Morgunblaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 28
28 C FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF Á SKÍRDAG verður ferming- armessa kl. 14 þar sem Dómkórinn syngur og báðir prestarnir þjóna við messuna. Að kvöldi skírdags kl. 20 verður kvöldmessa. Sr. Jakob Ágúst Hjálm- arsson flytur hugleiðingu. Forsöng og undirleik annast hjónin Þorvald- ur Halldórsson og Margrét Schev- ing. Sr. Hjálmar Jónsson annast alt- arisþjónustuna. Föstudaginn langa kl. 14 verður helgistund við krossinn. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson leiðir þá stund. Flutt verða sjö orð Krists á kross- inum, Litanía sr. Bjarna Þorsteins- sonar og ritningarlestrar. Dómkór- inn mun syngja undir stjórn Marteins H Friðrikssonar m.a. Ave verum corpus eftir Mozart. Biskupsmessa er kl. 8 að morgni páskadags. Herra Karl Sigurbjörns- son predikar og dómkirkjuprest- arnir þjóna fyrir altari ásamt hon- um. Söngvararnir Ólafur Kjartan Sigurðarson, Anna Sigríður Helga- dóttir og Þórunn Guðmundsdóttir flytja „Páskadagsmorgun“ eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Á páskadag kl. 11 er hátíð- armessa. Sr. Hjálmar predikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar. Söngvararnir Ólafur Kjartan Sigurðsson, Anna Sigríður Helgadóttir og Þórunn Guðmunds- dóttir flytja „Páskadagsmorgun“ eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Æðruleysismessa í Dómkirkjunni ANNAN páskadag verður æðru- leysismessa í Dómkirkjunni kl. 20. Einhver mun segja þar af reynslu sinni úr baráttunni við áfengissýk- ina. Anna Sigríður Helgadóttir, Hjörleifur Valsson, Birgir og Hörð- ur Bragasynir, sjá um fjölbreytta tónlist. Sr. Hjálmar Jónsson flytur hug- leiðingu. Sr. Anna Sigríður Páls- dóttir leiðir samkomuna og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir alt- arisgöngu. Sjá heimasíðu Dómkirkjunnar www.domkirkjan.is Verið velkomin. Prestarnir. Fjölbreytt tónlist í Bústaðakirkju FJÖLBREYTT tónlist verður í Bú- staðakirkju um bænadaga og páska. Guðsþjónusta á skírdag verður nú klukkan 18, sem er breyting frá messutíma fyrri ára. Þá mun Kór Bústaðakirkju flytja þætti úr sálu- messu eftir Gabriel Fauré. Ein- söngvarar eru úr röðum kórsins, þau Alda Ingibergsdóttir og Ásgeir Páll Ágústsson. Orgelleikari er Douglas Brotchie og stjórnandi Guðmundur Sigurðsson. Í messunni verður gengið að borði Drottins. Á föstudaginn langa verður guðs- þjónusta kl. 14. Þá flytja þau Magn- ea Tómasdóttir sópransöngkona og Guðmundur Sigurðsson orgelleik- ari íslensk þjóðlög við Passíusálma Hallgríms Péturssonar. Útsetn- ingar sálmanna annaðist Smári Óla- son. Lesið verður úr Píslarsögunni. Á páskadagsmorgun er hátíðar- guðsþjónusta kl. 8 árdegis. Óbóleik- ari er Peter Tompkins og organisti Guðmundur Sigurðsson, sem stjórn- ar félögum úr Kór Bústaðakirkju. Á hádegi eða klukkan 12 verður messað í Bláfjöllum en þar hefur verið messað undanfarin 14 ár á páskadegi með skíða- og útivist- arfólki. Þar munu félagar úr Kór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Guðmundar Sigurðarsonar. Annan páskadag verður ferming- arguðsþjónusta kl. 10.30 og er það síðasti fermingarhópurinn á þessu vori í Bústaðakirkju. Það eru allir velkomnir að taka þátt í