Morgunblaðið - 27.01.2003, Qupperneq 31
MYNDDISKAVÆÐINGIN er
himnasending fyrir unnendur góðra
tónleika. Myndböndin náðu aldrei,
ekki frekar en segulbandssnældurn-
ar, að uppfylla gæðakröfur hörðustu
tónlistarunnenda, en það gerir
mynddiskurinn, bæði hvað varðar
hljóð- og myndgæði. Hefur það haft í
för með sér sterk viðbrögð hjá fram-
leiðendum sem keppast nú við að búa
til útgáfu á mynddiski, oftast nær af
miklum myndarskap, sína helstu
fjársjóði.
EMI gaf nýverið út gamlan
gullmola, sem margir hafa ugg-
laust beðið óþreyjufullir eftir að
geta séð og eignast endurnýj-
aðan og með bestu boðlegu
mynd- og hljómgæðum. Er
hér um að ræða sögulega
tónleika sem Deep Purple
hélt í The Royal Albert Hall
í Lundúnum ásamt Kon-
unglegu fílharmoníusveit-
inni. Tónleikarnir, sem fram fóru
miðvikudaginn 24. september 1969,
eru sögufrægir fyrir margra hluta
sakir. Þetta var t.a.m. í eitt allra
fyrsta sinn þar sem rokk- og sinfón-
íusveit rugluðu saman reitum, nokk-
uð sem fleiri metnaðarfullar rokk-
sveitir áttu eftir að leika eftir á næstu
Sígilt
sinfón-
íurokk
árum, og tónleikarnir voru og vitn-
isburður um nýja tónlistarbylgju
sem óx ásmegin um þetta leyti og
kennd hefur verið við framsækni eða
„progg“. Svo má náttúrlega ekki
gleyma því að á tónleikunum var af-
hjúpað spánnýtt 600 vatta hljóðkerfi
frá Marshall, sem þótti hin magnað-
asta tækniundur.
Deep Purple var rétt
ríflega ársgömul þegar
tónleikarnir voru haldnir
og hafði nýverið gengið í
gegnum róttækar breyt-
ingar með inngöngu söngv-
arans Ians Gillans og bassa-
leikarans Rogers Glovers.
Um þetta leyti má segja að
hljómborðsleikarinn Jon Lord
hafi verið hljómsveitarstjóri, frem-
ur en Ritchie Blackmore gítarleikari
og helsti rokkhundur bandsins, sem
öðru fremur skýrir þetta sinfóníska
daður sveitarinnar. Á umræddum
tónleikum voru flutt fjögur frumsam-
in verk, öll eftir Lord, en Gillan samdi
textann við eitt
þeirra „Second
Movement: Ant-
ante“.
Þótt unnendur
sveitarinnar hafi
fallið í stafi yfir
tónleikunum og
hampað þeim sem
miklu þrekvirki,
voru gagnrýnend-
ur langt frá því að
vera sannfærðir.
Margir gerðu þeir
reyndar gys að
þessu uppátæki
Deep Purple og
sögðu það með afbrigðum uppskrúf-
að og tilgerðarlegt. Lord svaraði
þessum gagnrýnisröddum í kápu-
texta plötunnar með upptökum frá
tónleikum sem út kom árið síðar og
hét Concerto for Group And Orch-
estra. Þar segir Lord menn almennt
hafa tekið þessa tilraun alltof hátíð-
lega, hún hafi þvert á móti verið til
gamans gerð og tilgangurinn með
tónleikunum hafi fyrst og fremst ver-
ið sá að hafa gaman af hlutunum, að
það telur hann viðstadda tónleika-
gesti upp til hópa hafa gert.
Mynddiskurinn nýi inniheldur
þessa umdeildu tónleika, sem færðir
hafa verið yfir á stafrænt mynd- og
hljóðform, með 5.1 surround-steríói.
Á disknum rifjar Lord þar að auki
upp tónleikana og ljóstrar upp ýms-
um þeim tengt sem aldrei hefur kom-
ið fram áður.
Mynddiskurinn Concerto for Group
and Orchestra með Deep Purple og
Konunglegu fílharmóníunni er kom-
inn út.
