Morgunblaðið - 17.04.2003, Side 40
40 C FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ sjást engir útlendingarhvað þá ferðamenn hér,því vegna stríðsins hérnarétt við bæjardyrnartöldu menn ekki rétt að
hætta á slíkt. Við fyrstu sýn er allt í
rjómakyrrð og ég fór að heimsækja
karlana mína á netkaffinu Delicious.
Þeir urðu glaðir enda var ég prýði-
legur viðskiptavinur hjá þeim fyrr í
vetur. Eigandinn bauð í mat heim til
sín og sagði mér þau gleðitíðindi að
yngri sonur hans, 16 ára hefði fengið
sumarskólavist í Bretlandi í júní en
ég hafði aðstoðað þá feðga við að
finna skóla og senda umsókn.
Í miðbænum var verið að gera upp
gamla járnbrautarstöðvarhúsið og
aðalpósthúsið í borginni. Því er nú
lokið og árangurinn hinn smekkleg-
asti. Mér sýnist líka fleira þess hátt-
ar vera í deiglunni og hugur í mönn-
um að hlúa að borginni til
fegurðarauka.
Öðru hverju settist ég niður og
fékk mér tesopa og talaði náttúrlega
mína arabísku og þá urðu allir svo
kátir að þeir prófuðu að svara á
ensku til að sýna að þeir vildu endi-
lega koma til móts við þessa konu
sem var svona kurteis að hafa lært
duggulítið í tungumálinu þeirra.
Þegar ég kom að litlu matsöluhúsi
þar sem tíu eða tuttugu lögreglu-
þjónar voru að borða miðdegisverð-
inn sinn fannst mér bera vel í veiði
því þar með hlaut maturinn að vera
ódýr – því lögregluþjónar í Sýrlandi
munu hafa afspyrnu léleg laun – og
trúlega góður líka.
Svo þegar ég athugaði matseðilinn
sá ég að þar var ýmislegt góðmeti á
boðstólum, svo sem grilluð kinda-
nýru og hjörtu með frönskum kart-
öflum eða kartöflumús fyrir svona
fimmtíu kall en suma réttina skildi
ég ekki og þjónninn kom mér til
hjálpar og mælti sérstaklega með
rétti sem hann gat með bendingum
niður um sig og með því að þykjast
vera með horn, komið mér í skilning
um að væru hrútspungar, grillaðir
eða soðnir og með kartöflumús eða
frönskum. Kostaði 100 kall. Hreint
sælgæti.
Ég bað afsökunar, eiginlega væri
ég ekki mjög svöng, spurði hvort ég
gæti bara fengið te. Það var auðsótt
og kostaði 10 krónur. En hver veit,
kannski ég ráðist til atlögu við soðna
hrútspunga eða grillaða og kartöflu-
stöppu áður en við er litið.
Grillaðir
hrútspungar að
sýrlenskum hætti
Það var svo ljómandi notalegt að dúrra með rút-
unni til Damaskus eftir að hafa verið í burtu vítt
og breitt um nágrannalönd síðustu röska tvo mán-
uði, skrifar Jóhanna Kristjónsdóttir, sem fer þó
senn að stinga út stefnuna heim á leið.
Dagbók frá Damaskus
SKÓLAMÓT í skák var haldið ný-
lega í Grunnskólanum á Hellu þar
sem saman komu margir áhuga-
samir keppendur úr 5.–10. bekk.
Mótið er liður í skólaskák Skák-
sambands Íslands en sigurvegarar
mótsins taka þátt í sýslumóti sem
fram fer í byrjun apríl í Hvolsskóla
á Hvolsvelli. Úrslitin á skólamótinu
urðu þau að í eldri flokki, úr 8.–10.
bekk, sigraði Arnar Ármannsson
með 5 vinninga en í yngri flokkn-
um, úr 5.–7. bekk, sigraði Jökull
Jóhannsson með 4 vinninga.
