Morgunblaðið - 27.01.2003, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 27.01.2003, Qupperneq 20
MINNINGAR 20 MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Björn Þórleifs-son fæddist á Ísa- firði 2. desember 1947. Hann lést 17. janúar síðastliðinn. Faðir hans var Þór- leifur Bjarnason, námsstjóri og rithöf- undur, f. 1908, d. 1981. Móðir hans var Sigríður Friðriks- dóttir Hjartar, kenn- ari, f. 1914, d. 1972. Foreldrar Björns fluttust til Akraness árið 1955. Systkini Björns eru: 1) Þóra Þórleifsdóttir Mothes, bókasafns- fræðingur, f. 1938, maki Christian Mothes, læknir, f. 1933. Þau eru búsett í Noregi, 2) Hörður Þór- leifsson, tannlæknir, f. 1942, maki Svanfríður Larsen, bókmennta- Björn kvæntist 1978 Júlíönu Þórhildi Lárusdóttur, kennara, f. 1947. Dætur þeirra eru 1) Þórhild- ur, f. 1983 og 2) Sigríður Ásta, f. 1986. Fóstursonur Björns er Lárus Arnór Guðmundsson, f. 1976. Björn varð stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri 1967, tók kennarapróf 1968 og lauk prófi í félagsráðgjöf frá Norske Kvinners Nasjonalraads Sosialskole 1974. Björn vann við Félagsmálastofnun Akureyrar 1974–1976 og var fé- lagsmálastjóri Akureyrarbæjar 1975–1976. Hann var deildarstjóri Heilbrigðis- og félagsmáladeildar Rauða kross Íslands 1976–1980, skólastjóri Húsabakkaskóla í Svarfaðardal 1980–1990 og odd- viti þar 1986–1990. Hann var deildarstjóri Öldrunardeildar Ak- ureyrarbæjar 1990–1997, deildar- stjóri Búsetu- og öldrunardeildar Akureyrarbæjar 1997–1998 og síðan skólastjóri Brekkuskóla á Akureyri frá 1998. Útför Björns fer fram frá Akur- eyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. fræðingur, f. 1942. 3) Friðrik Guðni Þór- leifsson, kennari og skáld, f. 1944, d. 1992, maki Sigríður Sigurð- ardóttir, kennari, f. 1945, d. 1996. Björn kvæntist árið 1969 Sigrúnu Stefáns- dóttur, fjölmiðlafræð- ingi, f. 1947. Synir þeirra eru: 1) Þórleif- ur Stefán Björnsson, forstöðumaður Rann- sókna- og alþjóðasviðs Háskólans á Akureyri, f. 1970, maki Rósa Mjöll Heimisdóttir, leikskólakenn- ari, f. 1972. Þau eiga þrjú börn: Aron Örn, Kötlu Þöll og Þóreyju Eddu, 2) Héðinn Björnsson, sál- fræðingur, f. 1974. Björn og Sig- rún skildu. Nú veit ég að sumarið sefur í sál hvers einasta manns. Eitt einasta augnablik getur brætt ísinn frá brjósti hans, svo fjötrar af huganum hrökkva sem hismi sé feykt á bál, uns sérhver sorg öðlast vængi og sérhver gleði fær mál. (Tómas Guðm.) Okkur langar með nokkrum orð- um að minnast Björns tengdaföður okkar. Hann var einstakur maður sem á sérstakan stað í hjarta okkar. Eins og allir vita sem þekktu hann var hann hagyrðingur mikill og hafði gaman af að segja skemmtilegar sög- ur af sér og sínum, þær voru ófáar stundirnar í Holtagötunni þar sem velst var um af hlátri og spilað fram eftir nóttu. Við eigum minningar sem við mun- um geyma í hjarta okkar og munu þær ylja okkur um ókomna framtíð. Við kveðjum hann með sorg í hjarta Rósa Mjöll og Þóra Sif. Davíð Stefánsson skáld segir í einu ljóða sinna: „Það syrtir að, er sumir kveðja.