Morgunblaðið - 22.04.2003, Blaðsíða 14
ERLENT
14 ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
áfram Ísland
Daví› Oddsson Geir H. Haarde
Til fundar vi› flig Ísafjör›ur
firi›judagur 22. apríl
Hótel Ísafjör›ur kl. 20.00
Patreksfjör›ur
firi›judagur 22. apríl
Félagsheimili› kl. 20.00
Á næstu dögum og vikum munu Daví› Oddsson, forsætisrá›herra og forma›ur Sjálfstæ›isflokksins, og Geir H.
Haarde, fjármálará›herra og varaforma›ur Sjálfstæ›isflokksins, ásamt ö›rum flingmönnum og frambjó›endum
Sjálfstæ›isflokksins halda fundi um land allt og heimsækja vinnusta›i.
Vi› hlökkum til a› fá tækifæri til a› kynnast sjónarmi›um flínum, ræ›a vi› flig um flann mikla árangur sem vi›
Íslendingar höfum í sameiningu ná› og hvernig vi› getum best tryggt a› Ísland ver›i áfram í fremstu rö›.
xd.is
YFIRVÖLD í Kína hækkuðu í gær
dánartöluna af völdum heilkennis al-
varlegrar og bráðrar lungnabólgu,
HABL, úr sjö í 92 og tilkynntu ýmsar
ráðstafanir til að stöðva útbreiðslu
sjúkdómsins. Nokkrir sérfræðingar í
málefnum landsins óttast þó að kín-
verska stjórnin hafi brugðist of seint
við faraldrinum. Efnahagslegra
áhrifa hans er þegar farið að gæta í
Kína og nokkrum grannríkjanna og
hagfræðingar telja að nú stefni í að
hann valdi mestu efnahagskreppu í
Suðaustur-Asíu frá fjármálakrepp-
unni fyrir fimm árum.
Að sögn kínverskra yfirvalda hafa
1.959 manns smitast af HABL-veir-
unni og 92 dáið á meginlandi Kína,
þar af 20 í Peking. Í höfuðborginni
einni jókst fjöldi smitaðra úr 40 í 448
um helgina og tala látinna hækkaði í
Guandong-héraði í Suður-Kína og
Innri Mongólíu.
Kínversk dagblöð höfðu í gær eftir
Hu Jintao, forseta landsins, að bar-
áttan gegn HABL-faraldrinum væri
nú forgangsverkefni kínversku
stjórnarinnar. Hún hafði sætt gagn-
rýni í margar vikur fyrir að hafa
brugðist of seint við faraldrinum og
margir Kínverjar hafa kvartað yfir
því að yfirvöldin hafi látið hjá líða að
veita þeim upplýsingar sem væru
nauðsynlegar til að fólk gæti varist
sjúkdómnum.
1. maí-fríi aflýst
Nýjum borgarstjóra Peking, Meng
Xuenong, var vikið úr embætti í gær
fyrir að afla ekki nægra upplýsinga
um faraldurinn. Daginn áður var
Zhang Wenkang heilbrigðisráðherra
rekinn úr öllum embættum sem hann
gegndi í kommúnistaflokknum og bú-
ist er við að honum verði einnig vikið
úr ráðherraembættinu.
Stjórnin kveðst ætla að verja and-
virði 8,4 milljarða króna í ráðstafanir
til að hindra útbreiðslu sjúkdómsins í
fátækum héruðum og í vestanverðu
landinu. Ákveðið hefur verið að loka
tveimur háskólum í Peking í að
minnsta kosti mánuð og skýrt var frá
því á páskadag að vikulöngu fríi í til-
efni af 1. maí hefði verið aflýst með
það að markmiði að koma í veg fyrir
að tugir milljóna Kínverja ferðist og
auki þannig hættuna á að veiran
breiðist frekar út.
Búist er við að kínversk ferðaþjón-
ustufyrirtæki verði fyrir miklu tekju-
tapi vegna þessarar ákvörðunar.
Flugfélög, hótel og önnur fyrirtæki
hafa þegar skaðast vegna viðvarana
stjórnvalda í öðrum ríkjum sem hafa
hvatt fólk til að ferðast ekki til Kína.
„Of seint“
Sérfræðingar í málefnum Kína ótt-
ast að þessar ráðstafanir stjórnarinn-
ar hafi komið of seint og veiran sé að
breiðast út til allra héraða Kína. Jeff
McFarland, veirufræðingur við Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunina, WHO,
sagði ekkert benda til þess að hægt
yrði að koma í veg fyrir að veiran
bærist til héraða sem hafa verið laus
við faraldurinn.
„Þetta er of seint,“ sagði Andrew
Thompson, sérfræðingur í kínversk-
um heilbrigðismálum við rannsóknar-
stofnunina CSIS í Washington.
„Veiran hlýtur að hafa breiðst út til
allra héraðanna, ef ekki gerist það
bráðlega.“
Rannsóknarmenn WHO, sem hafa
fylgst með ráðstöfunum kínverskra
yfirvalda gegn faraldrinum, fóru í
gær til Shanghai, stærstu borgar
Kína, til að skoða rannsóknarstofur,
sjúkrahús og fleiri heilbrigðisstofn-
anir. Yfirvöld segja að aðeins sé vitað
um tvo menn sem smitast hafi af
HABL-veirunni í Shanghai þótt
borgin sé viðskiptamiðstöð landsins
og í miklum tengslum við Hong Kong,
Peking og fleiri borgir þar sem far-
aldurinn hefur geisað.
