Morgunblaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 22
22 C FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ „Það er nú ekki komið að því, það á eftir að brjóta heilmikið niður áður,“ sagði múrarinn. „Hvenær getur þú komið, kannski á morgun?“ sagði Ólafur Steinar. Nei, það gat múrarinn ekki, hafði enda ekki trú á að Ólafur gæti rifið það niður sem þurfti og losnað við það á svo stuttum tíma. „Getur þú komið núna klukkan eitt,“ sagði Ólafur, þetta var nokkuð snemma morguns. Múrarinn játaði þessu, nokkuð langleitur. Ólafur réðst umsvifalaust á vegginn með höggbor, hjó hann svo niður og við bárum úrganginn burt í gömlum bala. Búið var meira að segja að sópa gólfið þegar múrarinn mætti aftur á svæðið. Svona liðu árin í annríki hversdags- ins, skemmtilegum ferðalögum er- lendis og góðum fríum. Börnin uxu upp og fengu þá menntun sem þau kusu, fóru að heiman og eignuðust eigin fjölskyldur eins og gengur. Það er ómetanlegt að eignast góð tengdabörn. Mér finnst það vera forréttindi hverrar konu að fæða af sér börn. Ástin á börnunum hverfur aldrei en ást á maka getur verið hverful. Ólafur veikist Þar kom að Ólafur Steinar kallaði okkur saman, mig og börnin okkar fjögur og tilkynnti að hann ætlaði að hætta störfum sem ráðuneytisstjóri ekki seinna en 65 ára til þess að geta átt góð ár í sumarbústað sem við höfðum keypt af frú Din rétt utan við Kaupmannahöfn og við antikversl- unina með mér hér heima. Við áttum raunar ekki að fá að kaupa bústaðinn, okkur var neitað í tvígang vegna þess að útlendingar urðu að hafa verið fastbúandi í landinu í sjö ár til þess að kaupa sumarhús. Ólafur benti loks á að við hjónin værum bæði fædd undir dönskum konungi og þar með fannst lögleg smuga til þess að þessi við- skipti gætu farið fram. Við gerðum við bústaðinn og stækkuðum hann og undum okkur þarna vel. En rétt um það bil sem Ólafur Steinar hafði tekið fyrrgreinda ákvörðun kom í ljós við læknisrann- sókn að hann var veikur af krabba- meini. Hann var skorinn við ristil- krabbameini og fór í lyfjameðferð í framhaldi af því árið 1993, hætti að vinna skömmu síðar vegna veikind- anna og dó af þeirra völdum 1997. Þegar læknirinn hringdi til að segja mér að það þyrfti að skera manninn minn strax og hvað að væri leið mér eins og mér hefði verið kastað út á rúmsjó og ég næði ekki landi. Smám saman komst ég þó niður á þá ákvörð- un að leggja mikla áherslu á að byggja mig upp eins og ég gæti til þess að geta verið honum eins mikil stoð og unnt væri. Ég synti hvern morgun, fór í bakarí til að kaupa eitt- hvað gott, kveikti kertaljós og hitaði tesopa, – svo spjölluðum við saman fram að hádegi, þá fór ég í búðina. Hann gekk stundum til mín þangað til að fá hreyfingu. Við borðuðum kvöldmatinn saman og þannig leið tíminn. Erfið nótt Þessi ár sem hann var veikur lét hann ekki bugast, hann fór með mér margar ferðir út til að kaupa inn, þetta gladdi hann og uppörvaði, en þetta voru oft erfið ferðalög. Við vor- um samrýnd hjón og nutum lífsins saman, líka eftir að veikindin komu til sögunnar. Læknarnir sögðu að hann skyldi fara ef hann gæti og ég treysti mér til að hjálpa honum. Síðustu ferðina fórum við um páskana 1997. Hann var orðinn illa á sig kominn en hugurinn var sá sami. Í ferðinni fékk hann sýkingu en vildi ekki verða eftir á sjúkrahúsinu, við fórum því heim í bústaðinn eftir að honum hafði verið sinnt eftir föngum af lækni. Þetta var erfið nótt. Ólafur var mjög veikur en ég náði sambandi við íslenskan lækni sem