Morgunblaðið - 22.04.2003, Page 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MÓTORDRIFNIR drekar sveima
yfir Úlfarsfelli þegar vel viðrar allt
árið um kring. Yfir 40 manns eru í
Svifdrekafélagi Reykjavíkur en
innan vébanda þess eru áhugamenn
um svifdrekaflug, mótordrekaflug
og svifvængi. Félagið á 25 ára af-
mæli á þessu ári og hefur haft að-
stöðu við Úlfarsfell undanfarin ár.
„Við erum auðvitað háðir veðri en
það hefur bara verið svo gott í vet-
ur,“ segir Árni Gunnarsson, for-
maður félagsins. „Meðan það er
ekki snjór á brautinni fljúgum við
eins og við getum.“
Árni segir aðstöðuna við Úlfars-
fellið frábæra. En þar sem borgin
teygir anga sína stöðugt lengra
þarf félagið að finna nýja lóð undir
aðstöðu sína innan fárra ára. Félag-
ið er að sækja um lóð lítið eitt aust-
ar en brautin er nú. Árni segir eft-
irsjá verða að gamla staðnum.
„Þetta er algjör paradís þar sem við
erum núna, nálægt öllu. Það er vont
að þurfa að fara.“
Drekar skráðir og tryggðir
Á síðasta ári tóku lög gildi sem
skylda alla svifflugmenn til að skrá
drekana sína og tryggja. „Þessar
reglur tóku gildi í fyrravor. Við
unnum í þessu með Flugmálastjórn
því þetta eykur öryggi. Menn voru
að fljúga próflausir og meiða sig en
nú sjáum við um alla kennslu og
höldum utan um allt fisflug á Ís-
landi.“
Árni segist hafa verið í mótor-
drekaflugi í yfir tuttugu ár, fyrsta
drekann smíðaði hann sjálfur.
„Sportið sjálft er ekki dýrt, það
þarf bara að kaupa bensín á mót-
ordrekann. En svona græja kostar
um eina og hálfa milljón.“
Í maí hefjast námskeið Svif-
drekafélags Reykjavíkur og verður
kennt á allar gerðir fisa.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðrar vel til
drekaflugs
SVEINN Rúnar Hauksson læknir
hefur ásamt dóttur sinni og syni,
Ingu og Guðfinni, verið í Palestínu
yfir páskahátíðina þar sem þau
heimsóttu meðal annars Lútherska
heimssambandið en íslenskir sjálf-
boðaliðar hafa starfað með þeim
samtökum í Palestínu. Sveinn segir
að þau hafi tekið þátt í hátíðarhöld-
um yfir páskana og meðal annars
fóru þau í Getsemane-garðinn á
skírdag þar sem fjöldi fólks var
kominn saman til kvöldmessu.
„Á föstudaginn langa tókum við
þátt í athöfnum hinna ýmsu kirkju-
deilda þar sem minnst er krossfest-
ingarinnar og gengið frá einni stöð
til annarrar á viðkomustöðum Jesú á
leið hans frá Golgata,“ segir Sveinn.
Hópurinn dvaldi einnig í Ramallah
en Sveinn segir að andrúmsloftið
þar hafi ekki verið jafnþrúgandi og
þegar hann var á ferð þar fyrir um
ári. „Hér eru verslanir opnar, fólk á
götum og eðlilegt mannlíf og þetta
vekur manni von um að fólk rísi allt-
af upp aftur. Maður verður þakk-
látur fyrir eðlilegt mannlíf,“ segir
Sveinn.
Segir andrúmsloftið þrúgandi
Sveinn segir að víðast hvar á
Vesturbakkanum sé andrúmsloftið
þrúgandi og víða ríki algjört út-
göngubann. Hópurinn mun meðal
annars fara til Jenín en á þeim slóð-
um eru Ísraelar að sögn Sveins að
reisa 150 kílómetra langan, háan
steinsteypumúr sem liggur eftir
hinni svokölluðu grænu línu, við
vestanverð landamæri Ísraels og
Palestínu. Meðfram múrnum eru
reistar rafmagnsgirðingar og Sveinn
segir að víða sé farið þónokkuð inn á
svæði Palestínumanna. „Það er
greinilegt eftir kortum sem ég hef
séð að Ísraelsmenn stefna að því að
hreinlega loka Palestínumenn af í
einu allsherjar fangelsi og um leið
skera þeir heilmikið af landi þeirra
þannig að þessi innilokun verður
ennþá sýnilegri og meira afgerandi
en hún er núna. Þeir voru byrjaðir á
þessu þegar ég var hér í fyrra. Þá
ætlaði maður varla að trúa því að
þetta væri að gerast en svona er
þetta,“ segir Sveinn. Hann segir að
Ísraelsmenn áformi einnig að reisa
300 kílómetra vegg austan megin við
Vesturbakkann þar sem seilst verði
enn frekar inn á landsvæði Palest-
ínumanna. „Með því móti verður bú-
ið að múra Palestínumenn inni og
meira að segja borg einsog Jeríkó
verður fyrir utan. Þetta er að verða
hinn nýi Berlínarmúr,“ segir Sveinn.
