Morgunblaðið - 17.04.2003, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 17.04.2003, Qupperneq 26
26 C FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Fer FYRIR nokkru birti Lesbók Morgunblaðsins grein eftir mig þar sem ég velti því fyrir mér hvort hag- fræðikenningar væru prófanlegar. Ég vitnaði grimmt í kappa á borð við John Dupré og Hans Albert sem efa að svo sé. Það fylgir svo sögunni að frjálshyggjumenn tala digur- barkalega um að kenningar þeirra séu í anda hinnar hávísindalegu hagfræði. Vandinn er bara sá að um vísindaleika þeirra fræða má deila. Alltént fæ ég ekki séð að hægt sé að prófa þá kenningu að frjáls mark- aður muni leiða til efnalegrar kjör- stöðu þegar til langs tíma er litið. Þessari kenningu er nefnilega alltaf hægt að bjarga fyrir horn: Versni kjörin í frjálsu markaðssamfélagi getur frjálshyggjumaðurinn alltaf sagt: „Þetta er tímabundið ástand og alls ekki sök markaðarins, þegar til lengdar lætur munu kjör allra batna.“ Eins og skáldið Steinn Steinarr yrkir „…Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til, því það er nefni- lega vitlaust gefið“. Það er gefið fyr- irfram að frjáls markaður sé æv- inlega leiðin til hagsældar. Ekki eru allir hagfræðingar sammála þessu (nema í draumaheimi íslensku frjálshyggjunnar þar sem allir máls- metandi menn eru sammála henni). Nóbelshafinn Joseph Stiglitz segir að frjáls markaður geti aðeins leitt til efnalegrar kjörstöðu ef allir ger- endur á markaðnum hefðu full- komna yfirsýn yfir alla kosti. Slíkt er nánast útilokað, því muni frjáls markaður aldrei leiða til kjörstöðu. Starfsbróðir Stiglitz, John nokkur Kay, segir í dálki sínum í The Fin- ancial Times að frjálshyggjustefnan hafi ekki gefið góða raun í Nýja Sjá- landi. Þar í landi hafa menn á síð- ustu tuttugu árum gengið lengra í frjálshyggjuátt en annars staðar á hnettinum. Ríkisfyrirtæki hafa verið einkavædd í stórum stíl og velferð- arkerfið hefur nánast horfið. Svo er seðlabankinn sjálfstæður og ekki háður stjórnmálamönnum. Í ofaná- lag hafa samningar á vinnumarkaði verið gerðir því sem næst að einka- máli atvinnurekenda og starfs- manna. Samt hafa lífskjör versnað til muna, árið 1965 voru lífskjör Nýsjálendinga fjórðungi betri en í meðallöndum Vestursins. Í dag eru meðaltekjur bara 62% af tekjum þróaðra ríkja. Þess utan hefur fram- leiðnin aukist minna en í öðrum þró- uðum ríkjum. Einkavædd raf- magnsfyrirtæki veita lélega þjónustu og fyrsta sinn í sögunni er umtalsvert atvinnuleysi í landinu. Kay segir að ekki sé hægt að afsaka ástandið með því að segja það tíma- bundið eða að það stafi af ytri orsök- um. Frjálshyggjutilraunin hefur staðið nógu lengi til að hægt sé að dæma hana. The Economist maldar í móinn og telur að ekki hafi verið gengið nógu langt í frjálshyggjuátt. Auk þess er Nýja Sjáland langt frá öðrum lönd- um og því sé samkeppnisaðstaða íbúanna erfið, gagnstætt t.d. Finn- um. En var Nýja Sjáland nærri öðr- um löndum þegar landið var þriðja ríkasta land veraldarinnar og hálf- sósíalískt? Hafa blaðamenn breska frjálshyggjutímaritsins ekki upp- götvað að Finnland Nókíusímans og hagvaxtarins er sósíaldemókratískt velferðarríki? Það er litlum vafa undirorpið að einhvers konar markaðskerfi er að jafnaði betur fallið til að skapa mönnum sæmileg kjör en önnur kerfi. En það þýðir ekki að bein fylgni sé milli markaðsfrelsis og hagsældar nema náttúrulega í óprófanlegum kennikerfum frjáls- hyggjunnar. Þessa mega kjósendur minnast þegar þeir ganga að kjörborðinu í næsta mánuði. Þeir ættu að hugsa um örlög Nýsjálendinga áður en þeir krota X við D-listann, lista ís- lenskra frjálshyggjumanna, nýsjá- lenska listann. Nýja-Sjáland, hagsæld og markaður Eftir Stefán Snævarr „Kjósendur mega minn- ast Nýja- Sjálands þegar þeir ganga að kjörborðinu í næsta mánuði.