Morgunblaðið - 25.01.2003, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 25.01.2003, Qupperneq 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 37 ÞJÓNUSTA LÆKNAVAKTIR BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15. Upplýsingar í s. 563 1010. BRÁÐAMÓTTAKA fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná ekki til hans opin kl. 8–17 v.d. S. 543 2000 eða 543 1000 um skiptiborð. LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn- arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30 v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770. SJÚKRAHÚS REYKJAVÍKUR: Slysa- og bráðamóttaka í Fossvogi er opin allan sólarhringinn fyrir bráðveika og slasaða s. 543 1000 um skiptiborð / 543 2000 beinn sími. TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá- tíðir. Símsvari 575 0505. VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10– 16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369. LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin lækn- isþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17. Uppl. í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laeknalind.is APÓTEK LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8– 24, alla daga, einnig aðfangadag, jóladag, annan jóladag, gamlársdag og nýársdag. APÓTEKIÐ: LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8– 24. S. 533 2300. LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími 564 5600. BORGARAPÓTEK: Opið alla daga til kl. 24, virka daga kl. 9–24 og um helgar kl. 10–24. Sími 585 7700. Læknasími 585 7710 og 568 1250. Fax: 568 7232. Milli kl. 02 og 8 er lyfjaþjónusta á vegum læknavaktar. NEYÐARÞJÓNUSTA NEYÐARMÓTTAKA vegna nauðgunar er opin allan sólar- hringinn, s. 525 1710 eða 525 1000. EITRUNARUPPLÝSINGASTÖÐ er opin allan sólarhring- inn. S. 525 1111 eða 525 1000. ÁFALLAHJÁLP. Tekið er á móti beiðnum allan sólar- hringinn. S. 525 1710 eða 525 1000 um skiptiborð. BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf- rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493. HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep- urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum. TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar- og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að- standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr. Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer 800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að tala við. Svarað kl. 20–23. Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112 ✝ Steingrímur JónBirgisson hús- gagnasmíðameistari og tónskáld fæddist á Húsavík 14. október 1924. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 16. jan- úar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Að- albjörg Jónsdóttir, f. 10.12. 1903, d. 11.3. 1992, og Birgir Stein- grímsson, f. 7.11. 1900, d. 23.12. 1987. Steingrímur var elst- ur fjögurra systkina. Þau eru: Herdís, f. 15.7. 1926, maki Sigurður Hallmarsson, f. 24.11. 1929; Vigdís, f. 2.5. 1929, maki Þórður Hermannsson, f. 19.4. 1924, d. 8.9. 1985; og Aðal- björg, f. 4.11. 1942, maki Mikael Þórðarson, f. 25.7. 1938. Hinn 8. júní 1946 kvæntist Steingrímur Karitas Her- mannsdóttur frá Ögri í Ísafjarð- ardjúpi, f. 10.11. 1927, d. 5.8. 1994. Hún var dóttir Sal- óme Rannveigar Gunnarsdóttur, f. 24.4. 1895, d. 2.11. 1977, og Hermanns Hermannssonar, f. 17.5. 1893, d. 26.11. 1981. Steingrímur og Karitas eignuðust tvo syni: 1) Birgi, f. 31.10. 1945, maki Steinunn Áskels- dóttir, f. 27.7. 1948. Börn þeirra eru Steingrímur, f. 17.2. 1969, maki Sólborg Una Pálsdóttir, f. 21.4. 1971; Þórný, f. 25.9. 1973, sambýlismaður Ólafur Gunnars- son, f. 11.6. 