Íslendingar tóku þátt í helgihaldi
í Palestínu yfir páskana
Aðskilnaðarmúr
á Vesturbakka
KARLMAÐUR um tvítugt
slasaðist alvarlega er hann
féll fram af svölum á íbúðar-
húsi á Akureyri á sunnudags-
kvöld. Er talið að fallið hafi
verið um 7,5 metrar og lenti
maðurinn á malbikuðu plani.
Síðdegis í gær gekkst hann
undir aðgerð á Landspítalan-
um og var haldið sofandi að
sögn lögreglunnar á Akur-
eyri. Maðurinn hlaut töluverð
beinbrot við fallið.
Slökkvilið Akureyrar fékk
tilkynningu um slysið rétt eft-
ir miðnætti aðfaranótt mánu-
dags. Var maðurinn fluttur á
slysadeild Fjórðungssjúkra-
húss Akureyrar og þaðan með
sjúkraflugvél til Reykjavíkur.
Féll fram
af svöl-
um á
Akureyri
FYRIRTÆKIÐ Björgun hefur
ásamt írska fyrirtækinu Celtic Sea
Minerals verið að kanna hagkvæmni
þess að dæla upp kalkþörungum á
Vestfjörðum og reisa þar kalkmuln-
ingsverksmiðju. Sigurður Helgason,
forstjóri Björgunar, segist bjartsýnn
á að úr verkefninu verði en það hafi
verið til skoðunar í um það bil tvö ár.
„Það er margt sem bendir til þess að
þetta verði hægt en við eigum enn
eftir að skoða ýmislegt betur. Þetta
er til dæmis tiltölulega ódýr fram-
leiðsluvara og því viðkvæm fyrir
flutningsgjöldum og flutningskostn-
aði,“ segir Sigurður. Hann segir að
hugmyndin sé sú að reisa verksmiðj-
una á Bíldudal en gera megi ráð fyrir
að 12 manns yrðu þar í vinnu til að
byrja með. „Verksmiðjan myndi lík-
lega byrja á að framleiða um 7 þús-
und tonn á ári en gæti síðar farið upp
í 55 þúsund tonn,“ segir Sigurður.
Hann segir að kalkörungunum yrði
blandað í dýrafóður til kalkgjafar og
til að draga úr sýrumyndun í melt-
ingarfærum en einnig yrði unnið úr
honum í bætiefni fyrir fólk og myndi
framleiðsluvaran aðallega fara á
Bandaríkjamarkað.
Rekstur
kalkmuln-
ingsverk-
smiðju
í skoðun
HÁTT í fjögur þúsund börn ferm-
ast í kirkjum landsins þetta vorið
og voru þessir myndarlegu ung-
lingar meðal þeirra 19 sem fermd-
ir voru í Breiðholtskirkju í Reykja-
vík í gær. Helgihald um páskana
var með hefðbundnu móti og fjöl-
menni í hátíðarguðsþjónustum og
fermingarmessum. Messað var
venju samkvæmt í mörgum
kirkjum landsins á skírdag, föstu-
daginn langa og páskadag. Þá
voru víða fermingarmessur í gær.
Páskadagsmessur eru víða árla
dags, oftast klukkan 8, en sá hátt-
ur er hafður á þar sem upprisa
Jesú er talin hafa átt sér stað við
sólarupprás. Margar kirkjur hafa
tekið upp á þeirri nýbreytni að
bjóða upp á morgunverð að lok-
inni páskadagsmessu og víða koma
árrisulir kirkjugestir með veit-
ingar með sér á morgunverðar-
borðið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölmennt í páska-
og fermingarmessum
VEGNA kosninga til Alþingis er
boðið uppá að kosið sé utan kjörstað-
ar, hérlendis og erlendis. Hér má sjá
Íslendinga við kosningar í Pristína í
Kosovo. Margrét Heinreksdóttir fær
kjörseðil hjá Hjalta Guðmundssyni
flugumferðarstjóra sem útnefndur
hefur verið kosningastjóri í Kosovo.
Kjörstaðurinn er Grand Hotel í
Pristína þar sem Íslendingar hittast
gjarnan á fimmtudagskvöldum.
Verður unnt að kjósa þar næstu
fimmtudaga fram að kosningum.
Íslendingar
kjósa í Pristína