Faraldurinn var í gær helsta um-
fjöllunarefni kínverskra fjölmiðla,
sem hafa hingað til lítið fjallað um
hann og sumir jafnvel ekkert. Nokkr-
ir þeirra gagnrýndu framgöngu emb-
ættismanna í málinu. „Yfirhylmingin
er skelfilegri en faraldurinn,“ sagði í
forystugrein dagblaðsins Beijing
Star.
Sjúkdómurinn hefur verið skæð-
astur í Guangdong-héraði þar sem
faraldurinn hófst. Greint var í gær frá
fyrstu sjúkdómstilfellunum í Gansu,
fátæku og einangruðu héraði í norð-
vestanverðu landinu, Zhejiang-héraði
í suðausturhlutanum, og héruðunum
Jilin og Liaoning í norðaustanverðu
Kína.
Fulltrúar Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar sögðust hafa áhyggjur af
því að sjúkdómurinn yrði skæður í fá-
tækum héruðum í Kína þar sem
margir íbúanna veigra sér við því að
leita til læknis vegna þess að það er of
dýrt eða hafa engan lækni. Fregnir
hermdu að sjúklingum hefði verið vís-
að úr sjúkrahúsum í fátækum héruð-
um vegna þess að þeir hefðu ekki get-
að greitt fyrir meðferð við sjúk-
dómnum. Kínversk dagblöð birtu í
gær fyrirmæli sem banna að fátæku
fólki sé neitað um meðferð.
Efnahagurinn dregst saman
Að minnsta kosti 224 manns hafa
dáið úr sjúkdómnum í heiminum öll-
um og um 3.800 smitast. 94 hafa dáið í
Hong Kong, 92 á meginlandi Kína, 16
í Singapúr, 14 í Kanada, fimm í Víet-
nam, tveir í Taílandi og einn í Malas-
íu.
The New York Times sagði í gær
að HABL-faraldurinn ylli valda
mestu efnahagskreppu í Suðaustur-
Asíu frá fjármálakreppunni sem ríkti
í þessum heimshluta fyrir fimm ár-
um. Efnahagssamdráttar væri þegar
farið að gæta í Hong Kong, Singapúr
og Taívan. Blaðið hafði eftir hagfræð-
ingum að Malasía og Taíland yrðu lík-
lega næst og þenslan í hagkerfi Kína
væri farin að minnka, einkum vegna
samdráttar hjá þjónustufyrirtækjum,
svo sem veitingahúsum, hótelum,
flugfélögum og kvikmyndahúsum.
Embættismönnum vikið frá í Kína vegna HABL og dánartalan hækkuð
Óttast að stjórnin hafi
brugðist of seint við
Stefnir í efna-
hagskreppu í
Suðaustur-Asíu
Peking. AP, AFP.
Reuters
Starfskona alþjóðaflugvallarins í Peking, með andlitsgrímu til að verjast
HABL-smiti, við afgreiðsluborð sem hefur verið lokað vegna mikils sam-
dráttar í flugi til borgarinnar eftir að lungnabólgufaraldurinn braust út.
OLUSEGUN Obasanjo hafði í gær
náð miklu forskoti á helsta keppi-
naut sinn og virtist eiga sigur vísan
í forsetakosningunum í Nígeríu.
Þegar um 70% atkvæða höfðu
verið talin hafði Obasanjo fengið
rúmlega 62% greiddra atkvæða en
helsti andstæðingur hans, Mu-
hammadu Buhari, um 27%.
Obasanjo, sem er kristinn maður
úr suðurhluta Nígeríu, hefur verið
forseti síðustu fjögur ár en hann var
frambjóðandi hersins í kosningum
sem fram fóru 1999. Buhari, sem er
múslimi og úr norðurhlutanum, er
einnig fyrrum herforingi.
Eftirlitsmenn sögðu að kosning-
arnar hefðu að mestu farið frið-
samlega fram en fregnir af ofbeld-
isverkum bárust þó úr suðurhluta
landsins. Ásakanir um kosningasvik
gengu á víxl en mest bar á þeim á
olíuvinnslusvæðum í suðurhluta
Nígeríu. Þar fékk Obasanjo víða yf-
ir 90% atkvæða. Töldu eftirlitsmenn
og óháðir sérfræðingar það fylgi
lyginni líkast. Greinilegt væri að
„umtalsverð kosningasvik“ hefðu
átt sér stað.
Buhari sagði í gær að brögð
hefðu verið í tafli og gaf í skyn að
hann hygðist ekki una úrslitum
kosninganna.
Frá herstjórn til lýðræðis
Forsetakosningarnar nú þóttu
mikilvægur áfangi á leið Nígeríu-
manna frá herstjórn til lýðræðis.
Árið 1999 lauk 15 ára herstjórn með
kjöri Obasanjos í forsetakosningum.
Kosningarnar þá fóru hins vegar
fram eftir forskrift hersins. Þær
sem fram fóru nú um helgina eru
því fyrstu frjálsu kosningar í land-
inu í 20 ár.
Reuters
Olusegun Obasanjo, forseti
Nígeríu, á kjörstað á laugardag.
Obasanjo
öruggur
um sigur í
Nígeríu