útvegaði lyf sem við gátum sótt um morguninn. Alla þessa nótt sat ég hjá honum og talaði um liðna daga til að dreifa huga hans frá kvölunum og halda honum við meðvitund. Morguninn eftir feng- um við lyfin og hann hresstist við á tveimur dögum. Við áttum góða ævi saman við Ólaf- ur Steinar, – annasama og fulla af lífi og fyrirheitum. Hann var mjög dug- legur, kom sér vel áfram en var þó alltaf trúr uppruna sínum. Hann var einn af fáum verkamannssonum í sín- um bekk í menntaskóla. Hann vann frá 10 ára aldri í vegavinnu 12 tíma á sólahring á sumrin sem kúskur, vann síðar á eyrinni og í grjótnáminu við Markarfljótsbrú og þannig mætti telja. Hann las námsefnið mennta- skólaárin í skoti upp á háalofti, með bækurnar ofan á heypoka sem mamma hans hafði sett þar. Þetta var eini staðurinn í húsinu sem hægt var að hafa svolítið næði fyrir ótalmörg- um íbúum þess. Þegar tengdafaðir minn keypti þessa fjögurra herbergja íbúð 1947 mátti ekki segja upp leigj- endum. Af hverju skellir þú þér ekki með? Eftir að Ólafur Steinar var dáinn hugsaði ég um tíma mikið til baka. Ég kynntist honum fyrir tilstilli vin- kvenna minna úr Skerjafirðinum, þau Ólafur Steinar, María Helgadóttir og Ásthildur Pétursdóttir, sem síðar starfaði mikið í Sjálfstæðisflokknum, voru systkinabörn. Þær María og Ásthildur eru nú báðar látnar. Í Skerjafirði var samheldni mikil og þar ríkti gott samfélag. Við sem voru þar krakkar þá komum enn saman einu sinni á ári. Ég hafði oft hitt Ólaf þegar ég fór með vinkonum mínum í heimsókn í Þverholtið þar sem hann bjó hjá for- eldrum sínum. Mér fannst hann dálít- ið merkilegur með sig, enda var hann fimm árum eldri en ég. Svo hitti ég hann um borð í Heklu, ég var að kveðja Ástu vinkonu mína var að fara í hringferð með Heklu en um haustið ætlaði María vinkona okk- ar til Noregs að vinna og Ólafur var einnig á leið til Noregs í háskólanám. „Sæl Fjóla, af hverju skellir þú þér ekki með Maríu til Noregs?“ sagði hann. Ég átti peninga í bók, 20 þús- und krónur, ég var þá að vinna og fékk 1.800 hundruð krónur á mánuði í kaup. Af því fóru 50 krónur í sjúkra- samlag, 250 krónur í eyðslu en en 1.500 krónur í bókina. Ég ákvað að „skella mér“ til Noregs. Peningarnir fóru svo í uppihald mitt þar ytra og að kosta mig á þriggja mánaða kokka- skóla þar.“ En hvernig skyldi svo líf Fjólu hafa gengið eftir að hún missti maka sinn og baráttufélaga eftir áratuga sam- veru? „Ég segi stundum: „Sama rósin sprettur aldrei aftur, þótt önnur fegri skreyti veginn þinn.“ Ég má þakka fyrir öll góðu árin sem við Ólafur Steinar áttum saman, slíkt er ekki sjálfgefið. Eftir að hann dó hef ég haldið mínu striki og rekið mína búð. Ég hef unnið mikið og þannig komst ég fram úr sorginni sem óneitanlega sest að þeim sem missa ástvini sína. Eftir að Ólafur Steinar dó seldi ég húsið okkar – sem ég er ekki enn bú- inn að segja þér frá að við keyptum,“ segir hún. Ég rek upp stór augu. „Bjugguð þið þá ekki það sem eftir var í Seljugerði?