ferming- arguðsþjónustunni og engin kvöð á fjölda sem fylgir hverju ferming- arbarni. Verið velkomin í Bústaðakirkju í dymbilviku og á páskum. Pálmi Matthíasson sóknarprestur. Guðmundur Sigurðsson organisti. Kvöldvaka í Fríkirkjunni í Hafnarfirði HIN hefðbundna kvöldvaka föstu- dagsins langa verður í Fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 20.30 þar sem at- burða föstudagsins langa er minnst í tali og tónum. Eins og þeir þekkja sem hafa mætt til þessarar kvöld- vöku á liðnum árum er hér um afar sérstæða og minnisstæða stund að ræða. Kertaljós eru tendruð undir stórum krossi meðan sunginn er sálmurinn Ég kveiki á kertum mín- um við krossins helga tré. Lesið er úr píslarsögunni og kórinn flytur séræft efni. Að þessu sinni munu Örn Arnarson og hljómsveit hans sjá um alla tónlist og kór kirkjunnar leiðir söng. Í lok stundarinn lesa ferming- arbörn síðustu orð Jesú á krossinum og slökkva ljósin í kirkjunni. Kirkju- gestir yfirgefa svo kirkjuna í kyrrð og myrkri. Friðarsamvera í Fríkirkjunni í Reykjavík FRIÐUR við náungann og friður við Guð. Friðarsamvera í Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn langa, 18. apríl kl. 20.30 – en tónlistarflutn- ingur hefst kl. 20.15. Eftirtaldir tónlistarmenn taka þátt í samverunni: Carl Möller, pí- anisti og orgelleikari, Anna Sigríð- ur Helgadóttir, söngkona og söng- stjóri og Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík. Hugvekju flytja Njörður P. Njarðvík prófessor, Guðrún Ás- mundsdóttir leikkona og Hjörtur Magni Jóhannsson fríkirkjuprestur. Fríkirkjan í Reykjavík var á sín- um tíma stofnuð sem íslensk kirkju- leg fjöldasamtök til eflingar sam- félagslegu réttlæti og skapandi endurnýjunar í anda Krists. Allir eru hjartanlega velkomnir og að- gangur er ókeypis. „Job“ í Glerárkirkju FÖSTUDAGINN langa kl. 16 mun Arnar Jónsson leikari flytja þætti úr samnefndu riti Gamla testament- isins. Að flutningi loknum verða umræður í safnaðarsal um mann- lega þjáningu. Aðstandendur sýn- ingarinnar eru auk Glerárkirkju Félag áhugafólks um heimspeki á Akureyri og Samhygð, sorg- arsamtökin á Akureyri. Boðið verður upp á léttar veit- ingar. Allir velkomnir. Föstudagurinn langi í Neskirkju DAGSKRÁ um þjáningu og lausn. Kynnt verður starf Hjálparstarfs kirkjunnar og Amnesty Int- ernational. Sýnd verða stutt skeið úr kvikmynd um ævi Jesú Krists sem byggð er á Lúkasarguðspjalli. Lesið verður úr Passíusálmum séra Hallgríms Péturssonar. Þennan dag minnist kristin kirkja þjáningar Jesú. Enn þjáist fólk í heiminum og því er verk að vinna fyrir vakandi fólk. Samstarf við framangreinda aðila á að minna á að leitað er lausna á böli og þjáningu heimsins. Leikararnir, Harald G. Haralds og Ragnheiður Steindórsdóttir, flytja frásögur af þjáðu fólki. Steingrímur Þórhallsson organisti leiðir söng- kvartett og verður sungin tónlist m.a. eftir Orlando Di Lasso. Engin ljós verða tendruð í kirkju eða á alt- ari en þegar fólk kemur til kirkju gengur það inn í rauðan ljósgeisla, tákn fyrir blóðrás og hjartslátt Krists. Um er að ræða myndlist- arverk eftir Harald Jónsson mynd- listamann. Séra Örn Bárður Jóns- son leiðir dagskrána. Íhugunarstöðvar Í kirkjunni verður komið fyrir hlutum (tólum og tækjum) sem minna