“ Þessi orð komu upp í huga minn við frétt um andlát Björns Þórleifssonar. Ég þurfti tíma til þess að átta mig því ekki var langt um liðið síðan fjölskyldur okkar áttu síðast samverustund. Fyrst man ég eftir Birni á menntaskólaárum, en kynnt- ist honum þegar hann stofnaði fjöl- skyldu með Júllu frænku minni. Fjöl- skyldan flutti til Akureyrar árið 1990 og hafa samskiptin verið náin allar götur síðan. Björn var einstakur fjölskyldu- maður, traustur og góður. Björn mátti ekki vamm sitt vita. Hann gerði miklar kröfur til sjálfs sín og mannorðið var fjöregg hans. Við frá- fall Björns sýnist allt auðara, allt snauðara en áður var. Björn var eng- inn miðlungsmaður, í honum voru margir eðlisþættir en hið innra var máttugt og auðugt og hlýtt. Því er Björns nú sárlega saknað af þeim sem þekktu hann. Ég og fjölskylda mín eigum margar góðar minningar um samvistir við Björn og Júllu og börn þeirra á fallegu heimili þeirra, í mannfagnaði og á förnum vegi. Þess- ar björtu minningar ylja okkur nú og fyrir þær erum við þakklát. Elsku Júlla, við sendum þér og börnunum og fjölskyldu þinni innilegar samúð- arkveðjur. Friður sé með minningu Björns Þórleifssonar. Jón Kr. Sólnes og fjölskylda. Það verður stundum brátt um hina bestu menn. Björn Þórleifsson var í hópi bestu manna og nú er hann fall- inn frá í blóma lífsins. Björn var góð- ur drengur og góður vinur, hagaði lífi sínu þannig að hann gat sinnt fjöl- skyldu sinni og eigin yndi og þroska, ort vísur, sungið, glatt vini sína og lært. Til viðbótar þessu stjórnaði hann síðustu ár Brekkuskóla, stórum grunnskóla á Brekkunni á Akureyri. Við hjónin höfum þekkt Björn í meira en tuttugu ár, umgengist hann og átt við hann náin samskipti sem aldrei bar skugga á. Við kynntumst fyrst í gegnum börnin. Þegar Júlíana og Björn hófu búskap átti hún soninn Lárus Arnór með Guðmundi. Björn lagði syni sína tvo, Þórleif og Héðin, í búið. Þau eignuðust síðan tvær dæt- ur, Þórhildi og Sigríði Ástu. Þegar við hjónin tókum saman áttum við hvort sinn soninn og höfum eignast tvö börn saman og er annað jafnaldri Þórhildar, hitt Sigríðar Ástu. Þessi upptalning er umgjörðin ut- an um það sem tengdi fjölskyldurnar tvær sérstökum vináttuböndum. Björn leyndi ekki væntumþykju sinni til Lárusar Arnórs og þegar ljóst var að litli maðurinn var að eign- ast stjúpmóður þá þótti vissara að kynnast þeirri konu og skoða hana vel ef hún ætti að koma að uppeldi Lárusar. Okkur var því boðið á heim- ili Júllu og Björns, það var ekki ástæða til að hafa áhyggjur af þeirri heimsókn frekar en öðrum sem á eft- ir fóru. Árin liðu fljótt og börnin urðu fleiri, stækkuðu, urðu fullorðin. Börnin í þessum tveimur fjölskyld- um ólust upp við það að gott sam- band, vinskapur og væntumþykja er gott veganesti út í lífið. Við fylgd- umst með í sameiningu og fögnuðum saman áföngum barna okkar í lífinu. Björn með sinni góðu konu átti stór- an þátt í því að tengslin urðu nánari og börnunum var ekki alltaf ljóst hver var skyldur hverjum. Hálf- systkini eða ekkert skyld var ekki að- alatriðið, strákarnir okkar kynna sig sem bræður og hafa tengst órjúfandi vináttuböndum. Björn var afar viðfelldinn maður í viðkynningu, hann var glaður og nærgætinn í samskiptum og hafði lag á að draga fram spaugsamari hliðar tilverunnar. Hann hafði gaman af því hvernig tengslin á milli fjölskyldna okkar þróuðust og sagði oft frá því og fékk þá einstök kímnigáfa hans að njóta sín. Björn var veislustjóri á árshátíð Háskólans á Akureyri fyrir nokkrum árum þar sem Guðmundur er deildarforseti kennaradeildar. Björn byrjaði veislustjórnina á því að lýsa tengslum sínum við stofnunina, kona hans vann á bókasafninu og saman ættu hann og deildarforseti kennaradeildar dreng. Þegar Björn var yfirmaður öldrunarmála hjá Ak- ureyrarbæ sagði hann okkur að hann hefði stundum haft það að skemmti- atriði fyrir gamla fólkið að lýsa fjöl- skyldu sinni enda tengslin á milli barnanna flókin til