“ spyr ég. „Ekki aldeilis. Við bjuggum nefni- lega ekki þar nema í 6 ár. Við keypt- um stórt gamalt hús í Þingholtunum og gerðum það allt upp og útbjuggum svo þriggja herbergja íbúð í kjallar- anum sem við leigðum út,“ segir Fjóla. „Forsaga þess að við keyptum þetta hús var sú að Axel Thorsteins- son fréttamaður, þá kominn á níræð- isaldur, kom í bankann til mín árið 1979 og sagðist vera að selja íbúð á Flókagötu. Hann leitaði ráða hjá mér og ég fyrir hann hjá fasteignasala. Um leið spurði ég fasteignasalann hvort hann ætti ekki eitthvað skemmtilegt í Þingholtunum fyrir mig. Jú, hann vissi um hús á horninu á Njarðargötu og Laufásvegi sem yrði senn selt, húsið hans Þorsteins heitins Þorsteinssonar hagstofu- stjóra. Við hjónin urðum mjög áhuga- söm, Ólafur hafði verið þarna í skrift- arkennslu sem barn hjá Guðrúnu Zoëga konu Þorsteins. Þetta var vel byggt hús, frá 1926, en þarfnaðist endurbóta. Við keypt- um þetta hús 1980 og seldum þá húsið í Seljugerði. Við seldum það á 5 millj- ónum króna hærra verði á gamla genginu en við keyptum gamla húsið á og höfðum því fé til að gera hinar nauðsynlegu endurbætur. Eftir að Ólafur Steinar dó fannst mér ég ekkert hafa við svona stórt hús að gera. Ég seldi það því og keypti mér íbúð hér yfir búðinni minni við Skólavörðustíg og hef breytt henni mikið. Skömmu síðar keypti ég miðhæðina í Þverholti 7, þar áttum við sem áður sagði jarð- hæðina og efstu hæðina fékk Ólafur í arf. Húsið er því allt á einni hendi nú og er leigt út að mestu. Ég hef alltaf fylgst vel með fasteignamarkaðinum en verðbréfamarkaðinn hef ég ekki sett mig inn í. Synir mínir báðir hvöttu mig til að kaupa verðbréf en ég held mig við fasteignirnar. Að breyta og bæta er mitt líf og yndi Ég hresstist við þessi viðskipti öll og er nú full framkvæmdavilja. Ég hafði á sínum tíma keypt húsnæðið sem búðin er í og við sitjum í núna, nýlega keypti ég svo götuhæðina hér við hliðina á mér á Skólavörðustíg sem ég ætla að nýta mér sem lager- pláss, – þannig að þú sérð að ég er alls ekki hætt að breyta og bæta, þetta er nú einu sinni mitt líf og yndi í bland við antikverslunina,“ segir Fjóla og skenkir mér meira kaffi í gamla mokkabollann. „Þú hefur aldeilis verið dugleg og hugmyndarík, þú létir nú víst ekki húsnæði standa óinnréttað árum saman, þótt lítið væri,“ segi ég. „Ertu með slíkt húsnæði?“ svarar Fjóla og það kemur glampi í augu hennar. Þegar ég játa treglega teygir hún sig umsvifalaust eftir símanum og hringir í vin sinn, iðnaðarmann sem oft hefur verið henni betri en enginn í öllu framkvæmdaannríkinu. Áður en við er litið er ég komin í slagtog með þessum ágæta manni, farin að ráðs- laga við hann í símann um mögulegar framkvæmdir, sem Guð má vita hvar og hvernig enda. „Þú lætur mig endilega fylgjast með,“ segir Fjóla við mig full áhuga meðan ég tygja mig til farar. „Heldur þú að allan þinn fram- kvæmdavilja megi rekja til þess að þú ólst upp í kjallara,“ segi ég áður en ég kveð. „Það var ekki bara kjallarinn. Við vorum í sannleika mjög fátæk. Faðir minn var sextugur ekkjumaður og móðir mín fertug þegar þau kynntust. Pabbi hafði þá komið upp fjórum börnum sínum af fyrra hjónabandi og einu fósturbarni en móðir mín átti tvær eldri dætur áður en hún eign- aðist okkur tvær alsysturnar. Ég var sú yngri þeirra, móðir mín var 44 ára þegar ég fæddist og faðir minn 64 ára. Pabbi var áður bóndi á Dverga- steini í Álftafirði en stundaði verka- mannavinnu eftir að hann flutti hing- að suður. Hann vann við flugvallar- gerðina og reri líka með frændum sínum til fiskjar. Við höfðum því oft- ast fisk, – ekki veitti af. Við leigðum og móðir mín fór á fæt- ur um miðjar nætur til að þvo þvotta fyrir nokkrar fjölskyldur hér í borg. Fátækt er ekki góð þegar hún er orð- in sár. Nýtnin hefur fylgt mér Pabbi var skemmtilegur maður sem sagði vel frá. Hann var verulega vandaður maður til orðs og æðis. Aldrei man ég eftir að það hafi fallið styggðaryrði milli foreldra minna alla tíð sem þau voru saman, heimilis- bragurinn hjá okkur var alltaf hlýr og notalegur. Foreldrar mínir urðu bæði langlíf, hann varð níræður og hún 95 ára. Móðir mín var annáluð dugnaðar- kona mjög þrifin, vandvirk og nýtin og reglusemin á heimilinu mikil. Ég lærði þetta allt saman og krakkarnir mínir hafa stundum skemmt sér yfir nýtni minni. Þetta hefur fylgt mér. Það var stundum hlegið að því í bankanum þegar maður einn kom og kvartaði yfir að geta ekki borgað skuldir sínar. „Ég á svo stóra fjölskyldu, fimm börn,“ sagði hann. „Af hverju takið þið ekki innúr?