á þjáningu og valdbeitingu. Þátttakendur geta gengið um kirkjuna og skoðað þessa hluti og íhugað. Á einum stað verð- ur vatn og brauð til neyslu. Bibertónleikar. Að lokinni fram- angreindri dagskrá flytja þeir Mart- in Frewer fiðla, Dean Ferrell bassi og Steingrímur Þórhallsson orgel sónötur eftir Biber sem var tón- skáld á 17. öld. Rósakranssónötur hans þykja meistaraverk og fjalla um ævi Krists. Þær sem fluttar verða föstudaginn langa eru um þjáningu hans og krossdauða. Flytj- endurnir hafa þegar leikið són- öturnar fyrir Ríkisútvarpið og fóru upptökurnar fram í Neskirkju á vordögum. Séra Örn Bárður Jóns- son les ritningarlestra á milli són- atanna. Chagall í Neskirkju EFTIR messu á skírdagskvöld, sem hefst klukkan átta, sýnir sr. Frank M. Halldórsson litskyggnur í safn- aðarheimili kirkjunnar af steindum gluggum eftir hinn fræga list- armann Marc Chagall sem prýða bænhúsið í læknadeild Hadassah- háskólasjúkrahússins í Jerúsalem. Þegar Chagall tók þetta verk að sér hafði Biblían verið uppspretta og innblástur margra mikilvægustu verka hans. Vann hann í tvö ár að rannsóknum og ýmiss konar könn- unum áður en að lokaútfærslu glugganna kom. Myndverkið táknar tólf syni Jak- obs en frá þeim eru allir tólf kyn- þættir Ísraels komnir. Þá táknar það einnig blessunina sem Jakob veittir þeim. Hverjum einum er í sjálfsvald sett hvernig hann notar skáldlegt ímyndarafl sitt til að skilja þetta stórkostlega verk. Sr. Frank mun í stórum dráttum lýsa vinnuferlinu að gerð glugganna svo fólk geti betur gert sér grein fyrir því hvernig þetta heimsfræga listaverk varð smám saman til. Fram verða bornar veitingar. Páskanæturmessa í Langholtskirkju LAUGARDAGSKVÖLDIÐ fyrir páska, 19. apríl, verður páskanæt- urmessa í Langholtskirkju. Hefst stundin kl. 23.30 með ritning- arlestrum í myrkvaðri kirkjunni. Um miðnætti verður páskakertið borið inn og páskalofsöngur fluttur. Söfnuðurinn fær afhent kerti og hver tekur sér ljós af páskakertinu. Skírnarinnar er minnst en aðfara- nótt páska var skírnarhátíð til forna. Heilög kvöldmáltíð verður síðan um hönd höfð. Sr. Kristján Valur Ingólfsson leið- ir messugjörðina ásamt sókn- arpresti og fleiri prestum og les- urum. Margrét Bóasdóttir syngur. Organgisti er Jón Stefánsson. Allir eru velkomnir. Sérstök altarisganga verður í Langholtskirkju á skírdagskvöld kl. 20. Á föstudaginn langa verður guðsþjónusta og kyrrðarstund kl. 11. Hátíðarmessa verður á páska- dagsmorgun kl. 8. Blásarakvintett í Hallgrímskirkju Á SKÍRDAG mun norskur blásara- kvintett leika í Hallgrímskirkju frá kl. 19.40 og þar til messa hefst kl. 20. Um er að ræða kvintett úr lúðra- sveitinni Osko Representasjons Korps. Á efnisskránni eru kirkjuleg verk, m.a. eftir J.S. Bach, Johannes Brahms o.fl. Guðsþjónustan er í umsjá séra Sigurðar Pálssonar og lýkur henni að venju með Getsem- anestund sem felst í því að afskrýða altarið fyrir föstudaginn langa og koma fyrir altarisklæði sem Unnur Ólafsdóttir listakona gaf kirkjunni og á sér ekki hliðstæðu hér á landi. Klæðið er látið standa yfir föstu- daginn langa sem myndræn íhugun. Páskamessa á Þingvöllum við sólarupprás EINS og undanfarin ár verður fram haldið hinum forna sið að hefja messu á í Þingvallakirkju á