1974; og Áskell Geir, f. 12.1. 1981. 2) Ásgeir Hermann, f. 4.10. 1957, maki Anna Guðný Ara- dóttir, f. 11.1. 1956. Dætur þeirra eru Auður Karitas, f. 10.8. 1979, og Arna Sigríður, f. 23.2. 1987. Útför Steingríms fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Mér er það í barnsminni þegar ég leiddi þennan mág minn fyrst augum sumarið 1945. Hann kom þá að kynnum heim á Svalbarð í Ögurvík með unnustu sinni, Karit- as, systur minni barnshafandi. Mér varð starsýnt á manninn og blátt áfram uppburðarlaus við hann, svo framandi fannst mér hann og ólíkur mínu fólki og því sem ég þekkti úr æsku minni. Hann var eins og af öðrum kyn- stofni, nettmenni sem hann var, en okkar fólk í stærra og luralegra lagi. Ég var þunneyrður í þá daga á tal foreldra minna. Morgunstund árla voru þau að ræða niðri í eld- húsi um tilvonandi tengdason, sem þá var hvorfinn í brott til síns heima á Húsavík ásamt Karitas. Salóme lýsti því yfir að pilturinn hennar Karitas væri lipurlegt nettmenni og geðslegur. Hermann rifjaði upp að Karitas hefði frá unga aldri verið einstaklega dug- leg við sjósóknina, fyrst við að beita og stokka upp, en síðan á sjónum á trillunni. Hermann hefir sjálfsagt ekki séð sjósóknara í fari Steingríms, en upp úr þeim hæfileikum lagði hann mest, enda átti hann fimm syni sem urðu fiskiskipstjórar. Hann áttaði sig alls ekki á því þá að bókvitið yrði í askana látið, eins og síðar kom á daginn. Sem ekki var n, enda möguleikar ungra manna fábreyttir til annarra verka en sjósóknar við Djúp vestur á þeim dögum. Hermanni föður mín- um var hlíft við að lifa þá tíma að stjórnvöld bönnuðu ungum mönn- um sjósókn, tækju auðlindina ránshendi og afhentu örfáum út- völdum að gjöf. Steingrímur stundaði íþróttir af lífi og sál á ungdómsárum sínum; frjálsar íþróttir þar sem stangar- stökk var hans eftirlæti; hann fór á skíðum og iðkaði skíðastökk sér- staklega; í handbolta var hann einnig liðtækur. Steingrímur var afar laghentur svo kalla mátti að allt léki í hönd- um hans. Hann var húsgagna- smíðameistari að iðn sem hann stundaði lengst af starfsævi sinn- ar. Þá er ótalinn sá þáttur í lífi Steingríms sem mestan hug hans átti en það var tónlistin. Afþreying hans og yndi var að setjast við pí- anóið og leika og semja lög. Það kom undirrituðum í opna skjöldu þegar á daginn kom að hann hefði verið mikilvirkur tónsmiður. Ás- geir sonur hans beitti sér fyrir út- gáfu á hljómdiski sem út kom á sjötíu og fimm ára afmælisdegi föður hans. Ennfremur útgáfu heftis með fjölmörgum lögum. Steingrímur og Karitas bjuggu allan sinn hjúskap á Húsavík þau tæp fimmtíu ár sem þeim auðn- uðust samvistir, en Karitas and- aðist 1994. Þau voru kannski ólíkrar gerðar, en afar samrýnd og máttu hvorugt af öðru sjá. Á heimili þeirra ríkti glaðværð, góðvild og greiðasemi við gesti og gangandi. Það var Steingrími lítt bærileg raun þegar Karitas gekk fyrir ætt- ernisstapann. Sjálfur var hann heilsuveill langar stundir allt frá miðjum aldri og þurfti þeim mun frekar á stoð og styttu að halda. Við Greta kveðjum þennan vin okkar og mág sem ljúflingsheitið á betur við en flesta menn aðra. Þegar hugsað er til Steingríms Birgissonar verður aftur hlýtt og bjart um bæinn. Sverrir Hermannsson. Elsku afi, Nú er gamli Gráni gríðarlega þreyttur. Ertu ekki alveg uppgefinn? En hvað þú ert sveittur. Löng og brött var brekkan, byltust hjól um steina. Þau eru erfið þessi fjöll, það fær Gráni að reyna. Kæri góði Gráni, gakktu inn í kofa. Hvíldu þreytta hrygginn þinn, hertu þig að sofa. Geturðu ekki Gráni, góða fyrir borgun borið litla busann þinn, á bakinu á morgun? (Höf. óþekktur.) Þetta fær mig alltaf til að brosa og hugsa til þín, ógleymanlegar eru stundirnar