Alvörugefnir ungir rokkarar ásamt stjórnanda
Fílharmóníunnar, Marcolm Arnold.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 31
www.regnboginn. is
Nýr og betri
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i.12 ára
Sýnd kl. 6.30, 8.30 og 10.30. B.i.14 ára
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
LEON OG LE FEMME NIKITA
Hverfisgötu 551 9000
Sýnd kl., 6.30, 8.30 og 10.30. B.i.16 ára
Hrikalega flottur
spennutryllir
með
rapparanum Ja
Rule og
Steven Seagal
Sýnd kl. 6.30, 8.30 og 10.30.
Suma vini losnar þú ekki við...hvort
sem þér líkar betur eða verr
Frábær gamanmynd um tvær vinkonur sem
hittast aftur eftir 20 ár.Með
Óskarsverðlaunaleikkonunum Goldie Hawn
og Susan Sarandon ásamt hinum
frábæra Óskarsverðlaunahafa Geoffrey Rush.
GRÚPPÍURNAR
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
DV
RadíóX
YFIR 60.000
GESTIR
STÆRSTA
BONDMYND
ALLRA TÍMA
Á ÍSLANDI
www.laugarasbio.is
SV. MBL
ÓHT Rás
2
Kvikmyndir.com
1/2 HK DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 9. B.i. 12.
YFIR 80.000 GESTIR
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 B.i. 14.
Frábær mynd frá
leikstjóra
L.A.Confidential þar
sem rapparinn
EMINEM fer á kos-
tum í sínu fyrsta
hlutverki.
Kvikmyndir.com
HJ. MBL
Radio X
Kvikmyndir.is
HIN tilkomumikla fjögurra diska við-
hafnarútgáfa af Föruneyti hringsins,
fyrsta kafla Hringadróttinssögu,
trónir aftur á toppnum yfir söluhæstu
mynddiska landsins.
Diskarnir eru þegar orðnir þeir
söluhæstu í sögu mynddiskaútgáfu
hér á landi og hafa selst í vel yfir 10
þúsund eintökum. Þeir þykir líka
einkar eftirsóknarverðir, aðallega
vegna þess að útgáfan sem þar er að
finna á myndinni er góðum hálftíma
lengri en útgáfan sem sýnd var í bíói.
Er þar heldur ekki um að ræða þessar
afgangssenur sem skoða má í belg og
biðu heldur eru atriðin í myndinni og
hún því í raun og veru lengri. Harðir
Hringadróttinsmenn halda því flestir
fram að þessi aukahálftími auki enn á
dýpt myndarinnar og skilning áhorf-
andans á Miðgarði og fyrstu drögun-
um að átökunum sem brjótast út í
Tveggja turna tali. Þess má geta að
fyrsta útgáfan af Föruneytinu, hin
hefðbundna, er líka á meðal sölu-
hæstu mynddiska, í sjötta sæti.
Þetta þýðir að Sódóma Reykjavík
fellur af toppi mynddiskalistans, en
þó ekki neðar en í annað sætið, sem er
vel af sér vikið. Hin íslenska myndin á
listanum, Englar alheimsins, rýkur
þar að auki upp listans, sem er og
gleðiefni.
Nokkrir diskar hækka flugið veru-
lega milli vikna og kemur þar sterk-
astur inn ævintýrahasarinn Reign of
Fire. Einnig ber að geta þess að stór-
myndin sígilda um egypsku drottn-
inguna Kleópötru, mynd frá 1964 sem
skartar Elizabeth Taylor í hlutverki
drottningarinnar, kemur aftur inn í 9.
sæti. Mynddiskurinn með þessari
mynd, sem er einhver sú kostnaðar-
samasta sem gerð hefur verið, er líka
veglegur og inniheldur m.a. tveggja
tíma langa heimildarmynd um brös-
ótta tilurð þessa stórvirkis.
Föruneytið fríða
enn í fararbroddi
!" "#$% &'()*#"
'++,%
-.
