Morgunblaðið - 17.04.2003, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 C 37
Matreiðslumaður
Veitingahúsið Tilveran, Hafnarfirði, óskar að
ráða matreiðslumann. Vaktavinna.
Uppl. veitir Örn í síma 565 5250 eða 898 5250.
Grunnskólakennarar
Vilt þú kenna í góðum skóla, vinna með
frábæru starfsfólki, með hæfilega marga
nemendur og vinnuaðstöðu sem er eins
góð og hægt er að hugsa sér?
Okkur í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar vantar kenn-
ara í eftirtaldar kennslugreinar næsta skólaár:
Kennslu yngri barna, dönsku, mynd- og hand-
mennt, heimilisfræði, sérkennslu og upplýs-
inga- og tæknimennt ásamt umsjón með tölvu-
kerfi skólans.
Grunnskólinn er einsetinn með um 100
skemmtilega nemendur og fjölbreytt skóla-
starf. Kennarar eru 14 auk skólastjóra og að-
stoðarskólastjóra.
Flutningur á staðinn er greiddur og húsaleiga
á sérstökum kjörum.
Upplýsingar gefur Þórhildur Helga Þorleifsdótt-
ir skólastjóri í símum 475 1224, 483 3551 og
822 3151. Netfang er helga@gf.is
Við viljum vekja athygli á heimasíðu Búða-
hrepps: www.faskrudsfjordur.is og heima-
síðu Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar:
www.faskrudsfjordur.is/gsfask/
Þekkt kvenfataverslun
óskar eftir kraftmiklum starfskrafti til sölustarfa
í 50% starf eftir hádegi.
Umsóknir sendist til augldeildar Mbl. eða á
box@mbl.is, merktar: „Sölumennska—13579.“
Laus er til umsóknar staða skólastjóra
Hlíðaskóla
Hlíðaskóli er grunnskóli með tæplega 600 nemendur
í 1.-10. bekk. Í skólanum er táknmálssvið. Þar fer
fram samþætt nám heyrnarskertra og heyrandi
nemenda, auk þess sem þaðan er veitt ráðgjöf
vegna heyrnarlausra og heyrnarskertra nemenda á
öllu landinu.
Í Hlíðaskóla er mikil áhersla lögð á listir og verklegar
greinar og er skólinn nú móðurskóli í list- og
verkgreinum. Hlutverk móðurskóla í Reykjavík er að
vera í fararbroddi á viðkomandi sviði og veita öðrum
skólum ráðgjöf.
Meginhlutverk skólastjóra er:
stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri
skólans
veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og
þróunar í skólastarfi
Leitað er að umsækjanda sem:
hefur stjórnunarhæfileika og reynslu af stjórnun
er með kennaramenntun. Framhaldsmenntun á sviði
stjórnunar, uppeldis- eða kennslufræði æskileg
hefur reynslu af kennslu og vinnu með börnum og
unglingum og er lipur í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar veitir Ingunn Gísladóttir starfsmannastjóri á
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, ingunng@rvk.is. sími 535 5000,
Staða skólastjóra Hlíðaskóla
Staðan er laus frá 1. ágúst nk. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og störf, gögn er varða frumkvæði á sviði skólamála auk annarra gagna
sem málið varða. Umsóknarfrestur er til 5. maí 2003. Umsóknir sendist á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 1.
Laun eru skv. kjarasamningi LN og KÍ.
Reykjavíkurborg leggur áherslu á þróun skóla í átt til einstaklingsmiðaðs náms, samvinnu nemenda og
skóla án aðgreiningar. Auk þess er lögð áhersla á að styrkja tengsl skóla við grenndarsamfélagið.
Grunnskólar
Reykjavíkur
Kennarar
Við barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri
eru lausar til umsóknar tvær stöður í almennri
kennslu og umsjón á yngsta og elsta stigi.
Umsóknarfrestur til 5. maí.
Upplýsingar gefur skólastjóri netfang:
harpae@ismennt.is, símar 483 1538, 483 1263
og 864 1538.
Menntaskólinn
í Reykjavík
Kennarar
Menntaskólinn í Reykjavík auglýsir eftir
framhaldsskólakennurum (sbr. lög nr. 86/1998)
næsta skólaár til kennslu í eftirtöldum náms-
greinum:
Íslensku (1 staða)
Eðlisfræði (1/2 staða)
Efnafræði (2 stöður)
Íþróttum pilta (stundakennsla 6—10 stundir)
Jarðfræði (1 staða)
Sálfræði, lífsleikni og félagsfræði (2/3 staða)
Stjörnufræði (1/2 staða)
Stærðfræði (3 stöður)
Tölvufræði (1 staða)
Einnig er auglýst eftir starfsmönnum í eftirfar-
andi störf:
Kerfisstjóri (1 starf)
Kerfisstjóri sér um daglegan rekstur og upp-
setningu á tölvukerfi skólans, gerir áætlun um
tölvu- og hugbúnaðarkaup, annast uppsetn-
ingu á tölvum og hugbúnaði, sér um rekstur
á símkerfi skólans og annast skjávarpa, fylgist
með nýjungum í kennslu-hugbúnaði og kynnir
kennurum, aðstoðar starfmannastjóra með
endurmenntun starfsmanna, aðstoðar við
námskeið um námsefnisgerð og aðstoðar
gæðastjóra við kannanir gegnum tölvunet skól-
ans.
Umsjón með kaffi starfsmanna
(2/3 starf)
Starfsmaður sér um kaffi og léttan hádegisverð
fyrir starfsmenn skólans.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála-
ráðherra annars vegar og Kennarasambands
Íslands eða viðeigandi stéttarfélags hins vegar.
Umsóknarfrestur er til mánudagsins 5. maí
2003. Ráðningartími er frá 1. ágúst 2003. Ekki
þarf að sækja um á sérstökum umsóknareyðu-
blöðum, en í umsókn þarf að greina frá mennt-
un, fyrri störfum og öðru því sem umsækjandi
telur máli skipta. Umsóknir, ásamt staðfestu
ljósriti af prófskírteinum, skal senda Yngva Pét-
urssyni, rektor Menntaskólans í Reykjavík.
Nánari upplýsingar fást hjá rektor og konrektor
í síma 545 1900. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um
ráðningu. Umsókn getur gilt í sex mánuði frá
því að umsóknarfresti lýkur.
Upplýsingar um skólann er að finna á heima-
síðunni http://www.mr.is.
Rektor.
Menntaskólinn í Reykjavík
www.mr.is
Lækjargötu 7, 101 Reykjavík,
sími 545 1900 — fax 545 1901.