hún er ekki alveg ókunnug þessari
keppni. Forstöðumaður Skjálfta-
skjóls er Yngvi Karl Jónsson og með
honum starfar Sævar Þór Helgason.
Birgitta
vann aftur
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Magni Ásgeirsson afhendir Birgittu
Dröfn Sölvadóttur bikarinn.
Hveragerði