/ #0"1 23"*,,4
% "5
5 67## 2
!" "#$%
89
'(
:*"(# ; " #
%(" #
* /*$,
0 *(5)#"
<$13
=29 #"
2
9*) >1 "1
5 67## 2 '# ? /##) "#$:*"
9*
0)%"",
',( " 2 "
" ,
' .
" ,
" ,
'/,
4@
" ,
' .
' .
' .
' .
'/,
4@
' .
' .
' .
" ,
'/,
4@
' .
" ,
' .
' .
'@* * #,
5" )$. , # A * 9<& * ' . " * > (
,
,
,
- ./ 0 Kynnin við Aragorn og föruneytið
verða enn nánari í lengri útgáfunni.
EITTHVERT magnaðasta fyr-
irbæri bíósögunnar eru spagettí-
vestrarnir svokölluðu. Fáar myndir
hafa nefnilega haft eins sterk og
auðkennanleg stílbrigði og þessir
ítalskættuðu vestrar sem fram-
leiddir voru á 7. og 8. áratugnum.
Sköpun þeirra hefur líka verið
eignuð einum manni, Sergio Leone,
enda ekki nema von því hann reið á
vaðið, gaf tóninn, og gerði svo alla
bestu spagettívestrana. Og af þeim
bestu gnæfa þrír upp úr, hátt og
örugglega, og þessir þrír voru ein-
mitt að koma út á mynddiskum í
glæsilegum og verulega saðsömum
útgáfum.
Er hér að sjálfsögðu um að ræða
þríleikinn sem Clint Eastwood lék í
fyrir Leone, Per un pugno di doll-
ari, betur þekkt sem A Fistful of
Dolllars, Per qualche Dollaro in più
eða For A Few Dollars More og svo
náttúrlega höfuðverkið, Il Buono, il
brutto, il cattivo – The Good, The
Bad and The Ugly. Myndirnar
gerði Leone í einum rykk, voru
frumsýndar með árs millibili, 1964,
1965 og 1966, slógu rækilega í gegn
um heim allan og gerðu Clint
Eastwood að ódauðlegri kvik-
myndastjörnu.
Óþarfi er að fara mörgum orðum
hér um sögulegt gildi þessara
mynda og þau áhrif sem þær hafa
haft, ekki einasta á þá vestra sem
síðan hafa verið gerðir, heldur
kvikmyndagerð almennt, hvað
áhrærir myndatöku, tónlist, klipp-
ingu og uppbyggingu spennuatriða.
En burtséð frá sögulegri þýðingu
eiga myndirnar enn geysimarga
aðdáendur sem horft geta á þær
aftur og aftur. Þeir ættu svo sann-
arlega að geta glaðst yfir nýju
mynddiskaútgáfunni sem inniheld-
ur óklipptar útgáfur af öllum
myndunum og það sem meira er þá
inniheldur The Good, The Bad and
The Ugly 14 dýrmætar mínútur af
áður óséðum atriðum, sem bæta svo
sem ekki miklu við myndina en eru
forvitnilegar fyrir það.
Þótt aukaefni sé í sjálfu sér af
skornum skammti þá nægja mynd-
irnar sjálfar til að gera þær eigu-
legar, en þær hafa að sjálfsögðu
verið endurnýjaðar, hvað hljóð og
mynd áhrærir. Andlitslyftingin sú
er mjög vel heppnuð og gerir
myndirnar jafnvel að enn safa-
ríkari veislu fyrir augu og eyru en
áður því loksins fær kvikmynda-
taka Tonnino Delli Colli og marg-
fræg tónlist Ennio Morricone að
njóta sín í sjónvarpstæki. Tala nú
ekki um ef um breiðtjaldstæki er að
ræða og heimabíóhljóðgervi því
myndirnar voru skotnar á 70 mm
filmur og tónlistin hefur verið færð
yfir á stafræna dolby-rás.
Saðsöm spagettíveisla
Clint Eastwood leikur einfarann
nafnlausa í þríleik Leones.
Mynddiskarnir þrír með A Fistful of
Dollars, For A Few Dollars More og
The Good, The Bad And The Ugly
fást í helstu verslunum með mynd-
diska á landinu.