Morgunblaðið - 17.02.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga.
Rannsóknir í félagsvísindum
Mikil gróska í
félagsvísindum
á Íslandi
LAGADEILD, við-skipta- og hag-fræðideild og fé-
lagsvísindadeild Háskóla
Íslands standa sameigin-
lega að ráðstefnu um rann-
sóknir í félagsvísindum nk.
föstudag og laugardag.
Ráðstefnan verður haldin í
Odda og Lögbergi. Þetta er
í fjórða skipti sem slík ráð-
stefna er haldin en lög-
fræðideild tekur nú þátt í
henni í fyrsta skipti. Þetta
er óvenjuleg ráðstefna mið-
að við flestar aðrar að því
leyti að alls er flutt rúmlega
hálft annað hundrað fyrir-
lestra í tugum dagskrárliða
og er um mikla fjölgun að
ræða frá fyrri ráðstefnum
umræddra aðila.
Í forsvari fyrir ráðstefn-
una er Friðrik H. Jónsson,
forstöðumaður félagsvís-
indadeildar Háskóla Ís-
lands. Hann svaraði nokkrum
spurningum.
– Hvert er inntak ráðstefunnar,
áherslur hennar og tilurð?
„Megininntak ráðstefnunar er
rannsóknir kennara við þessar
þrjár deildir. Áherslur eru mis-
munandi eftir greinum en í meg-
indráttum er áherslan á nýjar eða
nýlegar rannsóknir viðkomandi
kennara.
Allir kennarar viðkomandi
deilda eiga kost á að kynna rann-
sóknir sínar á ráðstefnunni. Fyrsta
ráðstefnan með þessu heiti var
haldin 1994, önnur 1997, sú þriðja
1999 og í ár er sú fjórða. Í upphafi
var þetta mín hugmynd að halda
svona ráðstefnu og hlaut hug-
myndin strax góðar undirtektir.
Frá upphafi hafa félagsvísinda-
deild og viðskipta- og hagfræði-
deild staðið að þessum ráðstefnum
en nú er lagadeild með í fyrsta
skipti.“
– Hver er tilgangur ráðstefn-
unnar?
„Tilgangur ráðstefnunnar er að
kynna rannsóknir í félagsvísindum
fyrir landsmönnum. Annar til-
gangur er, að ráðstefnan er vett-
vangur fyrir fólk sem starfar á
sviðum sem tengjast deildunum til
að hittast, kynna eigin rannsóknir
og heyra hvað aðrir hafa verið að
gera. Loks má nefna, þó svo að það
sé ekki sérstakur tilgangur ráð-
stefnunnar, þá finnst mörgum
kennurum í þessum deildum gam-
an að geta kynnt sér rannsóknir
kolleganna.“
– Hvað heyrir undir „rannsóknir
í félagsvísindum?“
„Undir þetta heiti heyra allar
rannsóknir sem kennarar í þessum
þremur deildum stunda. Auðvitað
má deila um það í einstökum til-
vikum hvort tilteknar aðferðir sem
beitt er við gagnaöflun falli undir
félagsvísindi en
ákveðið var að vera
ekki með þröngar
skilgreiningar á fé-
lagsvísindum og láta
viðkomandi kennara
um að meta hvort til-
tekið efni ætti heima á
ráðstefnunni.“
– Er mikil gróska í þessum vís-
indum?
„Það er mikil gróska í félagsvís-
indum á Íslandi, sama hvaða mæli-
stiku er beitt. Eitt sem má hafa til
marks um gróskuna er umfang
þessarar ráðstefnu. Á ráðstefnunni
verða 153 fyrirlestrar á 31 dag-
skrárlið. Það er mikil fjölgun frá
síðustu ráðstefnu en þá voru 18
dagskrárliðir og 69 fyrirlestrar.“
– Hverjir taka til máls á ráð-
stefnunni?
„Í reynd er það í höndum við-
komandi deilda og skora hverjum
er boðið að halda fyrirlestur á ráð-
stefnunni. Algengast er að þetta
séu fastir kennarar og stunda-
kennarar í viðkomandi deildum,
sérfræðingar sem starfa utan Há-
skólans en tengjast deildunum á
einn eða annan hátt og einstaka
stúdent sem hefur unnið einstak-
lega athyglisverða rannsókn.“
– Hvernig hafa þessar ráðstefn-
ur verið sóttar og hverjir eiga
þangað helst erindi til að hlýða á
erindin?
„Eins og kemur fram að ofan er
þetta fjórða ráðstefnan sem ber
þessa yfirskrift. Ráðstefnurnar
hafa alltaf verið vel sóttar og
áheyrendur hafa verið frá um 30 og
upp í um 100 á hverjum dagskrár-
lið. Stærstur hluti gesta er fólk
sem starfar á sviðum sem tengjast
viðkomandi fræðasviðum og vill fá
tækifæri til að heyra af nýjustu
rannsóknum á sviðinu. Til þessa
hafa fyrirlestrar birst í ráðstefnu-
riti sem gefið hefur
verið út að lokinni
ráðstefnu. Nú er
bryddað upp á því
nýmæli að gefa ráð-
stefnuritin út daginn
sem ráðstefnan
hefst. Vegna mikils
fjölda fyrirlestra komast þeir ekki
fyrir í einni bók og því var brugði á
það ráð að hafa bækurnar þrjár.
Eina fyrir lagadeild, eina fyrir við-
skipta- og hagfræðideild og eina
fyrir félagsvísindadeild. Gestir á
ráðstefnunni geta því hlustað á er-
indin, keypt sér ráðstefnubókina
og skemmt sér við að lesa þau er-
indi sem þeir misstu af alla
helgina.“
Friðrik H. Jónsson
Friðrik H. Jónsson er fæddur
á Siglufirði 13. nóvember 1951.
Kennarapróf frá Kennaraskóla
Íslands 1972. BA-próf í sálfræði
frá Háskóla Íslands 1976. MSc í
félagssálfræði frá London School
of Economics 1977 og PhD frá
Háskólanum í Sheffield 1986.
Stundakennsla við Háskóla Ís-
lands og víðar frá 1983. Lektor í
félagsfræði við Háskóla Íslands
1989, dósent frá 1992. For-
stöðumaður Félagsvísindastofn-
unar Háskóla Íslands frá 1999.
Maki er Guðný Ágústa Steins-
dóttir og eiga þau tvö börn, Hildi
og Stein.
…að vera ekki
með þröngar skil-
greiningar á fé-
lagsvísindum