“ Stefán Snævarr er prófessor í heim- speki við Háskólann í Lillehammer. RÍKISSTJÓRNIN er að koll- sigla sig á sjávarútvegsstefnunni. Það er að koma betur og betur í ljós að óánægja kjósenda með gjafakvótakerfið reytir nú atkvæð- in af ríkisstjórnarflokkunum. Þau hrynja hraðar en haustlauf í roki svo næstum má heyra skrjáfið. Nýjasta skoðanakönnunin um kvótakerfið sýnir að 80% lands- manna eru á móti því. Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins á dögunum kom fram ein upplýsing öðrum merkari í opnunarræðu for- manns. Það er yfirlýsing um veð- hæfi sjávarútvegsins. Þar sagði formaðurinn, að yrðu veiðiheimildir skertar um 10% árlega mundi veð- hæfi sjávarútvegs hrynja, ekki smám saman heldur samstundis. Þetta er mjög merkileg yfirlýs- ing, og efalaust rétt. Hún sýnir í fyrsta lagi að sjávarútvegurinn er á fullu að veðsetja sameign þjóð- arinnar upp í eigin fjárþörf. Þá sýnir hún líka að þessi sameign er eina lausa veðið sem sjávarútveg- urinn hefur, annars mundi veðhæf- ið ekki hrynja við það eitt að missa gjafakvótann. Aðferðin til að gera þetta hefur verið sú að læða kvóta- verðmætinu inn í tryggingaverð- mæti fiskiskipa. Þannig er hægt að veðsetja fiskiskip með góðann gjafakvóta langt upp fyrir skor- stein og mastur. Veðhæfið er langt umfram endurnýjunarverðmæti skipanna. Sjávarútvegurinn hefur safnað gífurlegum skuldum á undanförn- um árum. Þegar skuldir sjávarút- vegsins eru orðnar svo háar að enginn getur borgað þær, munu fjármálastofnanirnar reyna að hanga á veðinu og greiða úr mál- unum með sínum aðferðum. Á meðan verða togararnir bundnir úti á sundum eins og gömlu síðu- togararnir voru þegar þeir lentu í þessari stöðu á sínum tíma. Það ráð sem var gripið til þá, var að tæma bankainnistæður lands- manna í gífurlegu verðbólguflóði og kaupa fyrir þá peninga nýja togara. Þetta eru skipin sem lentu hjá sægreifunum, með viðkomu í nokkrum bæjarútgerðum. Er þetta það eina sem landsfeður sjá í þess- ari stöðu? Formaður Sjálfstæðisflokksins hræðist greinilega þessa sýn og vill forðast þetta ástand í lengstu lög. Hann er greinilega þeirrar skoð- unar að alger efnahagsleg koll- steypa vofi yfir þjóðfélaginu ef þetta gerist. En þarf svo að vera? Í raun og veru ekki. Það sem gerðist hér áður var að bátarnir héldu áfram að fiska og reyndust full- færir um að taka þann afla sem togarar áður tóku og vel það. Það er búin að vera mikil barátta hjá togaraútgerðinni að ná þessum afla aftur af bátunum. Núna hefur orðið mikil tæknileg framför í bátaveið- um, sérstaklega „handfæraveið- um“, sem í raun eru ekki hand- færaveiðar lengur heldur veiðar með hálfsjálfvirkum rúllum. Sá floti lítilla báta sem gerður er út í dag fer létt með að fiska upp botn- fiskkvótann. Þeir sem eru í upp- sjávarfiski á annað borð geta hald- ið því áfram og munu gera með sínum kvóta. Það er mikil umhverfisbót að hverfa frá togveiðum. Um skað- semi togveiða má lesa á http:// www.fishingnj.org/dirtrawl.htm. Auk þess eru fyrirliggjandi miklar upplýsingar um að botnvarpan og röng notkun annarra netveiðar- færa valdi úrvali sem leiðir til stór- lega skertrar veiðirentu og afla. Áætla má að togaraflotinn valti yfir 50.000 ferkílómetra af hafsbotni á hverju ári og skaðsemi slíkrar meðferðar fyrir lífríki hafsbotnsins er hrikaleg. Spurningin er, hvort það sé ekki veiðarfærið botnvarpan sem á stærsta sök á því hvernig komið er fyrir botnfiskstofnum á norðurhveli, þar á meðal einum 20 þorskstofnum. Hvað skeður ef togaraflotinn er bundinn? Í fyrsta lagi kemur fisk- urinn þá á land og skapar meiri