Áður en skákmótið hófst færði
Ragnar Pálsson, framkvæmda-
stjóri Glerverksmiðjunnar Sam-
verks, skólanum að gjöf 15 full-
komin taflsett með trémönnum og
klukkum og 10 sett með plast-
mönnum. Töldu menn að vel færi á
því að tileinka mótið gefandanum
og nefna það Samverksmótið. Til-
gangurinn með gjöfinni sagði
Ragnar að væri einkum sá að hlúa
að skákstarfi í skólanum og taka
þátt í að efla skákáhuga sem nú
væri í uppsveiflu víða um land.
Sjálfur er hann einlægur skák-
áhugamaður og var hann skóla-
meistari í skák á sínum tíma og tók
þátt í sýslumóti í framhaldi af því.
Skólastjórinn, Sigurgeir Guð-
mundsson, tók við gjöfinni og sagði
í þakkarávarpi sínu skákina vera
gott mótvægi við alla þá tölvunotk-
un sem ætti sér stað hjá ungmenn-
um og hreyfði hún sannarlega vel
við heilabúinu.
Í vetur hafa áhugasamir nem-
endur skólans sótt æfingar reglu-
lega en leiðbeinandi er Björgvin
Smári Guðmundsson kennari sem
stjórnaði skólamótinu nú.
Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir
Ragnar Pálsson, framkvæmdastjóri Glerverksmiðjunnar Samverks, og
skólastjóri Grunnskólans á Hellu, Sigurgeir Guðmundsson, t.v., reyndu
með sér í skák. Haft var á orði að Ragnar hefði bókstaflega „gefið skák-
ina“. Hjá honum situr sonur hans, Ragnar Páll.
Skólaskákmót í Grunnskólanum á Hellu
Glerverksmiðjan
Samverk gaf töfl
Hellu. Morgunblaðið.
ÁRSÞING HSÞ, það nítugasta í röð-
inni, var haldið í sal stéttarfélag-
anna á Húsavík fyrir skömmu.
Fulltrúar sextán aðildarfélaga áttu
rétt til setu á þinginu og var góð
mæting frá flestum félögum. Meðal
gesta þingsins voru þeir Björn B.
Jónsson, for-
maður UMFÍ,
og Sigmundur
Þórisson,
fram-
kvæmdastjórn
ÍSÍ.
Við þetta
tækifæri voru
íþróttamenn
ársins 2002 hjá
HSÞ kynntir
og þeim afhent
verðlaun. Til-
nefndir voru
Jón Smári Ey-
þórsson glímu-
maður ársins
úr Baldursheimi í Mývatnssveit.
Knattspyrnumaður ársins Pálmi
Rafn Pálmason, Völsungi, sund-
maður ársins kom einnig úr Völs-
ungi, Björgvin Már Vigfússon og
frjálsíþróttamaður ársins var Þor-
steinn Ingvarsson, Ungmennafélag-
inu Einingu í Bárðardal.
Íþróttamaður HSÞ var kjörinn
Pálmi Rafn Pálmason, hann hefur
leikið með Völsungi undanfarin ár
og vakið verðskuldaða athygli.
Hann þykir einn af efnilegustu
knattspyrnumönnum landsins og
hefur verið undir smásjá erlendra
liða, m.a Groningen í Hollandi og
Arsenal. Pálmi Rafn hefur eins og
kunnugt er skipt yfir í KA á Ak-
ureyri og spilar með liðinu í úrvals-
deildinni í sumar. Þeir Pálmi Rafn
og Jón Smári voru báðir fjarver-
andi við keppni í íþróttagreinum
sínum og gátu því ekki sjálfir tekið
við verðlaunum sínum.
Anna Sigrún Mikaelsdóttir, Völs-
ungi, var endurkjörinn formaður
HSÞ til eins árs.
Vel heppnað
ársþing HSÞ
Húsavík. Morgunblaðið.
Þorsteinn
Ingvarsson