Morgunblaðið - 27.01.2003, Qupperneq 32
32 MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DV
Frábær mynd frá leikstjóra L.A.Confidential
þar sem rapparinn EMINEM fer á
kostum í sínu fyrsta hlutverki.
Sýnd kl. 6 og 8.
H.TH útv. Saga.
HL MBL
Kvikmyndir.is
Vönduð grínmynd með öllum uppáhaldsstjörnum Bretlands
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.05.
Kvikmyndir.is Kvikmyndir.com
HJ. MBL
Radio X
Yfir 57.000 áhorfendur
Kl. 6. Une Hirondelle a Fait Le Printem -
Stúlkan frá París
Kl. 8. Tanguy - Hótel Mamma
Kl. 8. Sex is Comedy
Kl. 10. Eloge de L´amour - Allt um Ástina
Kl. 10. Harry-Un Ami -
Harry er vinur í er raun
Sýnd kl. 10. Sýnd kl.5.50.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15. B i 14
ÁLFABAKKI
KRINGLAN ÁLFABAKKI
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6, 8 og 10. B. I. 16.
Sýnd kl. 9. / Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6 ísl tal. / Sýnd kl. 4. /
/ /
ÓHT Rás 2
/ /
ÞAÐ VAR margt um manninn í
Laugardalshöllinni á laugardag
þegar Samfés, Samtök félagsmið-
stöðva á Íslandi, héldu sína árlegu
söngkeppni.
Jón Rúnar Hilmarsson, einn af
skipuleggjendum keppninnar, segir
atburðinn hafa heppnast sérlega vel
í ár: „Þetta var mjög gaman, þrjú
þúsund manns í húsinu og mjög góð
stemmning.“
Flutt voru 55 atriði, en alls komu
fram rúmlega 200 þátttakendur á
aldrinum frá 13 til 16 ára. Þar af var
lifandi tónlist flutt undir 23 atriðum
og ekki færri en 11 frumsamin lög
flutt.
„Það má segja að í heildina hafi
þúsund keppendur komið að keppn-
inni,“ segir Jón, „því haldnar voru
undankeppnir í mörgum af fé-
lagsmiðstöðvunum. Keppendur
koma líka hvaðanæva að af landinu:
Austfjörðum, Akureyri, Húsavík,
Ísafirði og víðar.“
Eins og við var að búast með
þennan mikla fjölda atriða tók dag-
skráin nokkuð langan tíma, eða
röskar fimm stundir. Því var boðið
upp á keppni í tölvuleikjaspilun í
anddyri Laugardalshallarinnar, og
gestum gafst einnig kostur á að
keppa í súmó-glímu í sérstökum
hlífðarbúningum. Gestir söng-
keppninnar höfðu því úr nógu að
velja.
Sigurvegararnir í ár komu frá fé-
lagsmiðstöðinni Hólmaseli, en það
var Guðmundur Óskar Guðmunds-
son sem söng lagið „’Till there was
you“ og spilaði á saxófón við und-
irspil Hjartar Ingva Jóhannessonar
á píanó.
Fulltrúar Garðalundar lentu í
öðru sæti, en þar fór fremst í flokki
Anna María Björnsdóttir sem söng
lagið „Hello“, sem Lionel Richie
gerði frægt á sínum tíma.
Loks voru í þriðja sæti keppend-
ur félagsmiðstöðvarinnar Igló úr
Kópavogi, en það voru Marta Björg
Hermannsdóttir, Lilja Björg Run-
ólfsdóttir og Karítas Ósk Björg-
vinsdóttir sem sungu saman frum-
samið lag undir heitinu Taumlaust
hugarflug.
Keppendur Garðalunds, sem lentu í 2. sæti, með söngkonuna Önnu
Maríu Björnsdóttur fremsta í flokki.
Það munaði ekki um tilþrifin á
Samfés og flutt var lifandi tónlist
undir helmingi atriða.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þær létu fara vel um sig, þessar
vinkonur, sem fylgdust með kepp-
endum Söngvakeppni Samfés
spreyta sig.
Guðmundur Óskar Guðmundsson syngur
vinningssönginn, en hann söng lagið „’Till
there was you“ við undirleik Hjartar Ingva
Jóhannessonar, fyrir hönd Hólmasels.
Brjálað gaman
á söngkeppni
Ellefu frumsamin lög á söngkeppni Samfés
FÍT, Fagfélag grafískra hönnuða og mynd-
skreyta, afhenti á föstudag verðlaun fyrir
framúrskarandi hönnun. Verðlaunaathöfnin,
sem er árlegur viðburður, fór fram í Ásmund-
arsafni að viðstöddu fjölmenni. Til sýnis voru
mörg sýnishorn af frjóu hugviti hönnuða og
myndskreyta, sem gestir voru ólatir að rýna í
og ræða sín á milli.
Veitt voru verðlaun í 8 flokkum: Sigrún Sig-
valdadóttir hlaut hönnunarverðlaun FÍT í
flokknum bókakápur/bókahönnun fyrir vinnu
sína. Hildigunnur Gunnarsdóttir og Dagur
Hilmarsson fengu verðlaun í flokknum bréfa-
gögn fyrir bréfagögn sem gerð voru fyrir
Landsbankann. Haraldur Agnar Civelek fékk
verðlaun fyrir myndskreytingar Krónunnar,
en auk þess fékk hann, í félagi við Jeffrey C.
Ramsey, verðlaun fyrir plötuumslag skífunnar
„Gerðu það sjálfur“.
Snæfríð Þorsteins fékk verðlaun fyrir
prentað kynningarefni fyrir kynningarmöppu
listamannsins Sigtryggs Baldvinssonar, Emil
H. Valgeirsson fékk umbúðaverðlaun fyrir
umbúðir um drykkjarjógúrt, Stefán Einarsson
fékk verðlaun í flokki veggspjalda fyrir vegg-
spjald Stígamóta og loks fékk Jón Ari Helga-
son verðlaunin í flokki vöru- og firmamerkja
fyrir merki Auglýsingamiðlunar.
Að auki voru veittar viðurkenningar fyrir
önnur verk í öllum flokkum.
Morgunblaðið/Árni SæbergVinningshafar hönnunarverðlauna FÍT 2003 stilla sér upp í Ásmundarsafni.
Uppskeruhátíð hjá grafískum hönnuðum
Afrakstur síðasta hönnunarárs grandskoðaður.
Besta hönnunin verðlaunuð