at- vinnu. Í öðru lagi er fiskurinn ferskari og verðmætari vara og getur verið uppistaðan í góðum flugfiski. Í þriðja lagi snarlækkar útgerðarkostnaður þegar afli dag- róðrabáta eykst frá þetta 60 þ. t/ ári í 200 þ. t/ári. Í fjórða lagi þarf ekkert kvótakerfi ef byggt er á léttum veiðarfærum. Í fimmta lagi er kominn atvinnuvegur (bátaút- gerð) sem þarf að dreifa sér um allt land til að ná árangri, tilveru- réttur landsbyggðarinnar er kom- inn aftur. Gamli veruleikinn á ekki að koma aftur. Þetta á við um stór skip, langar útivistir, gamlan vinnslufisk, leiðinlega og blauta færibandavinnu fyrir erlendan inn- fluttan vinnukraft. Nútíma smáskip geta landað daglega eða eftir mjög skamman tíma og aflann má vinna eftir hendinni og setja í gáma til útflutnings, daglega með flugi. Þessi kvóti sem leyft er að taka er svo lítill að hans vegna er engin ástæða til að halda úti togaraflota sem líkist mest gereyðingarvopni fyrir lífríki hafsbotnsins. Þetta eru kjósendur farnir að láta sér skiljast. Landsbyggðar- menn skilja í vaxandi mæli að það er bátaútgerð sem tryggir atvinnu- lífið á landsbyggðinni en ekki út- gerð frystitogara sem í raun má al- veg eins gera út frá einhverri höfn í Evrópubandalaginu eins og hér. Eiginlega er engin vissa fyrir því hvað gerist á frystiskipum langt úti í hafi. Hver er nýtingin og aukaafl- inn, hvað verður um verðminni teg- undir, hver er afskurður og brott- kast á fiski sem passar ekki í flökunarvélarnar vegna þess að hann er of stór eða lítill? Það er engin ástæða til að óttast um atvinnulífið ef togararnir missa gjafakvótann og veðhæfnina. Rök eru til fyrir því að aflinn hrynji um 100 þúsund tonn á ári á næstu ár- um ef haldið verður áfram á akrein gjafakvótans, sú kollsteypukenning er miklu sennilegri. Það sem þarf að gera er að stöðva veðsetninguna á sameign þjóðarinnar og breyta veiðisókn. Þá má hlutur neytenda ekki gleymast. Þeir finna í vaxandi mæli fyrir því að helsta matvara Íslendinga, fiskurinn, hefur hækk- að upp úr öllu valdi. Ætla má að kvótaverðið standi þar undir um 300 króna hækkun. Skiptir þar miklu að margir af þeim sem veiða fyrir heimamarkað eru kvótalausir og verða að leigja kvótann á upp- sprengdu verði, því baráttan um eignarhaldið á gjafakvótanum hef- ur keyrt kvótaverðið upp fyrir öll efnahagsleg mörk. Skuldaaukning útgerðarinnar sýnir það best, hún stafar að miklu leyti af útgjöldum til að kaupa aftur kvóta þeirra sem hverfa úr útgerð. Það er efnahagsleg nauðsyn og siðlegt sanngirnismál, nauðsynleg ráðstöfun í umhverfismálum og al- gert þjóðfélagslegt réttlætismál að takast á við gjafakvótann. Og það þarf að gerast núna. Kollsigling á fullri ferð Eftir Jónas Elíasson „Sjávar- útvegurinn er á fullu að veðsetja sameign þjóðarinnar upp í eigin fjárþörf.“ Höfundur er prófessor við verkfræðideild Háskóla Íslands. STJÓRNMÁLAMENN með slæma samvisku hafa nú, eina ferð- ina enn, brugðið á það ráð að halda því blákalt fram að kaupmáttur lægstu bóta hafi hækkað langt um- fram almennan kaupmátt í landinu. Sannleikurinn er hins vegar sá að frá marsmánuði 1995 til marsmán- aðar 2003 hefur kaupmáttur al- mennra launa aukist 50% umfram kaupmátt grunnlífeyris og óskertrar tekjutryggingar. Á þessu 8 ára tímabili hækkuðu grunnlífeyrir og tekjutrygging ör- yrkja úr kr. 37.360 í kr. 60.123 eða um 61%. Á sama tíma hækkuðu laun almennt um 75% og vísitala neyslu- verðs um 32%. Þetta þýðir m.