Morgunblaðið - 22.04.2003, Side 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 2003 7
sem yrði opnuð þar sem finna má
ákveðnar grunnupplýsingar.
Eins og fyrr segir felst undirbún-
ingurinn í því að tilgreina í handbók-
um hvað gera á og hver gerir hvað.
Chris sagði stöðvarstjóra til dæmis
þurfa að vita þegar þeir hefja störf á
nýjum stað eða flugvelli hvaða örygg-
isráðstafanir og áætlanir séu fyrir
hendi og hvað þeir þurfi að hafa í
huga eða undirbúa til að geta gert
ráðstafanir á sínum stað. Hann sagði
farið yfir þessi atriði á námskeiðun-
um og hluti þeirra færi síðan í að æfa
viðbrögð við ímynduðu slysi. Áætlun-
in væri kynnt öllum starfsmönnum
og þeir sem hefðu ákveðin hlutverk í
neyðartilvikum fengju að æfa sig í að
hrinda þeim í framkvæmd. Þannig
segja þeir Chris og Einar að farið sé í
öll atriði til þess að allir standi klárir
á sínu og að upprifjunarnámskeið
verði haldin reglulega framvegis.
Nauðsynleg kunnátta
Einar segir að Atlanta sé fyrst ís-
lenskra flugfélaga til að ljúka gerð
áætlunar sem þessarar og að mikil
vinna felist í slíkum undirbúningi.
„Þessi kunnátta verður að vera fyrir
hendi og það er ekki síst mikilvægt
fyrir okkur sem störfum með svo
mörgum flugfélögum að geta sýnt
þeim öllum fram á að þessir hlutir séu
í lagi hjá okkur.“
Komi til flugslyss myndu Einar og
Skúli Jón Sigurðarson, fyrrverandi
formaður Rannsóknarnefndar flug-
slysa, sem nýlega var ráðinn til Atl-
anta, fara á vettvang ásamt fulltrúa
frá RNF auk fulltrúa rannsakenda í
viðkomandi landi ef slys verður er-
lendis. Einar segir að hluti af nám-
skeiðinu hafi falist í því að undirbúa
þá fyrir slíkt verkefni, útbúa töskur
með viðeigandi búnaði og gera ráð-
stafanir vegna skyndilegra útgjalda.
Einar leggur í lokin áherslu á að
þessa vinnu hafi enginn talið eftir sér.
Starfsmenn Atlanta skilji nauðsyn
þess að hafa slíka áætlun á hreinu og
kunna að hrinda henni í framkvæmd.
Það sé grundvallaratriði um leið og
menn voni að ekki þurfi að nota hana
eins og fyrr segir.
ÍSLAND tók í annað sinn þátt í
Evrópuráðstefnunni sem haldin
var í Aþenu í sjöunda sinn á dög-
unum en Gunnar Snorri Gunnars-
son, ráðuneytisstjóri í utanríkis-
ráðuneytinu, sat fundinn fyrir
hönd íslenskra stjórnvalda. Á ráð-
stefnunni var að þessu sinni fjallað
um tengsl Evrópusambandsins við
hina nýju nágranna stækkaðs ESB
í austri og suðri.
Ráðstefnuna sóttu þjóðarleiðtog-
ar og utanríkisráðherrar Evrópu-
sambandsríkjanna núverandi og
verðandi, umsóknarríkjanna
þriggja, þ.e. Búlgaríu, Rúmeníu og
Tyrklands, EFTA ríkjanna fjög-
urra, Króatíu, Bosníu, Serbíu og
Svartfjallalands, Makedóníu, Alb-
aníu, Úkraínu og Moldóvíu. Rúss-
land tók að auki þátt í ráðstefn-
unni og aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, Kofi Annan, var sérstak-
ur gestur að því er kemur fram í
tilkynningu utanríkisráðuneytisins.
Í ályktun ráðstefnunnar var því
fagnað að með stækkun ESB hafi
ríki Evrópu og almenningur náð
mikilvægum áfanga í að tryggja
samfélag byggt á lýðræði, lögum
og virðingu fyrir grundvallarmann-
réttindum og með því skapað for-
sendur fyrir frekari framförum og
öryggi.
Í ræðu sinni á ráðstefnunni
sagði Gunnar Snorri m.a. að tengsl
Íslands við hin löndin í Evrópu
hefðu smám saman orðið nánari,
ekki síst með tilkomu samningsins
um Evrópska efnahagssvæðið sem
hafi gefist vel. „Evrópska efna-
hagssvæðið er nú skilvirkur mark-
aður átján landa og hann ætti að
virka jafnvel þegar löndin eru orð-
in 28. [–] En samband af þessu
tagi getur aðeins lifað og dafnað ef
pólitískur vilji er af hálfu beggja
aðila til þess að virða upphaflegar
skuldbindingar samningsins og
forsendur gagnaðilans,“ sagði
Gunnar Snorri.
ESB- og EFTA-
ríki fagna
stækkun ESB FLÖSKUSKEYTI sem sent var frá Flateyri fyrir rétttæpu ári fannst nýlega í fjörunni á Gálmaströnd við
Steingrímsfjörð á Ströndum. Skeytið var eitt af sjö
flöskuskeytum sem nemendur í þáverandi 4. bekk í
Grunnskóla Önundarfjarðar sendu hinn 19. apríl í
fyrra.
Sverrir Guðbrandsson fann svo skeytið fyrir fáeinum
dögum og Jakob Ingi, sonur hans, sem er í 2. bekk í
Grunnskólanum á Hólmavík kom með það í skólann. Í
skeytinu óskaði sendandi eftir að hringt yrði í skólann
sem bekkurinn hans Jakobs Inga að sjálfsögðu gerði.
Símtalið kom þeim skemmtilega á óvart enda hafði
ekkert frést um afdrif hinna skeytanna sex.
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
2. bekkur í Grunnskólanum á Hólmavík. Efri röð frá
vinstri: Jakob Ingi, Gunnhildur Thelma, Darri Hrannar
og Dagrún. Neðri röð frá vinstri: Benedikt Almar, Arn-
ór og Silja Dagrún.
Flöskuskeyti frá
Flateyri til
Hólmavíkur
Hólmavík. Morgunblaðið.