páska- morgun um leið og sól rís og nýr dagur stígur fram. Er hér minnst atburða hins fyrsta páskadags í kristninni er konurnar biðu sólaruppkomu og nýs dags svo að þær gætu farið að gröf Jesú og gert líki hans til góða. Þær urðu síð- an fyrstu vitnin að upprisu Jesú Krists er þær komu að hinni tómu gröf og engillinn tjáði þeim að Kristur væri upprisinn. Síðan hefur því verið fagnað um allan hinn kristna heim á hverjum páskum, enda er upprisan grundvöllur krist- innar trúar. Samkvæmt upplýsingum Veð- urstofunnar verður sólarupprás á Þingvöllum um kl. 5.45 á páska- morgun. Hins vegar þarf sólin að klífa upp fyrir fjallahringinn í austri áður en geislar hennar ná til þeirra er bíða komu nýs dags. En strax og það gerist hefst guðsþjónustan í Þingvallakirkju eða um kl. 6. Það eru konur í kirkjunni, sem standa að guðsþjónustunni í sam- vinnu við sóknarprestinn eins og undanfarin ár. Þessi hópur hefur um árabil gengist fyrir fjölsóttum kyrrðardögum kvenna í Skálholti tvisvar á ári og það er einmitt Skál- holtsrektor, sr. Bernharður Guð- mundsson sem predikar og þjónar fyrir altari við þessa óvanalegu og hátíðlegu guðsþjónustu á sjálfum Þingvöllum. Allir eru að sjálfsögðu hjart- anlega velkomnir en þar sem brugð- ið getur til beggja vona um veð- urfar, er fólk hvatt til að klæða sig samkvæmt veðri! Dymbilvika og páskar í Laugarneskirkju ÞAÐ er sérstök reynsla að eiga sam- leið með mörgu fólki í gegnum at- burði píslarsögunnar og páskanna. Laugarneskirkja opnar dyr sínar og býður öllum að taka þátt um bæna- daga og páska. Fyrst komum við saman í kvöld- messu á skírdag kl. 20.30, þar sem að lokinni altarisgöngu fer fram hin árvissa afskrýðing altarisins, þar til ljósin slokkna og þögnin tekur við og fólk gengur hljóðlega út í myrk- ur Getsemanegarðsins án þess að messunni ljúki. Enda komum við svo saman að nýju kl. 11 að morgni föstudagsins langa til að halda áfram að hugleiða píslir Jesú og gildi krossins í eigin lífi. Á páskadagsmorgni kl. 8 komum við loks til kirkjunnar til að fagna sigri lífsins við hátíðarguðsþjón- ustu. Allir mæta á fastandi maga og koma svo saman yfir í safn- aðarheimilið á eftir til að neyta morgunverðar í boði safnaðarins þar sem sóknarnefndarmenn ganga um beina. Einnig viljum við vekja athygli barnafólks á því að annan dag páska er haldinn sunnudagaskóli með hátíðarbrag kl. 11. Þar mun Barnakór Laugarness syngja, saga páskanna verður endursögð með myndum og sungið af hjartans lyst. Verið velkomin í Laugarnes- kirkju. Staða kristniboðs í nútímanum UM þetta ofanskráðaefni mun Kjartan Jónsson kristniboði fjalla í morgunfræðslu Íslensku Krists- kirkjunnar, Bíldshöfða 10, milli kl 10 og 12 laugardaginn fyrir páska. Kjartan starfaði mörg ár sem kristniboði í Kenýu á vegum Sam- bands íslenskra kristniboðsfélaga og hefur því miklu reynslu af kristniboði. Hann hefur auk þess aflað sér framhaldsmenntunar á þessu sviði og er eflaust einn fróð- asti maður hérlendis um hver er staða kristniboðs í nútímanum og hvernig gengur að boða heiðnum þjóðum fagnaðarerindið. Allir eru velkomnir á fræðsluna og aðgangur ókeypis. Morgunblaðið/Jim Smart Dómkirkjan um bænadaga og páska Dómkirkjan í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.