ö.o. að á meðan kaupmáttur launa hefur aukist um 33% hefur kaupmáttur lægstu bóta aukist um 22%. (Sjá Staðtölur Almannatrygginga fyrir árið 1995 og vefsíðu Hagstofu Ís- lands.) Með þeirri einföldu þumalfingur- reglu að deila í hækkun bóta með neysluverðsvísitölu meðaltekju- mannsins og horfa algerlega framhjá öðrum ytri veruleika, má með illum ásetningi halda því fram að „kaupmáttur“ einhleypra öryrkja hafi aukist umfram almennan kaup- mátt – jafnvel þótt engin raunhæf dæmi finnist þar um. Hér væri þá um að ræða þá öryrkja sem eru ein- ir um heimilishald og njóta sér- stakra viðbótargreiðslna til að rísa undir því óhagræði. Þeir sem hafa samvisku og smekk til að nota þetta á kjósendur gæta sín flestir á að tala eingöngu um kaupmátt en alls ekki kaupmátt ráð- stöfunartekna eins og venja hefur verið. Ástæðan er einföld. Fyrir 8 árum gat þessi hópur öryrkja, sem ekkert hefur nema strípaðar bætur almannatrygginga, drýgt kjör sín um rúmar 7 þúsund krónur án þess að sú viðbót væri skattlögð. Nú má hann hins vegar sæta þeirri ný- breytni að fá einungis í hendur tæp 90% af hinum svokölluðu bótum. Mismuninum er haldið eftir, m.a. til að létta sköttum af ráðamönnum og öðru hátekjufólki. Þótt ekki kæmi annað til en ofan- greind öfugþróun í skattamálum, nægir hún ein og sér til þess að kaupmáttur umrædds hóps er 7 prósentustigum frá því að ná al- mennri kaupmáttarþróun. Þá er eft- ir að geta þess að inní þeirri hækk- un sem einhleypir öryrkjar hafa fengið er sérstök hækkun sem ætlað var að mæta afnámi niðurfellingar á afnotagjaldi útvarps og síma. Verð- ur þessi staðreynd enn naprari þeg- ar til þess er litið að vegna aukinnar tæknivæðingar lætur nærri að sím- kostnaður hafi þrefaldast á undan- gengnum árum, og þarf ekki að hafa mörg orð um að notkun heimasíma og tölvu er öryrkjum miklu brýnna samgöngumál en flestum öðrum – gjarnan ein helsta og mikilvægasta leið þeirra til samskipta við um- heiminn og annað fólk. Þá hefur það einnig dregið úr kaupmætti öryrkja hvernig lyfja- og sjúkrakostnaður af margvíslegum toga hefur aukist, styrkir til bif- reiðakaupa lækkað að raungildi og fækkað mjög hlutfallslega, auk þess sem hagstæð lán til bifreiðakaupa hafa algerlega verið afnumin. Nauðsynlegt er að hafa í huga að neysluverðsvísitala Hagstofu Ís- lands endurspeglar vitaskuld ekki útgjaldamynstur þeirra sem fátæk- astir eru, enda ekki ætlað að gera það. Vægi óhjákvæmilegra nauð- þurfta á borð við húsnæði vegur t.d. mjög þungt í útgjöldum öryrkjans, en sá kostnaðarliður hefur hvorki meira né minna en tvöfaldast á ein- ungis 6 árum. Þetta gríðarlega högg, eitt og sér, gerir í mörgum til- vikum meira en að þurrka út allar hækkanir á lífeyrisgreiðslum til ör- yrkja. Að öllu samanlögðu má lesendum ljóst vera að raunveruleg kaupgeta einhleypra öryrkja, sem einungis njóta bóta almannatrygginga, hefur að sjálfsögðu ekki aukist í neinni lík- ingu við þær prósentur sem fengnar eru út með einfaldri deilingu í al- geru tómarúmi. Hér hefur a.m.k. verið bent á nokkur þau atriði sem skýra þá vaxandi neyð og örvænt- ingu sem hjálparstofnanir og aðrir sem einhver kynni hafa af veru- leikanum eru sammála okkur um að er hlutskipti allt of margra í okkar ríka en stöðugt stéttskiptara þjóð- félagi. Þrátt fyrir það sem hér er rakið hafa ýmsar jákvæðar og mikilsverð- ar réttarbætur náð fram að ganga á síðustu fjórum árum, fyrst fyrir til- styrk dómstóla, síðan með beinu og milliliðalausu samkomulagi. Fyrir hönd Öryrkjabandalags Íslands skora ég á frambjóðendur stjórn- arflokkana að vísa heldur til þess góða sem gerst hefur í stað þess að efna til ófriðar um kaupmáttarauka sem á sér ekki stoð í veruleikanum. Frambjóðendur, ekki meir, ekki meir! Eftir Garðar Sverrisson „Þrátt fyrir það sem hér er rakið hafa ýmsar já- kvæðar og mikilsverðar réttar- bætur náð fram að ganga á síðustu fjórum árum…“ Höfundur er formaður Öryrkjabandalags Íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.