Morgunblaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 C 15 TÓNLISTARHÁTÍÐIN Músík í Mývatnssveit verður haldin í sjötta sinn um páskana. Tvennir tónleikar eru á dagskrá. Þeir fyrri verða í Reykjahlíðarkirkju á föstudaginn langa, en þeir síðari í félagsheim- ilinu í Skjólbrekku á laugardaginn. Sjö tónlistarmenn, sem allir starfa með Sinfóníuhljómsveit Íslands, taka þátt í hátíðinni ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdóttur söngkonu. Þeir eru Laufey Sigurðardóttir, fiðla, Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla, Bryndís Björgvinsdóttir, selló, Hávarður Tryggvason, kontrabassi, Kjartan Óskarsson, klarinett, Brjánn Inga- son, fagott og Þorkell Jóelsson, horn. Að sögn Laufeyjar Sigurðardótt- ur, sem komið hefur að skipulagn- ingu tónlistarhátíðarinnar undanfar- in ár, verður efnisskrá fyrri tónleikanna, sem fram fara á föstu- daginn langa, helguð tónlist sem hæfir þessum tiltekna degi. „Við flytjum meðal annars sálmana Ég kveiki á kertum mínum og Maríu- vers í útsetningu Kjartans Óskars- sonar fyrir hópinn. Þar fyrir utan verða fluttir hægir kaflar úr nokkr- um verkum eftir Mozart og Schu- bert og Sigrún syngur Laudamus te, einnig eftir Mozart,“ segir hún í samtali við Morgunblaðið. Á efnisskrá seinni tónleikanna, sem fram fara á laugardag, kveður við annan tón. „Þá munum við flytja hinn þekkta Septett Beethovens, sem er eiginlega þungamiðjan á tón- listarhátíðinni, en einnig flytjum við nokkrar óperuaríur, sem Kjartan hefur jafnframt útsett fyrir Sigrúnu og hópinn, og vinsæl íslensk sönglög á borð við Svaninn og Hamraborg- ina.“ Laufey segir verkefnavalið hafa að nokkru helgast af þeirri hljóð- færaskipan sem hópurinn saman- stendur af. „Okkur fannst skemmti- legra, úr því að við höfðum kost á því, að hópurinn léki undir söng- verkunum sem Sigrún flytur í stað píanós eða orgels. Við erum svo heppin að eiga Kjartan að, sem get- ur svo auðveldlega útsett fyrir okk- ur.“ Annars konar afþreying Þetta er í sjötta sinn sem hátíðin er haldin og hefur gengið vel und- anfarin ár. „Markmiðið hefur verið að bjóða upp á annars konar afþrey- ingu en þegar er boðið upp á í Mý- vatnssveit, en þar hefur verið í boði ýmis útivistarafþreying,“ segir Laufey. „Áheyrendahópurinn hefur bæði verið skipaður heimamönnum og ferðamönnum, sem eru fjölmarg- ir fyrir norðan um þessar mundir, og aðsókn hefur verið ágæt þessi síðustu ár sem hátíðin hefur verið haldin.“ Morgunblaðið/Árni Torfason Hluti hópsins sem stendur að tónlistarhátíðinni Músík í Mývatnssveit. Mozart og Beethoven í Mývatnssveit AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111 Teppi á stigaganga Ármúla 23, sími 533 5060

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.