“ sagði ég. „Taktu inn úr sjö, þá færðu blóð- mör og lifrarpylsu, svið, hjörtu og nýru, þú átt þetta allan veturinn. Byrjaðu á þessu,“ sagði ég og mað- urinn fór með það. Ég tók alltaf innúr áður fyrr og bar slátrið heim, við áttum þá ekki bíl og hefði ég tekið leigubíl hefði ágóðinn orðið rýr.“ Ég er ánægð núna „Ég er ánægð núna, ég hef gert margt af því sem mig langaði til,“ seg- ir Fjóla. „Sjálfsbjargarviðleitnin hefur skil- að mér langt. Hún magnast með þeim sem búa við kröpp kjör. Þegar aðrar stelpur ýttu á undan sér fallegum dúkkuvögnum dró ég á eftir mér skó- kassa sem ég lét lokið snúa upp á og setti svo einhverja tusku yfir. Vinkon- ur mínar eignuðust allar hjól, ég fékk ekki sjálf hjól, en systir mín var í vist og gat keypt sér hjól fyrir sumarlaun- in sín, ég fékk það lánað. Þetta bjarg- aðist. Ég vil taka fram að við syst- urnar vorum alltaf fallega klæddar hjá móður okkar. En ég viðurkenni að ég þurfti oft að vera úrræðagóð á þessum árum og stundum varð ég líka fyrir sárum vonbrigðum. Kona ein bað mig einu sinni að hjálpa sér að gera hreint í stað móður minnar sem var veik. Ég beið eftir að fá borgað eins og mamma fékk fyrir sín verk. Ég var búin að horfa mikið í gluggann hjá K.Einarsson &Björnsson, á spjald með hlutum á sem mig langaði til að eignast, – en peningarnir komu aldrei og spjaldið ekki heldur,“ segir Fjóla. „Það er langt á milli þess að vera nískur og útsjónarsamur. Fátæktin gerði mig sem betur fer ekki beiska eða níska, hún gerði mig útsjónar- sama og hugmyndaríka og fyrir það er ég þakklát. En ég hef alltaf átt ansi erfitt með að þiggja, það er sennilega stoltið frá fátæktarárunum sem ég hef aldrei alveg gleymt. Ég gæti sagt þér margt, Guðrún mín …“ Mér bregður þegar ég sé að þessi glaðlega og sterka kona er við það að vikna þegar hún lætur hugann reika inn í kjallarann í Skerjafirðinum, þar sem allt var vissulega hreint, – það litla sem til var. „Auðvitað hefði ég viljað hafa sumt öðruvísi þá en núna finnst mér hins vegar að það sem ég fékk hafi verið mikilvægt þegar upp er staðið, – og það var auðvitað líka oft mjög gaman. Við bjuggum skammt frá Tívolí og þangað leitaði hugur minn og Ástu vinkonu minnar. Til að komast þar frítt inn útbjuggum við Ásta kaffi- brauð og kaffi á brúsa og gáfum vörð- unum, svona vorum við sniðugar. Við æfðum íþróttir og vorum stofnfélagar þegar Halldór fisksali stofnaði Þrótt, við Ásta spiluðum þar handbolta. Við syntum líka í sjónum á sumrin í Skerjafirðinum – og margt fleira var skemmtilegt hjá okkur vinkonunum. Það er gleðilegt til þess að hugsa að allar komumst við ágætlega áfram í lífinu, vinkonurnar þrjár. Ég er ánægð með mitt hlutskipti í lífinu, – þó erfði ég ekki neitt nema gleraugun hennar móður minnar – og þau nota ég enn.“ Morgunblaðið/RAX Fjóla Magnúsdóttir í verslun sinni Antikhúsinu við Skólavörðustíg. Fjóla þarf oft að láta gera við húsgögnin sem hún kaupir. gudrung@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.