lýsingar. Við kveðjum ljúfan mann sem var barnavinur og sýndi það í verki. Það liggur eitthvað gott að baki þegar unglingar tala um hvað skólastjórinn sé frábær, þau syrgja nú og sakna manns sem þau virtu og báru traust til. Björn og hún Júlla hans voru vak- andi yfir velferð barna sinna og aldr- ei sáum við Björn ljóma eins og þeg- ar hann talaði um strákana sína og stelpurnar, hvað þau væru að gera og hve vel þeim vegnaði. Hann var svo stoltur af þeim öllum og mátti líka al- veg vera það. Að leiðarlokum ber að þakka fyrir vináttuna og góðvildina, gleðina og gamanið og ekki síst sam- eiginlegt uppeldi á syninum sem gekk svo ótrúlega vel. Við geymum minningu um góðan dreng gæddan miklum mannkostum. Við hjónin og börn okkar vottum Júllu og börnun- um og öllum öðrum ástvinum Björns okkar dýpstu hluttekningu í sorg- inni. Elísabet Hjörleifsdóttir, Guðmundur Heiðar Frímannsson. Í slyngum höndum hrekst vor peðasveit til hægri og vinstri, í blindni, af reit á reit. En sá, er fleygði þér á þetta borð, Hann þekkir taflið allt – Hann veit, HANN veit. (Omar Khayyam: úr Rubaiyat.) Já, víst getur líf okkar líkst skák á taflborði almættisins. Örlögin skapa okkur samastað og samferðamenn sem oft tengjast vináttuböndum sem aldrei bresta, þótt aðstæður okkar og hagir breytist. Við kynntumst Birni Þórleifssyni þegar hann flutti með fjölskyldu sinni að Húsabakka í Svarfaðardal þar sem hann var skólastjóri á ár- unum 1980–1990. Skólinn okkar var lítill og heim- ilislegur, nemendur efnilegt fólk, foreldrar jákvæðir gagnvart skóla- starfinu og starfsmannahópurinn samhentur og góður; – við vorum öll í sama liði. Björn var ljúfur stjórnandi og góð- ur samstarfsmaður. Oft sátum við á litlu, þröngu kennarastofunni okkar og ræddum málin. Við þurftum ekki marga formlega kennarafundi né að samræma ólíkar skoðanir. Oftast gekk allt snurðulaust fyrir sig með hinni einföldu skólareglu Björns: „Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.“ Hann var viss um að ef okkur tækist að fara eftir þessari litlu reglu úr smiðju Thorbjörns Egner þá gæt- um við leyst úr mörgum vanda. Þannig gekk lífið á Húsabakka vel fyrir sig með gagnkvæmri virðingu starfsfólks og nemenda. Þrátt fyrir góðar sögur og hnyttn- ar vísur sem Björn skemmti okkur með var hann í eðli sínu dulur og hann var ekki yfirmaður sem hrósaði starfsfólki sínu eða bar tilfinningar sínar á torg. Við fundum hins vegar alltaf fyrir trausti hans og hin þögla samheldni okkar þurfti ekki orða við. Utan skólans áttum við saman ógleymanlegar stundir. Alltaf kom- um við að opnum dyrum hjá þeim Júllu og Birni og þar var oft glatt á hjalla. Það fylgdi skólastjórastarfi á Húsabakka að vera formaður bóka- safnsnefndar Svarfdælahrepps. Það var Birni ljúf skylda og við hin vorum afar fús til aðstoðar við að plasta og skrá nýjar bækur fyrir hver jól. Að vinnu lokinni hófst alltaf hinn ómiss- andi bókaleikur sem Björn kenndi okkur. Það er honum að þakka að við kunnum urmul bókaheita ýmissa bóka sem við höfum aldrei lesið en titlar þeirra hafa hentað vel til teikn- inga í leiknum okkar góða. Mikill keppnisandi ríkti í stríði milli liða í bókaleiknum og við lásum Bókatíð- indin frá A til Ö fyrir jólin, til þess að undirbúa okkur fyrir hina árlegu keppni. Enn er líf í bókaleiknum og alltaf munum við minnast Björns þegar við skellum hurðum og hlaup- um um ganga til að færa liðinu okkar sigur. Elsku Júlla, Sigríður Ásta, Þór- hildur, Lárus, Héðinn, Þórleifur og fjölskylda. Eins og