sem við sátum í stofunni heima í Hlyn og sungum þetta eins hátt og við gátum. Elsku afi, takk fyrir stundirnar um áramótin, í dag eru þær ómet- anlegar og sýnir manni að ekki er hægt að taka öllu sem sjálfsögðum hlut. Núna líður þér vel, búinn að hitta ömmu sem þú hefur saknað svo mikið og lengi. Nú eruð þið saman á einhverri grískri strönd að drekka Tía María. Þó að mér finnist sárt að þú skulir vera farinn, þá veit ég samt að þú varst alveg tilbúinn því að þú ræddir við mig á gamlársdag hvað þú værir heppinn að hafa fengið að sjá mikið af heiminum og þú sagðir mér enn einu sinni frá Grikklandsferðinni með glampa í augunum og fleiri góðum og skemmtilegum minningum. Það var líka á gamlársdag sem ég fékk að heyra þig spila í síðasta skiptið fyrir mig á píanóið og það er einnig ómetanleg minnig fyrir mig, en núna verð ég að láta geisladiskinn þinn duga. Elsku afi, takk fyrir allar ómet- anlegu stundirnar sem þið amma gáfuð mér. Ég ætla að enda þessa kveðju á setningu sem þið amma notuðuð alltaf þegar við vorum að fara eitt- hvað í burtu. „Afi, guð veri með þér.“ Þórný. Það er sumar, áliðið morguns og þurrkur og hiti í loftinu af sólinni sem hellir sér inn um glugga. Neð- an af smíðaverkstæði heyrist slökkt á vél og svo heyrist fótatak- ið í smiðnum sem gengur sporlétt- ur upp stigann, tekur stundum tvö þrep í skrefi og gengur að gömlu píanói. Hann er í grænleitri köfl- óttri skyrtu og ljósbrúnum vinnu- buxum sem standa honum hvergi á beini og hysjar þær snöggt upp með báðum höndum um leið og hann sest. Hann strýkur með hendinni eftir efri brún píanósins, kannski að ástæðulausu, en mér sem fylgist með finnst eins og hann hafi látið píanóið vita af komu sinni. Hann strýkur líka með hendinni yfir þunnt dökkleitt hárið og leggur svo hendurnar á nótna- borðið, engar píanóleikarahendur heldur traustar kjúkumiklar smiðshendur, sem hann beygir svolítið um hnúana við handarbak- ið. Þumalfingurnir eru stórir og sveigjast út og framhandleggirnir sinaberir enda maðurinn grannur og holdskarpur. Svo byrjar hann að spila og hverfist inn í tónlistina, vinnan að baki, kannski er laug- ardagur. Hann spilar gömul söng- lög og raular þá stundum lágt með brot af texta, jazz, búgívúgí, lög eftir sjálfan sig, sálma eftir því sem fellur í hann. Hljómurinn í pí- anóinu er gamall, örlítið brostinn gjallandi fylgir nótunum fylltur músikalskri tilfinningu. Það lifnar yfir spilamanninum ef hann er beðinn um eitthvað ákveðið, gleðst yfir áheyrendum og fagnar óskum þeirra og sambandinu sem kemst á milli hljóðfæraleikara og hlust- anda, því tónlistin er bara hluti af því sem best er í lífinu, að gleðjast með öðrum. Og fullur af einlægri innlifun smíðar smiðurinn brú úr tónum og músík til okkar sem hlustum, með sínum smiðshöndum og færir okkur verk sín af feimn- islegri hógværð. Þessi minning um móðurbróður minn Steingrím Birgisson er frá sjöunda áratug síðustu aldar þegar ég dvaldist sumar eftir sumar hjá honum og konu hans Karítas Her- mannsdóttur, sem reyndar var föðursystir mín. Þar eignaðist ég aðra foreldra til viðbótar við mína eigin sem er líklega það hollasta sem fyrir börn getur komið, fyrir utan það að missa þá eins og segir í bók. Ég ætla ekki að leggja til aðrar minningar um Steina en þessa, þessi er sú sem lifir í huga mér, þessi sterka taug til tónlistar og mennskunnar sem fylgir samveru og gleði. Hann mun hvíla í friði. Hermann Þórðarson. „Lífið er að gefa, ekki að þiggja.