Morgunblaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 36
36 C FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Lausar kennarastöður
Menntaskólinn á Ísafirði auglýsir eftir
kennurum skólaárið 2003-2004 í eftirfar-
andi bóknámsgreinar:
Íslensku (2 stöður).
Raungreinum og stærðfræði (1½ staða).
Viðskiptagreinum (stundakennsla).
Umsóknarfrestur er til mánudagsins 28. apríl
2003. Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði
6. gr. laga nr. 86/1998 um leyfi til þess að nota
starfsheitið framhaldsskólakennari.
Starfskjör fara eftir kjarasamningi ríkisins og
KÍ frá 7. janúar 2001.
Allar nánari upplýsingar veita Ólína Þorvarðar-
dóttir, skólameistari, og Jón Reynir Sigurvins-
son, aðstoðarskólameistari, í síma 450 4402.
Skólameistari.
= allt er framkvæmanlegt
Þú + Opin kerfi = allt er framkvæmanlegt
Opin kerfi ehf. er framsækið fyrirtæki sem
starfar á upplýsingatæknimarkaði. Fyrirtækið
er byggt á traustum grunni, er í góðum rekstri
og hefur skýr markmið. Það er þróttmikið og
ört vaxandi og hefur á að skipa úrvals
starfsfólki. Opin kerfi leggja höfuðáherslu á
búnað frá HP, Cisco Systems og Microsoft og
eru í beinum samskiptum við þá framleiðendur.
Mikið er lagt upp úr samheldni starfsfólks,
góðri vinnuaðstöðu og umbun fyrir vel unnin
störf. Lögð er áhersla á að dreifa ábyrgð til
hvers starfsmanns, sveigjanleika í vinnu-
brögðum og opið skrifstofuumhverfi. Hvatt er til
símenntunar starfsmanna til þess að tryggja að
starfsmenn viðhaldi og endurnýji þekkingu sína
og nái sér í viðeigandi tæknilegar prófgráður.
Hjá Opnum kerfum ehf. eru nú 77 starfsmenn.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Liðsauka
eða á www.lidsauki.is. Nánari upplýsingar
gefur Sigrún Ólafsdóttir, milli kl. 09.00 og
12.00 í síma 562 1355.
Sölumaður í söludeild
Við leitum að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi
sem er tilbúinn að ganga til liðs við harðsnúinn hóp
viðskiptastjóra í síbreytilegu tækniumhverfi.
Starfssvið
• Sala á tæknibúnaði
• Ráðgjöf til viðskiptavina
• Aðstoða viðskiptastjóra við að loka samningum
• Önnur tilfallandi verkefni eftir nánara samkomulagi
Hæfniskröfur
• Þekking á tölvum og tæknibúnaði
• Áhugi á sölumennsku
• Kraftur og metnaður í starfi
Ráðgjafi í söludeild
Við erum að leita að einstaklingi sem er tilbúinn að
vera leiðandi innan fyrirtækisins í
þekkingaruppbyggingu á netlausnum svo og í vali,
markaðssetningu og sölu á netlausnum.
Starfssvið
• Vera leiðandi í sölu á netlausnum
• Samskipti við birgja
• Viðskiptastjórnun á lykilviðskiptavinum
Hæfniskröfur
• Reynsla í ráðgjöf og sölu á tæknilausnum
• Háskólamenntun á tæknisviði æskileg
• Áhugi á söluráðgjöf og sölumennsku
• Kraftur og metnaður í starfi
Bókasafnsfræðingur
Félagsþjónustan í Reykjavík óskar eftir að ráða
bókasafnsfræðing í 50% starf í bóka- og skjala-
safn.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun á sviði bókasafns- og upp-
lýsingafræði
Þekking og reynsla í skjalastjórnun
Reynsla og hæfni í stjórnun og mannlegum
samskiptum
Starfssvið:
Umsjón með bóka- og skjalasafni
Skjalastjórnun og umsjón með verklagsregl-
um skjalastjórnunar
Ráðgjöf við allar starfseiningar
Fræðsla um skjalastjórnun
Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur-
borgar og Stéttarfélags bókasafns- og upplýs-
ingafræðinga.
Umsóknarfrestur er til 28. apríl 2003.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs, í síma
535 3034, netfang: sigridurj@fel.rvk.is .
Starfsmaður
í móttökueldhús
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 óskar eftir
að ráða starfsmann í móttökueldhús. Starfið
felur í sér móttöku og framreiðslu á mat, kaffi
og annað tilheyrandi. Starfshlutfall er 60%,
framtíðarstarf. Einnig vantar okkur starfsmann
til sumarafleysinga í móttökueldhús. Laun skv.
kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir forstöðu-
maður, Lilja Sörladóttir, í síma 568 3132,
netfang lilja@fel.rvk.is
Sjá einnig almennar upplýsingar um laus störf
og starfsmannastefnu Félagsþjónustunnar á
vefsíðunni: www.felagsthjonustan.is .