bræðurnir Ljóns- hjarta skulum við minnast þess að einhvers staðar handan við stjörn- urnar er Nangijala. Þar er ennþá tími varðelda og ævintýra og það er þangað sem menn fara þegar þeir deyja. Þar er enginn raunverulegur tími til og þar líður öllum vel. Þegar við lítum upp til stjarnanna á vetrarkvöldi minnumst við þess að handan þeirra er Nangijala. Ég horfi í gegnum gluggann á grafhljóðri vetraróttu, og leit eina litla stjörnu þar lengst úti í blárri nóttu. Hún skein með svo blíðum bjarma, sem bros frá liðnum árum. Hún titraði gegnum gluggann, sem geisli í sorgartárum. (Magnús Ásgeirsson.) Að leiðarlokum kveðjum við Björn með þakklæti fyrir samstarf og vin- áttu. Fyrir hönd samstarfsfólks við Húsabakkaskóla á árunum 1980– 1990. Helga Hauksdóttir, Björn Daníelsson. Öllum að óvörum er hann Björn okkar dáinn. Skyndilega erum við svipt okkar besta vini. Við leitum þá huggunar í góðum minningum sem fjölskyldur okkar eiga frá samveru- stundum í áraraðir með Birni, Júllu og börnunum þeirra. Júllu höfum við þekkt frá unga aldri og Björn kom til sögunnar við hennar hlið fyrir réttum aldarfjórð- ungi. Áður en hendi væri veifað var hann orðinn einn af okkar bestu vin- um, við vorum bara einhvern veginn á sömu bylgjulengd í svo mörgu. Þegar þau settust svo að fyrir norðan hófust þessar reglulegu og ógleym- anlegu ferðir á Húsabakka og síðan á Holtagötuna. Við fórum gjarnan á Húsabakka þegar heimavistin var á lausu um páskana, sautjándi júní var líka gott tilefni eða þá að við fórum bara þegar vinskapurinn dró okkur saman. Þetta voru sannkallaðar fjölskyldu- ferðir sem allir tóku þátt í af lífi og sál. Gleðin skein úr hverju andliti, börnum með túttur sem fullorðnum. Það var sprellað, spilað og sungið og haldnar veglegar kvöldvökur þar sem allir tóku þátt í gríninu. Þá skipulögðu þau hjónin og börnin hinn skemmtilega bókaleik, sem Björn hafði lært í sínu ungdæmi. Eftir slík- an gjörning voru allir örmagna af æs- ingi og hlátri og hurðir gengnar af stöfunum. Bak við húsið var svo sundlaugin hans Björns, gamalt bað- ker með útsýni yfir dalinn, friðland fuglanna og út á haf. Björn var sérstaklega traustur maður, ósérhlífinn og duglegur og því var ekki að undra að hann var af sveitungum sínum kosinn oddviti. Við vorum í einni af þessum ferðum þegar kosið var í dalnum og við mun- um aldrei gleyma því þegar niður- staðan fór að spyrjast út og fólkið fór að drífa að til að samfagna sínum manni. Einu sinni sem oftar sátum við að trivíalspili og fengum þá flugu í höf- uðið að hefja reglulegan sparnað fyr- ir elliafdrepi í suðrænum löndum. Björn lagði til nafnið „Sparði“ og sá um sjóðinn. Hann skírði líka drauma- höllina: „Trivíal Sunset“. Sparað var í einhver ár en svo fór að við ákváðum að spreða bara „Sparðan- um“ og leggjast í Bretlandsferðir. Þetta voru afspyrnu skemmtilegar ferðir, við tróðumst öll í einn sæmi- lega stóran bíl með allt hafurtaskið þannig að varla mátti bæta við einni tusku. Það er nefnilega ekkert gam- an nema allir séu saman. Einum var fórnað aftur í með töskunum og ein- um undir stýrið og þannig fórum við vítt og breitt um England, Skotland og Wales. Björn var einstaklega vel liðinn mannkostamaður. Hann hafði marg- víslega hæfileika, upp úr honum runnu ljóðin, hann fékk frumlegar hugmyndir og var hrókur alls fagn- aðar og svo eldaði hann matinn. Við vorum heppin að kynnast þessum skemmtilega manni og bundumst honum einstaklega sterkum vináttu- böndum. Við og börnin okkar eigum um hann góðar