“ Þetta sagði vitur maður fyrir dálítið mörgum árum og enn eru þessi spakmæli í fullu gildi. Þau eiga svo vel við hann Steina í Hlyn en Steini verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju í dag. Mig langar að senda Birgi, Geira og fjölskyldum þeirra sam- úðarkveðjur um leið og ég þakka Steina fyrir lögin hans yndislegu. Þá eru geymdar í minningunni all- ar stundirnar sem Steini sat við pí- anóið heima á Hólnum og spilaði eftir sínu músíkalska eyra og við, sem vildum, sungum með af hjart- ans list. Ég þakka líka fyrir kaffibolla- umræður við hringborðið í Hlyn. Þar fékk hugmyndaflugið að leika lausum hala og ekkert var ómögu- legt. Takk fyrir samveruna, Steini minn, og þar sem einn dagur er þúsund ár fyrir Guði og þúsund ár dagur ei meir, þá sjáumst við fljót- lega. Bið að heilsa Kaju og Ástu mömmu. Hólmfríður Ben. STEINGRÍMUR JÓN BIRGISSON SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Ráðstefna með Ashley Schmier- er ásamt Robert Maasbach í Veginum helgina 24. til 26. janú- ar. Kennsla kl. 10 til 16 um efnið „Leiðtogi í söfnuðinum...hvar ert þú? Ashley Schmiere og Ro- bert Maasbach kenna. Opið öll- um. Á morgun sunnudag. Samkoma kl. 16:30. Ashley Schmierer predikar. Lofgjörð, fyrirbænir, krakkakirkja, ung- barnakirkja og samfélag. Allir hjartanlega velkomnir. www.fi.is Dagsferð 26. janúar. Fyrsti hluti raðgöngunnar Fornar hafnir á Suðvesturlandi. Gengið verður um Álftanes undir leiðsögn heimamanna og farar- stjóra frá FÍ. Farið í Bessastaða- kirkju og endað á Sjóminjasafni Íslands í Hafnarfirði. Verð kr. 1.700 fyrir félagsmenn, en kr. 2.200 fyrir aðra. Lagt verður af stað kl. 11.00 og komið til baka kl. 16.00. Fararstjóri er Leifur Þor- steinsson. María Sveinsdóttir frá Jöfra á Álftanesi leiðir hópinn um svæðið. Lagt verður af stað frá BSÍ og komið við í Mörkinni 6. Á döfinni: Þorrablót FÍ 8.—9. febrúar. 26. janúar. Strandgangan (S- 2) Þorlákshöfn - Selvogur Gangan hefst í Þorlákshöfn og lýkur í Selvogi. Vegalengd er 16- 17 km og reikna má með að gangan taki einar 5 klukkustund- ir. Brottför frá BSÍ kl. 10.30. Verð kr. 1700/1900. Fararstjóri: Gunn- ar H. Hjálmarsson. 26. janúar. Skíðaferð. Farið verður t.d. að Gjábakka eða á Mosfellsheiði en snjóalög koma til með að ráða ferðinni. Brottför frá BSÍ kl. 10.30. Verð 1900/2300 kr. Fararstjóri: Ingibjörg Eiríks- dóttir. Hægt er að skoða myndir úr skíðaferðinni á Mosfellsheiði frá síðustu helgi á þessari slóð http://www.finna.is/utivist/ myndasogur/ 28. janúar. Deildarfundur hjá jeppadeild Útivistar. Jeppa- deildin verður með deildarfund hjá Arctic Trucks á Nýbýlavegi 2 þriðjudaginn 28. janúar og hefst fundurinn kl. 20.00. Dagskrá: Jeppadeild Útivistar kynnir jeppaferðir úr ferðaáætl- un 2003 og Jepparæktina. Arctic Trucks kynnir nýjan Land Crui- ser og einnig niðurstöður próf- ana á AT 405 38" dekkjum. Léttar veitingar í boði. Hvetjum alla til að mæta. Þorrablót Útivistar í Vestmannaeyjum 31. janúar — 2. febrúar. Hið árlega þorrablót Útivistar verður að þessu sinni haldið í Vestmannaeyjum. Á þessu ári eru 30 ár liðin frá gosinu í Eyjum og verður ferðin helguð því og að hætti Útivistar verður gengið um Eyjarnar í fylgd kunnugra. Brottför frá BSÍ kl. 17.15. Verð 7.900/9.100 kr. Fararstjóri: Fríða Hjálmars- dóttir. Örfá sæti laus Sjá nánari lýsingu á slóðinni www.utivist.is RAÐAUGLÝSINGAR ÝMISLEGT Til sölu Fasteignir Akureyrarbæjar auglýsa til sölu og óska eftir tilboðum í fasteignirn- ar Hafnarstræti 81a og b, á Akureyri. Fasteignin er talin vera um 1400 m². Um er að ræða núver- andi húsnæði Tónlistarskólans á Akureyri. Eignirnar eru seldar í því ástandi sem þær eru. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboðum ber að skila eigi síðar en 6. febrúar 2003 kl. 16:00 á skrifstofu Fasteigna Akureyr- arbæjar. Fasteignir Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 4. hæð, sími 460 1000, 460 1128.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.