minningar, sem munu geymast ævina á enda. Elsku Júlla, Sigga Ásta, Þórhild- ur, Lárus, Héðinn, Tolli og aðrir ást- vinir. Við biðjum góðan guð að styrkja ykkur. Jóhanna, Ragnar, Sigríður María, Sigurður Steingrímur og fjölskyldur. Sjálfum sagðist Birni Þórleifssyni svo frá að aldrei hefði flögrað að sér að hann ætti sæti á skáldabekk. Hann var þó mjög hagorður maður og landskunnur fyrir vísur sínar sem hann orti að því er virtist án fyrir- hafnar til að gleðja fólk sem hefur gaman af vísum. Stundum orti hann afmælisbragi handa eldri og yngri og oft var hann beðinn að lífga upp á mannfagnað eða veislu með vel völd- um brag um söguleg efni úr samtíð- inni. Sagt var um Óðin, höfund ís- lenskrar skáldmenntar, að hann mælti allt „hendingum“ og var því trúað að fullbúnar ljóðlínur frá hans munni bærust öðrum til eyrna með langt um meiri hraða og snilli en óbundið mál af vörum ræðuskör- unga. Svo handgenginn var Björn þess- ari fornu Óðinsmennt þjóðar sinnar að oft mælti hann sjálfur allt í full- búnum hendingum án þess að velta vöngum eða hika. Í veislum lét hann þessar hendingar stundum fljúga milli rétta. Hefði mátt við því búast að við slíkar aðstæður yrði einhver fljóta- skrift á kveðskapnum. Því var þó ekki að heilsa heldur hver hlutur á sínum stað, innihald yfirvegað, skemmtan kurteis og hnyttin. Hér brást Birni ekki bogalistin og má furðu gegna með jafnhraðkvæðan og eftirsóttan ljóðahönnuð. Virðing fyrir „stuðlanna þrískiptu grein“ var runnin honum í merg og bein; lagaákvæði þeirrar greinar voru í vitund hans helgur dómur. Þó að vísnagerð Björns Þórleifs- sonar væri tómstundagaman ætlað vinum og vandamönnum er þar engu að síður að finna veigamikil einkenni margbreytilegs ævistarfs. Hann var kennari, skólastjóri og yfirmaður fjölmennra stofnana, svo að eitthvað sé nefnt. Vinir hans, samstarfsfólk, nemendur og aðrir skjólstæðingar eru á einu máli um að í daglegu starfi og umgengni hafi hann í óeiginlegri merkingu skipað stuðlum, höfuðstöf- um og rímatkvæðum í rétta röð þannig að hvergi skeikaði um hrynj- andi eða áherslu. Ber hér að sama brunni og um ljóðlínurnar: störf sín innti Björn af hendi með árvekni og af samvisku- semi. Bragreglur sem dagsins önn samdi handa okkur mannanna börn- um í árdaga skildi hann og virti; á starfsferli hans er því ekki að finna lýti eða hnökra sem sækja í kjölfarið hjá þeim sem skortir skilning á því hvaða atkvæði þoli áherslu eða hvort bil milli ljóðstafa eigi að vera í lengra eða skemmra lagi. Við brottför Björns Þórleifssonar héðan úr heimi kveðjum við örlátan höfðingja með sárum söknuði og þökkum samfylgdina. Jafnframt vottum við eiginkonu hans, Júlíönu Lárusdóttur, börnum þeirra öllum, barnabörnum og öðrum vandamönn- um einlæga samúð. Margrét Björgvinsdóttir og Haraldur Bessason. Lítið vitum við um rök lífs og dauða. Og oft gengur okkur illa að skilja hvernig fólk er saman sett. Skiljum kannski síst þá sem við þykj- umst þekkja best. Svarfdælingar hrósuðu happi þeg- ar Björn og Júlíana höfðu sýnt sig og sannað á Húsabakka. Ég vann þar með þeim tvo vetur. Fljótt varð mik- ill og góður vinskapur milli heimila okkar. Skólinn var frábærlega góður vinnustaður þessi ár, starfsandinn léttur og örvandi. Og mikið var hleg- ið, maður lifandi! Skólastjórahjónin voru samhent og höfðu gaman af starfinu. Björn var vel til forystu fall- inn og sérlega farsæll skólastjóri. Hann var lipur og jákvæður í um- BJÖRN ÞÓRLEIFSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.